Morgunblaðið - 08.12.1948, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 8. des. 1948*
Aiisnal bindi af
„Merkinn fslend-
ímaura" komið ál
ANKAÐ BINDI af ritinu „Merk
ir í,.:?ndingar“, er komið út,
etj fyrra bindið kom út á s. 1.
ári og var því þá mjög vel tek-
ið. í þessu öðru bindi eru 15
æfisöguþættir um merka Islend
ing • allt frá Hallgrími Pjeturs-
syni skráðir af samtíðarmönn-
um þeirra, eða þeim sjálfum.
Prófesacr Þorkell Jóhannesson
hefu' búið bókina til'prentunar
og krifað formála.
Þessir æfisöguþættir eru í
bindinu að þessu sinni: Hall-
gríniur Pjetursson, eftir sr.
Vigfús Jónsson, Skúlí Magnús-
snn. r-kráð af honum sjálfum,
M iguús Stephensen, skráð af
honurr sjálfum, Jón Þorláks-
SOn, eftir Jón Sigurðsson, Sig-
urður Pjetursson, eftir Arna
stiftprófast Helgason. Þorvald-
uj Eoðvarsson, skráð af honum
sjálfum, Páll Jakob Briem, eftir
Klemens Jónsson, Arni Thor-
SteinSSon, eftir Jón Þorkelsson,
Benedikt Gröndal, eftir Þor-
«teiu Gíslason, Hallgrímur
Svfetitsson. eftir sr. Jens Páls-
soji, Páli Melsted, eftir Boga
Th 'Melsted, Einar Ásmunds-
son, eftir Jón Þorkelsson, Björn
Jónsson. eftir Einar Hjörleifs-
son, Sveinbjörn Egilsson, eftir
Jón Árnason og Bjarni Thor-
steinrGon. skráð ut' honum sjálf-
U))l,
Méð flestum þáttunum fylgja
myudir af þeim, sem um er rit-
að' Bókirt er á sjötta hundrað
blaðsíður að stærð, og er frá-
gangur góður. Utgefandi er bók
felíaút, jfan.
Sf, .Jtjkislblómir
Sidtirvakin
Ólafsvík, mánudag.
Frá frjettaritara- vorum.
UNDANFARIN ár hefir starf
stúkunnar ..Jökulblómsins" leg
ið hiðri. Undanfarna daga hef-
i.r dvalist hjer í Ólafsvík sendi-
m:«ður frá Stórstúku íslands,
Páil Jónsson.
í gær hjelt hann fund með
bamastúkunni Ennisfjólu nr.
50, ssrr. starfað hefir ágætlega
undir forystu Þorgils Stefáns-
sonat, kennara, sem er gæslu-
tnaður stúkunnar. í gærkveldi
va« iúkan Jökulblómið endur-
vakiti, og gengu í hana 26 nýir
fjjelogar. sem flestir höfðu áður
Vorið meðlimir unglingastúk-
uniiar. Æðstitemplar var kos-
iþn Guðbrandur Guðbjartsson,
Ipeppstjóri. en umboðsmaður
stórf.emplars er sr. Magnús Guð
*»u,ud.sson,
• • • ' ”
I
lyfftídfengir í verkfalii
París í gærkveldi.
IFTUDRENGIR í Palais de
qi> bi tot. þar sem Allsherjarþing
S, Þ. situr nú- á rökstólum,
-gerðu. skyndilega verkfall í gær
óf' lcrefjast þeir hærri launa. —
fifiist er við, að verkfallinu
Ijúlti i kvöld. — Reuter.
6f!«a .. i'-.áSt
SHA .' GHAI — Það heíir nú ver-
ið. oij'iiberlega tilkynnt hjer, að
fipOi' manns hafi farist er skip
ejl' sökk undan ströndum Man-
sjú.íu snemma 1 nóvember.
áfúslssðnar og
di. Riwe
Hvítt'
GUÐMUNDUR ÁGÚSTSSON
Svarí:
DR. M. EUWE
TARRASH VÖRN
I. d4—Rf6: 2. Rí3—d5; 3.
c4—e6: 4. Rc3—c5;
Þessi vörn svarts er kennd
úið Dr. Tarrash, þekktan þýsk-
an skákmeistara. en er nú orðið
liíið tefld af sterkari taflmönn-
um.
5. c4xd5—Rxd5; 6. g3—Rc6;
7. e4.
Besti leikurinn, nú verður
svartur að' drepa Riddarann á
c3 og styrkja með því miðborð
hvíts.
7. RxR; 8. b2xR—c5xd4; 9.
c3xd4—e5.
Svartur reynir nú að flækja
stöðuna, en Guðmundur er á
verði gegn hættunni.
10. d.5—Bg4; 11. Be2.
Auðvitað ekki 11. d5xRc6,
vegna 11.....DxDf 12, KxD
— BxRt og svart vinnur.
II. Bb4f; 12. Kfl.
Eftir þenr.an leik getur svart-
ur verið ánægður með jafntefli
þar eð kóngsstaða hans verður
nú mjög hættuleg.
12. BxR; 13. BxB—Rd4: 14.
Da4t—Dd7; 15. DxB—RxB;
16. Kg2—Rd4; 17. Hbl—Dg4?.
Þessi síðasti leikur svarts er
rangur vegna þess að nú getur
Guðmundur unnið skákina með
því að leika Hrók til el, ef þá
18.. Df3t; 19. Kgl—Re2,t; 20.
HxR—DxH; 21. Ba2 og hvítt
vinnur.
13. Ba3?—Dxe-lf; 19. Kh3—
Ðf5|; 20. Kg2—Ðe4t; 21. Kh3
—Df5t: 22. Kg2—De4t.
Jafntefli.
Þjóðverjar mófmæia
Kiel í gærkvældi.
ÞUSUNDIR verkamanna hjer í
Kiel fóru í kröfugöngur í dag
til þess að mótmæla því, að
breskir nermer.n hafi nú hafist
handa uin niðurrif á tundur-
skeytaverksmiðjum þar skamt
frá.
—Reuter.
Róssar sfanda viS
samninga
London í gærkvöldi.
SKÝRT var frá því í breska
þinginu í kvöld. að Rússar
hefðu nu staðið við allar skuld-
bindingar sínar vegna timbur-
samningsins milli Bretlands og
Rússlands. er 'gerður var fyrir
árið 1948. — Reuter.
verði
í SUHlfÍQ
JÚLÍUS HAVSTEEN sýslu-
maður hefur verið staddur hjer
í bænum undanfarið og m. a.
setið stjórnarfundi Síldarverk-
smiðja ríkisins. Hann er nú á
forum norður á Húsavík. Hefur
blaðið átt stutt samtal við hann
um hagsmunamál Húsvíkinga,
en hann hefur unnið ósleitilega
að framfaramálum byggðarlags
Hitayeita verkefni
framtíðarinnar
Santlal vio Júlaus Havsleen sýslumann
sins.
Hæringur verði á Húsavík
á sumrin
— Hver eru aðaláhugamál
ykkar á Húsavík um þessar
mundir?
— Húsvíkingar hafa mikinn
áhuga fyrir því að síldarbræðslu
skipið Hæringur verði á sumr-
in stagsettur á Húsavík.
j — Mundi það ekki vera ó-
[ þarflega nálægt Raufarhafnar-
(verksmiðjunni?
j — Það hygg jeg ekki. Auk
j þess er öll aðstaða betri til þess
að hafa skipið á Húsavík. Ber
I þar einkum tvennt til. t fyrsta
lagi hefur Húsavík mjög full-
komna vatnsveitu, en það hefur
Raufarhöfn ekki.
í öðru lagi eru Síldarverk-
smiðjur ríkisins skuldbundnar
til þess. samkvæmt fyrirhpiti
frá 29. júlí 1942 eftir að hafn-
• argarður okkar er orðinn svo
langur, sem raun ber vitni um,
annaðhvort að greiða % þeirra
vaxta, sem höfnin greiðir af
skuldum sínum, en þeir munu
ekki nema lægri upphæð en 70
—100 þús. kr. á ári eða að vinna
að því að Hæringi verði ákveð-
inn þar viðlega á sumrin í stað
þeirrar síldarverksmiðju, sem
samkvæmt fyrrgi eindu sam-
komulagi var lofað að byggja
á Húsavík. En það var verk-
smiðja með 9—10 þús.. mála
afköstum á sólaihring.
Jeg fullyrði þessvegna að það
sje bæði með hag ríkisverk-
smiðjanna og Húsvíkinga, sem
jeg hefi beitt mjer fyrir því að
Hæringur yrði staðsettur á
Húsavík á sumrin.
Raforka frá Laxárvirkjun.
— Hvaða framkvæmdir
standa yfir hjá.ykkur?
— í sumar var lokið við að
leggja raftaugar frá Laxárvirkj
uninni til Húsavíkur. Höfum
við þannig fengið nægilegt raf-
magn til ljósa, suðu og hita. Er
geysi mikil bót að því að hafa
fengið það.
Hraðfrystihús i smíðum
— Hið nýja og myndarlega
Júlíus Havsteen, sýsíumaður.
hraðfrystihús, sem hreppurinn
og fjelög útgerðarmanna á
staðnum eiga í smíðum er nú
komið langt á leið. Er talið lík-
legt að það kosti minna en ráð
hafði verið fyrir gert. Er slíkt
fátítt á okkar dögum. Mun
verða mikil atvinnubót að þessu
nýja hraðfrystihúsi.
SundJaug á Húsavíkurhöfða
Þá hefur íþróttafjeiagið Völs-
ungur beitt sjer fyrir því að á
næsta sumri verði hafin bygg-
ing sundlaugar á innanverðum
Húsavíkurhöfða. Verður notað
til hennar 40 stiga heitt hvera-
vatn.
Einnig er í undirbúningi að
auka að miklum mun vatns-
veitu þorpsins og hefur Finn-
bogi R. Þorvaldsson prófessbr
haft með undirbúning þess
mannvirkis að gera. Hafa píp-
ur til leiðslunnar þegar verið
pantaðar. Vatnsbólin, sem þorp
ið fær vatn frá eru svo góð að
frá þeim mundi Hæringur geta
fengið 1500—2000 tonn af vatni
á sólarhring, en það er það
vatnsmagn, sem verksmiðju-
skipið þarfnast á sólarhring til
reksturs sins.
Hitaveita fyrir þorpið
og ný byggðahverfi.
— Hvað líður framkvæmd-
um í hitaveitumáli ykkar?
— Því miður hefur of lítið
gerst' í því stórmáli. Mjer virð-
ist ekki nægilegur skilningur
vera fyrir hendi á þeim glæsi-
legu möguleikum, sem hitaveita
frá hverunum í Reykjahverfi
hlyti að skapa Húsavík. En í
sambandi við slíkt mannvirki
ættu að mínu viti að rísa bygða
hverfi, sem hefðu full afnot jarð
hitans. Þarna eru ágæt ræktun-
arskilyrði, sem auðvelt er að
nota.
Hitaveita fyrir Húsavík og ný
byggðahverfi verður verkefní
komandi ára, segir sýslumaður
að lokum.
Inflúensu faraldur
í BreHandi
London í gærkveldi.
TALSMAÐUR breska heil-
brigðismálaráðuneytisins sagði $
dag, að mikil hætta væri nú á
inflúensu faraldri í Bretlandi,
samkvæmt skýrslum er breskir
læknar hefðu sent ráðuneyt-
inu. — Reuter.
Versiunarsamningar
vi^ 10 M
London í gærkvöldi,
í DAG kom hingað til London
norsk sendinefnd til þess að
hefja viðræður við Breta um
viðskiftasamninga milli land-
anna á árinu 1949. Bretar vinna
nú að því að semja um verslun
og viðskifti við 9 önnur lönd.
— Reuter.
París í gærkvöldi,
UNDIRNEFND, sem undanfarið
hefur haft umsókn Israel um
upptöku í S. Þ. til athugunar,
hefur nú vísað umsókninni aft-
ur til Óryggisráðsins, athuga-
semdalaust. — Reuter.
Búist við sigri Peron
BUENOS AIRES — Búist er við,
að Peron og flokkur hans munii
bera algjöran sigur úr býtum I
væntanlegum kosningum í Argen
tínu.
Húsavíkurliöfn