Morgunblaðið - 28.12.1948, Side 7

Morgunblaðið - 28.12.1948, Side 7
Þriðjudagur 28. des. 1948. M O R G V X B L A Ð I Ð 7 í Margrjeíar Þórðardólfur Fædd 7. apríl 1874. . Dáin 15. des. 1948, ! í DAG verður jarðsett hjer í bænum frú Margrjet Þórðardótt- ' ii, Stórholti 19. Hún andaðist. að heimili sínu 15. þ. m. j Frá Margrjet var fædd í Hafn- arfirði 7. apríl 1874 Árið '907 giftist hún eftirlifandi manni sín um, Sigurbirni Sigurðssyni af- greiðslumanni hjá Tóbakseinka- j sölu ríkisins. Þau hjónin eignuð-' ust átta börn, sem enn eru á lífi, öll uppkomin og hin mannvænleg ustu, auk þess fóstruðu þau tvo drengi. Mjer er þessi látna merkis- kona minnisstæð af mörgum á-! stæðum, en minnisstæðust er hún' mjer í hlutverki sínu sem móðir margra barna og húsmóðir á mannmörgu heimili í áratugi. Á þeim vettvangi rækti hún hlut- verk sitt, við hlið tryggs og góðs eiginmanns, með þeirri sæmd, * sem þeim konum einum hlotnast, er öllu fórna á altari þess starfs, sem tegnt er framtíðinni í upp- eldi barnanna. Fyrst man jeg eftir Margrjeti sál. á heimili hennar, umkringda fjölda barna. Hún bjó þá í ná- býli við fátækt og umkomuleys) annara mæðra og bama og þótl hún væri sjálf fátæk með óvenju lega stóran barnahóp, er varð að sætta sig við lág laun heimilis- föðurins, sem vann hörðum hönd um til þess að draga björg í bú, þá kom það oftar fyrir en vænta mátti eftir ástæðum, að hið ör- lynda brjóst hennar færði móð- urhöndunum þá skyldu að rjetta vannærðum leiksystkinum barn- anna sinna bita og sopa jafnt þeim sjálfum. Að þessu göfuglyndi húsfreyj- unnar sálugu, stóð eiginmaður hennar og aldrei þurfti hún að fara í felur með góðverk sín hans vegna, enda var hjónaband þeirra bæði langt og farsælt. Nú þegar vjer, sem þekktum frú Margrjeti, drúpum höfðum við leiði hennar, kveðjum vjer móður, sem hafði sigrað, ásamt eftirliiandi manni sínum, þá miklu erfiðleika, er jafnan verða á vegi fátækra foreldra fjölda barna. Hinn fjölmenni og mann- vænlegi hópur barna og tengda- barna, sem í dag kveður ógleym- anlega móður í hinsta sinni, hjerna megin fortjalds lífs og líkamsdauða er tákn tímanlegra launa sigurvegarans, móðurinnar, er með glæsilegum hætti bar uppi helgasta og þýðingarmesta hlut- verk hverrar konu. Eigi er fjarri að ætia, að raun- verulega iífsgæfu einstaklingsíns megi nokkuð marka af því, hve margir sakna hans, er hann hverf ur alfarinn frá oss. Baldur hinn góða vildu allir gráta úr Helju. Jeg hygg að auk hins óvenju- lega fjölmenna ástvinahóps, sjeu eftirlifandi vinir og kunningjar Margrjetar sálugu ærið margir, sem í dag kysu, að hún væri enn á meðal þeirra, lífsglöð eins og hún var, fyrirmannleg og góð- gjörn. Og ekki hvað síst myndu ástvinirnir mörgú kjósa, að móð- irin sta^ði enn við arin heir.iilis síns og stýrði með fórnfúsum höndum sínum, f jölskyldufagnaði jólanna og áramótanna. En enginn má sköpum renna. Dauðinn bregst ekki hlutverki sínu. En er hann ekki einmitt þjónn lífsins sjálfs? Er hann ekki leiðsöguandinn á hinni miklu skiftistöð, þar sem skilur um Stund á milli þeirra, sem lifa og deyja? Um þessar mundir fögnum vjer jólunum, fögnum boðskap þeirra um væntanlegan sigur lifsins yf- ir dauðanum. Að skoðun trúaðra manna og raunar allra, vanst sá sigur fyrir fórnarkraft þann, sem stýrði öll- um athöfnum krists á iörðu hjer. Hvað er þá líklegra en það, að fórnarlund sannrar móður sje sá kraftur, er öruggast innvinnur sjer sæluvist annars og æðra lífs? Jeg vil ljúka þessum fátækiegu kveðjuorðum í tilefni af fráfalli frú Margrjetar Þórðardóttur með því að bera fram þakkir mínar hjer fyrir góðar minningar um hana og heimili hennar, sem bæði jeg sjálfur, móðir mín og syst- kini eiga margt gott upp að unna. Margrjet Þórðardóttir. Jeg samhryggist eiginmanni Margrjetar sál., börnum og ást- vinum öllum á þessari stundu og ekki síst systur hennar Jórunni handavinnukennara við Kver.na- skóiánn, sem nú saknar langrar og góðrar samfylgdar i blíðu og stríðu. Loks tei jeg það vist, að sá skuggi er ber fyrir augu ástvina Margrjetar sálugu í dag, breytist í bjartasta sólskin, er þeir setjast við arin hinna mörgu og góðu minninga, sem hin látna eigin- kona og móðir skilur þeim eftir. „Ei er því að óttast sinn elskhuga Kristum sjálfur er borgaði og sálfur skal dæma. Sjá hve blíðlegá hinn blessaði rjettir íaðminn helgasta mót frómri .sálu." Árni Ágústsson. Fimfugsðfmæli í BÓKINNI Austurland bls. 206 eru talin upp nöfn á börnum Isleifs á Geirúlfsstöðum. Er sagt frá því að Kristín dóttir hans, hafi.verið gift Finnboga Áma- syni frá A.rnheiðarstöðum. — Þetta er eklti rjett. Hún var gift Jóni Finnbogasyni Árnasonar. En ættfræðingar segja sitt á hvað um uppruna Árna. Einn ségir hann ættaðan úr Há- skrúðsfirði, annar frá Arnheið- arstöðum. Svo get jeg frætt Benedikt Gíslason frá Hofteigi á því að Jón Finnbogason varð hrepp- stjóri á eftir Hallgrími á Stóra- Sandfelli og á eftir Jóni tók við hreppsstjórn Arnfinnur sonur hans. Með þökk fyrir birtinguna. Sonarsonur Kristínar og Jóns Finnbogasonar Jón Bjarnason. I DAG er 50 ára frú Anna Frið- riksdóttir kona Sveinbjörns G. Jónssonar húsgagnameistara, Miklubraut 36. Frú Onnu mun í dag berast margar árnaðaróskir j á þessum tímamótum. Anna er ein af þeim íslensku konum, sem I ávalt er boðin og búin að rjetta hjálparhönd, hvenær sem með þarf, og hver sem í hlut á. Einnig er hún mesta hagleiks , kona og hefir í mörg ár rekið saumastofu, hafa þar farið sam- an mikil afköst og vandvirkni. Gestrisni á heimili frú Önnu' er mikil. Þar er tekið á móti öllum með vinarhug, sama hvort í hlut eiga skyldir eða vanda- j lausir, enda munu þeir ekki marg ir dagar ársins, sem ekki dvelur f á heimilinu aðkomufólk, og sumt langdvölum. Það segir sig því sjálft, að frú Anna er vinmörg kona. Með starfi sínu og fórnfýsi hefir hún aflað sjer trausts og órjúfanlegr- ar vináttu, því veit jeg að allir þeir er frú Anna hefir haft ein- hver kynni af munu taka undir þá ósk, að framtíðin megi verða björt og hlý, og að starfskraft- ar megi endast svo hún geti unn- ið að hugðarefnum sínum. S. Þ. La Beach hteypur !B. á fO.t sek. SAMKVÆMT frjettum, sem borist hafa hingað, hefir Pan- ama-spretthlauparinn Lloyd LaBeach sett nýtt heimsmet í 100 m. hlaupi. Rann hann skeið ið á 10,1 sek., sem er 1/10 sek. betri tími en fyrra met Banda- ríkjamannanna Jesse Owens og H. Davis. Vann LaBeaeh þetta afrek á móti í Bandaríkjunum. LaBeach er því orðinn heims methafi bæði í 100 og 200 m. hiaupi. Á Olympíuleikunum s.l. sumar vrar hann þriðji í báðum þessum greinum. Loffbrúin 6 mánaða Wiesbaden í gærkv. BANDARÍSKAR og breskar , flugvjelar fluttu 6430,4 smá- j lestir af vústum til Berlinar s.í. j sólarhring, og hefir aðeins einu sinni áður verið flutt jafnmikið til borgarinnaí- á jafnskömm- um tíma. I gær voru nákvæm,- ■ lega sex mánuðir síðan loftbrú- in hófst. Hafa breskar og banda , rískar flugvjelar þá alls flutt 1700172 smálestir af vistum til j borgarinnar í 96640 ferðum. Á þessum tíma hafa 17 bandarísk- ir flugmenn iátið lífið og sjö . breskir. — Reuter. BRUSSEL: — Um það bil 20 þús. Belgar, er starfa í frönskum verk- smiðjum og gerðu verkfall fyrir hálf- ura mánuði síðan, hjeldu nftur til vinnu sirrnar í dag. . JÓLAFAGNAÐUR aðkom- inna sjómanna, sem sjómaima- stofan í Tryggvagötu 4 sá um, var haldinn á jóladaginn kl. 6 til 11 síðd. í Ingólfscafé. Um 60 íslendingar og nálega 30 er- lendir sjómenn þáðu boð.ið. — Voru þar Danir, Finnar og Norð menn, einn Færeyingar, einn frá Möltu, einn eða tveir frá Eyjaálfunni og einn svartur, Móses hjet hann, og átti heima í Afríku, — ekki veit jeg land- ið. Elsti gesturinn var 46 ára, en sá yngsti 12 ára. Gestirnir fengu jóladagverð og að skilnaði kaffiveitingar, allt prýðilega úti lát'ð hjá veit ingastofunni. Kjartán O. Bjarnason sýndi góðar myndir frá Mývatni og aðrar ágætar frá fuglalífi og fuglaveiðum í Vestmannaeyj- um. Ræður fluttu sjera Friðrik Friðriksson dr. theol. og sra Sigurbjörn Á. Gíslason og af gesta hálfu Færeyingur og Finni. Gestirnir fengu allir jóla- pakka með sjer og daginn eftir allir þeir, sem voru um borð í finnska, danska og norska skipinu sem hjer eru stödd. „Sjómannamissiónin“ dansk-a? hafði sent oss inn 80 iólapakka, rúmir 30 þeirra voru farnir tH skipi, er hjeðan fór til Spánar* rjett íyrir jólin. Rauði kroso ís- lands sendi Sjómannastofunni 1000 kr. upp í kostnaðinn vi'íl jólapakkana, sem Sjómanna- stofan sjálf bjó út, voru ýmist vetlingar eða sokkar látnir í þá böggla. 2 bögglar komu frá bæjarmönnum. Þorvarður Björnsson hafn- sögumaður stjórnaði fyrri hlut» samsætisins, en undirritaður síðari hlutanum ásamt með for- stöðumanni Sjómannastofunn- ar Axel Magnússyni. Þegar jeg kom þangað uni [ 8 leytið og *-it yfir rnannvngn- lega sjómannahópinn, er var a<3 ijúka jólamatnum, óskaði jeg þess að unnt hefði verið a<3 senda með sjónvarpi greiniléga mynd . af salnum til heimiiu þeirra fjær og nær. Jeg ér nokkurn veginn viss um að síl mynd hefði vakið gleði og þakk læti bæði innan lands og utan til allra þeirra, sem hjer áttu hlut að máli. Sigurbjörn .4. Gíslason. Minnnng Jórunnar Jónsdóftwr I DAG verður borinn til moldar, í kirkjugarði Stokkseyrar líkami hinnar miklu merkiskonu Jór- unnar Jónsdóttur. Hún var fædd hinn 28. sept. 1864 að Hólakoti í Hrunamannahreppi, dóttir hjón- anna Guðrúnar Bjarnadóttur og Jóns Jónssonar. Hjer verður ekki sögð ítarleg æfisaga, því að til þess þyrfti heila bók. En það mætti verða góð bók og fögur — og gagnleg hverjum þeim, sem ýtir úr vör, „með fermi af skínandi vonum“, en á hamingju sína að sækja út fyrir skerjagarð allra mannlegra erfiðleika og sorga. Ung giftist Jórunn Bernharði bónda Jónssyni á Keldnakoti við Stokkseyri, ágætum manni. Þar stýrði hún heimili hátt á þriðja tug ára, með þeim tíguleik og hjartans höfðingsbrag, sem mjer finnst hafi einkennt marga frænd ur hennar og samtíðarmenn úr Hrunamannahreppi. — Þar fæddi hún og ól upp sinn fríða og vel gefna barnahóp, 3 dætur og 2 sonu, hjúkraði gamalmennum og hýsti gesti og gangandi. Var hún, og þau hjón bæði, allra manna gestrisnust og veitulust — miðað við efnahag. — Þar kynntist jeg móður hennar, merkilegri gæða- og gáfukonu, föðursystur hinna góðfrægu Galtafellssystkina, en föður sinn hafði Jórunn misst í bernsku. Jórunn og Bernhard voru ná- grannar og miklir vinir foreldra minna frá því jeg fyrst man eft- ir. — Var það jafnan mikil hátíð fyrir okkur börnin að heim- sækja þetta fólk eða fá þaðan gesti. Og það var ekki vegna ytri allsnægta, hve oft maður fór af fundi Jórunnar auðugri og betri en maður kom. Þau hjónin brugðu búi vorið 1917 og fluttu þá að Garðbæ á StokkseyrL Þar andaðist Bern- hard árið 1927. Eftir það flutti Jónmn með börnum sínum hing- að til bæjarins og dvaldi hjer síðan. .Sjúkdómar og harmar sneiddu ekki hjá garði hennar. Mánuð- um — misserum — jafnvel ár- um saman stundum, lá hún rúm- föst — oft stórum þjáð. — Þessi hjartaheita, fórnfúsa móðir varð árum og áratugum saman- að horfa upp á þjáningar barna' sinna, án þess að bóta væri auð- ið. En einmitt í sorginni komu eðliskostir hennar best í ljós. Ró~ semi hennar, trúarþrek og heil- indi hugans. Enginn vandalaus hefur kennt mjer betur en hún, hvernig ytra tjóni má snúa í innri sigur. Hún átti líka mörg og hjartfólg in gleðiefni. Persónuleiki henn- ar var þannig, að flestir, ef ekki allir, sem kynntust bfenni, hlutu að virða hana og elska. Astríki barnanna og umhyggja fyrir henni var framúrskarandi, ekki síst yngra sonarins, Kristins, sem aldrei skildi við hana og hún átti heimili hjá til hinstu stund- ar, og hans ágætu konu, Salóme Jóhannsdóttur frá Bálkastöðum í Miðfirði. Önnur börn Jórunnar eru þau Ingimundur, búsettur í Vest- mannaeyjum, Jóhanna húsfreyja á Eyrarbakka, Bjarnheiður sjúk- lingur og Jarþrúður húsfreyja á Hver'fisgötu 42 hjer í bæ. Yfir minningu þessarar fágætu konu mun verða mikil fegurð 4 hjörtum barna hennar og afkom- enda allra — og okkur hinna, sem nutum þeirrar gæfu að eign- ast hana að vini — nú, þegar hún er horfin sjónum okkar inn til binnar himnesku jólagleði. jarþrúffmr Einarsdóttir, Samtúni 30.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.