Morgunblaðið - 19.01.1949, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.01.1949, Blaðsíða 1
16 síður 36. árgangur. 14. tbl. — Miðvikudagur 19. janúar 1949. Prentsmiðja Morgunblaðsins eykjavík hefir fnlla Fllifku É Sf REYKJAVÍK, Hafnarfjörður og Suðurnes fcngu fulla raforku ( ný um 5 leytið í gærdag, en þá var lokið viðgerð á Sogslín- i;nni, sem hafði verið biluð frá því á öðrum tímanum s.l. sunnu- tíagsnótt. Var miklum erfiðleikum bundið að reisa staura í stað þeirra tveggja, sem brotnuðu, vegna ófærðar og veðurofsa. — urðu viðgefðarmenn hvað eftir annað að hætta við vinnu sökum veðurs og leita til sæluhúss Ráfveitunnar, skammt frá Jóru- kleif, þar sem bilunin varð. Er nú von til að full raforka haldist, r.ema eiíthvað óvenjulegt komi fyrir á ný. 17 manna vinnuflokkur Þeir voru flestir 17 í vinnu- flokknum sem fór til að gera við bilunina og reisa við staura í stað þeirra, sem brotnuðu. •—■ Annar stauranna stóð upp úr 2 Vá metra en hinn 4 metra. -— Var viðgerðinni hagað þannig, að nýir staurar voru festir við bútana með boltum, þar sem ekki var gerlegt að grafa nýja staura, vegna frosts í jörðu og fannkyngis. Er talið að þessi viðgerð muni duga vel. Miklir erfiðleikar Klukkan 2 í gærdag náðist símasamband hjeðan úr bænum við viðgerðarmenn. Þeir sögðu þá frá, að í fyrrinótt hefði þeim tekist að reisa við hina nýju staura. Var því verki lokið kl. 10 í gærmorgun, en þá neydd- ust viðgerðarmenn til að hætta vinnu sökum óveðurs. Var þá eftir að hengja upp línurnar og var hægt að byrja á því verki klukkan 2 og var lokið um kl. 4.30. Aðstaða var erfið til viðgerð ar m. a. vegna þess, að ekki var hægt að koma við neinum v.erk færum til að ljetta vinnuna og urðu viðgerðarmenn, að notast við handaflið og smáverkfæri. Mittisdjúpur snjór var á þess- um slóðum. Þriggja klst. gangur í slæmu færi Sæluhúsið, sem Rafveitan á er það lítið, að ekki gátu allir í vinnuflokknum lagst tij svefns nje hvíldar í einu, og urðu að skiftast á. FeÞðagarp- ur. sem var á vegum Ferða- skrifstofunnar færði viðgerðar- mönnunum mat í gær og bónd inn á Heiðabæ hjálpaði til með flutninga. 14 af hinum 17 mönnum voru starfsmenn Raf- veitunnar, en þrír frá Rafmagns eftirliti ríkisins. Viðgerðarmenn fóru frá sælu húsinu um 6 leytið í gærdag og áttu þá eftir þriggja klst. gang í erfiðu færi að Heiðabæ, en þaðan ætluðu þeir í bíl til Reykiavíkur í gærkveldi. Var allsæmileg færð á Mosfells- heiðarvegi er síðast frjettist. Msliif fellur í gegn- um þakglugga og Mðir hana uf UNGUR maður ljest af slysförum hjer í bænum í fyrradag. Hann fjell niður um þakglugga og beið bana af. Þetta sviplega dauðaslys varð í húsi Steinsteypunnar h.f. við Vitatorg. Slysið varð um kl. 10 á þriðju dagsmorgun. — Maðurinn sem beið bana hjet Jón Óskar Ás- geirsson til heimilis að Sörla- skjóli 48. Var að sópa snjó Jón Óskar var að sópa snjó af þakgluggum hússins, en það var gert til að geta notað dags- ljósið við vinnu, því rafmagnið hafði þá verið tekið af hverfi því sem Steiðsteypan er í. Þak hússins er flatt og var Jón Óskar búinn að sópa af nokkrum þakgluggum. Samstarfsmenn Jóhs Óskai's vissu ekki fyrr en að rúða í einum glugganna brast og fjell Jón Óskara inn og skall á stein gólf. Þegar komið var að Jóni var hann meðvitundarlaus og án tafar var hann flilttur í Landsspítalann, en þar ljest hann um kl. 2 á þriðjudag. Fallhæðin er um fjórir metr- aar. Mönnum er það með öllu óskiljanlegt hvað orsakað hafi slysið, því þakgluggarnir stoðu allir upp úr snjóbreiðunni. Jón Óskar Ásgeirsson var að- eins 23 ára að aldri. ¥IN NEITAR AB FLYTJA KÝRSLU UM PALESTÍNU Alexander Papagos hefur verið skipaður yfirhers- höfðingi Grikkjahers. Hann hlaut.frægð fyrir að sigra ítali er þeir gerðu innrás í Grikk- land frá Albaníu í síðasta stríði. SAMKVÆMT skeyti frá frjetta ritara Morgunblaðsins í Höfn, var skýrt frá því í dönskum blðum í gær, að Bjarna Bene- diktssyni utanríkisráðherra hefði verið boðið að tbka þátt í fundi norrænna utanríkisráð- herra, sem haldinn verður í Oslo 28. þ. m. Morgunblaðið hefir aflað sjer upplýsinga um, að utan- ríkisráðherranum hefir borist slíkt boð. Umræður um máíi& £ hresku þiasffiuu 11 þús. Gyðingar á Cyprus Sii Palestínu London í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. BRESKA þingið kom saman til fundar í dag, í fyrsta sinn á þessu ári. Ernst Bevin, utanríkisráðherra, neitaði að gefa neðri deildinni nákvæma skýrslu um Palestínu-málið, en búist var við því, að hann myndi í dag svara árásum þeim, sem stjórnar- andstaðan hefur undanfarið gert á stefnu hans í því máli. — Sagðist hann mundi flytja skýrslu þessa í næstu viku. Bevin kvað óheppilegt, að umræður færu fram um Palestínu-málið að svo stöddu, vegna samninga þeirra sem nú stæðu yfir milli Fgypta og Gyðinga á eynni Rhodes. Vongóður um árangur viðræðnanna á Rhodes „Ásamt Bandaríkjunum höf- um við gert alt sem í okkar valdi hefir staðið til þess, að viðræður þessar bæru góðan á- rangur“, sagði Bevin „og er alt útlit fyrir, að samkomulag ná- ist“. Hann kvað það geta trufl að þessar viðræður ef tekið yrði að ræða Palestínumálið í breska þinginu að svo stöddu. Gyðingar á Cyprus til Palestínu Þá skýrði Bevin frá því, að breska stjórnin hefði samþykt að Gyðingar þeir á herskyldu- aldri, sem verið hafa í haldi á Cyprus, skyldu fá leyfi til þess að fara til Palestínu þegar er Gyðingar gætu sjeð þeim fyrir farkosti þangað. Nú er það því Bunche, sáttasemjari S. Þ. í Palestínu, sem sker úr úm það, hvort þessir 11 þús. menn fá að fara til Palestínu eða ekki. Churchill gagnrýnir Churchill gagnrýndi þessa ákvörðun stjórnarinnar harð- lega. Varpaði hann fram þeirri spurningu, hvort Bretar veittu nú lið báðum deiluaðilum í Palestínu, þar eð þeir hefðu Framh. á bls. 12 Hersveifir sfjórnarinnar búasf fil varnar í Hankino Rússneski sendiherrann kveis! fylgja sfjórninni iil Canlon Nanking í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. HERSVEITIR kínversku stjórnarinnar búast nú til varnar í Nanking, en allt samband milli höfuðborgarinnar og staða, sem eru meira en 80 km. fyrir norðan hana, er nú rofið. Ekkert símasambgnd hefur verið milli Pengpu og Nanking í meira en sólarhring. Leiótogar Indónesíu og Hollands ræðasf við Batavia í gærkveldi. DR. SJAHRIF, fyrrum forsæt- isráðherra indónesiska lýðveld isins, ræddi í dag í 90 min. við dr. Willem Drees, forsætisráð- herra Hollands, í Bataviu. — Sendiherra Breta var einnig viðstaddur viðræðurnar. — Að þeim loknum sagði Sjahrif, að ekkert hefði verið ákveðið um framtíðina. Hann kvað viðræð- urnar hafa verið „óformlegar og persónulegar“. — Sjahrif var handtekinn ásamt öðrum leiðtogum indónesíska lýðveld- isins, er Hollendingar hófu „lögregluaðgerðir" sínar þar í landi, en var látinn laus fyrir skömmu. — Reuter. 10 leiðtogar verði framseldir Samkvæmt áreiðanlegum heimildum hjer í Nanking, krefj ast kommúnistar að framseldir verði 10 leiðtogar stjórnarinn- ar, auk „stríðsglæpamannanna ‘ ef þeir eigi að hef ja friðarsamn- inga. — Friðarnefnd sú, sem send var frá P^iping í gær, er ekki enn komin aftur til borg- arinnar. Rússar fylgja Kuomintang-stjórninni Rússneski sendiherrann í Nanking, Roechin, tilkynti kín- verska utanríkisráðuneytinu í dag, að Rússar myndu flytja sendiráð sitt til Canton, ef kín- verska stjórnin flytti suður á bóginn. Sendiherrar Tjekkosló- vakíu og Póllands tilkynntu einnig ráðuneytinu, að þeir Framh. á bls. 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.