Morgunblaðið - 19.01.1949, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.01.1949, Blaðsíða 14
14 MORGVISBLAÐIÐ Miðvikudagur 19. janúar 1949« eftír TRMK var eins og hún væri orðin ró- legri. Hún hafði ekki horfið að heiman síðan snemma um vor- ið 1695. Þá hafði hún verið fjar verandi um tíma, en komið svo aftur og stjórnað síðan endur- hyggingu á búgarðinum. Nú var komið langt fram í júlí og verkinu var senn lokið. Sykurreyrinn var orðinn há- vaxinn á frjósömum ekrum Jiennar. Þrælar henryar voru feitir og þrifalegir og sungu oft við vinnu sína, en það var sjalfgæft á nágrannabúgörðun um. Hvaðan svo sem allir þess ir peningar komu, var auð- sjeð, að auður hennar fór stöð- ugt í vöxt. Það varð til þess að biðlarnir urðu enn ákafari. Er þó voru margir, sem báðu hennar aðeins vegna hennar sjálfrar. Hún leit upp að húsinu. — Tveggja mílna þráðbeinn veg- ur lá upp að því. Hún hallaði sjer áfram í stólnum. Það vildi jeg að guð gæfi, að það væri ekki lengra á milli mín og raannsins, sem jeg elska, hugs- aði hún. Hún hnyklaði brúnir. Ef hún væri út á rúmsjó og skyggnið væri lítið, gæti Kit verið innan íveggja mílna svæðis frá henni, og hún þyrfti ekki að hafa minnstu hugmynd um það. Það var barnaleikur að íinna saumnál í heystakk, sam anborið við að finna skip úti á rúmsjó, þegar hún vissi ekkert um stefnu þess eða birgða- stöðvar. , Birgðastöðvar! Hún þaut á fætur og greip báðum hönd- um um kinnar sjer. Mikill bölvaður kjáni gat hún verið. Hvers vegna hafði henni ekki dottið það fyrr í hug? Kit hafði siglt frá Saint- Domingue með Ducasse. Meðal annars hafði það líka komið í ljós við rjettarhöldin þegar )sann var dæmdur til henging- ar ásamt öllum skipverjunum, að hann var vinveittur Frakka konungi. Auðvitað hefði hann birgðarstöðvar einhversstaðar á Saint-Domingue, á Martini- que eða Guadelope. Kit hafði verið með Ducasse og Ducasse var landsstjóri á Saint-Domin gue, svo að rjettast mundi að leita til hans. Hún rauk af stað upp að hús inu. Loksins mundi hún geta fengið einhverjar frjettir af Kit. Það var aðeins nokkur hundruð sjómílna breitt sund á milli Jamaica og Saint-Do- mingue. Hún mundi ekki sitja lengur auðum höndum. Ef guð væri með henni og Frakkar væru jafn kurteisir við kven- fólk og orð fór af — þó að ltonan væri frá óvinaþjóð — þá mundi hún bíða Kit Gerado í þeirri höfn, sem hann mundi koma til fyrr eða síðar. Hún varð gagntekin fögnuði við hugsunina. Þegar hún kom til svefnher- bergis síns, reif hún utan af sjer silkikjólinn í miklum flýti. Síðan opnaði hún kistu, sem stóð í herberginu, og opn- aði hánn með lykli. Fyrst tók hún upp úr henni gríðarstóra eyrnarhringi úr gulli og festi þeim í eyru sjer. Hún vatt rauðum silkiklút úrh nai'’ si'tx, 59. dagur smeygði sjer síðan í tötralega skvrtu og stuttar drengjabux- ur. Hún var ekki komin í stíg- vjelin, þegar trúnaðarþræll hennar barði að dyrum. Hún hafði sent herbergisþernu sína eftir honum. Þrem mínútum síðar kom hann á harðahlaup- um út úr herberginu hennar og hljóp niður í hesthúsin og fór að leggja á tvo hesta. — Lafði Jane var að draga stíg- vjelin upp granna fótleggi sína, þegar hann lagði af stað á þeysi reið í áttina til Port Royal. Þar þaut hann á milli sóðaleg- ustu veitingakránna niðri við höfnina og hvíslaði einhverju í eyra sjómannanna sem sátu þar að sumbli. Þeir ruku þeg- ar á fætur, svo að margar veit- ingakrárnar urðu næstum mannlausar á augabragði. — Þegar dimma tæki mundu þeir læðast aftur út á götuna vopn- aðir byssum og hnífum og fylgja trúnaðarþræli hennar þangað sem hún hafði mælt sjer mót við þá.‘ Jane Golphin vissi, að þeir mundu bregða skjótt við og hún brosti við tilhugsunina. ,.Ó, Kit minn, elsku Kit, þú varst einu sinni með þess- um Ducasse", sagði hún í hálf- um hljóðum við sjálfa sig. „Guð gefi, að þú sjert með hon um ennþá“. Hún þaut niður stigann og stökk á bak hestinum, sem beið hennar. Síðan geistist hún af stað eftir þjóðveginum í átt- ina þangað sem „Máfurinn“ lá falinn á milli kletta. Fimm dögum síðar komst allt í uppnám á friðsamlegu landsbýli Jean-Baptist Du- casse landsstjóra. En hann var fljótur að átta sig á því, hvern ig á því stóð. „Kvenmaður“, tautaði hann. „Enskur kvenmaður? Þá hlýt - ur hún að vera njósnari. Takið hana strax og hengið hana“. Foringi landvarnaliðsins brosti í kampinn. ,.Ef jeg mundi láta hengja svo fagra konu, er jeg hræddur Um að jeg þurfi seinna að svara til saka fyrir landsstjóranum“, sagði hann. Ducasse leit upp og kímni- glampa brá fyrir í augum hans. „Er hún falleg? Já Englend- ingarnír eru engir kjánar. Þeir hafa vit á því að senda okkur ekki neina fuglahræðu. Nei, fegurðardís mundi vera þeim gagnlegri. Þeir þekkja okkur Frakkana“. Foringinn hneigði sig „Feg- urðardís, segið þjer? Jeg full- vissa yður um, að hún er feg- urri en nokkur fegurðardís, sem þjer hafið augum litið., Ducasse gat ekki varist hlátri. „Ef málinu er þannig varið“, sagði hann, „þá er það kannske ekki fyrir neðan virð- ingu mína að skoða gripinn sjálfur“. „Landsstjórinn þekkir skyldu störf sín“, sagði foringinn bros- andi. „En jeg ætla að leyfa mjer a^ taka það fram, að það 'ef ékki' oft, sem landsstjórinh hefur tækifæri til að vinna svo ánægjuleg skyldustörf“. „Þjer kunnið að koma orðum að hlutunum", sagði Ducasse. „Hvar er hún?“. „Hún er í anddyrinu og bíð- ur þar eftir áheyrn hjá lands- stjóranum“. „Vísið þjer henni inn, mað- ur. Vísið þjer henni strax inn“. Ducasse hafði rjett tíma til að strjúka lokkana á hinni gríðarstóru hárkollu sinni, áð- ur en Rouge gekk inn. Hún var í grænum kjól úr dýrindis silki með grænan hatt og stóra páfagauksfjöður í honum. — Hún hneigði sig djúpt fyrir landsstjóranum um leið og hún kom inn. Ducasse var veraldar vanur maður en þó varð hann sem steini lostinn. Þó náði hann sjer brátt. „Það er ekki hægt að segja annað en að landsmenn yðar heiðri fegurðartilfinningar okkar, með því að senda yður til okkar“, sagði hann. Rouge brosti. „Enginn hefur sent mig‘í, sagði hún. „Jeg kem hingað á eigin vegum og í einka erindagerðum“. Ducasse hristi höfuðið. „Jeg er gagntekin af fegurð yðar“, sagði hann, „en jeg er ekki svo gagntekinn, að mjer detti í hug að trúa þessari kjánalegu lyga- sögu“. Rouge'stirðnaði. Hún leit upp og horfði beint í augu lands- stjórans. „Ef þjer vilduð hlusta á mál mitt ....“, byrjaði hún. ,Mjer er sönn ánægja af að heyra rödd yðar“, sagði Du- casse. „Hún er blíð og fögur eins og þjer sjálfar. Haldið þjer áfram“. ~ „Einn af landssetum yðar er ungur skipstjóri að nafni Cristopher Gerado, er ekki svo?“. „Christophe“, sagði Ducasse, „vissulega. Eruð þjer kunnug- ar honum?“. „Hvar er hann?“, sagði hún. „Segið mjer, hvar hann er. Þjer veitið mjer lífshamingj- una á ný, ef þjer fylgið mjer til háns“. „Hann er ekki hjerna“, sagði Ducase. „En hann tekur birgðir í Petit Goave og hann kemur oft þangað“. „Þá ætla jeg að bíða“, sagði Rouge. „Þó að jeg þurfi að bíða í hundrað ár þá skal jeg bíða hans þar“. Ducasse virti fyrir sjer fag- urt, andlit hennar. „Og þjer haldið að jeg muni leyfa yður, frá óvinaþjóð, að dveljast á mínu yfirráðasvæði?“, sagði hann. Rouge rjetti biðjandi út höndina. „Gerið það fyrir mig, lávarður minn, að senda mig ekki í burtu“, sagði hún með tárin í augunum. „Ef þjer hald ið, að jeg hafi komið hingað til að vinna Frökkum eitthvert mein, þá setjið mig í fahgelsi. Jeg mundi fara þangað með glöðu geði, en þjer megið bara ekki senda mig í burtu .... Jeg .... Jeg elska hann svo innilega. Án hans get jeg ekki lifað .... Hafið þier nokkurn tímánn orðið ástfanginn?“. í leit að gulli eftir M. PICKTHAAi En Leifur vissi, að það var of seint. Hann lokaði augunum og bjóst við að fá höggið á hverri stundu. Snöggt högg af hrammi villidýrsins. Hann sá ekki mannveruna, sem hafði skriðið út úr ræksn- unum af tjaldinu. Þessi mannvera greip byssuna af jörðinni, stóð síðan upprjett og miðaði. Skotið reið af. Björninn sneri við og ætlaði að ráðast á þennan nýja óvin. Maðurinn miðaði þá aftur. Annað skot reið af og björninn fjell dajiður til jarðar. Leifur hafði aftur litið upp og hann sá, að Brown, riðaði nokkra stund með byssuna í höndunum. Síðan fjell hann við. Leifur hljóp yfir dauða björninn, lagðist á hnje við hlið Browns. Það leið nokkur tími, þangað til hann opnaði augun. Þá sá hann lækninn lúta yfir sig. Brown brosti ánægju- lega. — Það var gott, að jeg kom nógu fljótt, sagði hann. En við erum ekki kvittir ennþá. jflflje2T l^yru-i — Hvað ertu að gera mað- ur? t — Sagði málfærslumaðurinn kannske ekki, að við ættum að skifta innbúinu til helminga. ★ Mark Twain kom eitt sinn inn í vinnustofu málarans Whi- stlers og var að skoða myndir hans. Hann snerti eina þeirra með fingrinum, en þá hrópaði málarinn: „Komdu ekki við hana, get- urðu ekki sjeð, að hún er blaut.“ „Það gerir ekkert, jeg er með hanskaý svaraði Twain eins og ekkert hefði í skorist. i ★ Stonewall Jackson sendi eft- irfarandi skeyti til hermálaráðu neytisins. — Sendið mjer fleiri menn en færri spurningar. í fyrsta sinn eftir langan hjú- skap fór frú Smith fram á það við mann sinn, að fá að fara með honum í veiðiför. Þegar þau komu að ánni, sett- ist mr. Smith þar niður og renndi og hafði eins hljótt og hann gat. Sama var að segja um fylgdarmanninn, en frúin Ijet dæluna ganga og spurði um þetta og hitt. Allt í einu kom hún auga á olíurák, sem lá þvert yfir hylinn. Hún kallaði til fylgdarmannsins: — Halló, halló, hvaða rák er þetta þarna? — Hvar, frú? spurði fylgd- armaðurinn. — Þessi þarna yfir frá. — Ó, þessi, sagði fylgdarmafr urinn, þetta er slóðin frá því í vetur, þegar áin var lögð, þá var farið hjer yfir á ísnum. «. ★ Ryan erkibiskup var eitt sinn á gangi x Baltimore, þegar maður nokkur snjeri sjer að honum. Manninum fannst hann endilega kannast við erkibiskup inn, en gat ekki munað eftir því, hvar hann hefði sjeð hann. — Hvar í helvítinu hefi jeg sjeð þig? spurði hann því. — Ja, það fer eftir því, hvað- an úr helvíti þjer komið, svar- aði biskupinn. ■miiiiiuiiiiiiiiiiiiaiiinin Píanó Gott Píanó til sölu á Tún götu 36, eftir kl. 7 e. h. Stanz-v]el | Er kaupandi að Stanz- | | vjel (hanslaugsvjel eða | | mótordrifin). Nafn og | | heimilisfang sendist afgr. | I Mbl. fyrir laugardags- 1 } kvöld, merkt: „Stanzvjel s 560“. I •«IIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIl«**Maiii**aMi*<««iliaillllll||i|||||||||«i I Óska að | [ KYNNAST STÚLKU I | á aldrinum 30—36 ára. i | Þarf að vera mjög mynd | I arleg í sjer og vönduð, 1 I má vera myndarleg ekkja = i sem hefði helst húspláss i 1 til vorsins. Þær, sem i i vildu sinna þessu, sendi i i nöfn og heimilisfang, i | helst mynd, til Morgun- | i blaðsins fyrir föstudags- i i kvöld, merkt: „Góð fram- | tíð—656“. i .«•**•• •• "'mutn l ÓLAFUR PJETÚRSSON, | i endurslcoðandi, 1 Freyjugötu 3, sími 3218. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.