Morgunblaðið - 19.01.1949, Side 16
SAMTAL við Thors Thors
xTEDURÚTLITTÐ: FAXAFLQI:
Korö-vestan og vestan kaldi.
Snjójel. en hjart á milii.
Skipshöfnin
nrpr lireskam
tognra
Glæsiíeg! björgunarafrek í stórsjó og
náHaiyrkri
SKIPSHÖFNIN á togaranum Röðli frá Hafnarfirði, vann fynr
nokkru síðan óvenjulega' glæsilegt björgunarafrek í stórsjó og
pfcormi á hafi úti. Röðull bjargaði tii hafnar breskum togara og
áhöfn hans 18 manns, *n togari þessi var á reki stjórnlaus
undan sjó og vindi milii Færeyja og Skotlands. Skipstjórinn á
Röðli og skipshöfn hans sýndi mikla dyrfsku og hætti lííi
eínu við björgun hinna bresku sjómanna.
Þetta gerðist í síðustu sölu-®
ferð Röðuls til Bretlands föstu-
daginn 8. jan. s.l. Þá var Röðull
ó leið til Grimsby með afia
Einn.
ROS-SOS
Um klukkan 8 að kvöldi föstu
dagsms. var loftskeytarnaður-
»i iá Röðli, Gunnar Símonar-
Kor., við tæki sitt. Þá heyrir
Ratm neyðarmerki á breskum
togara, Carmound Island frá
Huli. Togari þessi var þá stadd
u> um 50 sjóm. frá Röðli, eða
142 sjóm. út af Dunnethöfða á
Slcotlandsströnd. Skipstjórinn á
breska togaranum sagði, að skip
sitt væri alveg ósjálfbjarga
vegna vjelbilunar, ljóslaust og
rafgeymarnir fyrir loftskeyta-
tækin að því komnir að tæmast.
Stórsjór væri og skipið byrjað
að leka.
Nokkur sinntu ekki
»icjðarkailinu
Kristján Pjetursson skipstjóri
á Röðli, setti sig því næst í sam
band við lof tskeytastöðina Vick,
«cm sagði, að annað skip væri
n leið hinum breska togara til
bjálpar, en það væri skammt
ímdan Skotlandsströndum.
Ennfremur hafði stöðin í Vick
náð sambandi við önnur skip,
r.em ekki vildu sinna neyðar-
h alli skipsins.
Uj’álpin komi strax
Um miðnætti var Röðull kom
inr. þar sem togarinn vai. Tek-
> í hafði að miða hann út, en
er Röðull átti eftir ófarnar um
5Vá sjórn., kom breski togarinn
iru'. á radsjá Röðuls. Nú hafði
K ’istján enn samband við tog-
arann- og bað skipstjóri hans
Röðul að koma sjer til hjálpar
þegar í stað, því ástandið væri
orðið mjög alvarlegt ujn borð í
skipi sínu. Stöðugt hækkaði
vacnið í lestum, en pumpur all-
ar óvirkar vegna kolasalla.
Ejörgunin
Röðli var nú rennt eins ná-
leegt hinum breska togara og
fiRrt þótti. Af línubyssu var
skotið yfir í togarann, en fyrsta
sitotið mistókst. Hið annað tókst
•f>rýðilega og kom á ,,keisinn‘;.
Hófst nú björgunin. Varð hún
vniklu tímafrekari en þeir Röð-
ulsmenn höfðu búist við. Bret-
unum gekk mjög illa að koma
v ír uiium fyrir.
Milli skipanna var 10—20
faðma bil, en hin sterku ljós
frá Röðli lýstu breska togarann
upp. — Hættulegast við þessa
björgun var, að vegna þess hve
Bretunum gekk illa að fást við
vírana, vofði sú hætta stöðugt
yfir, að þeir færu í skrúfu Röð-
uls, en þá hefðu bæði skipin
sennilega farist, en Kristján
skipstjóri á Röðli er öruggur og
tókst að stjórna skipi sínu fram
hjá þessum hættum.
Skipin rekast saman
í fjórar klukkustundir liggja
skipin hlið við hlið í stórsjó og
roki. Allan tímann voru skip-
verjar á Röðli allir uppi, þrátt
fyrir sjóa er riðu yfir skipið
hvað eftir annað. í einum slík-
um sjó skullu skipin saman.
Afturstefni Röðuls stjórnborðs-
megin skall framarlega á breska
togaranum og heldur skipstjór-
inn á honum því fram, að þá
hafi komið meiri leki að” skip-
inu. Röðull skemdist lítilsháít-
ar við þennan árekstur.
Þolir ekki langa ferð
Um klukkan fimm á laugar-
dagsmorgun hafði skipshöfnin á
breska togaranum, loks gengið
örugglega frá dráttartaugunum.
Kristján skipstjóri á Röðli vildi
fara til Aberdeen, en bá sagði
hinn breski skipstjóri að skip
sitt myndi ekki geta flotið alla
þá leið og óskaði eftin, að Röð-
ull færi beint til Stromness í
Orkneyjum, og var svo gert.
Hjelt að skipið sykki
Ekki var þorandi að fara með
fullri ferð áfram með togarann
í eftirdragi. Allan laugardaginn
var stórsjór og að kvöldi þess
dags, hjelt breski skipstjórmn,
áð skip hans rnyndi sökkva og
bað um að björgunarbátur úr
landi yrði sendur til að bjarga
skipshöfninni. Hann kom til
móts við skipin er um 50 mílur
voru ófarnar til Stromness. En
ekki var þá talin ástæða til fyr-
ir Bretana að yfirgefa skip sitt,
en björgunarbáturinn fylgdi
skipunum til hafnar, en þangað
var komið eftir sólarhrings ferð.
Var þá mikill sjór í vjelarúmi
biæska togarans og lestum. —
Skipstjórinn skýrði frá því, áð
menn hans hafi staðið við aust-
ur allan tímann, frá því vjelin
Frh. á næsta dálki.
Fulilúi ísraels
Y. Wolfherg,
hefur verið sendur ai stjórn
ísrr.els til Novðurlanda tii þess
að fá viðurkenningu þeirra á
Israclsríki og á liann að verða
sendiherra Israels á Norður-
löndum, ef hið nýa ríki fær
stjórnmálalega viðurkenningu
Norðurlandanna.
Þingvallaleiðin
vsl lær í gær
í GÆR voru menn hjer i bæn-
um alment þeirrar skoðunar,
að alófært væri austur yfir
Mosfellsheiði og gagnlaust væri
að hugsa til ferðar upp í Hvera
dali. Alt kapp var lagt á að
halda Krísuvíkurleiðinni færri.
Flópur nemenda úr Menta-
skólanum fór samt í skemti-
ferð upp í Skíðaskála.
Áætlunarbíllinn að Ljósafossi
var um ‘IVz tíma hjeðan úr
bænum og austur. Eina torær-
an á leiðinni var skafl. sem
Jónas í Stardal hafði sent sex
menn til að ryðja. Einnig fór
annar bíll á 2Y2 tíma hjeðan
til Selfoss. Kom hann aftur til
bæjarins í gær og var þá líka
2V2 tíma.
Frh. af fremra dálki.
bilaði, eða i 36 stundir, því allar
.pumpur voru óvirkar, eins og
fyrr segir.
Eadsjáin
Röðulsmenn skyldu við breska
togarann við bryggju í Strom-
ness, en hjeldu síðan áfram ferð
sinni til Grimsby.
Skipverjar á Röðli telja
þessa björgun hafa verið fram-
kvæmanlega fyrir það eitt að
Röðull er búinn radsjá og
hinum öruggu tækjum nýsköp-
unartogaranna, — ljóskastara,
línubyssu o. s. frv.
Guð má vita
Bresk blöð birtu viðtal við
skipstjórann á breska togaran-
um, en þar sagði hann m. a.:
Guð má vita hvað af okkur
hefði orðið, ef skipshöfnin á
Röðli hefði ekki brugðið svo
skjótt við.
Eigendur Cramound Island
sem er álíka stór og Tryggvi
gamli, eru þeir Jón Oddsson og
Guðmundur Jörgenson : Hull.
Svo einkennilega vildi til, að
Jón var farþegi á Röðli í þess-
ari ferð.
Á þessu ári hafa 19 ungl-
ingar verið handteknir
íyrir þjófnað
FRÁ áramótum hefur rannsóknar lögreglan handtekið 19 pilta
á aldrinum 14—17 'ára. Þeir hafa allir orðið uppvísir að þjóín-
uðum hjer í bæ. Hafa þeir éftir því sem næst verður komist,
íramið milli 60 og 70 þjófnaði.
Tveir piltar í 8 innbrotum. *
Fyrir nokkrum dögum hand-
tók rannsóknarlögreglan tvo
unglingspilta, sem unpvísir
hafa orðið að átta innbrotsþjófn
uðum hjer í bænum.
Það var nokkrum dögum eft,
ir að piltar þessir frömdu inn-
brotsþjófnað í Teppahreinsun-
ina við Skúlagötu, að rannsókn-
lögréglan handtók þá, en inn-
brot þetta frömdu þeir aðfara-
nótt þess 12. janúar s. 1. —• í
Teppahreinsuninni stálu þeir 6
teppum, mismunandi stórum og
dýrum. -—■ Hina þjófnaðina
frömdu þeir m. a. í efnalaug-
ina Lindin við Skúlagötu og
stálu þar 8 karlmanns alklæð-
um.
Hentu skyrtunum
Fyrir nokkuð löngu síðan
brutust piltar þessir inn í Leð-
urgerðina og Þvottamiðstöðina.
í Leðurgerðinni stálu þeir tösk
um og tveim skinnum. í Þvotta
miðstöðinni 30 karlmannsskyrt
um. Nokkuð af skyrtunum fanst
niðri í fjöru nokkru eftir að
innbrotið var framið. Piltarnir
höfðu hent þar þeim skyrtum
sem þeir ekki gátu notað á
sjálfa sig. Piltar þessir brutust
ennfremur inn í vöruskemmu
sölunefndar setuliðseigna í
Kveldúlfshúsunum við Skúla-
götu. Þar stálu þeir nokkru af
fatnaði. Þeir brutust inn í trje
smiðjuna Sögin -við Höfðatún
og stálu þar nokkrum happ-
drættisskuldabrjefum. frímerkj
um og fleiru smávegis. í hús
nokkurt við Mjölnisveg sem
Olíuverslun íslands hefir, brut-
ust piltar þessir inn og stálu
sjónauka, riffli og 12 flöskum
af áfengi.
Stundaði íbúðarhúsin
Þá hefir rannsóknarlögregl-
an verið að rannsaka mál
drengs, sem er 15 ára gamall
og orðið hefir uppvís að 16
þjófnuðum, þar af einum í
Hafnarfirði.
Drengur þessi hefir stundað
þjófnaði í íbúðarhúsum ein-
göngu og fór í íbúðirnar
í þeim eina tilgangi að stela
peningum. í Hafnarfirði stal
hann 1000 krónum.
Barnaverndarnefnd Reykja-
víkur hefir verið afhent mál
þessara drengja, sem annara er
teknir hafa verið fyrir þjófnaði
að undanförnu.
London í gærkveldi.
TILKYNNT var hjer í London
í kvöld að breska stjórnin hefði
nú viðurkennt stjórn þá, er skip
uð var á hernámssvæði Bánda-
ríkjanna á Suður-Kóreu.
Ilaliii slasast
í sprengingu
I GfflR varð mikil sprenging í
ketilhúsi Lýsissölusamlags isl,
botnvörpuskipaeigenda, á Kletti
við Kleppsveg. Þórður M Magn
usson starfsmaður í Vjelsmiðj-
unni Hjeðni, til heimilis við
Bergþórugötu 16, slasaðist svo
að það varð að flytja hann í
Landsspítalann og liggur hann
þar nú.
Þórður Magnússon var að
reyna'olíukyndingu við ketil og
hafði verið við það í um 20 mín.
Þá bar hann eld að eldhólfinu,
en um leið varð mikil spreng-
ing.
Menn sem voru í öðrum enda
hússins köstuðust til, rúða brotn
aði og öll einangrun sprakk ut--
an af katlinum.
Mennirnir aðgættu strax
hvað komið hefði fyrir Þórð.
Fundu þeir hann liggjandi á
gólfinu hjá katlinum. Var hann
meðvitundarlaus og með áverka
á höfði. Er talið víst að hurð
á eldhólfinu sem hrökk upp af
miklum krafti við sprenginguna
hafi lent á höfði Þórðar. Var
sjúkraliðinu gert aðvart og Þórð
ur fluttur í Landsspítalann. —
Var hann þá búinn að fá rænu.
í gærkvöldi átti Mbl. tal við
læknir deildarinnar. Sagði hann
líðan Þórðar vera mjög sæmi-
lega. Hann hefði brennst lítils-
háttar í andliti, en ekki var bú-
ið að kanna meiðsli hans til
hlýtar.