Morgunblaðið - 25.01.1949, Síða 10
10
ntORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 25. janúar 1949-
Kára Sigurjónssonar
minst á Alþingi
VÍÐ SETNINGU Alþingis á
föstudag minntist Jón Pálma-
son forseti S. Þ. Kára Sigur-
jónssonar með eftirfarandi orö-
um:
Um leið og þingið tekur nú
aftur til starfa, vil jeg minnast
nokkrum orðum fyrrv. alþingis
manns, sem fregn barst um 1
gærkvöldi, að látist hefði í fyrri
nótt á 74. aldursári, Kára Sig-
urjónssonar, bónda á Hallbjarn
arstöðum á Tjörnesi í Suður-
Þingeyjarsýslu.
Kári Sigurjónsson fæddist a
Kvíslarhóli á Tjörnesi 2. mars
1875, sonur Sigurjóns Halldórs-
sonar bónda þar og konu hans,
Dórotheu Jensdóttur bánda á
Ingjaldsstöðum í Bárðardal
Nikulássonar Buchs. — Hann
reisti bú á Hallbjarnarstöðum a
Tjörnesi 1904 og bjó þar til
dauðadags, en stundaði jafn-
framt bókbandsiðn, er hann
lærði á æskuárunum. Þótt hann
væri maður óframgjarn og hóg-
látur, var snemma tekið eftir
greind hans og gjörhygli, og
kómst hann ekki hjá því að
taka sjer ýmis trúnaðarstörf í
hjeraði og þótti leysa t>au öll
vel og farsællega af hendi. enda
var hann sjerstakt snyrtimenm
í öllum störfum, samvinnuþýð-
ur og manna prúðastur i fram-
göngu og viðskiptum við aðra
menn. Af störfum þeim, er
hann gegndi í almenningsþarí-
ir, má nefna, að hann var sýslu-
nefndarmaður frá 1912 cg
hreppstjóri frá 1924. Þegar
Tjörneshreppi var skipt fra
Reykjahreppi. Hann sat á einu
þingi, aukaþingi 1933, sern
landskjörinn þingmaður, og átti
sæti í milliþinganefnd í launa-
niálum 1934.
Kári Sigurjónsson var marg-
fróður og víðlesinn, þótt sjalf-
menntaður væri, og lærði er-
lend tungumál af eigiti ram-
leik. Einkum var hann vel að
sjer í jarðfræði. í landi jarðar
hans er Hallbjarnarstaðakamb-
ur með hinum alkunnu surtar-
brandslögum. Orð er á bví gert,
hve vel hann var að sjer um
allt, er að þessari jarðmyndun
laut, og urðu bæði innlendir og
útlendir jarðfræðingar, er komu
að skoða jarðlögin, l'urðu lostn-
ir yfir þekkingu þeirri, rr bónd
inn á jörðinni hafði til að bera
í þessum efnum, og fræðslu
þeirri og leiðbeiningum, er
hann gat veitt þeim í rann-
sóknum þeirra.
Jeg vil bíðja háttvirta þing-
menn að votta minningu þessa
merkilega bónda og sæmdar-
manns virðingu sína með því að
rísa úr sætum.
Verkfall
RÓM — Starfsmenn v'ð gas-
stöðvar allra stærstu borga Ítalíu
munu hefja verkfall á miðnætti
í nótt, ef samningar takast ekki
við atvinnurekendur fyrir þann
tíma.
RllfÍMIIIIIIIIflllllMmilllllllllÍllllflfllllllMIMIII
i *<
I c Til sölu
í
:
(.6 skotð Oiffii!
| 'ásamt 1000 skotum, verð
| kr. 500,00. Upplýsingar í
síma 81 089.
I
iaimiiniiiiMiu:a
AF SJÓNAVHÓLI SVEITAMANNS
ÁRIÐ 1948 verður tæplega
talið til merkisára í íslands
sögu. Á því gerðust engir við-
burðir, sem marka tímamót eða
valda þáttaskiftum í atburða-
rás sögunnar. Árið var ár
skömmtunar og hafta, ár vöru-
skorts og peningaflóðs það,
mætti jafnvel segja að á árinu
hafi fólki fundist það skorta j
flest nema peningana. Sannast
með því, það sem raunar öllum
ætti að liggja í augum uppi, að
kaupgjald og' afurðaverð er
ekki nema önnur hliðin á af-
komu framleiðenda og launa-
manna. Árið var líka ár síldar-
leysis, ár mikilla vonbrigða í
sambandi við síldarvertíðina
fyrir Norðurlandi, sem menn
hjeidu almennt að ekki gæti
brugðist nema þr.jú ár í röð. En
svona fór það; sumarsíldin lík-
lega sú minsta, sem veiðst hef-
ur undanfarin 4 ár. En trúm a
síldina er mikil og almenn. Það
sýnir allur sá viðbúnaður, sem
hafður er til að taka á móti
henni þegar henni þóknast að
koma.
---o----
ÚTFLUTNINGSVERÐMÆTI
sjávaraflans mun hafa verið
meira s. 1. ár heldur en nokkru
sinni áður. Var þá að koma í
Ijós árangurinn af nýsköpunar-
stefnu rikisstjórnarinna: á ár-
unum 1944—1946. Verðu.r það
seint að fullu metið, hve heppi
lega tókst til um kaup á ýms-
um atvinnutækjum og nauð-
synlegum vjelum og efni til
uppbyggingar atvinnuvcgunum
strax í stríðslokin. Þrátt fyrir
þetta stendur rekstur útgerðar-
innar yfirleitt mjög höllum
fæti. Getur þá hver maður sjeð
:
j Vanti ykkur að fá málað
1 1—2 íbúðir, þá hringið í
j síma 7424 eftir kl. 5. —
Efni fyrir hendi.
MMIIMMIIItlllllMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIII
**III<IIIIIIIIIIII«IIIM|«1|IIMMMIIIIMIIIIIIIMIIIIIIIII
:
1 Ný, ensk þvottavjel til
| sölu. Tilboð sendist blað
| inu merkt „Ný þvottavél
—649“.
'uHiiiiuiinminfliiiiMMmiiiMiiiiiiuimrcniinmimiv
^•■KuucuumuiiiMiiiiaiiiiiuBMiiiim|0Siim>mMnani
| 6
: Í
Stúlka óskar eftir
| Herbergi [
i lítilsháttar húshjálp kem =
: ur til greina. Tilboð — j
| merkt „Norðurmýri— ;
i 647“, sendist afgr. Mbl. |
fyrir 30. þ. m.
v jMiMMiiiaiiiMiiiMinrmmMSMiiiniiiiiiiMiMiMninfnraw
■ milllMIIIIIIIIIMIIIIMIIIIIIMIMIIIIIIMIIMIIIMIIIIIIIIIIIiril
Annast
KAUP OG SÖLU
FASTEIGNA
Ragnar Jónsson i
hæstarjettarlögmaður i
i Laugavegi 8. — Sími 7752 i
! Viðtalstími vegna fast- =
i eignasölu kl. 5—6 daglega i
'|IIHHIIIIIIIIIIIIIHMMIIMIIIIIHIIIII|llll'lllllllllllllMIIIII.
í hve miklum rústum þessi at-
vinnuvegur væri, ef nýsköpun-
artækjanna hefði ekki notið
við. Svo hefur jafnan verið að
heyra í byrjun hvorrar vertíð-
ar undanfarin misseri, að nú
væri stöðvun útgerðarinnar al-
veg yfirvofandi — óhjákvæmi-
leg. Ekki breyttist þetta neitt
til batnaðar, þótt Framsókn
kæmist í ríkisstjórnina með
,.bjargráðin“ sín. Aldrei hefir
það að dómi útgerðarmanna lit-
ið svartara út en nú í vertíð-
arbyrjun, og það þrátt fyrir
víðtækar og öflugar ráðstafanir
ríkisstjórnarinnar til að hjálpa
útvegsmönnum að mæta rekst-
urshalla. En hvernig sem út-
litið er og hvaða ráð sem tek-
in verða, hljóta þó skipin að
fara af stað. Allt er betra en
að láta þau liggja og verða af
þeim verðmætum, sem þau geta
flutt á land. Þau eru jafn mikil
í sjálfu sjer hvort sem fram-
leiðslukostnaður er mikill eða
lítill.
----o----
SJE LITIÐ yfir landbúnað-
inn 1948 fer ekki hjá því að
manni virðist rekstur hans
hljóta að hafa verið hagstæð-
ari heldur en þeirra, sem stund
uðu atvinnu sína við sjóinn. Á
útlíðandi vetri 1947—48 voru
að vísu hörkur og jarðbönn víða
um land, en það var þó helst
í þeim landshlutum, þar sem
sumarið áður hafði verið eink-
ar hagstætt til heyskapar, svo
að alt bjargaðist vel af. Vorið
var gott og f jenaðarhöld í besta
lagi eins og afurðamagnið
sýndi í sláturtíðinni í haust.
Grassprettan varð í meðallagi
og meira en það þrátt fyrir á-
burðarskortinn. Þegar svo það
við bættist, að heyskapartíð á
slættinum reyndist einmuna
góð yfirleitt um land allt, þót.t
endaslepp yrði hún á Norð-
Austurlandi, má fullyrða að
fóðurbirgðir bænda hafi á s. 1.
hausti verið bæði miklar og góð
ar. Verðlag á landbúnaðaraf-
urðum var hátt eins og undan-
farin ár og þótt tilkostnaður
hafi farið vaxandi mun hagur
bænda síst hafa versnað á ár-
inu. En ekki rnun sá gróði hafa
safnast í handraðann. Margir
hafa ráðist í dýrar framkvæmd-
ir, byggingar íbúðar- og pen-
ingshúsa, landþurkun og ann-
an ræktunarundirbúning. En
allt hefur það gengið seinna en
framfaravilji og framkvæmda-
hugur bænda hefur staðið til.
Víða hafa framkvæmdir strand
að á efnisskorti og fólkseklu.
En þótt óhjákvæmilegur drátt-
ur verði nú á ýmsu því, sem
bændur vilja koma í verk en
engin hætta á að þeir leggi hend
ur í skaut, heldur er „hitt víst,
að áfram, áfram miðar“.
Og bændastjettin hefur þeg-
ar sýnt að hún vill verja efnum
sínum og orku sinni fyrst og
fremst til þess að gera sveit-
irnar byggilegar bæði hvað
snertir skilyrði til framleiðsl-
unnar og aðbúnað fólksins, sem
að henni vinnur.
----o----
EKKI LIGGJA enn fyrir nein
ar skýrslur um framleiðslu-
magn sveitanna árið 1948. —
Þeirra er nú heldur aldrei von
fyr en með seinni skipunum.
En víst er um það að fram-
leíðslan hefur ekki minkað,
heldur aukist. Er líklegt að sú
aukning hafi orðið svipuð og
árið áður. Þá óx mjólkurmagn
mjólkurbúanna um rúml. 2,2
milj. lítra og kjgtmagnið í slát-
urhúsunum óx um tæpl. 320
tonn. Aukning á annari fram-
leiðslu mun hafa verið eftir
þessu. Ókunnugir kynnu að
halda að þessi framleiðsluaukn-
ing stafaði af því að fleiri ynnu
að henni en áður. En því fer
víðs fjarri. Það er á allra vit-
orði, að altaf sígur á ógæfuhlið
í okkar landi, — fólkinu ; sveit-
unum fækkar. Árið 1947 fækk
aði því um 616 manns eða
1,5%. í ársbyrjun 1948 var fólk
ið í sveitum og þorpum (inn-
an við 300 íbúa) 41538. Sjálf-
sagt hefur þessi tala farið nið-
ur fyrir 41 þús. árið sem leið.
Það getur hver og einn litast
um í sinni sveit. Þar sjer hann
mörg auð rúm og óskipuð. —
Fóikið er farið — farið til
Reykjavíkur.
------o------
HVAÐ LENGI getur þetta
öfugstreymi staðið? Því getum
við ekki svarað. Einhver tak-
mörk hlýtur það samt að hafa.
Ekki verður sú stöðvun þó á
þessu ári, sem nú er hafið. Þeir
munu ófáir í sveitunum, sem
hafa hug á því að láta þetta
ár ekki líða svo til enda, að
þeir hafi ekki breytt um stað-
festu — flutt sig úr sveitinni
til sjávarsíðunnar. Og sjálfsagt
verða það margir, sem standa
við þau áform sín. Enn mun
fsgkka liðsaflinn við sveita-
störfin og þeim sem eftir verða
finnst þar „allt auðara, allt
snauðara", sem von er að. En
þeir munu sækja fram, hjer eít
ir sem hingað til í öruggri vissu
um það, að þeir sjeu að vinna
heilbrigt starf og gagnlegt fyr-
ir alla þjóðina og að heilbrigði,
menning og sjálfstæði þjóðar-
innar er í veði, ef þeir ekki
halda velli á þessum vettvangi.
Sveitafólkið sýnir trú sína á
landið í verkum sinum. Megi
því verða að þeirri trú sinni á
þessu nýja ári.
~ Meða» annara orða
F'ram.h. af blx *
er áætlað að tekjur bænda í ár
verði heldur minni en 1948, en
varla kemur það til með að
nema miklu, svo vænta má, að
þetta verði mjög gott ár fyrir
bændurna, ekki síst þegar það
er borið saman við tekjur
þeirra fyrir styrjöldina.
•miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
s £
| Rafha-eldavjel |
! til sölu á Leifsgötu 21, I. {
! hæð til vinstri, frá kl. 1
5 e. h. I
:
<11)111111 IIIMrMIMMtlllllillllllllflflMIIIIIMIIIMIIfMMMMMt
7
«NfiiiMMiMMitmii»- > •»>MiiiiiE«miiiimmtii;iMiiM>
í
i Oska eftir
i með aðgangi að baði. — {
: Mætti vera í Skerjafirði {
1 eða í Grímsstaðaholti. j
I Tilboð sendist afgr. Mbl. j
j fyrir fimtudag ■— merkt j
„Herbergi—648“.
Miiirti4iMiilirtriíiiiMlinniiii»i»iiÍMm»iMMMMMiMMii»iii.
GuSrún M. Sæ-
mundsdóttir
Fædd 16. apríl 1925.
Dáin 11. janúar 1949.
—o—
Drottinn, veittu hryggu hjarta,
hjálp að bera þyngstu sár,
þinnar dýrðar láttu ljóma
ljós í gegnum sorgartár.
Drottinn, veit þeim líkn, sem lifa,
látnum gef þú helgan frið,
og um bjartar lífsins leiðir
leið þá inn á dýrðarsvið.
Þung er sorg við helkrýnt hjarta,
hjer er átti stundarbið;
unga konan, æskan bjarta,
inn um gengin dauðans hlið.
Eiginmanni o galdni móður,
ungum börnum horfin frá.
Astvinir og systkin syrgja;
sorg er yfir hverri brá.
Framtíðin var fagur draumur,
falin þar sem lágu spor,
upp að renna sólbjart sumar,
sólrík eftir bernsku vor.
Skyndilega skýjaþykkni
skyggði fyrir dagsins rönd.
Lífið gefur, lífið tekur,
lífi stýrir drottins hönd.
Dýrðlegt er, þar vært þú vaknar,
vermir sólin drottins lönd,
upp í þínum föðurfaðmi
finnnur enn hans mildu hönd.
Dýrðlegt er í drottins ríki
dvelja mega alla tíð,
breiða arma ástvin móti,
eftir heimsins volk og stríð.
Þökk þjer fyrir líf þitt liðna,
öng þó væri ei ævitíð.
Hjartans þakkir okkar allra,
ástrík kona og móðir blíð.
Guð þig blessi um alla eilífð,
andann þar sem dvalið fær.
Um þig lyki ástararmar,
andi guðs og friðarblær.
J. B. P.
iwniiiuii *«iiMiiiiiimiiuunuM
ÍUrsg stúlkaj
! óskar eftir atvinnu. Helst I
{ i sjerverslun. Góð mentun 1
{ og vön sfgreiðslustörfum. §
! Tilboð rendist afgreiðslu |
{ Mbl., fyrir fimtudags- |
! kvöld. merkt „Vinna— 1
644“.
! 5
•luiciminiiM -•mriiMiMnEnn»
’IIWftlUM .ttl» «*IIIIIIIIIM]lllll
Til leigu
forstofustofa.
j gegn vægri leigu og hús-
| hjálp eftir -amkomulagi.
! Uppl. á Hraunteig 24 eða
í síma 2139.
l••IIIHMI•»ll•ll•• "•■•••lltfllllllllll
A U (.
ER G f <
SING
IGILDI