Morgunblaðið - 17.02.1949, Page 6
Fimmtudagur 17. febrúar 1949.
MORGUNBLAÐIÐ
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj. Sigfús Jónsson.
Rltstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgBana.)
Frjettaritstjóri; ívar Guðmundsson
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjóm, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstrœti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, Innanlanda.
kr. 15.00 utanlands.
t lauaasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbðk.
Vandræðaskáld Tímans
ALLT frá því að þingmenn Sjálfstæðisflokksins fluttu á s.l.
hausti tillögur á Alþingi um aukinn innflutning landbúnaðar-
tækja, hefur Tíminn varla getað á heilum sjer tekið. Fyrst
þegar tillögurnar voru lagðar fram spáði blaðið því að þær
væru aðeins fluttar til þess að sýnast og myndu aldrei verða
samþykktar. En nú hefur Alþingi samþykkt þær og þrír
flokkar þingsins sameinast um afgreiðslu þeirra. Mætti nú
ætla að „vinir landbúnaðarins“ í Framsóknarflokknum væru
*
glaðir og ánægðir með þann vilja Alþingis, sem samþykkt
þessara tillagna sýnir.
En margt fer öðruvísi en ætlað er. Tíminn er sárgramur
og reynir á alla lund að draga úr þýðingu þessara samþykkta
Alþingis. í gær lætur hann vandræðaskáld sitt, manninn,
sem lá á glugganum, skrifa langa grein, sem á að sanna, að
það hafi enga þýðingu fyrir landbúnaðinn að mikill meiri-
hluti Alþingis hefur lagt fyrir innflutningsyfirvöldin að inn-
flutningur landbúnaðartækja skuli stóraukinn. Vandræða-
skáldið er einnig látið yrkja þá öfugmælavísu að aðalflutn-
ingsmaður annarrar þingsályktunartillögu Sjálfstæðismanna
hafi lýst því yfir að tillagan væri markleysa. Að sjálfsögðu
eru þetta tilhæfulaus ósannindi. í umræðunum um innflutn
ing landbúnaðartækjanna lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins einmitt áherslu á það, að mikla áherslu bæri að leggja
á innflutning þessara tækja og að bændur yrðu að sitja fyrir
um gjaldeyrisleyfi til þeirra.
En hvernig stendur á þessum óróa Tímaliðsins í sambandi
við fyrrgreindar ályktanir Alþingis?
Orsökin er auðsæ.
Framsóknarflokkurinn fór með völd á íslandi árin 1927—
1939 eða í samfleytt 22 ár. Allan þennan tíma sögðust Fram-
sóknarmenn vera önnum kafnir við að vinna fyrir sveitirnar
og landbúnaðinn. En hver var árangurinn af þessu starfi og
striti Framsóknar fyrir bændur?
Hann var heldur dapurlegur. Fólkinu fækkaði stöðugt í
sveitum landsins, karakúlpestir voru fluttar inn og blómleg
búnaðarhjeruð tæmdust að búpeningi. Vonleysi og vantrú
á landið breiddist út. En Framsókn sagðist alltaf vera að
hjálpa bændum.
í ársbyrjun 1939 gafst Framsóknarstjórnin hreinlega upp
og leitaði liðsinnis Sjálfstæðisflokksins um stjórn landsins.
Hafði þá um skeið ríkt ástand, sem nálgaðist algert hallæri
í sveitum og við sjó á íslandi. Svo grálega hafði stjórn
„bændavinanna“ leikið þjóðina og þá einnig fólkið í sveitum
landsins, sem þyrptist á mölina, þar sem atvinnuleysið tók
við því. Fjárhagur ríkissjóðs var hinn herfilegasti og pen-
ingarnir höfðu verið felldir í verði. Þetta var sá akur, sem
Framsóknarstjórn tveggja áratuga hafði ræktað.
Síðan Sjálfstæðisflokkurinn komst til nokkurra áhrifa í
stjórn landsins hefur allt öðruvísi verið haldið á málum
bænda. Sjálfstæðismönnum var það Ijóst, að bændum hent-
aði betur aukinn innflutningur margskonar búvjela en inn-
flutningur karakúlpesta. Ólafur Thors fjekk einum vitrasta
og góðviljaðasta stjórnmálamanni landsins forstöðu land-
búnaðarmála, er hann myndaði nýsköpunarstjórn . sína á
stofnári lýðveldisins. Pjetur Magnússon, sem var gjörkunn-
ugur högum og þörfum bænda, beitti sjer síðan fyrir veru-
legum innflutningi landbúnaðarvjela og tækja, m. a. jeppa-
bifreiðum, sem orðið hafa vinsælustu og eftirsóttustu tæki,
sem íslenskir bændur hafa fengið.
Bændur ljetu heldur ekki sitt eftir liggja. Eftirspurnin
eftir hverskonar landbúnaðartækjum var geysimikil og hefur
engan veginn tekist að fullnægja henni ennþá. Þess vegna
samþykkti landsfundur Sjálfstæðisflokksins, sem haldinn
var á Akureyri s.l. sumar að fela þingmönnum flokksins að
beita sjer fyrir auknum innflutningi þessara tækja.
Tíminn og vandræðaskáld hans eru hræddir. Þeir vita að
bændur landsins skilja að Sjálfstæðisflokkurinn hefur tekið
allt öðrum og skynsamlegri. tökum á vandamálum þeirra.
Þeir sjá að fyrir forystu Sjálfstæðismanna hafa bæhdum
skapast skilvrði til þéss að reka búskap sinn á heilbrigðari
grundvelli eh aður. Þéss vegna er vanaræðaskáldið sent' út af
orkinni til'að ýfkjá’öfugmælaví^uf, sem bændúr munu hafa
að háði og spötti.
t-ar:
'uerii áhrija
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Húsinu lokað
klukkan 9
FJELAGIÐ Anglia tilkynnir
að ,það haldi skemmtifund í
kvöld fyrir meðlimi sína og
gesti þeirra. Skemmtunin hefst
klukkan 8,30 — og svo kemur
rúsínan:
Húsinu verður lokað kl. 9.
Þarna á augsýnilega ekki að
líða fundamönnum neitt reyk-
vískt ráp. Ef menn ætla að
sækja skemmtunina þá verða
þeir að koma — ekki síðar en
hálftíma of seint.
•
, Brautryðjendur
ÞAÐ er engin hætta á öðru, en
að forstöðumenn Anglía standi
við orð *sín og að húsinu verði
lokað Rlukkan 9. Þeir hafa
sýnt það áður, að þeir þora að
brjóta í bág við vinsælan
óvana.
Það var Anglía og Ferðafje-
lag íslands, sem fyrst fjelaga
hjer í bænum tóku upp á því,
að hætta dansleikjum klukkan
1 eftir miðnætti á rúmhelgum
dögpm.
•
Hægt að loka
víðar
OG það á að taka upp Anglíu-
aðferðina víðar og loka sam-
komuhúsum á ákveðnum tím-
um til þess að koma í veg fyrir
hið leiða ráp.
Það eru t.d. kvikmyndahús-
in. Stungið hefur verið upp á,
að þeim væri lokað eftir að
sýningar hefjast. Og það er
alveg sjálfsagt að gera það.
•
Óframbærileg
mótbára
ÞAÐ er haft eftir einum elsta
og reyndasta starfsmanni kvik
myndahúsa hjer á landi, Ólafi
Jónssyni, sýningarstjóra í
Nýja Bíó, að þetta sje ekki
hægt, vegna þess hve fólkið
verði óánægt.
Jeg skil ekkert í honum Óla
í Bíó, mínum ágæta, gamla
vini, að láta hafa eftir sjer
slíka mótbáru.
Karlarnir urðu líka óánægð-
ir þegar þeim var bannað að
spýta skroinu á gólfið og ætl-
uðu vitlausir að verða, eða
settu upp hundshaus þegar
þeim var sagt að nota emali-
eraða bakka.
Það má búast við því, að
menn taki umbótunum heldur
þunglega, sjerstaklega þegar
hróflað er við arfgengum venj-
um. En oftast tekst það
með þrautsegjunni.
Óviðkunnanleg
os
ANNAR ósiður í skemmtana-
lífi borgarinnar er ösin, sem
jafnan safnast saman við aðal-
dyr veitingahúsanna. Þetta er
einkum áberandi í veitingasöl-
um Hótel Borg. Konur og karl-
ar standa þarna og góna inn í
salinn og róta sjer ekki, þótt
aðrir þurfi að komast út, eða
inn.
Sumir eru vafalaust að leita
sjer að borðum, en aðrir virð-
ast koma til að sýna sig og sjá
aðra, eða bara til að glápa,
eins og sagt er.
Erlendis er sá siður hafður,
að um leið og gestir koma inn
í veitingasali betri gistihúsa
kemur yfirþjónn á móti þeim,
bíður gesti velkomna og leiðir
til sætis. Eða, ef veitingasal-
irnir eru setnir, þá segir yfir-
þjónn gestum, að ekki sje
pláss fyrir þá og vilji þeir ekki
gera svo vel, að bíða frammi
við, þar til hægt sje að finna
þeim sæti.
•
Dyraverðir einir
duga ekki
NÚ hefur t.d. Hótel Borg ágæt-
is dyraverði og þegar ekki eru
Jengur til fleiri sæti í veitinga-
sölunum, er nýjum gestum
ekki hleypt inn. Þetta er sjálf-
sagt fyrirkomulag, en dugar
ekki til. Því alltaf sleppa
menn með einhverjum ráðum
fram hjá dyravörðunum og
safnast saman í hópinn við aðal
dyrnar til að glápa, eða bíða
í þeirri von, að sæti losni.
Það er dálítill ómenningar-
bragur á þessu fyrirkomulagi
og það væri þörf að afnema
það, annað hvort með því, að
sjerstakur maður yrði fenginn
til að vísa veitingahúsgestum
til sætis, eða með því, að dyra-
verðir flyttu sig frá útidyrum
til að stugga mönnum frá þar
sem þeir safnast í hópa við inn
ganginn í veitingasali.
•
Lítið hækka
hættumerkin
I GÆR sá jeg manninn með
glóðaraugað, sem jeg sagði
ykkur frá um nýárið, að rekið
hefði sig á umferðarmerki og
varð af áramótagleðinni fyrir
bragðið.
Augað og þar í kring virtist
hafa háð sínum eðlilega og
upphaflega lit og maðurinn
sýndist ekki hafa orðið fyrir
varanlegu tjóni fyrir utan Ieið
indin, sem hann hafði af ,,kík-
irnum“ meðan hann stóð í
blóma.
En maðurinn minnti mig á
loforð, sem ekki hefur verið
uppfylt og það er, að hækka
skyldi umferðarmerkin til þess
að síður væri hætta á, að þau
hálfdræpu vegfarendur.
Því var lofað, að gengið yrði
í, að hækka merkin eftir ný-
árið, en nú er langt liðið á
febrúar og engin sjást þess
merfci, að standa eigi við lof-
orðið.
Það þarf stundum að kalla
nokkuð oft eftir efnunum, þótt
ekki sje um meira að ræða, en
þessi hættumerki.
MEÐAL amnaRA ORÐA
.■■■iiiiiiiiiiiii iii immi 1111111
lllllllllll••ll■lllllllllllllllll■■llllllmmmmmml
iiiiiiiiiiiiimmmimiiiiiMM>ii""mmiiiiiiiiiiiimmimimm^
Bremerhaven að reisa við eftir siríðið
Eftir Jack Smyth,
frjettaritara Reuters.
BREMEN — Bremerhaven, ein
af stærstu fiskveiðiborgum
Evrópu fyrir styrjöldina, er nú
aftur að ná sjer. Við fiskiðn-
aðinn starfa nú meir en 8,300
manns — eða þvínær 40 pró-
sent fleiri en 1945. Af þessu
fólki eru 2,200 á fiskveiðiskip-
um, en afgangurinn vinnur við
fiskiðnaðinn í landi og skylda
framleiðslu.
Síðastliðin þrjú ár hafa 58
stórir togarar, sem voru í
þýska flotanum, verið endur-
byggðir í skipasmíðastöðum
borgarinnar og bætt við tog-
araflota hennar, sem í voru að-
eins 24 togarar þegar stríðinu
lauk í maí 1945. í dag er fiski-
flotinn .-83 togarar og 113 stór
fiskiskip.
• •
MIKLIR ERFIÐLEIKAR
TIL þess að ná þessari aukn-
ingu, hefur orðið að sigrast á
geysimiklum erfiðleikum, sem
fylgjandi voru birgðaútvegun
fyrir flotann og fiskveiðarnar
í heild.'
FyrstU mánuðina eftir að
stríðinu láuk, var oft og tíðum
ómögulegt að útvega kol, net
og hlífðarföt.
í dag er svö komið, að nógar
kolabirgðir berast og segja
má, að þvínær nóg sje hægt
að fá af netum og hlífðarföt-
um.
• •
2,000 TONN Á DAG
F JEL AGSSK APURINN, sem
sjer um stjórn hafnarinnar,
heitir „Fiskmarkaðsfjelagið“.
Það annast meðal annars af-
fermingu skipa og dreifipgu
aflans. Til þess að gera þetta
sem. best, hefur fjelagið sitt
eigið pósthús, einkasíma með
meir en 500 númerum, vjela-
verkstæði og varðlið, sem í eru
44 menn.
Um 75 prósent af lóðaeign
hafnarinnar er nú aftur í not-
kun eða um þrjár fermílur.
Hjer eru meðtalin hin geysi-
stóru markaðs- og fiskpökkun-
arhús, þar sem tekið er á móti
um 2,00Qf tonnum af nýjum
fiski á dag til dreifingar til
fisksala og fiskiðjuvera.
STRANGT EFTIRLIT
DREIFING fiskjarins hefst frá
markaðshúsunum snemma á
morgni hverjum. Um 190 heild
salar í Bremerhaven taka þátt
í dreifihgunni, undir opinberu
eftirliti. — Eftirlitsmennirnir
hafa samvinnu við héilbrigðis-
skrifstofu borgarinnar; en hún
fylgist nákvæmléga með því,
hvernig fiskur er boðinn til
sölu í markaðshúsunum.
Aðeins nýr og nýlegur fisk-
ur er sendur í verslanirnar.
Sá fiskur, sem ekki er tal-
inn hæfur til manneldis, er
notaður til fiskimjölsfram-
leift'du eða líkrar vörufram-
leiðslu.
Sjerstök járnbrautarstöð
sendir daglega fjórar „fisk-
lestir“ til annarra borga. Til
skamms tíma var aðeins send-
ur fiskur frá Bremerhaven til
fylkjanna átta á bresk-banda-
ríska hernámssvæðinu, en nú
nýlega var ennfremur byrjað
að senda fiskinn til franska her
námshlutans.
Fundur 9 Marsbalt-
ianda í París
PARÍS, 15. febr. — Fulltrúa
9 Marshall-landa hjeldu fun.
með sjer í París hjer í dag ti
þess að ræða það hvaða leiði
væri hægt að fara til þess a
hraða endurreisn Evrópu. Va
Spaak fundarstjóri. Var ræt
um að kjósa 5 manna ráðherr
nefnd er skyldi að einhverji
leyti stjórna framkvæmdur
endurreisnaráætlunar Evrópr