Morgunblaðið - 22.02.1949, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.02.1949, Blaðsíða 8
Þriðjudagur 22. febrúar 1949. 8 MORGL’ ISBLAÐIÐ Útg.: H.Í. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj Sigíús Jónsson. Rítstjóri: Valtýr Steíánsson (ábjn:gSana.) Frjettaritstjóri ívar Guðmundssoa Auglýsíngar: Árni Garðar Kristinssoxs. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áakrift&rgjald kr. 12.00 á mánuði, iananlená*, kr. 15.00 utanlands. f lauaasölu 10 aura eintakið, 75 aura m*8 Lcsbók. íslendingar skilja Norðmenn RÍKISSTJÓRN Noregs hefur nú að afstöðnu flokksþingi norska Verkamannaflokksins tekið endanlega ákvörðun um að Noregur taki þátt í hinu svokallaða Norður-Atlantshafs- bandalagi hinna vestrænu lýðræðisþjóða. Vitað er einnig að allir aðrir stjórnmálaflokkar Noregs, að undanskildum komm únistaflokknum, hafa sömu afstöðu til þessa máls. Það er þannig skoðun yfirgnæfandi meirihluta norsku þjóðarinnar að landi hennar beri að leita samvinnu við lýð- ræðisþjóðirnar um varnir þess og öryggi. Því fer f jarri að það sje nokkur tilviljun að Norðmenn eru. 'svo einbeittir og ákveðnir í afstöðu sinni. Norska þjóðin man hina svívirðilegu og lymskulegu árás á land hennar vorið 1940. Hún man vinmæli og hræsni nasistastjórnarinnár þýsku í garð hennar skömmu áður en hinir þýsku herir ruddust inn í Noreg. Hún man tilboð Hitlers um griðasamning eða „ek-ki- árásarsamning“. Hún man líka kúgunina og fantatökin á stríðsárunum. Norðmenn muna þessa sögu alltof vel til þess að þeir vilji bíða.þess að hún endurtaki sig. Þeir sjá og skilja það, sem er að gerast. Þeir hafa sjeð hverja þjóð Evrópu á fætur ann- ari lagða undir járnhæl Moskvavaldsins. Þeir hafa á ný feng- ið tilboð um „griðasamning“. í þetta skipti kom tilboðið frá Moskvu. Norðmenn vita hvað slík tilboð þýða. Þeir vita að þau þýða ekkert annað en það, að ofbeldisaðilinn vill fá að búa sig undir það í næði að gleypa þann, sem hann heitir ,,griðum“. Ofbeldisaðilinn vill tryggja sjer það að fórnardýr hans sje andvaralaust og bíði þess varnarlaust að verða varg- inum að bráð. íslendingar skilja vel afstöðu hinna norsku frænda sinna. Einnig þeir muna þjáningar Norðmanna á hernámsárum þeirra. íslenskal þjóðin hafði þá ríkari samúð með norsku þjóðinni en nokkurri annari þjóð, sem stundi undir oki böð- ulsins. Olli því náin frændsemi og vinátta milli þessara tveggja norrænu þjóða. Af þessum ástæðum vekur stefna Norðmanna í öryggis- málum þeirra meiri athygli hjer á landi nú en flest annað, sem í þessum málum hefur gerst til þessa. ★ \Jdweiji áLrijar: ÚR DAGLEGA LÍFINU Snjókasts-æði ÞAÐ hefur eitthvað æði gripið unglinga þessa bæjar undan- farna daga. Þeir láta snjókúlu- hríðina dynja á vegfarendum svo enginn er óhultur. Þetta snjókúlukast er að vísu gamall óvani, sem tíðkast hefur lengi, en sjaldan hefur æðið gripið um sig eins og nú. Illa gengur að uppræta þenna hættulega ósið og rnenn hafa lært, að reyna að láta, sem þeir taki ekki eftir þessum smávöxnu skotmönnum, því sje reynt að skamma þá, eða biðja þá kurteislega að hætta, þá éspast þeir um allan helm- ing. Bílarnir (fá sinn skerf af snjókastinu. Það er ekki gott að segja til hvaða ráða á að grípa til að fá unglingana íil að hætta þessum leiða leik. ® Lá við slysi í GÆR munaði mjóu að alvar- legt slys hlytist af snjókasti stráýa vestur í bæ. Þeir höfðu safnast, saman nokkrir piltar og ljetu hríðina ganga á fólk og einkum þó bíla. Þarna bar að bifreið og hafði bílstjórinn opinn glugga hjá sjer. Snjókúlu var kastað inn um gluggann og lenti hún í andliti bifreiðarstjórans. Högg ið kom honum svo á óvænt, að hann missti stjórn á bifreið- inni og munaði engu, að hún rynni á strákahópinn. Þegar strákarnir sáu afleið- ingar þessa óhappaverks tvístr uðust þeir í allar áttir, enda var ekki neinn þarna nálægt, sem hefði getað tekið að sjer að hirta pörupiltana. • Glóðarauga og glerbrot ÞAÐ hefur og komið fyrir undanfarna daga, að menn hafa fengið glóðarauga af snjó kúlukasti unglinga og uppá- haldsleikur er að brjóta raf- magnsperur götuljósanna og rúður hafa brotnað víða vegna snjókasts. Haldist snjórinn lengi hjer á götunum verður búið að eyði leggja fyrir mikið fje þegar kemur fram á vorið, ef ekki er hægt að gera ráðstafanir til að unglingax^ hættu þessum hættulega leik. • ,,Listaverk“ í görðum ÞAÐ voru víða gerð listaverk úr snjónum í görðum bæjarins í gærdag. Menntaskólanemend ur bjuggu til heljarmikla snjó- kerlingu á skólablettinum og nemendur í Gaðnfræðaskóla Vesturbæjar aðra, en víða í einkagörðum höfðu unglingar og fullorðnir gert smálistaverk úr snjónum. Það er meinlaus leikur, sem gaman er að í mótsetningu við snjókastið, sem talað er um hjer að framan. o Frá sjónarhóli stræiisvagnstjóra ÞEGAR strætisvagnarnir eru til umræðu í blöðunum er oft- astnær rætt um málin frá sjón armiði farþeganna. Þeir kvarta yfir þessu og hinu, en hitt er sjaldgæfara, að það heyrist frá strætisvagnastjórunum, eða þeim, sem! við þessi fyrirtæki vinna. Þessvegna er það vel við eigandi að birta brjef frá stræt isvagnstjóra og sjá þessi mál frá hans sjónarhóli og fjelaga hans. Brjefið er á þessa leið: e Peningaskipti „EITT er það, sem sjerstak- lega oft hefir verið talað um að ylli geðvonsku og ótuktar- legum svörum hjá okkur, það eru peningaskiptin við fólkið. Er þó ótal, ótal sinnum búið að brýna fyrir því að borga með hentugum peningum. Nú skal jeg segja þjer dæmi um þetta og þá skilur þú kannske betur að áhugasamur bílstjóri í þessu starfi geti nú kannske ekki alveg begjandi tekið á móti slíku. A vissum tímum dags er oft ákaflega mikið að gera, og þar áf leið- andi verður tíminn, sem ætl- aður er í ferðina mjög svo tæp ur. En það hlýtur að leiða af sjálfu sjer að það sje metnaðar mál hverjum okkar sem er, að halda þessa áætlun, bæði fyrir okkur og farþega okkar. Þeg- ar jeg nú eða einhver okkar kem,ur á viðkomustað og hef nauman tíma, þá flýtir það ekki fyrir að þurfa kanske að skipta 4—5 tíu krónu seðlum öðru eins af 5 köllum, svo nefni jeg nú ekki túkallana“. • Kemur fyrir æ ofan í æ „ÞETTA kemur fyrir dag eftir dag og oft á dag, þó á viðkomu stað, sjeu ekki fleiri en 10—15 farþegar. Við getum afgreitt 10 farþega með rjetta peninga á meðan skipta þarf seðli fyrir einn. Það eru líka til dæmi að ekki svo fátíð að fólki dettur í hug að ætla sjer að ferðast með strætisvagni og borga .þessa 50 aura með 50 og 100 krónu seðlum. Þar af sjerðu að áhugamað- urinn á oft bágt, með að taka þessu þegjandi. Jeg flyt oft á dag" sama fólkið og sumt ,af þessu fólki er jeg náttúrlega farinn að þekkja (í sjón). •— Dæmi: Einn af þeim fer með mjer þrjár ferðir með stuttu millibili, í þessi þrjú skipti þurfti jeg að skipta 3 tíkölljr um“- « Kæruleysi „VAR ómögulegt fyrir þennan mann, sem þó vissi að hann ætlaði með strætisvagni að geyma smámyntina? Jú, hann hefði getað það, en eins og jeg hefi oft sagt við þá. sem alltaf eru með seðla, að það stafi af hugsunar- og kæruleysi, þá bara,, bregðast þeir vondir við og segjast mæta frá- okkar hendi ókurteisi og ónotum. En svo er til fólk, sem betur fer, sem tékur tillit til okk- ar. — Fyrir konu, sem jeg ek oft á dag og hefi gert í tæp tvö ár, hefi jeg einu sinni þurft að skipta fvrir fimm krónum, og það er allt“. IIIIVIftMM 11111111111111111111 ‘j Enþótt yfirgnæfandi meirihluti íslensku þjóðarinnar skilji viðleitni norsku þjóðarinnar nú til þess að tryggja sjálfstæði lands síns og-öryggi sjálfrar sín eru þó nokkrir menn til í þessu landi, sem túlka hana á aðra lund. Það eru kommún- istar og fylgifje þeirra. Það eru mennirnir, sem undanfarna mánuði hafa haldið því fram, að hver sú lýðræðisþjóð,*sem hygði á varnir gegn hinu kommúnistiska ofbeldi, væri að „selja land sitt fyrir dollara.“ Þessir menn munu segja að Norðmenn ætli sjer að „selja land sitt“. Þeír munu segja, að forsætis- og utanríkisráðherra Norðmanna, þeir Gerhard- sen og Lange sjeu „dollaraagentar“ eins og Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson. Þeir munu segja að „Arbeiderbladet“, málgagn norska Verkamannaflokksins, sje „landsölumál- gagn“ o. s. frv. Þetta hafa íslensku kommúnistarnir og leppar þeirra þegar sagt og þetta munu þeir halda áfram að segja. Og þeir munu segja margt fleira, m. a. það að Norðmenn hafi sóst eftir því að land þeirra yrði „stökkbretti“ fyrir ameríska heri til árás- ar á Sovjet-Rússland. ★ Þetta skilja allir vitibornir íslendingar. íslensku kommúnistarnir eru alveg eins og þeir norsku. Norsku kommúnistarnir, sem að vísu eru fáir, vilja ekki að Noregur leiti samvinnu við aðrar lýðræðisþjóðir um örygg- ismál sín og varðveislu heimsfriðarins. Þeir vilja hafa Noreg opinn og óvarinn eins og hann var þegar_ Hitler rjeðist á hann. Þeir vilja að Stalin verði förin eins greið inn í Norður- Noreg og Hitler var hún til Oslóar vorið 1940. íslenskir kommúnistar vilja hafa ísland einangrað og vina- snautt, óviðbúið og „hlutlaust“. En íslenska þjóðin skilur ekki aðeins frændur sína Norð- menn. Hún veit hvað til hennar friðar heyrir. MFDai annawa ORÐA illllimillliMMo ••Tmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiihiiiiiiiiiiiiiiiiiimim. Hinar kofflmúnisMu ..frelsisheljur" kasta grí Frá frjettaritara Reuters. BELGRAD — Það verður aug- ljósara með hverjum mánuðin- um sem líður, að kommúnistar í rússnesku leppríkjunum þykj ast nú orðnir það fastir í sessi. að þeim sje það algerlega ó- nauðsynlegt að afneita, opin- berlega, þeirri staðreynd, að lönd, þeirra eru nú orðin ekk- ert annað en nýlendur Rússa. Fyrstu mánuðina eftir ófrið- arlokin, gerðu kommúnistar sjer far um að koma fram sem frelsishetjur og ættjarðarvinir, menn og konur, sem allt vildu leggja í sölurnar til þess að endurheimta sjálfstæði landa sinna. Kommúnistar höfðu tekið upp vopn gegn nasistum og fasistum, sagði þetta fólk, og þeir áttu enga ósk einlæg- ari en að fá að sjá Pólland og Búlgaríu og Ungverjaland ■— öll undirokuð lörjd- — á ný öðlast algert sjálfstæði og end urheimta öll sín fyrri rjettindi sem alfrjáls og fullvalda ríki. Nú er annað hljóð í strokkn- um. Nú er þetta sama fólk bú- ið að leggja lönd sín undir al- veldi Stalins .... og það telur sig hafa gengið svo rammlega frá hnútunum, að því sje það engin nauðsyn að halda áfram að neita þeirri staðreynd. 9 9 „LEIÐBEININGAR“ FRÁ STALIN RÆÐUR þær, sem Georgi Dimitrov, einræðisherra Búlg- aríu, og aðrir leiðtogar búlg- arska kommúnistaflokksins fluttu á fimmta flokksþingi hans fyrir skömmu, eru glögg dæmi. Ræðumennirnir notuðu hvert tækifæri til að leggja áherslu á aðstoð þá, sem Rússar hefðu veitt kommúnistum Búlgaríu við að ná völdunum í landinu að stríðinu loknu. Dimitrov, sem um skeið var yfirmaður Kominform í Moskva, skýrði jafnvel frá því, að hann hefði móttekið „fyrir- mæli“ og „persónulegar leið- beiningar" frá vini sínum Stalin, til þess að ,,auðvelda“ kommúnistum baráttuna fyrir algerum yfirráðum í Búlgaríu. VALDARÁNSAÐ- FERÐÍN KOMMÚNISTAFLOKKUR- INN, sagði Dimitrov í ræðu sinni, hefði í ófriðarlokin ver- ið lítill flokkur. Hann hefði í raun og veru byrjað valdaferil sinn, er hann gerðist þátttak- andi í hinni andfasistisku „föðurlandsfylkingu“, sem kommúnistar nú ráða yfir. Dimitrov gekþ jafnvel svo langt, að skýra flokksþinginu frá því í stórum dráttum, hvaða valdaránsgðferðir væru hentugastar til að sigrast á „kapítalistunum“ (Á máli kommúnista eru allir andstæð ingar þeirra ,,kapitalistar“). » ® STJÓRNA LÖGREGLUNNI DIMITROV sagðist svo frá í ræðu sinni: Enda þótt búlgarskir komm- únistar hefðu í upphafi verið í minnihluta í samsteypustjórn- inni, hefði þeim tekist að ná i sínar hendur stjórn innanríkis málaráðuneytisins og stjórnar- Frh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.