Morgunblaðið - 22.02.1949, Qupperneq 16
MEÐ reynsluna frá styrjöld
VlEÐL'RÚTLITIÐ: FAXAFLÓI:
Gungur í allhvassa suð-austan
gtt meg slyddu síðd., ljet.tir
sennil. til með norð-austan átt.
inni hafa Norðmenn nú foryst*
una. Sjá grein á bls. 2.
■*
■st-
fjelagsheimilasjóði
1. umræða ym frumvarpið m greiðslu
sksmmfanaskafts
FftUMVARP þeirra Sigurðar Bjarnasonar og Jörundar Brynj-
ólfssonar um að. allur rekstur kvikmyndahúsa skuli greiða
skemmtanaskatt var til 1. umræðu í Neðri deild í gær.
Framsögumaður, Sigurður
Ejarnason, benti á, að fjelags-
beimilasjóður þarfnaðist nú
m]ög tekna til að byggja fje--
lagsheimili. Ennfremur þyrfti
rekstrarsjóður þjóðleikhiissins
á meiri tekjum að halda. Árið
1948' nam allur skemtanaskatt-
urinn.2.3 milj. kr., og af því
rann til fjelagsheimilasjóðs
50 U- eða kr. 1.150.000,00. — í
desember s I var úthlutað
styrkjum úr sjóðnum 590 þús.
kr. til 25 aðila en umsóknir
bárust frá 105. Byggingarkostn
aður þessara 25 fjelagsheimila
cr áætlaður 7,5 milj. kr,, þannig
að styrkurinn til þeirra byrfti
að vera rúmlega 3 milj. kr. Ef
ni.ííað er við 105 fjelagsheim-
iii- þá er byggingarkostnaður
þeirra áætlaður 35 milj. kr. og
styrkur úr fjelagsheimilasjóði
þ . 14 milj. kr.
Þessar upplýsingar sýndu
greinilega, að fjelagsheimila-
sjóður hefði litla möguleika til
að fullnægja hinni brýnu nauð
syn á að byggja samkomuhús í
sveiíunum og kauptúnunum.
En erfiðleikarnir á fjelagsstarfi
í trjálbýlinu, ættu einn ríkasta
þéttinn í að flæma unga fólk-
ið úr bygðum landsins.
Kvaðst ræðumaður vona að
þingmenn fylgdu þessu frum-
varpi um að auka tekjur fje-
lagsheimilasjóðs og þjóðleik-
bússsjóðs, því að þótt ýmsir
þetr aðilar, ,sem eru undan-
þegnir því að greiða skemt-
anaskatt segist verja arði sín-
um til menningarmála, þá tel
jeg nauðsynina enn meiri á að
styrkja hið menningarlega
starf, sem fjelagsheimilissjóð-
ui á að vinna. — Umræðum
ver írestað.
Vilja qm eignir GySinga
uppiækar
DAMASKUS, 17. febr. — Sam-
kvæmt góðum heimildum, hafa
Sýrlendingar gert það að til-
)ogu sinni við Arababandalagið
að eignir Gyðinga í löndum
Araba verði gerðar upptækar.
Ætlast er til þess, að eignirnar
vsrði notaðar til þess að að-
•stoða arabiska flóttamenn frá
Paiestínu. — Reuter.
Yfirgangsstefna Rússa
G-ENF: — Paul R. Porter, fulltrúi
Eandáríkjanna á verslunarráð-
íítefnunni í Genf, hefur lýst því
yfir, að Bandaríkjamenn muni
Ir /.'da ■ áfram að banna útflutn-
>ri-g á hernaðarvörum til Russa,
á meðan rússneskir valdhafar
bdida txl streitu núverandi yfir-
gangsstefnu sinni.
Viðskiptajöfnuð-
urinn hagstæður
SAMKVÆHT, upplýsingum frá
Hagstoíunni, varð vöruskifta-
jöfnuður janúarmánaðar hag-
stæður um 1,7 milj. kr. Verð-
mæti útfluttrar vöru nam 24,7
miljónum, en innfluttrar 23
milj. kr.
Ekk) hafði Hagstofan lokið
við sundurliðun innflutnings-
ins í gær, en stærstu liðir út-
flutningsveíslunarinnar voru
þá fyrirliggjandi og eru sem
hjer §egir:
Freðfiskur var stærsti liður
útflutningsins, fyrir um 10,8
milj. kr. Til Þýskalands fór
fiskur fyrir 5,5 milj. kr. — Sala
þessi er liður í Marshall-aðstoð
inni. Þá keyptu Hollendingar
freðfisk fyrir um 1,2 milj. og
Bretar fyrir 3,7. Smærri slatt-
ar fóru til Bandaríkjanna og
Sviss. Næst kemur ísvarinn
fiskur sem allur fór til Bret-
lands, að upphæð 7,5 milj. kr.
Óþurkaður saltfiskur var seld-
ur til Ítalíu og Grikklands
fyrir um 3,7 midj. kr. samtals.
Nokkuð fór einnig af þurkuð-
um saltfiski til Brasilíu og
Kúba. Þorskalýsi var selt fyrir
um '500 þús. kr. og fór það til
Danmerkur, Palestínu og lítils
háttar til Bandaríkjanna. Síld-
armjöl fór til Hollands fyrir
um 290 þús. kr. Ull var seld
til Danmerkur og Ungverja-
lands aðallega og nokkuð til
Þýskalands fyrir um 900 þús.
kr. Loks var svo nokkuð magn
selt af niðursuðuvörum til
Tjekkóslóvakíu fyrir um 164
þús. og lítilsháttar til Banda-
ríkjanna.
Rjett er að geta þess að lok-
um, að í janúar 1948 var vöru-
skiptajöfnuðurinn hagstæður
um 2,4 milj. kr.
Frú Fjéla Fjeldsted
lálin
FRÚ FJÓLA FJELDSTED and-
aðist að heimili sínu hjer í bæn-
um s.l. sunnudag, eftir langa
og þunga sjúkdómslegu.
Frú Fjóla var prýðileg vel
gefin kona, er hafði aflað sjer
víðtækrar þekkingar á ýmsum
efnum, sem snerta störf kvenna.
Hún naut trausts og virðingar
allra, sem hana þekktu.
MARGIR gerðu það að
gamni sínu í gærmorgun að
gera snjókerlingar. Mentaskóla
nemendur og nemendur Gagn-
fræðaskóla Vesturbæjar bjuggu
til myndarlegar kerlingar, sem
hjer birtast myndir af.
(Ljósm. Mbl- ÓI. K. Magnúss.)
Forlngja Fram-
sóknarílokksins
í Eyjum vikið úr
stjórn Búnaðarfje-
la|s Veslm.-eyja
Á FUNDI í Búnaðarfjelagi
Vestmannaeyja fyrir skömmu
var Helga Benediktssyni kaup-
manni veitt lausn í náð frá
stjórnarstörfum í Búnaðarfje-
lagi Vestmannaeyja, þótt kjör-
tímabili hans þar væri ekki lok-
ið. —
Var þetta gert með atkvæða-
um Framsóknarmanna í ije-
laginu.
Eru viðsjár miklar í flokkn-
um, því hinir óbreyttu liðsmenn
sem voru með í brottvikningu
Helga hafa sætt þungum átöl-
um flokksforustunnar, en vilja
engali iðrunarvott sýna.
Hýfi úlílufningsmel Brefa
Einkaskeyti frá Iíeuter.
LONDON 21. febr. — Bretar
settu nýtt útflutningsmet í jan-
úarmánuði s.l. Fluttar voru út
vörur, er námu að verðmæti
159 milj. pund. Innflutningur
nam í sama mánuði 187 milj.
pundum.
áiger sigur lýðræðissiöna.
LÝÐRÆÐISSINNAR unnu um síðustu helgi algeran sigur í
stjórnarkosningunum, sem fram fóru í Fjelagi járniðnaðar-
manna. Af 247 mönnum á kjörskrá greiddu 288 atkvæði, en úr-
slit urðu þau, að B-listi (lýðræðissinnar) hlaut 115 atkvæði en
A-listi 102.
Lýðræðisöflin í fjelaginu
fengu alla menn sína kosna.
} Snorri Jónsson og Kristinn Ág.
Eiríksson náðu hinsvegar ekki
kosningu, en þeir hafa báðir átt
sæti í stjórn fjelagsins um und-
anfarin ár. í formannssæti var
kjörinn Sigurjón Jónsson með
121 atkvæði, en Snorri fjekk
106. 1 varaformannsembættið
var kosinn Skeggi Samúelsson,
ritari Egill Hjörvar og vararit-
ari Ingimar Sigurðsson. I trún-
aðarmannaráð: Sólon Lárusson,
Erlingur Ingimundarson og Jón
Þorláksson, og varamenn: Sig-
urjón Guðnason og Jón Jóhann-
esson.
Sjálfkjörnir voru Bjarni Þór-
arinsson (fjármálaritari), Loft-
ur Ámundason (gjaldkeri, utan
stjórnar) og Kristján Huseby
(trúnaðarmannaráði).
Aðalfundur fjelagsins verður
væntanlega næstk. fimmtudag.
Víðskiliansind gefur
meinað mönnum að
iara úr landi
SÍÐASTLIÐINN laugardag
kvað Einar Arnalds borgardóm-
ari upp dóm í máli, sem Sæ-
mundur Þórðarson kaupmaður
höfðaði gegn Viðskiptanefnd.
vegna þess, að honum hafði ver
ið meinað að- fara til útlanda.
Gat hann ekki fengið keyptan
farseðil til utanlandsferðar
vegna fyrirmæla nefndarinnar.
Sæmundur hafði fengið synjun
um ferðaleyfi hjá nefndinni, en
hann hafði ætlað að dvelja er-
lendis á vegum kunningja sínS
og fór ekki fram á gjaldeyris-
leyfi til ferðarinnar.
Borgardómari sýknaði nefnd-
ina á kröfum stefnanda, en máls
kostnaður var látinn falla nið-
ur.
í iyrrinóii broinuðu
53 símasiaurar
MIKLAR skemdir urðu á síma
kerfinu fyrir austan Rangár-
í fyrrinótt. Þar geisaði ofviðri
og brotnuðu 53 símastaurar.
Samfara veðrinu var mikil
ísing á símalínunum og blind-
hríð, og hjelst hún í allan gær-
dag og ekk) unt að ganga úr
skugga um, hvort fleiri staur-
ar hafi brotnað.
I gærkveldi var komið síma-
samband við Hvolsvöll.
Sigurjón Jónsson-
Ágóði um 20 þús.
krénur
HINN árlegi fjársöfnunardag-
ur Kvennadeildar Slysavarna-
fjelagsins hjer í bænum var
s.l. sunnudag. Nú mun meira
fje hafa safnast en á þessum
degi í fyrra, en þá komu inrx
19.500 krónur.
í gærkveldi var búið að skila
ágóða af merkjum og dansleik.
er samtals nam um 1900 krón-
um. Þá áttu enn margir eftir
að skila af sjer peningum fyr«
ir seld merki og talið er víst
að salan í ár myndi fara frara
yfir t)að sem kom inn í fyrra.