Morgunblaðið - 21.04.1949, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.04.1949, Blaðsíða 1
16 síður Ný rálsfefna í Londen um Evrópuráiii fyrirhugaða Ufanrtkisráiherrar 10 landa koma saman 3. maí Kínverskir kommúnistar róðost á tvö bresk herskip á Yangtsefljóti Einkuskeyli til M1>1. frn Keuter. LONDON, 19. apríl. — Samkvæmt áreiðanlegum heimild- um, munu utanríkisráðherrar Bretlands, Frakklands, Hollands, Belgíu, Luxembourg, Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur, ítaliu og Eire koma saman á ráðstefnu í London 3. maí n. k. til þess sö halda áfram umræðum um hið fyrirhugaða Evrópuráð, en þegar það verður stofnað, munu utanríkisráðherrar fyrr- nefndra landa eiga sæti í því. Ráðherraráðstefnan mun^ meðal annars eiga að ræða kostnaðinn af Evrópuráðinu og hvernig honum verði skipt milli þátttökulandanna. og' hvort taka eigi til greina þátt- tökubeiðni Grikklands og Tyrk lands. 87 fulltrúar. Á sendiherraráðstefnu þeirri, sem lauk í síðastliðinni viku og einungis fjallaði um stofn- un Evrópuráðsins, mun hafa náðst samkomulag um, hversu margir fulltrúar eigi sæti á Evrópuþinginu, sem vinna á með ráðinu. Alls munu þing- fulltrúarnir eiga. að verða 87 og' skiptast þannig milli landa- Fi'akkland, Bretland og Ítalía 18 fulltrúa hvert, Belgía, Sví- þ.]óð og Holland sex hvert, Ðanmörk, Eire og Noregur 4 hvert og Luxembourg 3. Truman skipar nýjan sendlherra í Moskva 50 láta lífil í jarðskjálffa Einkaskeyíi frá Reuter. SANTIAGO, 20. apríl: — Vitað er nú, að að minsta kosti 50 menn ijetu lífið og yfir eitt hundrað meiddust í miklum jarðskjálfta, sem varð í Mið- Chile í nótt sem leið. Manntjón og skemdir virðast hafa orðið meiri en fyrst var talið. — Enn er ekki vitað með vissu um manntjónið, enda er sambandslaust við ýms hjeruð. Sagt er að 30 fangar hafi lát- ið lífið í Traiguen, er fangelsis- byggingin þar hrundi til grunna. Fimm drepnir SINGAPORE, 20. apríl: — Eldvörpur voru í dag notaðar á Malakkaskaga í átökum yfir valdanna þar gegn ofbeldis- seggjum kommúnista. Fimm þeirra ljetu lífið. — Reuter. Sökkvandi skip SYDNEY, 20. apríl: — For- sætisráðherra Ástralíu skýrði frá því í dag, að kommúnistum færi nú fækkandi þar í landi. Jafnvel leiðtogar þeirra eru byrjaðir að yfirgefa hið sökkv- andi skip, sagði hann. •— Reuter. Nýr sendiherra. Tiuman forseti útnefndi í gær Alan Kirk fiotaforingja, sem sendiherra Bandaríkjanna | í Moskva. Báist við stórárás kín- verskra kommánista Afræður sfjórnin að fly fja frá Nanking! Einkaskeyti lil Mbl. frá Reuler. NANKING, 20. apríl: — Fallbyssukúlur frá stórskotaliðssveit- um kommúnista byrjuðu að falla á suðurbakka Yangtsefljóts í kvöld, um líkt leyti og ráðuneyti Ho Ying Chins forsætisráð- herra kom saman til fundar, til þess meðal annars að ákveða hvort stjórnin eigi að flytja bækistöðvar sínar frá Nanking eða dveljast áfram í borginni. Flugvjelar eru hafðar til taks til að flytja stjórnina á brott, ef svo verður ákveðið. WASHINGTON, 20. apríl: — Truman forseti skipaði í dag Alan Kirk flotaforingja, sendi herra Bandaríkjanna í Moskva. Kirk kemur í stað Bedel Smith, sem látið hefir af störfum og nu er kominn til Bandaríkj- anna. Kirk flotaforingi, sem nú er sendiherra Bandaríkjanna í Belgíu og Luxembourg,'stjórn- aði meðal annars flotanum, sem flutti bandaríska innrásar- hermenn til Normandy. — Reuter. Árásin var undir- búin í Albaníu At>ENA, 20. apríl: ■— Rann- sóknarnefnd Sameinuðu þjóð- anna á Balkanskaga hjelt fund í Áþenu í dag og samþykkti þar skýrslu um árás skæruliða á Florina í Noiður Grikklandi í febrúarmánuði síðastliðnum. Skýrslan er bygð á frásögnum ^jónarvotta, en samkvæmt henni kemur í ljós. að árásin hefir verið þvínæK algerlega undirbúin í Albaníu. — Reuter. Stór árás í aðsígi Þegar ráðuneytisfundurinn hófst, höfðu stjórnarhersveitirn ar þegar hafið ákafa skothríð á kommúnistaherina, sem nú búa sig sýnilega undir stórárás. í ráði var að fundurinn hjeldi áfram fram yfir miðnætti, til þess að ráðherrarnir gætu sam- eiginlega fengið skjótar fregnir af atburðunum á vígvöllunum við Yangtse. í kvöld heyrðust fallbyssu» drunurnar greinilega í Nanking, enda hafa bardagarnir nú bor- ist mjög nálægt borginni. Sum ar af fallbyssukúlum og sprengi kúlum kommúnista, sem beint var gegn víggirðingum stjórnar herjanna við Nanking, féllu svo nærri, að hús í borginni nötr- uðu. Sprengikúlurnar ollu víða íkveikjum, og eldarnir sjást nú greinilega frá hinni umsetnu borg. Talið að um tufitugu sfóliðar huii iullið Þrjú herskip á leið !il hjálpar. Einkaskeyti til Mhl. frá Reuter. NANKING, 20. apríl: — Talið er að 20 breskir siéliðar hafi látið lífið og um 45 særst, er kommúnistar í dag hófu skot- bríð á tvö herskip á Yangstsefljóti. Allir þeir föllnu og 20 af þeim særðu voru á hersnekkjunni ,,Amethyst“, sem fyrst varð fyrir árás, cr hún sigldi upp fljótið frá Shanghai, en hún átti að leysa af vcrðf tundurspillirinn „Consort“, sem að und- anförnu hcfir haldið vörð um líf og eignir breskra borgara í Nanking. Frá frjettaritara Morgunblaðsins KAIIPMANNAHÖFN, 19. apríl: — Rússncskur flotahátur stöðvaði í gær danskan vjelbát, sem var að veiðum fyrir utan 12 mílna landhelgina í Eystrasalti. Var einn af skipshöfn danska bátsins tekinn höndum og fluttur um borð í rússneska skip ið vegna þess, að hann hafði ekki vegabrjef meðferðis. Búist er við að sjómaðurinn verði flutt ur til pólskrar hafnar. Annar danskur vjelbát- ur, sem stundar veiðar í Eystrasalti, kom til Kaupmannahafnar í gær eftir að Rússar liöfðu haldið hátnum í lettneskri höfn í 8 daga — Skips- höfnin skýrir frá því, að rússneskt herskip hafi teldð þá, þar sem þeir voru 21 sjómílu frá landi. Var skipshöfnin yfir- hcyrð og einkutn um stjórnmálaskoðanir hvers cinstaks. Rússar spurðu þá m a hvar þeir hefðu- verið staddir er Atlants- hafssáttmálinn var undir ritaður. — Páll. Grænlandsleiðangur kemur hjer við PARÍS, 19. apríl: — Paul Emile Vrctor, leiðtogi fransks Grænlandsleiðangurs, lagði í kvöld af stað flugleiðis til ís- lands um Skotland. Þar mun hann fará um borð í Grænlands farið „Fjellberg“, sem fór frá Rouen 13. apríl með 33 leið- angursmenn. Á íslandi verður lokið við undirbúning Græn- landsfararinnar. — Reuter. Neyðarmerki. Skothríðin á ,,Amethyst“ olli því, að skipið strandaði, en ,,Consort“ og kínverskur tund- urskeytabátur heyrðu neyðar- merki þess. Nú er vitað að þrjú bresk herskip —- ,,Consort“, „London” og „Black Swan“ — sjeu komin í námunda við strandstaðinn og muni bíða þar til birtir til þess að fara her- snekkjunni til hjálpar. „Con- sort“ varð fyrir fallbyssuskot- um frá kommúnistaherdeildum, er tundurspillirinn fyrst reyndi að finna snekkjuna. — Hann svaraði skothríðinni, en varð þó að hörfa undan. Reynt að gera við skipið. Frjettir frá Chinkiang herma, að hinir særðu sjóliðar af ,,Am- ethyst“ hafi verið fluttir þang- að á sjúkrahús, en breskir sjó- menn munu enn vera um borði^ í skipinu og reyna nú að gera við það, ef takast rnætti að koma því á flot. 80 mílur frá Nanking. Atburðir þessir gerðust um 80 mílur frá Nanking. Liðsfor- ingjar úr hersveitum stjórnar- innar, sem sáu er árásin var gerð á „Amethyst“, segja, að hersnekkjan hafi ekki stöðvast við fyrstu árásina. Kommúnist- ar beindu fallbyssum sínum þá á ný að henni, en eftir það varð erfitt að sjá hvað gerðist. Samveidisianda- ráðherrar koma fil London LONDON, 20. april: — Sex ráðherrar eru nú komnir til London í sambandi við sam- veldislandaráðstefnuna, sem þar er um það bil að hefjast. í dag komu ráðherrar frá Ástra líu, Nýja Sjálandi og Pakistan, en Nehru, forsætisráðherra Hindustan, er væntanlegur seint í kvöld. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.