Morgunblaðið - 26.05.1949, Blaðsíða 8
8
MORCVNBLAÐIÐ
Fimxntudagur 26. maí 1949.
I
JKmngniiMiiMfr
0tg.: H.Í. Arvakur, Reykjavík
SVamkv.stj.: Sigfús Jónssot
Ritstjórl: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri ívar Guðmundssoi
4.uglýsingar: Árni Garðar Kristinsson
Ritstjórn, auglýsingar og aígreiðsi*
A.usturstræti 8. — Sími Í600
^skriftargjald kr. 12.00 á mánúði. inr,*c
kr. 15.00 utanlands.
ausasölu 60 aura »intakið, 75 aura með
Hálfi flokkurinn
FRAMSÓKNARFLOKKURINN, flokkur fortíðarinnar, hefur
nú loks fundið það að hin neikvæða og flöktandi stefna
hans hefur firt hann trausti fjölda þess fólks, sem eitt sinn
veitti honum brautargengi. Þess ve^na ærist aðal málgagn
hans nú og eys daglega botnlausum svívirðingum yfir
Sjálfstæðisflokkinn og forystumenn hans.
Tíminn heldur því fram í gær að vegna'þess að þingflokkur
Sjálfstæðismanna greiddi ekki allur eins atkvæði um upp-
bætur á laun opinberra starfsmanna, þá sje það auðsætt mál
að flokkurinn sje klofinn. Einnig í þessu kemur minni ■
máttarkennd Framsóknar greinilega í ljós. Undanfarin ár
hefur það örsjaldan hent að þingflokkur Framsóknarmanna
hafi staðið sameinaður um afstöðu flokksins til stórmála
Er hægt að sanna þetta með nokkrum dæmum.
Haustið 1946 sömdu íslendingar við Bandaríkjamenn um
brottflutning alls herafla þeirra úr landinu og tímabundin
viðkomurjettindi á Keflavíkurflugvel.li fyrir flugvjelar
þeirra á leið til hernámssvæðanna í Evrópu. Mikil átök urðu
um þetta mál á þingi og með þjóðinni. Svo að segja hver
einasti fylgismaður lýðræðisflokkanna í landinu var fylgj-
andi samningi þeim, sem Ólafur Thors lagði fyrir þingið og
samþykktur var þar með miklum meirihluta atkvæða.
Hver var afstaða Framsóknarflokksins í því máli?
Hann klofnaði í tvennt. Helmingur flokksins undir for-
ystu Eysteins Jónssonar greiddi atkvæði með Keflavíkur-
samningnum, en helmingurinn á móti undir forystu Her-
manns Jónassonar. Þannig var „einingu“ Framsóknar háttað
í þessu mikilvæga utanríkismáli.
Litlu síðar þurfti flokkurinn að taka afstöðu til stjórnar-
myndunar formanns Alþýðuflokksins í samvinnu við hina
tvo lýðræðisflokka. Formaður Framsóknar, Hermann Jónas-
son, barðist eins og ljón gegn henni og naut fylgis nokkurra
þingmanna flokksins. En hann varð í minnihluta. Meiri-
hluti flokksins vildi borgaralega samvinnu og þátttöku í
samsteypustjórn með Sjálfstæðisflokknum og Alþýðuflokkn-
um. Framsóknarflokkurinn hafði enn reynst hálfur í afstöðu
sinni til stórmáls.
Vorið 1949 þurfti flokkurinn svo að taka afstöðu til þátt-
töku íslendinga í varnarbandalagi lýðræðisþjóðanna, At-
lantshafsbandalaginu svokallaða. Enn gerðist sama sagan.
Meirihluti Framsóknar fylgdi Eysteini Jónssyni og greiddi
atkvæði með samvinnu við hinar vestrænu lýðræðisþjóðir
um öryggismál. Hermann Jónasson lýsti sig andvígan henni
og greiddi ekki atkvæði. Fylgdu honum örfáir af þing-
mönnum flokksins og tvö pólítísk viðrini úr Alþýðuflokkn-
vílverji ólrij^a
ÚR DAGLEGA
LÍFINU
Bifreiðaskoðun.
ÞESSA DAGANA eiga 6—7
þ>’ '• bílaeigendur hjer í bæn-
um, að koma með bifreiðar sín
ar til skoðunar hjá bifreiða-
eftirlitinu. Það er árleg „hrein
gerning“, sem vafalaust er nauð
synleg, því það eru sumir sem
halda því fram, að ástæða væri
til að athuga oftar, hvort farar
tæki manna eru í lagi.
Þeir, sem ekki eiga „luxus“
til að líða í um bæinn, gætu nú
ef til vill hugsað með sjer, að
ekki sje það mikið, þótt bíla-
eigendur sjeu kallaðir til hins
opinþera einu sinni á ári til að
standa fyrir máli sínu.
Við skulum líta á það.
o
Fyrst er skrifstofa
svo er . . .
FYRST er spýta, svo er spýta
.... sagði maðurinn. Og það
má nú segja með bifreiðaeftir-
litið. Ef bifreiðaeigandi hefir
vanrækt að koma með bilinn
sinn bann dag, sem auglýst var
að hans númer ætti að koma,
kemur lögreglan og límir gul-
um miða á gluggarúðuna með
hótunum um allt illt, ef mað-
urinn æði ekki tafarlaust inn
í bílaeftirlit.
Þegar þangað kemur, er
hinn gleymni bílaeigandi mint
ur á, að hann eigi að koma með
vátryggingaskírteini og sýna
að hann hafi borgað vátrygg-
ingu. Þá er að sækja það.
Og svo byrja hlaupin frá
einni skrifstofunni á aðra
•
Margar hendur
vinna ljett verk
EN EFTIRLITIÐ gengur
greitt. Einn skrifar í bók, ann-
•ar skrifar líka í bók, en sá
þriðji í kladda og sá fjórði gef
ur kvittun.
Skoðunarvottorð, ökuskír-
teini Takk.
Og þá er að líta á skrjóðinn.
Fyrst er að aka spöl og sjá
hvort hemlar eru í lagi, þá að
gá undir vagninn, þreifa dálít
ið og þukla. Alt í lagi, nema
bara að þjer getið ekki fengið
eftirlitsmerki fyr en númerin
eru komin í dag. Það hefir
kvarnast úr þeim!
Það kvarnast
úr þeim öllum
OG ÍSLENSK bílanúrner eru
með þeim ósköpum gerð, að
það kvarnast altaf úr þeim.
Það þarf ekki nema að skrúfa
þau föst, þá kvarnast úr þeim.
En gott ráð fæst við því, þarna
situr maður sem tekur á móti
pöntunum, nýju númerin
skulu verða til eftir tvo daga.
28 krónur takk, kontant.
— Er hægt að fá keypt hluta
brjef í fyrirtækinu, sem selur
bílanúmer Það hlýtur að vera
gott fyrirtæki!!!
Ha, ha, ha, — hi, hi, heyrist
í embættismönnunum.
•
Hegningarvottorð
og augnvottorð.
EN HVAR er annars ökuskír
teinið? — Það verður sent nið-
ur á lögreglustöð. Það er út-
runnið. Þjer eruð búinn að aka
nærri því í heilt ár með ólög-
legt, ökuskírteini.
— Er það nú eftirlit —
Og manni verður við eins og
skólastrák, sem hefir komið
með orðabók Geirs undir jakk
anum á prófi í enskan stíl og
kennarinn hefir „nappað“
hann.
Hvað ætli verði nú gert við
mann? Ætli maður verði ekki
settur í Steininn? eins og Bogi
sagði, þegar hann greip strák-
inn með Geirsbók, á prófinu.
„Nei, það er bara áð fá hegn
ingarvottorð og augnvottorð“,
segir embættismaðurinn. Þá
fáið þjer nýtt skírteini. —
splunkunýtt.
Frá 9—12 f.h.
ÞÁ ER að labba suður til
sakadómara og fá afrit af hegn
ingarvottorðinu, hjá Guðlaugi.
Á því stendur: „tvisvar sinn-
um áminntur fyrir að leggja
bíl ólöglega“. Það á að færast
inn á ökuskírteinið, samkvæmt
reglugerð frá . .. ., hvern
skramban kemur það málinu
við hvenær sú reglugerð var
gefin út. Hegningarvottorð eru
afhent kl. 9—12 f.h_ og kosta
þrjár krónur. Og þá er það
augnlæknirinn .Kanski vissara
að borga Sjúkrasamlagið fyrst
áður en lagt er í halarófuna
hjá lækninum. — Nýr krókur
— ný skrifstofa — ný útgjöld.
Dagurinn er búinn og hinn
lánsami lúxuseigandi vildi
helst taka sjer leigubíl heim
og auglýsa skrjóðinn til sölu
hjá Leifsstyttunni, en þá er
fyrst að meta vagninn, jafnvel
áður en hann er seldur á svört
um markaði.
Það getur hver sem er mælt
skriffinskunni bót, jeg segi
svei.
Manni væri nær að ganga.
•
Meyjarnar mæddu
TVÆR MEYJAR, sem eru gð
lesa undir próf, eru það sem
þær kalla „mentskælingar“
hafa sent mjer stuttan pistil í
tilefni af. Já, þið sjáið af hvaða
tilefni. Pistillinn þeirra er á
þessa leið:
„Víkverji góður! N
Við lásum pistil yðar i Morgun
blaðinu í morgun. Þar stendur
meðal annars, að ýmsir hafi
öfundað skíðafólkið í gær, og
menn gætu sjálfum sjer um
kent, að 'hafa ekki farið á skíði.
Þjer takið ekki tillit til þess,
að fjöldi af ungu fólki lifir nú
sínar erfiðustu stundir í skelf-
ingu prófanna. Við viljum því
hjermeð leiðrjetta þennan mis-
skilning. Og þeir, sem sátu úti
á svölum við hræðilegan próf-
lestur síðastliðinn sunnudag,
áttu enga ósk heitari en að
komast á skíði.
Og svo voru það
svanirnir.
„ÚR ÞVÍ að við erum byrjað
ar að skrifa yður, viljum við
minnast á morgungöngu, sem
við fórum þennan umrædda
sunnudag, suður í Hljómskóla-
garð, til að skoða svanina
frægu. Þeir voru staddir á
litla pollinum, í suðurendan-
um, og‘voru.tígulegir á að líta.
En umhverfið var ekki bein-
linis í samræmi við hina fögru
fugla. Engu var líkara en svan-
irnir hefðu verið á „general“-
fyllirii um nóttina, því að
brennivínsflöskur flutu á poll
inum, og auk þess alls konar
spýtnftrusla. — Vertu sæll“.
Bless!
. mmmmmmmmmmmmmmmmmmm mmmmmmmi ~
MEÐAL ANNARA ORÐA .... I
um.
Þannig er „einingin“ í Framsókn undir forystu „sterka“
mannsins, sem var forsætisráðherra í 8 ár og gengur síðan
með ólæknandi „ráðherrapest“.
Hvernig er nú hægt að búast við því, að flokkur, sem er
hálfur í hverju máli, jafnvel hinum stærstu utanríkismál-
um, sje líklegur til giftusamlegrar forystu í íslenskum
stjórnmálum?
Sannleikurinn er sá að Framsóknarflokkurinn finnur það
mæta vel að kjósendur í sveitum landsins, sem fylgt hafa
honum að málum, eru að gefast upp á að treysta honum.
Tvískinnungshátturinn og stefnuleysið í hinum örlagarík-
ustu málum er ekki bændum að skapi. Það er einmitt vegna
þess að Framsóknarmenn sjá þetta, sem blað þeirra hefur
undanfarið verið í kosningaham. Þeir óttast að þess lengri
tími, sem líði til kosninga, þess meira muni fylgistap flokks-
ins verða. Tímanum hefur þess vegna verið gefin skipun
um að brýna raustina og reyna að telja almenningi trú um
að allt það, sem aflaga fer í meðferð opinberra mála um
þessar mundir, sje Sjálfstæðisflokknum að kenna.
Barátta Framsóknarflokksins og blaða hans er þannig
nú^eins og oft áður, neikvæð.
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkur þjóðarinnar. Hann
hefur haft forystu um þær framkvæmdir undanfarinna ára
sem þjóðinni munu reynast drýgstar til giftu. En hann
þarfnast hreins meirihluta á Alþingi til þess að bæta úr því
íjölmarga, sem aflaga fer nú í hinu íslenska þjóðfjelagi.
Leynilegir ofbeidisf lokkar valda vandræðum í Egypialandi
Eftir Gilbert Sedbon,
frjettaritara Reuters.
CAIRO — Ofbeldisflokkar og
leynifjelög ýmiskonar gera nú
stjórnarvöldunum í Egyptalandi
mjög erfitt fyrir. Hjer eru með-
al annars á ferðinni kommún-
istasellur og öfgasinnar úr fje-
lögum Múhameðstrúarmanna,
og árangurinn af þessari leyni-
flokkastarfsemi er nú orðinn
sá, að stjórnin hefur ákveðið
að láta herlögin, sem sett voru
á í fyrra, verða í gildi í eitt ár
enn.
Enda þótt allt virðist á yfir-
borðinu rólegt í Cairo, hefur
rannsókn lögreglunnar leitt í
ljós, að þar í borg eru starf-
andi vel skipulögð og vopnuð
leynifjelög, sem framið hafa
fjölda pólitískra morða.
Þessi morðalda náði hámarki
sínu, er Mahmoud Fahmy el
Nokrashy Pasha forsætisráð-
herra var ráðinn af dögum í
desember síðastliðnum.
VOPNABÚR
FINNAST
ÝMS SKJÖL, sem egyptska
lögreglan hefur komist yfir,
benda til þess, að ofbeldisflokk-
arnir stefni að algerri upplausn
í Egyptalandi. Stjórnarandstað-
an, sem um skeið barðist fyrir
afnámi herlaganna, hefur nú
viðurkennt hætturnar, sem þess
ari starfsemi eru samfara, og
fallist á nauðsyn þess, að her-
lögin verða áfram í gildi.
Lögreglan í Cairo, sem nýíega
hóf mikla herferð gegn ofbeld-
isflokkunum, hefur fundið leyni
leg vopnabúr á nokkrum stöð-
um í borginni. Sumt af vopnun-
um var í eigu Bræðralags Mú-
hameðstrúarmanna, en þau sam
tök hafa verið bönnuð. Talið er
að þau hafi verið að búa sig
undir að taka Cairo með valdi.
• •
BRESKAR OG
ÞÝSKAR FALL-
BYSSUR
VOPNABÚRIN fundust í þeim
borgarhl., sem lögreglan ætlar
j að Yussef Malek, leiðtogi öfl-
ugs ofbeldismannaflokks, leyn-
ist í. Flokkurinn er meðal ann-
ars talinn bera ábyrgð á morði
Nokrashy Pasha.
Maíek er enn ófundinn, en í
sambandi við leitina að honum
fannst stærsta leynilega vopna-
búrið, sem egyptska lögreglan
hefur rekist á frá ófriðarlokum.
í vopnabúri þessu voru breskar
og þýskar fallbyssur, vjelbyssur
og rifflar, 1500 handsprengjur,
2,000,000 byssuskota, margir
kassar af öflugu sprengiefni,
ávaxtakörfur fullar af tíma-
sprengjum, 16 loftskeytatæki
og mikill fjöldi af einkennis-
búningum hersins og lögregl-
unnar.
• •
VÍÐTÆK OFBELD-
ISVERK FYRIR-
HUGUÐ
ME.ÐAL þeirra, sem handteknir
vóru í sambandi við þennan
fund. var Mustafa el Battáwy,
sem talinn er hafa átt sök á
Framhald á bls. 12.