Morgunblaðið - 20.06.1949, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 20.06.1949, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 19. júní 1949. Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, kr. 15.00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók. Yfir hverju Einar þegir ÞAÐ UNDARLEGA fyrirbrigði hefur verið gert að um- talsefni áður, hvílíku dúnalogni hefur slegið á Einar alþingis- mann Olgeirsson, eftir að hann kom heim frá kommúnista- íundinum í Prag. Menn kunna að geta ráðið í ástæðurnar fyrir þögn hans með því að athuga hvað fram fór á fundi þessum. M. a. þetta: Ritari flokksins Rudolf Slansky gaf um það skýrslu á fundinum, að síðustu mánuði hafi 107.000 manna verið reknir úr kommúnistaflokknum þar í landi. Og búist sje við, að fleiri muni á eftir koma. Þessi staðreynd getur verið nokkuð ískyggileg, jafnvel fyrir Einar Olgeirsson. Að af þeim mönnum, sem í febrúar 1948 fylgdu hinum tjekkóslóvakiska kommúnistaflokki, og einræ'iisstjórn hans, hafa nú 107,000 manna reynst vera orðnir svo veikir í trúnni á einræðið, eða því svo fráhverfir, að yfirstjórn flokksins hefur talið nauðsynlegt að gera þá flokksræka. Að sjúlfsögðu er það gefið upp, að afbrot þeirra sje, að þeir haía reynst vera undir „fjandsamlegum áhrifum“ frá hinum ardkommúnistisku þjóðum. Samtímis sem það var upplýst á fundinum, að nauðsyn hefði borlð til, að hegna svo mörgum fyrir fráhvarf frá ilokknum, skýrði ritari flokksins frá ýmsum vandkvæðum, og erfiðleikum í atvinnurekstri þjóðarinnar. Altof fáir verka- menn hefðu fengist til að taka þátt í Stachanov-hreyfingunni, eða hinu kommúnistiska kerfi um ákvæðisvinnu, sem notað er í Rússlandi, til að reyna að auka afköstin og verður til þess, að verkamenn fá ákaflega misjafnt kaup. Ennfremur komu íram kvartanir undan því, að eftir þjóðnýtingu iðn- aðarins í landinu, hefði vörugæðum hrakað, og framleiðsl- unni seinkað. Alt eru þetta bendingar um, að hin komm- únistiska einræðisstjórn, ætli að reynast miður heppileg íyrir búskap þjóðarinnar. Eins og við var að búast. Og hún mætir þeim mun meiri andstöðu, sem hún er lengur við völd. Flokksritarinn beindi þeirri ósk til flokksmanna, að þeir reyndu að telja menn með góðu, á að halda trygð við flokkinn. En svo kom „höfuðpaurinn“ Gottwald, sem Þjóðviljinn kallar svo, og tilkynti, að allir landsmenn ungir og gamlir, konur og karlar, yrðu að aðhyllast kenningar Lenins og Stalins undandráttarlaust. Og til þess að koma í veg fyrir alt fráhvarf skyldi kenna þessi fræði í öllum smábarna- skólum landsins. Samtímis var Gottwald venju fremur blíðmáll í garð Vesturveldanna. Talaði að vísu um „yfirgangsstefnu“ þeirra. En tók það fram, að hann væri því á engan hátt mótfallinn að viðskifti ykjust milli Vesturveldanna og Tjekkóslóvaka, „ef Stalin lofar“ hefði hann getað bætt við. Hluturinn er, að síðan kommúnistar tóku völdin í Tjekkó- slóvakíu, hefur mestum viðskiftum þjóðarinnar verið beint til Rússlands. Þaðan komið dýrar og óhentugar vörur. En framleiðsla landsmanna verið seld þangað fyrir lítið verð Kjör þjóðarinnar farið sífelt versnandi. Fyrir febrúarbylt- inguna voru líískjörin þar svipuð og í Vestur-Evrópu lönd- um. En nú er þar alt með öðrum svip, sultur og vöruþurð, svipuð og rússneska þjóðin á við að búa. Á þessu þingi kommúnista í Tjekkóslóvakíu var það látið í veðri vaka, að þjóðin myndi geta fengið bætt kjör sín, með því að taka upp meiri viðskifti við Vesturveldin. En vitaskuld eru Tjekkar ekki einráðir í þeim efnum. Þeir fá ekki að leita viðskifta við andkommúnistiskar ríkisstjórnir, nema að svo miklu leyti sem Moskva-stjórnin leyfir. Gefi hún það leyfi, þá færir hún líka óbeinlínis sönnur á, að hver sú þjóð, sem bundin verður á klafa hinna austrænu viðskifta, sekkur í armóð. Fulltrúi Moskva-stjórnarinnar á fundi þessum, var Malen- kov, einn af stofnendum og stjórnendum „Kominform“. Þetta eru nokkrar helstu frjettirnar af fundinum í Prag. Gera þær skiljanlega þögn Einars Olgeirssonar, sem +ekið hefur þann kost, að láta ekkert uppi um það alvarlega ástand, er ríkir í landi Gottwalds. tar: 'varji óbripa ÚR DAGLEGA LÍFINU Harðger( dansfólk. GÓÐVIÐRIÐ.brást á þjóðhátíð- ardaginn, eins og stundum áður. Lýðveldið var stofnað í ausandi rigningu og það má búast við, að afmælisins verði oft minst í.slíku veðri. En þrátt fyrir rigninguna tóku menn þátt í hátíðahöldun- um og ekki hvað sist dansinum á malbikinu. Það var að vísu ekki neinn listdans, en fólkið skemti sjer vel, það var aðal- atriðið. En harðgert dansfólk munu Reykvíkingar vera kall- aðir. • Skrautið. sem hvarf. ÞEGAR borgarbúar vöknuðu í gærmorgun og gengu til vinnu sinnar sáust þess lítil merki, að borgin hefði verið skreytt dag- inn áður. I einstaka verslunar- glugga voru enn skreytingar, en flaggstengur allar af götun- um, hljómsveitarpallur og ræðu pallar ásamt tilheyrandi skrauti var horfið. Það er eitthvað vit i slíkri framtakssemi. Oft hefir það komið fyrir áður, er bærinn hef ir verið skreyttur, að flagg- stengurnar hafa staðið dögum saman. Dugleg hátíðancfnd. ÞAÐ er bráðdugleg hátíðanefnd sem sá um þjóðhátíðarhöldin að þessu sinni og hún á lof skil- ið fyrir hve vel henni fór allur undirbúningur og stjórn hátiða haldanna úr hendi. Sumir nefndarmenn hafa ver ið í hátíðanefndinni í nokkur ár. Það verður að skipa þá í nefnd á ný, ef guð lofar þeim og okkur að lifa. • Smekklegir versl- unargluggar. ALLMARGIR verslunarmenn gerðu þá sitt til að lífga upp á heildarsvipinn í bænum. Að visu er ekki hægt að segja, að það hafi verið alment, en við- leytni margra var virðingar- verð. Jeg vil ítreka tillöguna um verðlaun fyrir smekklegustu þjóðhátíðarskreytinguna i versl unarglugga næsta ár. • Lygasagan um klámmyndirnar. MARGA mun hafa rekið í roga- stans er þeir sáu frjettina frá dómsmálaráðuneytinu um nið- urstöður rannsóknarinnar í klámmyndamálinu svo nefnda. Mánuðum saman hafa gengið sögur um ólifnað islenskra kvenna á Keflavíkurflugvelli. Skrifaðar hafa verið greinar í blöð og tímarit, þar serri full- yrt hefir verið, eða gengið út frá því sem heilögum sannleika, að á Keflavíkurflugvelli eyði starfsmennirnir frístundum sín um m. a. í að taka Ijósmyndir af nöktum íslenskum stúlkum. Jafnvel presturinn í stólnum hefur lagt orð í belg í þessu sambandi. Og svo er þetta bara lýgi! • Mættum vift fá meira að heyra? ALMENNINGUR vill gjarna fá meira að heyra um þetta mál. Hvaða menn eru það, sem gáfu út klámmyndirnar og í hvaða tilgangi? Hverjir breiddu út sögurnar og hvað kom þeim til? Var það gert í ákveðnum til- gangi? Hvaða hegningu fá lygalaup- arnir, ef nokkra? Að þessu og ýmsu fleiru spyr almenningur og þætti vænt um að fá svör við. Og loks. Eru fleiri siíkar lyga sögur i umferð. • Fugladráp um varptímann. ÓVIÐKUNNANLEGT er það að sjá nýdrepna fugla til sölu í I matarverslunum um varptím- ann. Það má vel vera, að erfitt sje um þessar mundir að afla j nýmetis á borð manna. en hing- :að til höfum við bjargast af án þess að lifa á fugladrápi rjett á meðan varptíminn stendur sem hæst. Gæti ekki Dýraverndunar- fjelagið beitt sjer fyrir, að þessi ósómi verði afnuminn9 * Alþingishús- garðurinn. ,NÚ HEFIR Alþingishúsgarður- inn verið opnaður fyrir alroenn- ing. Það er strax bót i máli, þótt hitt hefði verið betra, eins og bent var á hjer í vor, að rífa niður eitthvað af hinum háu múrveggjum, sem hylja fegurð þessa skrautgarðs og sem er einn af fegurstu görðum bæjar- ins. En Reykvíkingar ættu nú að nota tækifærið á góðviðrisdög- um og skoða garðinn og þá munu kröfurnar um, að hann verði alveg opnaður verða há- værari. Það fer að lokum eins með Alþingishúsgarðinn og t. d Bæj arfógetagarðinn gamla við Aðal stræti, Austurvöll á sínum tíma og aðra skrautgarða, sem lokað- ir voru, að hann verður almenn ings eign. • Vel unnið í skraut- görðum bæjarins. ÞAÐ er til sóma fyrir okkur hvað bæjaryfirvöldin láta hugsa vel um bæjargarðana- Nú er verið að setja niður blóm í þá og innan skams standa þeir í fullum skrúða. Unglingar vinna mest að gróðursetningu og við- haldi garðanna. Reykvíkingar taka þessu með þökkum og nú kemur það varla fyrir lengur, að skemdarverk sjeu unnin í skrautgörðum og það sýnir hve vænt mönnum þykir um blómskrautið. IIMHMIItlllllllMIMIIIMIMIIIIi IMMMMIMIIIMMIMIMMtllB < MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . IHHHIIHHIHItHHHHIHHHHHHHHHIIHHHHHHHHHHHHHHHHIIIHHIHIIHHHIIHIIHHIIHHHHIHHHHHIIt ttllll/í Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Belgíu. Eftir ERIC KENNEDY, frjettaritara Reuters. KNOCKE — Kvikmyndafólk fiá 20 löndum, þar á meðal þremur ,,járntjaldslöndum“, mun koma saman í Knocke, Belgíu, 18- þessa mánaðar, en þá hefst þar í borginni önnur alþjóðlega kvikmyndahátíðin, sem haldin er í landinu. Hátíðin mun standa yfir í 28 daga samfleytt. Það voru Frakkar, sem aðal- verðlaunin hlutu á, fyrstu belgisku kvikmyndahátíðinni, sem haldin var í Brussel 1947. Verðlaunin hlutu þeir fyrir myndina „Le Silence est D’or“, en Maurice Chevalier fór með aðalhlutverkið. SENDA ATTA MYNDIR. NÚ þykir sýnt, að Frakkar ætli aftur í ár að reyna að kló- festa fyrstu verðlaun. Þeir hafa tilkynnt, að þeir muni álls senda átta myndir á sýning- una. Frá Hollandi koma sex myndir og fimm frá Bretlandi og Ítalíu. Onnur lönd, sem myndir senda, eru: Argentína, Ástralía, Belfíía, Danmörk, Grikkland, Holland, Indland, ísrael, Júgó- slavía, Kanada, Mexico, Pólland Portugal, Suður Afríka, Sví- þjóð og Tjekkóslóvakía. FYRSTA FLOKKS MYNDIR. KVIKMYNDIR verða sýndar belgiskum dómurum og gagn- rýnendum frá fjölda landa tvisv 1 ar á dag, allan þann tíma, sem kvikmyndahátíðin stendur yf- j ir. Sýningarnar fara fram í . geysistórum sýningarsal í aðal- skemmtistaðnum í Knocke, en ! margir telja, að hann sje sá | íburðarmesti í allri Evrópu og þótt víðar væri leitað. í sýn- ingarsalnum eru sæti fyrir 1,200 manns_ Myndirnar, sem sendar verða á hátíðina, hljóta undantekn- ingarlaust að vera ívr-ta flokks myndir, þar sem mjög ströng dómnefnd velur þær í hverju (landi. Einstaklingar geta þó sent framleiðslu sína, en mynd- ir verða ekki teknar frá þeim, nema belgisk gagnrýnenda- nefnd fyrst gefi þeim viður- kenningu sína. HEIMSÞEKKTAR „STJÖRNUR“. MARGIR af þekktustu kvik- myndaleikurum heimsins komu á hátíðina, sem haldin var 1947. Brussel varð þá um skeið nokk urskonar paradís kvikmynda- dýrkenda. I ár er búist við því, að fjöldi breskra og franskra leik- ara flykkist á hátíðina, enda eiga þeir stutt að sækja. ! Á hinn bóginn er ekki búist við öðrum bandarískum kvik- myndastjörnum en þeim, sem nú eru starfandi í Englandi. DÝR HÁTÍÐ. ÁÆTLAÐ er, að þessi kvik- myndahátíð muni kosta belg- isku stjórnina um eina miljón Ifranka (um ein og hálf miljón króna). Borgarstjórnin í Kno- cke hefur auk þess ákveðið að leggja tvær miljónir franka fram til hátíðahaldanna og versl unarmenn og gistihúsaeigendur á staðnum hafa lofað tveimur og hálfri miljón. Sýning myndanna og starf dómnefndarinnar verður eina ,,álvarlega“ hliðin á kvikmynda hátíðinni. í undirbúningi eru allskonar skemmtanir, svo sem hljómleikar, útisamkomur, dansleikir og fþróttamót. Pierre Vermeylen, innanríkis ráðherra Belgíu, er forseti há- tíðarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.