Morgunblaðið - 20.06.1949, Page 8

Morgunblaðið - 20.06.1949, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Synnudagur 19. júní 1949. Áttræð Mnrgrjet Guðnadóttir Lýðveldishútíðin HINN 11. þ .m. fyllti Marg’jet Guðnadóttir fra Miðkoti í Fljóts- hlíð áttugasta áratuginn. Hún er fædd að Hallgeirseyjarhjá- leigu í Austur-Landeyjum 11. júní 1869. Foreldrar hennar vcru Guðni Guðnason og kona hans Elín ísleifsdóttir.. Þriggja ara missti hún föður sinn, en hún var yngst af tólf systkinumím. Þar af dóu fimm í æsku en nú er Margrjet ein á lífi af hinum stóra hóp. Margrjet dvaldi með móður sinni til tvítugsaldurs. — Rúmlega tvítug heitbast hún sveitunga sínum Jóhanni Krist- mundssyni frá Syðrí-Úlfsstöðum, en eftir skammar' en ástríkar samvistir mátti hún sjá á bak ástvini sínum, seín drukknaði í sjóróðri við Vestmannaeyjar. Jó- hann var óvenju.vel að sjer eftir því sem þá tíðkaðist um alþýðu- menn. Minnist jeg ekki að hafa sjeð fegurri rithönd en hans Missi unnusta síns bar Margjjet með þeirri stillingu'og skapfestu sem svo mjög einkéhna hana. Nokkrum árum síðar gekk hún að eiga Svein Jónsson frá Lamba læk í Fljótshlíð. Hófu þau hjón- in bússkap að Skíðbakka í Aust- ur-Landeyjum og bjuggu þar um skeið. Frá Skíðbakka fluttu þau eftir fárra ára bússkap að M^ð- koti í Fljótshlíð. Þar bjuggu pau til ársins 1922 en þá ljest Svernn eftir langvarandi og erfiðan sjúk dóm. Miðlaði Margrjet mar.ni sínum af sinni miklu fórnfýst í veikindastríði hans og veitti hon um þá hjúkrun og umönnun, sem hún framast gat í tje látið. Fkki voru þáu Miðkotshjónin efnuð en til þeirra var þó oft leitað. Sveinn var hinn mesti hagleiks- maður í handbragði sínu og var jafnvígur á trje og járn. Voru þeir margir sem Miðkotsbónd- ann þurftu að finna og láta hann laga það sem úrhehdis fór. Frá honum fór enginn synjandi ef möguleikar voru til úrbóta. Cft- ast vann hann án endurgjalds. Þau hjónin voru samanvalir. í greiðvikni og góðvild og ljetu ef svo bar undir sín störf sitja á hakanum til þess að verða öðr- um að liði. Innan húss setti Margrjet sinn svip á. Allt var þar í röð og reglu, hver hlutut á sínum sfað og staður fyrir hvern hlut. Hirðu semi og iðjusemi skipuðu þar hinn æðsta sess. — . . Hinum mörgu gestum sem að garði bar, var veitt af rausn, þó ef til vill hafi ekki altaf veiið af miklu að taka. Þeim Margrjeti og Sveini var tveggja barna auð- ið. Þau eru Jóhanna, sem búsett er í Vestmannaeyjum og ísleif- ur trjesmiður í Hvolsvelli, en auk barna sinna ólu þau upp að miklu leyti tvö börn. Skömmu áður en Margrjet ljet af búskap tók hún á heimili sitt Kristínu systur unnusta síns, sem fyrr er getið. Með þeim hafði snemina bundist órjúfandi vináttu- og tryggðaband. Eftir lát Sveins bónda í Miðkoti tók sonur hans ísleifur við búskap. Hjá honum hafa þær vinkonurnar dvalið æ síðan. Fyrst um tvo áratugi í Miðkoti, en hin síðari ár í Hvols velli. ísleifur og kona hans hafa gert alt til þess, að sem best færi um gömlu konurnar. Kristin er nú 88 ára gömul, þrotin að líkamskröftum, en les enn án gleraugna. Margrjet hefur til þessa að miklu leyti annast um Kristínu sem hefur verið rúm- liggjandi að mestu mörg undan- farin ár. Margrjet frá Miðkoti tekur altaf daginn snemma, oft er hún þegar aðrir rísa úr rekkju búin að afkasta miklu starfi. E:gi ósjaldan tekur hún sjer penna í hönd á morgnana og skrifar sin- um mörgu vinum og kunningj- um. Enn er skrift hennar hrein og skýr, þó hún hafi lítillar til- sagnar notið á uppvaxtarár m- um. Margrjet frá Miðkoti hefur ekki gerst víðreist um dagana. Starf hennar hefur að mestu vcr- ið bundið við heimilið, en af móðurlegri umhyggju hennar hafa margir notið. Hennar æðsta gleði er að gera öðrum gott. Fnn er hún sí starfandi frá morgni til kvölds. Iðjusemin er henni í blóð borin. Það er naumast nóg að segja að hún sje sístarfandi, því hún er jafnan að keppast við að koma einhverju af. Þann- ig hafa árin liðið í miklu starfi og mikilli starfsgleði. Hún er kona heilsteypt og hreinlynd. hennar vináttu er gott að eiga. Á þessum merkilegu tímamótum árna jeg þjer allra heilla, Mar- grjet mín og óska þjer þess að aftanskinið verði sem bjartast og fegurst. P. -Fundur Framh. af bls. 1 Parísarráðstefnunni frestað einn dag Bevin og Schuman sitja ráð stefnu þessa og verða því engir fund(ir á Parísarrá^ðetefnunni í dag. Ætlunin hafði verið að þeirri ráðstefnu lyki í gær- kveldi en svo varð þó ekki og verður fundum haldið áfram á sunnudag_ (Framh. af bls. 2) þvingað Pjetur Einarsson, er hann fór fram úr honum). Úrslitin. Helstu úrslit urðu þessi: 100 m. hlaup: — l.»Finnbjörn Þorvaldsson, ÍR, 10,8 sek., 2. Haukur Clausen, ÍR, 10,9 sek., 3. Guðmundur Lárusson, Á, 11,0 sek. og 4. Ásmundur Bjarnason, KR, 11,2 sek. Kúluvarp: — 1. Gunnar Huse- by, KR, 15,59 m., 2. Friðrik Guð- mundsson, KR, 14,26 m., 3. Sigfús Sigurðsson, Selfossi, 14,01 m. og 4. Ástvaldur Jónsson, Á, 13,77 m. 800 m. hlaup: — 1. Óskar Jóns son, ÍR, 2.00,9 mín., 2. Pjetur Einarsson, ÍR, 2.01,9 mín., 3. Stefán Gunnarsson, Á, 2.03,1 mín. og 4. Eggert Sigurlásson, KR, 2.03,3 min. Spjótkast: — 1. Jóel Sigurðs- son, ÍR, 56,69 m., 2. Halldór Sig- urgeirsson, Á, 51,58 m., 3. Magn- ús Guðjónsson, Á, 48,13 m. og 4. Gunnlaugur Ingason, Á, 47,40 m. 5000 m. hlaup: — 1. Njáll Þór- oddsson, Á, 17.24,6 mín. og 2. Victor E. Múnich, Á, 18.07,8 mín. 1000 m. boðhlaup: — 1. Ár- mann 2.08,2 mín., 2. ÍR 2.13.2 mín. og 3. Á (drengir) 2.14 4 mín. 100 m. hlaup kvenna: — 1. Hafdís Ragnarsdóttir, KR, 13,6 sek., 2. Sesselja Þorsteinsdóttir, KR, 14,2 sek., 3. Elín Helgadótt- ir, KR, 14,6 sek. og 4. Margrjet Margeirsdóttir, KR, 14,6 sek. Mótið hjelt áfram í gær, en vegna þess hve blaðið fer snemma í prentun á laugardög- um, er ekki hægt að skýra frá þeim úrslitum hjer. Hátíðahöldin á Arnarhóli Hátíðin á Arnarhólstúni hófst klukkan 8.30. Þar var einnig margt um manninn. Hjálmar Blöndal, formaður hátíðarnefnd arinnar setti samkomuna- Guð mundur Ásbjörnsson, forseti bæjarstjórnar flutti skörulega ræðu, en Karlakór Reykjavík- ur, Tónlistarfjelagskórinn og Þjóðkórinn skemtu með söng. Einar Pálsson leikari las upp og Guðmundur Jónsson óperu söngvari söng við mikinn fögn uð áheyrenda. Tvö heillaóskaskeyti bárust samkomunni- Annað var frá Gunnari Thoroddsen borgar- stjóra en hitt frá Verslunar- skólastúdentum, sem staddir eru um borð í Dr. Alexandrine á leið til Danmerkur. — Er- lendur Pjetursson las skeytin og fagnaði mannfjöldinn kveðj unum. Dansinn hófst Að samkomunni á Arnarhóls túni lokinni hófst dáns á Lækj artorgi. Palli hafði verið kom- ið fyrir á torginu, þar sem hljómsveitirnar voru. Tóku menn brátt almennan þátt í dansinum og áður en langt leið varð að tvískifta dansfólkinu og þá einnig dansað á Ingólfs- stræti. Margar hljómsveitir skiftust á að leika fyrir dansinum, sem var hinn fjör- ugasti á köflum_ Alfred Andrés son skemti með gamanvísna- söng. Útvarpsþulur sagði frá há- tíðahöldunum, en Erlendur Pjetursson stjórnaði dansinum af miklum skörungskap. Við og við var þulur beðinn að aug- lýsa eftir fólki. sem hafði orðið viðskila við vini og kunningja og bar sú auglýsingastarfsemi góðan árangur í flestum tilfell- um. Dansinn dunaði fram til kl. 2 án afláts og með mikilli þátt töku- Lauk hátíðinni með því, að Erlendur Pjetursson bað menn að hrópa ferfalt húrra fyrir Reykjavíkurborg og var það gert vel og kröftuglega. Þrátt fyrir óhagstætt veður, þótti háúðin takast hið besta. Nýir fiskar á Fiskasýninguna FISKASÝNINGUNNT við Freyjugötu, átti í gær að bæt- ast nokkrar nýjar fisktegundir. Eru það vatnafiskar hverskon- ar frá meginlandi Evrópu. Fiskarnir áttu hingað að koma með flugvjel frá Kaup- mannahöfn í gærkvöldi. Sýningin hefur verið mjög vel sótt, bæði af börnum og fullorðnum. Rudolf Hess fyrir rjetti MUNCHEN, 18. júní: — Rud- olf Hess fyrrum staðgengill Hitlers og Sepp Dietrich fyrrum yfirmaður SS sveitanna hafa verið dregnir fyrir lög og dóm og eiga þeir að svara til saka fyrir þátttöku í „hreingerning- unum“ í Þýskalandi 1934, þeg- ar meðal annars Ernst Röhm hershöfðingi var myrtur af sveitum nasista. — Reuter. Markúú £ y, ifiiiiiiiniiimimii ■ miiitiiffiiimiiimmmmmmmi Eftir Ed Dodd Niimimmmiiiiiiiimiiiiiimiiiiiiimiiiiimimimmimiiiiiiimmi I nc. rULLU»V»ll>IV3 Mwni’n'^w |- Markús hafði einu sinni rjett horf. kent Tov/ne lífgunaraðferðir og i — Já, það var Vígbjöfn og nú kemur það að góðu haldi.: hans menn. En jeg f jekk högg- Markús fer brátt að anda og ið í hnakkann áður en jeg gat hjartslátturinn að komast í fengið sannanir fyrir því, að þeir voru að stela við frá rík- ínu. — Vígbjörn. Það var verið að segja mjer, að þessi Markús vær^kominn aftur eins og ekk- ert hefði ískorist. — Já, þá verðum við að fara að vara okkur. Áttræðisafmæli JÓN BJÖRNSSON fyrrum- bóndi á Hvoli í Olfusi, er átt- ræður í dag. Hann fæddist í Bakkarholtsparti í Ölfusi 19. júní 1869 og dvaldi í fæðing- arsveit sinni fram á árið 1926. Hann kvæntist 11. júlí 1897, Guðrúnu Gottskálksdóttur frá Sogni í sömu sveit. Þau hófu búskap í Króki og bjuggu þar í níu ár. Þaðan fluttust þau að Hvoli og bjuggu þar á hálfrí. jörðinni fram á árið 1926. Þá fluttust þau til Hafnarfjarðar og þar hafa þau dvaliðst lengst af síðan. Þau eignuðust 12 börn^ sem komust til fullorðinsárá, 10 þeirra eru nú á lífi. Þau hjón hófu búskgp eignalítil eða eigna laus. Þau bjuggu á rýrum jörð- um. Þau áttu og ólu upp þenna stóra barnahóp. Af því má ráða að oft hafa þau átt erfitt upp- dráttar, og að þau hafa verið samhent og dugleg Búskapurinn gaf að sjálf- sögðu ekki nægilegt til þess, að fæða og klæða þenna stóra barnahóp. Annara fanga þurfti að leita. Jón stundaði því sjó- inn auk búskaparins. Hann reri. út flestar vertíðir meðan hann var eystra, suður með sjó.og i Þorlákshöf/i. Hann þótti góður sjómaður og mun hafa kunnað öllu betur við sjórnennskuna en önnur störf. Jón Björnsson getur nú litið yfir langa æfi. Hann á margs að minnast. Oft hafa boðar ris- ið fram undan, bæði á landi og legi. Oft hefur róðurinn verið þungur og lending óviss. En hann þarf ekki eingöngu að minnast erfiðleikanna, því að þrátt fyrir þá, hefir hann verið lánsmaður. Hann eignaðist góða konu og hc fur búið með henni í hamingjusömu hjónabandi yf- ir 50 ár. Hann eignaðist mörg efnileg börn, sem öll urðu dug- andi menn og hlúa nú að hon- um í ellinni. Hann sigraðist á öllum erfiðleikum. Hann máttí ekki vamm sitt vita. Hann get- ur því horft rólegur yfir runnið æfiskeið. —- Þau hjón dvelja nú hjá Birni syni sínum, Öldu- torgi 1, í Hafnarfirði. G. B„ Uppíinnlngamsnn í æffínni LONDON — Edith Shand, sem er engu minni uppfinninga- maður en faðir hennar og afí voru, vinnur þessa dagana að því að smíða barnavagn. sem. aðeins á að vega 4V2 pund og hægt verður að brjóta saman og bera undir handarkrikanum. Áður hofur hún fundið upp ýmis önnur tæki. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.