Morgunblaðið - 20.06.1949, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 20.06.1949, Qupperneq 12
REYKJAVÍKURBRJEFIÐ er $florötmWaí>ií> 135. thl- — Sunnudagur 20. iúní 1949. á blaðsíðu 7. — Stúdentamótið sett með virðulegri athöfn Pað er annað norræna sfúdentamóíið hjer K3REÆNA stúdentamótið var sett með virðulegri setningar- .alhötn í hátíðasal Háskólans að viðstöddum öllum hinum er- terdii: stúdentum, sem hingað eru komnir og fjölda íslenskra stúdenta: Bergur Sigurbjörnsson cand. oecon formaður mót- nefndarinnar bauð gesti velkomna og prófessor Alexander jó- og ræðu, en íslenskir tónlistarmenn ljeku á hljóðfæri. Cand oecon. Bergur Sigur- björnsson bauð hina erlendu stúdenta velkomna og lýsti því, tive fslendingar virtu mjög fcc'im'sókn stúdentanna, sem hefðu þrátt fyrir mikinn kostn- að og erfiða ferð lagt á sig að heimsækja okkur. Hann sagði, að Islendingar gætu ekki eins og hinar Norðurlandaþjóðirnar sýnt háreistar, fornar bygging- ar e'ða aðra svo dýrðlega list- muni. Það væri þó von manna, heimsókn stúdentanna gæti orðið tii þess, að erlendu gesí- n '+i.r kyntust landi og þjóð eins og það væri nú og hefði dagskrá mótsins verið hagið með tilliti ti! þess. Satneiginleg menning Narðurlanda. Próf. Alexander Jóhannesson flutti. setningarræðu á skandi- naviska tungu. Hann benti m. a. á það í ræðu sinni, hve menn- ing Islendinga væri skyld )')‘i ningu hinna Norðurland- atma A3 hinar Norðurlanda- þjóðirnar hefðu sótt menning- arverðmæti í fornbókmentir ís- Jc-udinga, en nýtísku bókméntir Islendinga væru einnig mikils- v rðar í sameiginlegri menn- ingu Norðurlandanna. A.-dii'i á föðurlandinu. Próf. Alexander sagði, að hið dýrrnætasta með hverri þjóð værl ástin á föðurlandinu Próf. Alexander sagði og að á und- anförnum styrjaldarárunum hcfðu rnargar Norðurlandaþjóð ii' orðið þess varar, að meðal þeirra fundust menn, sem vildu fórna sjálfstæði þjóðar sinnar fyrii: persónulegan hagnað. — Bað hann stúdenta að standa vörð um sjálfstæði Norðurlanda þjóöanna. Að lokum lýsti hann Norræna stúdentamótið sett. Til kyimingar og vináttu. . Mentamálaráðherra, Eysteinn Jónsson talaði og benti m. a. á hve þýðingarmikil slík stúd- cntamót væru til kynningar og vinát’tu þjóða í milli. V veðjur og ávörp. Þá voru lesnar kveðjur frá rrientamálaráðherrum Norður- lahda og að lokum fluttu for- menn erlendu stúdentahópanna ávörp og þökkuðu fyrir allar móttökur hjer á landi. Á milli ræðannaj voru flutt tónverk á pí j.nó og blásturshljóðfæri, en áð lokum söng öll samkoman EÍudentasönginn Gaudeamus igi tur. WASHÍNGTON — Mirza, her- málaráðherra Pakistan, hefur að uridanförnu átt viðræður við ýmsa fulltrúa í bandaríska her- r< '■!;>: 'ðuneytinu. Skógardaguf Reykvíkinga HINN árlegi skógardagur Reyk víkinga er í dag. Skógræktar- fjelag Reykjavíkur efnir til skóggræðslufarar í land sitt við Rauðavatn. Þetta er þriðja árið, sem efnt er til skógræktardags og hefur áhugi manna fyrir þátt töku í skóggræðsluförinni vaxið með ári hverju og í fyrra sumar varð þátttakan mest. í dag er í ráði að gróður- setja birki, norskt rauðgreni og furu. Grenið og furan er frá Norður-Noregi. Alt það fólk, sem hyggur til þátttöku í skógardeginum, þarf að vera mætt við Ferðaskrif- stofu ríkisins kl. 1,30, hafi það ekki til umráða annan farkost_ Norsku skógargesf- irnir farnir norSur NORSKA skógræktarfólkið fór frá Þingvöllum snemma í gær- morgun áleiðis til Akureyrar, og er ætlunin að það gisti á Akureyri í nótt. Það verður sennilega um kyrt þar í dag, en fer síðan austur í Vaglaskóg og heldur gróðursetningu áfram þar. Hákon Bjarnason skógræktar stjóri stjórnar ferðinni sem fyrr. Hjer sunnanlands höfðu Norð mennirnir gróðursett í allt 23,300 plöntur. Aðalfundur Ppresfafjel. fslands 19. júní AÐALFUNDUR Prestafjelags íslands, verður haldinn á morg- un, mánudag, í Háskólanum. Fundurinn hefst þar með morgunbænum kl. 9.30, en því næst hefjast venjuleg aðal fundarstörf og önnur þau fje- lagsmál, sem upp kunna að verða borin. Sr. Björn Magnússon flytur erindi á fundinum um rjettindi og skyldur embættismanna. — Þá verður rætt um nauðsyn á fræðslu presta um sálsýki. Dr_ Helgi Tómasson yfirlæknir, hef ir framsögu í málinu og sr. Jakob Jónsson. Einnig mun verða flutt guðfræðilegt orindi en aðalfundinum á að ljúka um kvöldið, með kvöldbænum. Skrúðganga íþróttamann 17. júní. Hluti af fylkingu íþróttamanna a Íþróítaveijinum þann 17. júní. (Liósm. Mbl.: Ól. K. Magnúss.lj Fullveldisins aninst í 200 m hlaupi i New York Times 17. JÚNÍ-MÓTIÐ hjelt á- fram í gær og hófst það með keppni í 200 metra hlaupi. Finnbjörn Þorvaldsson bar sigur úr býtum. Hijóp hann vegalengdina á 21,9 sek sem er mjög góður tími. Annar varð Guðmundur Lárusson úr Ármanni á 22,0 sek. og þriðji Haukur Clausen á sama tíma. Hörður Haralds- son, Ármanni, varð fjóvði í mark á 22,6 sek. Keppni í fleiri greinum var ekki lokið, er Mbl. fór í prentun. Blómum slolið í Elll- heimilisgarðinum GARÐURINN við Elli- og hjúkrunarheimilið Grund er nú í fullum skrúða, þakinn hinum fegurstu túlípönum. En sem kunnugt er, er garður þessi einn hinn fallegasti blómagarður bæjarins. Tvær nætur í röð hefur verið farið ránshendi um garðinn og stolið þar blómum. I bæði skift in hefur tekist að hafa hendur í hári þjófanna. í fyrra skiftið voru það tvær stúlkur og í hið seinna tveir nýbakaðir stúd- entar. STÓRBLAÐIÐ ,,The New York Times“ birti ritstjórnargrein þann 17. júní í tilefni 5 ára afmælis lýðveldis á íslandi, undir fyrirsögninni: „ísland fagnar“. Þar segir á þessa leið, í laus- legri þýðingu: „Elsta núverandi lýðræðis-' ríki heimsins, sem nú er, ásamt Bandaríkjunum, aðili að Norð- ur-Atlantshafsbandalaginu, heldur sjálfstæðisdag sinn há- tiðlegan í dag. Þetta lýðræðis- ríki er ísland, sem þann 17. júní 1944 sleit á.friðsaman hátt | tengslin við konungsríkið Ðan- mörku, með samþykki Dana- konungs og með miklum fögn- uði þjóðarinnar. Þá var stofn- að frjálst og fullvalda lýðveldi á íslandi. Ávalt, hvort sem þar ríkti höfðingjavald, konungdæmi eða lýðveldi, hefur ríkt lýðræði ,á íslandi, frá því landið var byggt fyrir rúmlega þúsund ár- um af Norðurlandabúum, sem blandaðir voru írsku blóði. Þar hefur aldrei þekkst éin- ræði og þar hefur ekki verið stjórnað án laga og rjettar. Þar var stofnað elsta þjóðþing heimsins, sem setti eigin stjórn- arskrá og stofnsetti Alþingi, sem enn stendur, árið 1930. eða rúmlega fimm hundruð árum áður en Ameríka fanst. Saga þessa lýðræðislands hef ur ekki liðið án erfiðleika og myrkvana um stundar sakir. En það er langt síðan, að þjóðin hefur náð þroska og staðfestu. — Hin trausta mentaða þjóð hefur skapað nútíma ríki. Flugöldin hefur valdið því að landið er orðið óvenjulega hern aðarlega mikilvægt og þjóðini hefur komist í nánara samband við Bandaríkin og Bretlahd.en. nokkru sinni áður. Vjer óskum ríkisstjórninnpog íslensku þjóðinni til hamingju á þjóðhátíðardeginum og ósk- um hamingju og auðs í fram- tíðinni.“ 17. júní minnsf í London SENDIHERRA íslands í Lon- *don hjelt mjög virðulega mót- |tökuhátíð 17 júní í tilefni þjóð j hátíðardagsins j Var þar mættur hinn mesti fjöldi íslendinga og breskia ís- landsvina, og skemmtu menn sjer hið besta. Síðustu ísfisksölur mjög Ijelegar í Bretlandi í SÍÐASTL. viku seldu 12 íslenskir togarar ísvarinn fisk á markað í Bretlandi og Þýskalandi. Seldu sex í Þýskalandi og sex í Bretlandi. Alls seldu togararnir, sem lönduðu í Bretlandi, fyrir um kr. 1.180.485. Þeirra söluhæstur var Elliði. Mars var með mestan afla þeirra togara, sem lönduðu í Þýskalandi. Þýskaland. Alls fluttu togararnir á mark að í Þýskalandi um 1982 tonn. Þar var togarinn Mars með 314 smál., Júlí 252 smál., Askur 291 smál., Jón forseti 302 smál., Bjarni Ólafsson 255 smál., Karlsefni 283 smál. og Geir var með 285 smálestir. Bretland. Sölur togaranna á Bretlands- markað voru yfirleitt heldur Ijelegar í síðastl. viku, eins og fram kemur hjer á eftir. Sem fyrr segir var togarinn Elliði frá Siglufirði með hæsta sölu. Hanrt seldi 5009 kit fyrir 14.313 sterlingspund. Helgafell Re var með 3727 kit og seldi fyrir 10.101 pund, Bjarni riddari var með 4706 kit af fiski og seldi fyrir 6332 pund. Garðar Þor- steinsson 4712 kit og seldi fyrir 4937 pund, Fylkir 4400 kit fyrir 5837 pund og Haukanes, sem var með 2730 kit, seldi fyrir 3747 sterlingspund.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.