Morgunblaðið - 21.06.1949, Síða 1
16 síður
36. árgangur.
136. thl. — Þriðjudagur 21. júní 1949.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
SAMKOMULAG FJÓRVELDAIMISIA I PARÍS
Ðngsbrúnnrverkiallinu lokið
Akvarðanir um efnahags-
mál Þýskalands og friðar-
i vinutiiwEtti iu imV Lw uuiii iiwnnuii
VERKFALLI Dagsbrúnarmanna er lokið og hef ja þeir vinnu
í dag. Verkfall þetta hefur staðið í sex sólarhringa. Vinnu-
veitendasamband íslands og verkamannafjelagið Dagsbrún,
samþykktu í gær hinn nýja kaup- og kjarasamning, en sam-
kvæmt honum verður tímakaup í almennri verkamanns-
vinnu kr. 3,08 á klukkustund, en var áður 2,80.
17 klst. fundur. ‘
Sáttasemjari ríkisins í vinnu-
deilum. Torfi Hjartarson. er
fjallaði um þetta mál, hefur und
anfarna daga átt marga fundi
með deiluaðilum. Síðasti fundur
hans með þeim hófst á sunnu-
dag kl. 4 síðd., en hann stóð til
kl. 9 í gærmorgun, en þá skrif-
uðu fulltrúar vinnuveitenda og
verkamanna undir hinn nýja
samning, með þeim fyrirvara,
að samþykki beggja fjelaga
þyrfti til staðfestingar á sam'n-
ingnum.
Aðilar samþykkir.
Síðdegis í gær hjelt stjórn
Vinnuveitendasambandsins
fund, svo og verkamannafjelag-
ið Dagsbrún. Var samningurinn
nýi samþykktur af báðum aðil-
um.
Samningurinn.
Samkvæmt kaup og kjara-
samningi þessum, hækkar kaup
verkamanna í hinum ýmsu
flokkum verkamannayinnunnar
frá kr. 0,20 til kr. 0,28. Eins
og fyrr segir verður tímakaup
í almennri verkamannavinnu
kr. 3,08, en var áður kr. 2,80.
Verkamenn sem laun sín fá
greidd mánaðarlega fá nú 580
krónur, en fengu áður 530 kr.
Kaup bifreiðastjóra hækkar úr
580 í 630 krónur á mánuði.
Má telja að launahækkun
þessi nemi að meðaltali um 7%,
þegar tekið er tillit til hækk-
ananna í hinum ýmsu launa-
flokkum.
Kröfurnar.
Þegar stjórn Dagsbrúnar sagði
samningunum upp og gerði
Vinnuveitendasambandinu
kunnugt um kröfur sínar, voru
þærKá þá leið, að tímakaup í
almennri verkamannavinnu
skyldi hækkað um 45 aura, eða
um það bil 16%.
Greinargerð vinnuveitenda.
I sambandi við lausn þessarar
vinnudeilu, hefur Vinnuveit-
endasambandið beðið Mbl. að
birta eftirfarandi greinargerð:
Vinnuveitendasamband ís-
lands óskar að láta þess getið,
að samkvæmt hinum nýja kaup
og kjarasamningi, er það gerði
í gær við Verkamanafjelagið
Dagsbrun í Reykjavík, þá nem-
ur hin umsafnda kauphækkun
að meðaltali um 7%, sjö af
hundraði.
Jafnframt vill Vinnuveitenda
sambandið geta þess, að aðstaða
þess við samningsgjörð þessa
var gerð mun erfiðari vegna
þess að netagerðin Höfðavík h.f.
(Sigurður B. Sigurðsson) samdi
þann 27. maí s. 1. og Netastofan
h.f. (Frímann Olafsson) samdi
um síðastl. mánaðarmót, um
18% hækkun á kaupi netavinnu
fólks og þann 10. þ. m. samdi
Fjelag ísl. iðnrekenda um ca.
15% kauþhækkun við Iðju, fjel.
verksmiðjufólks.
Nefnd fyrirtæki eru ekki fjel
agar í Vinnuveitendasambandi
Islands. ^
FLESTIR akvegir landsins eru
nú opnir fyrir allri umferð,
eftir óvenjulega langan vetur_
Enn er þó ófært yfir Jökul-
dalsheiði og vestur á Snæfells-
nesi er Fróðárheiði enn ófær,
en einhver von er um að úr
rætist bráðlega. Hraðferðirnar
milli Akraness og Akureyrar
eru hafnar fyrir nokkru.
Anna Pauker fallin
r r /,A»
ionao
LONDON, 20. júní —
Breska dagblaðið Daily
Telegraph birtir í dag
skeyti frá frjettaritara
sínum í Búkarest, þar sem
því er haldið fram, að í
Rúmcníu sjcu í vændum
stórkostlegar ,,hreingern-
ingar“ í kommúnista-
flokknum. Virðast allar
líkur henda til, að jafn-
vel Anna Pauker verði
rekin úr flokknum og
kærð fyrir njósnir, vegna
þess, að hún hefur ekki
verið algjörlega leiðitöm
Rússum, en viljað sjá hag
lands síns í sumum atrið-
um. — Reuter.
samninga við Austurríki
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
PARÍS, 20. júní: — Ráðstefnu utanríkisráðherranna fjögurra í
París lauk í dag. Eftir síðasta fundinn var birt sameiginleg
skýrsla frá ráðherrunum um störf ráðstefnunnar. Segir í henni,
að ráðherrarnir hafi náð samkomulagi í ýmsum atriðum Þýska-
landsdeilunnar og að fundið væri samkomulag í aðalatriðum
um friðarsamninga við Austurríki.
-----------------------s>
Efíirmaður Irygve Lei!
TORRES BODET,
framkvæmdastjóri UNESCO er
mexikanskur. Talað er um hann
sem væntanlegan eftirmann
Trygve Lie, aðalframkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna, en
ráðningartími hans, 5 ár renn-
ur út á næsta ári.
Dagskrá sfúdsnfamófsins
í dag
STÚDENTAMÓTIÐ heldur á-
fram í dag með ferð um ná-
grenni bæjarins og til Hafnar-
fjarðar kl. 9. Steingrímur J.
Þorsteinsson, dósent, flytur kl.
2 e. h. erindi í hátíðasal Há-
skólans, sem hann nefnir: Tvö
íslensk alþýðuskáld frá 19.
öld. Kl. 4 e- h. verður farið í
Iheimsókn til forgetabústaðar-
ins að Bessastöðum, en kl. 8
veiður leiksýning í Iðnó.
Fundurinn í dag var hinn
23 í röðinni. Var það lokaður
fundur, haldinn í Rósahöllinni
í París og lauk honum kl. 8.
Fyrsti ráðherrann, sem kom
út af fundinum.var Vishinsky
og var hann brosandi út að
eyrum. Hann kvaddi helstu
starfsmenn ráðstefnunnar,
enda var þetta síðasti fundur
inn. Vishinsky fer í kvöld flug-
leiðis til Rússlands og Bevin
með járnbraut og skipi til
Bretlands.
Að ráðstefnunni lokinni var
gefin út sameiginleg skýrala
um störf ráðstefnunnar. Varð
ljóst af henni, að stórveldun-
um hefur miðað mikið áleiðis
í áttina til samkomulags í
Þýskalandsmálunum, og til
friðarsamninga við Austurríki;
Þýskalandsmálin
Samkomulag hefur náðst í
viðskipta- og efnahagsmálúm
og munu hernámsveldin gera
allt sem í þeirra valdi stendur
til að auka flutning fólks,
varnings og ekki hefta flutn-
ing tímarita og hinis frjálsa
otðs milli hernámssvæðanna_
Varðandi Berlínardeiluna verð
ur haldið fast við New York
samkomulagið frá 4. maí 1949
um afljettingu samgöngubanns
ins.
Ráðherrarnir munu á næst-
unni koma sjer saman um
aðra ráðstefnu utanríkisráð-
herra, þar sem reynt verður
að sameina allt Þýskaland
undir eina fjárhags- og þjóð-
ernislega stjórn.
Norrænt kominform
stofnnð í Helsinki
Einkaskeyti frá frjettaritara Morgunblaðsins.
KAUPMANNAHÖFN, 20. júní: — Blaðið Socialdemokraten
skýrir frá því, að ákveðið hafi verið að yfirstjórn kommúnista
á Norðurlöndum skuli eftirleiðis vera í Helsinki og það sje
verið að undirbúa stofnun kominform fyrir Norðurlöndin undir
stjórn finska kommúnistaleiðtogans Ture Lehen. Hlutverk nor-
ræna kominform verði fyrst og fremst:
1) Koma upp nafnaskrá yfir forystumenn andkommún-
ista á Norðurlöndum, og Moskvavini,
2) Gæta þess, að ábyggilegir kommúnistar sjeu fyrir hendi
á öllum stöðum, sem þýðingarmiklir geta kallast á
Norðurlöndum,
3) Sjá um skiptingu fjárstyrkja, sem veittir eru komm-
únistaflokkum Norðurlanda.
Helsinki aðsetursstaður *
Kominform.
Helsinki eigi þannig að verða
höfuðborg kominforms á Norð-
urlöndum. Stafi það af því m. a.
að finskir kommúnistar hafi
nánast samband við Moskva og
einnig vegna þess, að finskir
kommúnistar sjeu að ýmsu
leyti öflugri en kommúnistar
annara Norðurlanda. T. d. hafi
finskir kommúnistar til taks,
30,000 manna framvarðalið.
Kynna sjer nafnáskrár-kerfi
í Prag,
Forystumenn kommúnista í
Frh. á bls. 12.
Kommúnistar hafa
náð suðvestur Kina
KANTON, 20. júní — Þjóð-
stjórnin í Kína hefur að mestu
misst yfirráð sín yfir suðvest-
urhluta Kína, þar sem hjeraðs-
stjórnirnar hafa hver eftir aðra
viðurkennt stjórn kommúnista.
Einkanlega er athyglisvert, að
kommúnistar hafa Yunnan við
landamæri Burma og Indo-
Kína á sínu valdi.
Friðarsamningar við
Austurríki
Samkomulag hefur náðst í
öllum aðalatriðum varðandi
friðarsamninga við Austur-
ríki, en fulltrúar utanríkis-
ráðherranna eiga að gera full-
komið uppkast að samningun-
um og hafa lokið því fyrir 1.
september. Aðalatriði samn-
inganna: Landamæri Austur-
ríkis, skulu vera eins og 1938
og ekkert verður sinnt landa-
kröfum Júgóslava. Austurrjkis
menn greiða 135 milljón doll-
ara í stríðsskaðabætur til
Rússa.