Morgunblaðið - 21.06.1949, Side 9

Morgunblaðið - 21.06.1949, Side 9
Þriðjudagur 21. júní 1949 MORGUlSBLAÐiÐ 9 Sfútienfamáfið 2. o§ 3. tiagur Ánægjuleg oy viiburiarík fer ai Gulifossi og Geysi ANNAR DÁGUR stúdentamótsins, sunnudagurinn. var notaður til hópferðar, austur að Gullfossi og Geysi. Þátttaka íslenskra stúdenta var mikil, en ferðin stóð yfir frá því snemma morg- uns og fram á nótt. Á mánudag skoðuðu stúdentar, fyrir há- degi, háskólann og umhverfi hans, en eftir hádegi sýndu stúdentar úr ninum einstöku deildarfjelögum erlendu stúd- entunum bæinn. Læknisfræðinemar sáu helstu „læknisfræði- lms“, svo sem sjúkrahús og rannsóknarstofur. Lögfræðinemar helstu ,,lögfræðistofnanir“ svo sem hæstarjett, dómsmála- ráðuneytið og Alþingishúsið, o. s. frv. Stórkostlegur foss Klukkan hálf níu á sunnudag var lagt af stað í ferðina til Geysis og Gullfoss. Einkum var skemmtilegt, að auk hinna er- lendu gesta tók mjög mikill fjöldi íslenskra stúdenta þátt í förinni. Fyrst var komið að Gullfossi; himinninn var skýjaður svo að fossinn var ekki í sínum fegursta skrúða en Hvítá var mjög vatnsmikil og voru allir hinir erlendu gestir sammála um að fossinn væri stórkostlegur. Biðin var vel launuð Þá var farið að Geys-i. Þurfti að bíða eftir gosi í þrjá tíma og var ekki laust við, að sumir gest irnir væru orðnir óþolinmóðir og teldu ekki þess vert að bíða eftir gosi. En loksins gaus hann og sagði einn af þeim sem óþol- ínmóður hafði verið. Úh-, ef jeg hefði vitað að hann var svona, hefði mjer verið sama þó jeg hefði beðið í 10 klukku- tíma. Eftir þetta var farið til Laug arvatns, borðað þar og ýmsar íþróttir þreyttar. Komið var til bæjarins um tvö leytið um nótt- ina. Stúdentum sýnd Reykjavík Á mánudag var erlendu stú- dentunum sýndur háskólinn fyr ir hádegi, svo sem allar kenslu stofur, bókasafn, kennaraher- bergi, leikfimishús og Nýi Gavð ur. Eftir hádegi sýndu hin ýrnsu deildarfjelög það mark- verðasta i bænum, svo sem Al- y þingishúsið, Landspítalann, Landsbókasafnið, Landsbank- ann og Dömkirkjuna. Og sum- um gestunum var sýnt yfir bæ- inn úr turninum á kaþólsku kirkjunni. Verkfræðinemar fóru suður í Krysuvík. — Á þessum ferðalögum var vissu- lega stofnað til margra kynn- íngar- og vináttubanda milli íslenskra og erlendra stúdenta. Er rússneski leiðang- urinn kominni TALIÐ er að rússneskur síld- veiðileiðangur, sje kominn til Norðurlandsins, en þar hefur orðið vart við stórt móðurskip, og í samfloti með því voru þrjár skonnortur. Þessa skipa varð vart austur af Grímsey síðastliðinn laugar dag og telja þeir er sáu til móðurskipsins þá, að það sje 8000—10000 smál. að stærð. Frjettaritari Mbl. á Raufar- höfn símaði í gær, að sjest hefði til móðurskips þessa á Þistil- firði í gærdag og hefði það varpað festum þar í firðinum á sama stað og rússneska móð- urskipið lá í fyrra. Þess skal getið að samkvæmt frásögnum erlendra blaða, þá hafa Rússar ákveðið að senda síldveiðileiðangur hingað til lands í sumar_ Eiga að sögn að vera í honum, auk móðurskips ins 50 veiðiskip. Alls eiga að því að sagt er, um 140 karlar og 50 konur að starfa á þess- um rússnesku síldveiðiskipum. Vilja ekki láfa rífa fleiri verksmiðjur Þýsku verkamennirnir, sem undanfarið hafa reynt að hindra, að fleiri verksmiðjur verði rifnar í Ruhr hjeraði fengu í dag mörg skeyti frá rúss neska hernámssvæðinu þar sem þeir |eru hvattir til að halda áfram mótþróa sínum gegn niðurrifssveitum hernáms liðsins. Skeyti kómu m. anh- ars frá bæjarstjórninni i Rat- henau í Meckelnbúrg, frá járn brautarstarfsmönnum í Þyring aríki og kennurum í Saxlandi, 'Akureyrar sá um mótið Ármann íslands- meistari í hand- knallleik \KUREYRI, 20. júni — Hand- knattleiksmót Islands í meist- araflokki karla utanhúss 1949 hófst á Akureyri 18. þ. m. For- maður ÍBA, Ármann Dalmanns son, setti mótið og íþróttaflokk- arnir gengu með Lúðrasveit Akureyrar um bæinn áður en keppni hófst. Fyrsti leikur var milli Ár- manns og Vals úr Reykjavík og sigraði Ármann með 12:10 eftir mjög harðan og tvísýnan leik. 2. leikur: KA vann Þór með 18:6. Þriðji leikur: Ármann vann KA með 19:11. Fjórði leikur: Valur vann Þór með 16:8. Fimmti leikur: Valur vann KA með 18:8. Sjötti leikur: Ár- mann vann Þór með 20:3. Ármann varð því Islands- meistrai 1949 og hlaut 6 stig. Valur hlaut 4 stig, KA 2 en Þór ekkert. Veður var mjög gott og áhorf endur margir. Eftir mótið var keppendum haldið kveðjusam- sæti að Hótel KEA og dansleik- ur var haldinn í samkomuhúsi bæjarins fyrir starfsmenn og keppendur. Handknattleiksráð IÐNO-MALIð I HÆ5TARJETT! í GÆRMORGUN var í Hæsta- rjetti kveðinn upp dómur í svo- nefndu ,,Iðnó-máli“, en mál þetta höfðuðu 11 stjettasamtök hjer í Reykjavík gegn Alþýðu- húsinu h.f. og fleirum. Málavextir. I stuttu máli eru málavextir þeir, að 12. ágúst 1940, seldi þáverandi stjórn Fulltrúaráðs verkalýðsfjelaganna í Reykja- vík hlutafjelaginu Alþýðuhús Reykjavíkur, húseignina nr. 3 við Vonarstræti (Iðnó) hjer í bæ, ásamt meðfylgjandi eignar- lóð að stærð 1158.2 ferm. og mannvirkjum á henni, svo og útbúnaði þeim og áhöldum, sem húsið átti og notuð voru til reksturs þess og starfsemi þeirr ar, er fram fór í húsinu og Ingólfs cafe, hverju nafni sem nefnist svo og öllu því öðru sem reiknislega tilheyrði eigninni, að engu undanskyldu. Kaupverðið var í afsalsbrjef- inu talið 130.400.00 en í kaup- unum fylgdu kr. 30.000.00 í hlutabrjefum kaupenda sjálfs. Fjelögin sem málið höfðuðu. Eins og fyrr segir voru það 11 stjettafjelög hjer í Reýkja- vík, sem höfðuðu mál þetta, en fjelög þessi: Bifreiðastjórafjel. Hreyfill, Fjelag blikksmiða, Fjelag járniðnaðarmanna, Fjel- agið Skjaldborg, Iðja fjelag verksmiðjufólks, Bakarasveina- fjel. Reykjavíkur, Starfsstúlkna fjel. Sókn, Sveinafjelag hús- gagnasmiða, Sveinafjel. skipa- smiða, Verkamannafjel. Dags- brún og Þvottakvennafjelagið Freyja. — Ragnar Olafsson flutti málið fyrir þessa aðila gegn Alþýðuhúsi Reykjavíkur h. f., Jóni Axel Pjeturssyni, Jónasi Guðmundssyni, Guðgeiri Jónssyni, dánarbúi Sigurðar Olafssonar og Jónínu Guðjóns dóttur. Fyrir þessa aðila flutti Guðmundur í Guðmundsson málið. Dómurinn. Um það bil fimm og hálfu ári eftir að sala Iðnó fór fram, var dómur í máli þessu kveðinn upp í undirrjetti og hljóðaði dómur sá, að Alþýðuhús Reykja víkur h.f. var sýknað. Dómur Hæstarjettar í gærmorgun var á sama veg og málskostnaður í hjeraði og fyrir Hæstarjetti feld ur niður. Setudómarar í málinu voru Einar B. Guðmundsson hrl. og próf. Olafur Jóhannesson, stað hæstarjettardómaranna Gisurar Bergsteinssonar og Þórðar Eyjólfssonar. 17. júní háttðahöld íslentiinga í Oslo Einkaskeyti til Morgunblaðsins. OSLO, 18. júní — íslensku sendiherrahjónin i Oslo, Gísli Sveinsson og frú hans, mintust 17. júní með heimboði að heimili sínu á Bygdö. Var þar saman- komið um 70 manns, Islending- ar og Islandsvinir. Dvöldu gestir í besta yfirlæti á heimili sendiherrahjónanna og rómuðu allir gestrisni og mót tökur allar. —Skúli. Ungir sem eldri Hafnfirðingar fjölmenntu s.I. sunnudag í skóg- græðslugirðingu Skógræktarfjel. Hafnarfjarðar í Lækjarbotn- um. Var þar unnið lengi dag af hinu mesta kappi, en stutt kaff i- hlje var, og tók ljósmyndari Mbl. þá þessa mynd. 54 stúdentar ferautikráöir ím MenntaskófaEium á Akureyri Hjónin frá Hvilff heiðruð við skólaslif AKUREYRI, 18. júní: — Menntaskólanum á Akureyri var slil.ttl 17. júní kl. 11 f. h. í hátíðasal skólans, að viðstöddu fjölmenni. Skólameistari, Þórarinn®' Björnsson, bauð samkomugesti | velkomna og gat þess sjerstak- lega að hjer væru nú stödd hjónin frá Hvilft í Önundar- firði, þau Guðlaug Sveinsdótt- ir og Finnur Finnsson. Þau hefðu sent hingað í skólann 10 börn, sex pilta er allir hefðu orðið stúdentar, og 4 stúlkur. er allar hefðu lokið gagnfræða- prófi, og hefðu engin hjón sent hingað svo stóran hóp. Yngsti bróðirinn, Guðlaugur og átta af systkinunum væru hjer við- stödd. Sjóður stofnaður Elsti bróðirinn, Sveinbjörn, tók síðan til máls og gat þess að þau systkinin hefðu stofnað sjóð, er bæri nafn foreldra þeirra og nemendur skólans skyldu njóta góðs af. Gjafir Þá gat skólameistari þess, að fyrir nokkrum dögum hefðu 20 ára stúdentar fært skólanuin að gjöf íslenska fánann, saumað- an af frú Unni Ólafsdóttur, á stöng, útskorinni af Guðmundi Kristjánssyni, mvndskera. Einn ig gat hann þess, að 10 ára stú- dentar hefðu ætlað sjer að vera við skólaslitin, en það hefði far ist fyTrir. Fulltrúi þeirra, Egill Sigurðsson, hefði fært skólan- um að gjöf frá þeim radiogram mofón, dýrindisgrip. Starfsemi i skólanum kvað skólameistari hafa verið með lík um hætti og áður. Þó hefði fyrsti bekkur starfað eftir hin- nm nýju fræðslulögum og gert væri ráð fyrir, að nemendur þess bekkjar gengju undir lands próf næsta vor. 95 gagnfræðingar Undir gagnfræðapróf gengu 100 nemendur og luku 95 prófi. Hæsta einkunn hlaut Gunnar Baldvinsson, frá Akureyri, 7,40. Undir stúdentspróf gengu 55 og luku 54 prófi, og eru það fleiri en nokkru sinni fyrr. Af þeim voru 37 í máladeild, 30 innan- skóla og 7 utanskóla, í stærð- fræðideild 13 innanskóla og -4 utanskóla. í máladeild hlutu 25 fyrstu einkunn og 11 aðra ein- kunn. í stærðfræðideild hlutu 11 fyrstu einkunn og 5 að.ru einkunn og 1 þriðju einkunn. Hæstar einkunnir í máladeiM hlutu Örn Friðriksson frá Hús.t vik, 7,36; Sigurjón Björnssorv frá Sauðárkróki, 7,26 og Guð- rún Stefánsdóttir, Akureyri, 7.21. — í stærðfræðideild hlutu hæstar einkunnir Steingrímur Arason, Suður-Þingeyjarsýslu, 7,45, Baldur Ingimarsson, Ak- ureyri, 7,21 og Ríkarður Stein- bergsson, Ak., 7,13. Er gefið eftir Örstedseinkunnastiganum. og er hæsta hugsanleg einkunu átta. 2 mánuðir f jellu úr Þá gat skólameistari um smíð* heimavistarhússins. Taldi hann öruggt, að suðurendi hússins yrði fullger í haust og tæki 30 —40 nemendur. Þá ræddi harm lausn gagnfræðadeildarmálsins og taldi þá lausn ekki allsko t ar heppilega. Taldi betra, eink- um fyrir sveitafólk, að deildin hefði verið með óbreyttu sniði. Einnig fór skólameistari nokkr- um orðum um áhrif mænuveiM faraldursins á skólalífið. Var skólanum lokað í 5 vikur en hann sagði að telja mætti að 2 mánuðir hefðu raunverulegn fallið úr vegna veikinnar. Að lokinni brautskráningn gaf skólameistari nýbökuou stúdentum holl ráð og brýndi fyrir þeim að bregðast vel og drengilega við erfiðleikum, er að þeim kynnu að steðja. Samkomunni barst skeyti frá þeim skólameistarahjónunum, frú Halldóru Ólafsdóttur og Sig urði Guðmundssyni. Söngstjórh annaðist Björgvin Guðmunds- son, tónskáld. — H. Vald. Skip í heimsókn WASHINGTON: — Eitt bandn- rískt móðurskip og tveir tundur- spillar munu heimsækja Oslo 16. —21: júní og Kaupmannahöfn'22, —27. júli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.