Morgunblaðið - 22.06.1949, Blaðsíða 12
12
i
MORGUNBLAÐIÐ
jVliðvikudagur 22. júní 1949.
Sfúdentamófið 4. dagur
Bessastaðir heimsóttirog
hlustað á fyrirlestur
,111—| l| I ~...
STÚDENTAMÓTIÐ hjelt áfram í gær. Fóru hinir erlendu
gestir og íslenskir stúdentar um nágrenni Reykjavíkur og
Hafnarfjarðaf, heimsóttu Bessastaði. Þá hlýddu þeir á bók-
menntalegan fýrirlestur sem dr. Steingrímur Þorsteinsson
hjelt í hátíðasal Háskólans og um kvöldið fóru stúdentar
i Iðnó, þar sem Gullna hliðið var leikið.
«------------------—
Þjóðleikhússfjóri segir frá för
sinni fil Norðurlanda
og Breflands
GUÐLAUGUR RÓSINKRANZ þjóðleikhússtjóri, er fyrir nokkru
kominn heim úr ferðalagi til hinna Norðurlandanna og Bret-
lands. Var för þessi m. a. farin í þeim tilgangi að fá sem besta
yfirsjón af hinu margþætta starfi hinna stærri leikhúsa í
löndum þessum.
Til Hafnarfjarðar.
1 gærmorgun kl. 10 var lagt
af stað í ferð um nágrenni
Reykjavikur og Hafnarfjarðar.
Var fyrst farið vestur á Val-
húsahæð ög fjallahringur
Reykjavíkur skoðaður. Skyggni
var því miður ekki sem best,
mistur út við sjóndeildarhring-
Þá^ var ekið víða um úthverfi
bæjarins og síðan til Hafnar-
fjarðar. Bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar hafði boð inni bæði fyr
ir erlenda og innlenda stúdenta.
AlþýðuskáhUn tvö,
Klúkkan þrjú var snúið til
Reykjövíkur ög upp í Háskóla,
þar sem dr. Steingrímur Þor-
steinsson fl^tti.TróðlefU;érindi
um tvö alþýðuskáld Islendinga,
Sigurð Rreiðfjörð og Bólu-
Hjálmar. Sagði hann frá ævi-
atriðum þessara tveggja manna
sem urðu stórskáld án allrar
menntunar og án þesS að lífið
baðaði þá í rósum. Þá var það
mjög til skilningsauka hinum
erlendu stúdentum, að dr. Stein
grímur sagði í helstu dráttum
frá meginþáttum íslenskra bók
menntæ
Heimsókn að Bessatöðum-
Því næst fóru stúdentar í
heimsókn að Bessastöðum í boði
forsetafrúar og fengu að siá
ýmsar framkvæmdir og minjar
á staðnum. Um kvöldið hjelt
Ldikfjelag Reykjavíkur sýningu
á Gullna hliðinu eftir Davíð
Stefánsson og var erlendu stúd
entunum boðið að sjá það.
Námskeið í
Sfykkishólmi
AXEL Andrjesson hjelt nýlega
knattspyrnu- og handknattleiks
námskeið í Stykkishólmi á veg-
um Umf. Snæfell.
76 piltar og 57 stúlkur tóku
þátt í námskeiðinu. Að nám-
skeiðinu loknu hjelt hann sýn-
ingu á kerfi sínu fyrir fullu
húsi áhorfenda, sem skemmtu
sjer hið besta. Axel er nú far-
inn til Vestfjarða, en þar mun
hann kenna næst.
Aukinn bifreiðaúf-
flufningur
LONDON, 21. júní — Sam-
kvæmt nýjustu verslunarskýrsl
um Breta hefur útflutningur
þeirra á bifreiðum aldrei verið
meiri en í síðastliðnum mánuði.
Nam hann 6V2 milljón sterlings
pundum. Útflutningur bifreiða
til Kanada hefur mikið aukist
á fyrri hluta þessa árs.
—Reuter.
Ulför Margrjetar
Sæmundsdóltur
KEFLAVÍK, 19. júní: — í gær
var ekkjan Margrjet Sæmund-
ardóttir borin til grafar. Hún
var fædd að Járngerðarstöðum
í Grindavík fyrir 88 árum. For-
eldrar hennar voru Sæmundur
Jónsson, bóndi og Sigríður
Bjarnadóttir. Margrjet eignað-
ist 11 systkyni, en aðeins 3 kom
ust til fullorðinsára, þau Val-
gerður, sem bjó á Járngerðar-
stöðum og Bjarni, sem varð
þjóðkunnur náttúrufræðingur
og doktor í náttúruvísindum. —
Margrjet giftist Tómasi Guð-
mundssyni, og bjuggu þau all-
an sinn búskap á Járngerðar-
stöðum. Þau eignuðust 10 börn
Tómas, maður Margrjetar, dó
fyrir 41 ári. Eftir það bjó hún
með sonum sínum, þar til hún
varð 71 árs. Þá tapaði hún heils
unni. Hún var þó að jafnaði
hjá börnum sínum og tengda-
; börnum að Járngerðarstöðum.
Árið 1944 flutti hún til Kefla-
víkur með dóttur sinni Jórunni
og ljetst að heimili hennar 13.
þ. m. Hún hafði góða sjón og
las blöð gleraugnalaus fram til
síðustu daga, en það má heita að
hún lægi rúmföst allt frá því að
heilsa hennar bilaði fyrir nær
17 árum.
Margrjet heitin var atkvæða
mikil búkona, stjórnsöm og af-
kastamikill vinnuforkur. Hún
var vinföst og vinmörg, enda
var útför hennar mjög fjölmenn.
Húskveðja var flutt að heimili
dóttur hennar í Keflavík. Síðan
var jarðað frá Grindavíkur-
kirkju. Ekið var um hlaðið á
Járngerðarstöðum, æsku- og
manndómsóðalið kvatt, og loks
var hún lögð til moldar í Stað
arkirkjugarði, milli manns síns
og sonar og þar hefir hún einn-
ig dótturson sinn við fótskörina.
Sjera Eiríkur Brynjólfsson og
sr. Árni Sigurðsson jarðsungu.
— Meðal annara orða
Frh. af hls. 8.
á móti fleiri þýskum flótta-
mönnum.
Hin breytta afstaða til Þjóð-
verja í Tjekkóslóvakíu á að
nokkru leyti rót sína að rekja
til áróðurs stjórnarvalda komm
únista. Tjekkneskir kommar
tala sem sje sífelt meir um það,
! að menn verði að reyna að skilja
I ,,hinn nýja lýðræðisanda“, sem
Rússar hafi innblásið Þjóðverj-
um á hernámssvæði sínu.
— Handíðaskólinn
Frh. af bls. 5.
skólum landsins, en er nú víða
stunduð með góðum árangri.
Ef „vinnuskólarnir“ halda
í horfinu, eins og til er stofnað
mun þeim smám saman tak-
ast, að veita þjóðinni sæmilegt
uppeldi á þessu nýja sviði
íslenskrar menningar.
Sig. Guðmundsson.
— Knatfspyrnan
Frh. af bls. 5.
ónákvæmur í spyrnum. Óli B.
er lífið og sálin í KR-liðinu og
þarf ekki frekar að fjölyrða
um leik hans að þessu sinni,
hinsvegar er vinstri fr.v., Stein-
ar, mjög ónákvæmur í sending-
um, sem er einn versti galli á
framvörðum.
Að þessu sinni var sóknar-
lína KR fremur ósamstæð, hins
vegar á hún marksæknum ein-
staklingum á að skipa og má
í því sambandi einkum nefna
þá Hörð Óskarsson og Ólaf
Hannesson.
Dómari var Hrólfur Bene-
diktsson og fórst honum dóm-
arastarfið vel úr hendi, en
var þó stundum helst til ná-
kvæmur.
V.
Þrjú leikrit af 32.
Á þessu ferðalagi slnu var
þjóðleikhússtjóri viðstaddur 32
leiksýningar og sagði hann í
samtali við blaðamenn í gsei,
að einkum hefðu það verið þrjú
leikrit, sem hann hafi sjeð, er
hann hefði mikinn hug 3. að’
tryggja Þjóðleikhúsinu. Hafa
þau öll vakið mjög mikla at-
hygli. Hið fyrsta þeirra er eftir
franska leikritaskáldið Paul
Sartre og myndi víst heita í
íslenskri þýðingu: „Flekaðar
hendur“. Annað leikritanna er
eftir ungan danskan höfund,
Knud Sönderby og heitir það:
„En Kvinne er overflödig“ og
hið þriðja er hið fræga leik>
rit Tennesy Williams: Streetcar
desire.
Sænskur söngleikur.
Guðlaugur Rósinkranz átti
um það umræður við forstjora
Konunglegu Operunnar í Stokk
hólmi, hvort ekki myndi vera
framkvæmanlegt að hafa hjér
söngleiki, er Þjóðleikhúsið tæki
til starfa. Taldi forstjórinn slíkt
myndi vera framkvæmanlegt
og myndi þá auk söngflokks
verða balletflokkur. Yar urn
það rætt að hafðar yrðu hjer
tvær sýningar, en að sjálfsögðu
verðum við að leggja til hljóm-
sveit.
í förinni gerði þjóðleikhús-
stjóri samning við fyrirtæki í
London, um útvegun á öllu því
er að leiksýningum lýtur, efni
í búninga, og annað þess háttar.
Einnig var keyptur borðbúnað-
ur og annað fyrir veitingasali
Þjóðleikhússins.
Vel heppnuð för.
í þessari för naut Guðlaugur
Rósinkranz mjög góðrar fyrir-
greiðslu forstjóra Konunglegu
leikhúsanna og í Bretlandi for-
stjóra leikhúss þess, er reist var
til minningar um Shakespeare
og Covent Garden og loks í
Finnlandi forstjóra þjóðleikhúss
ins í Helsingfors. Sagði hann,
að sýningin á Gullna hliðinu
væri að dómi finnskra leikhús-
stjóra, mjög merkilegur leik-
listarviðburður.
Vaxandi vinsældir
leikhúsanna.
Fiskasýningin
í -Sýningarsal Ásmundar Sveinssonar, er opin frá
kl. 13—23- — Komið og sjáið fyrstu sýningu á Is-
landi á lifandi fiskum.
Kvikmynd kl* 6 og 9.
i
f
f
f
I Markú» A A A ié Eftir Ed Dodd I
11
...........................................................IMMIIII
U" you're
CRAZy MOP.LEY...1 AIN'T
READY TO PIE YET...THAT
— Þú hlýtur að' vera band-
vitlaus, Vígbjörri. Jeg er ekki
undir það búínri að fara að
deyja samkvæmt ' skipun frá
þjer. Þú veist það Vel, að það'klifrari hjá mjer.
kom brestur í furuna við eld-
inguna.
— Þú ferð upp og gerir þetta
eða þú verður ekki lengur
— Hva? Er það nú hrotta-
skapur?
— Það er best fyrir þig að
vera ekki að uppnefna- mig,
labbinn þinn.
— Hehe, og þá er best að tala
við Markús.
Guðlaugur Rósinkranz sagði.
að hann hefði haldið uppi um
það spurnum meðal starfs-
bræðra sinna á Norðurlöndum,
og í Bretlandi, hvort áhugi al-
mennings fyrir kvikmyndum
færi vaxandi, en leiklist minnk-
andi. Töldu forstjórarnir nýtt líf
vera að færast í starfsemi leik-
húsanna og sem dæmi má nefna.
að nú eru leiksýningar á hverju
einasta kvöldi í Covent Garden,
sem tekur rúmlega 2000 mann.‘
í sæti.
BEST AÐ AUGISSA
I MORGUNBLAÐINU