Morgunblaðið - 29.07.1949, Síða 4
4
Föstudagur 29. júlí 1949
Haraldur Andrjesson forsfióri
MinnlngarorS:
„og vinir berast burt með tímans
straumi
og blómin fölna á einni hjelu
nótt“.
VINI og vandamenn Haraldar
Andrjessonar, forstjóra, setti
hljóða, er þeir svo óvænt heyrðu
andlátsfregn hans. Hann andaðist
hjer í bænum aðfaranótt 25. þ
m. eftir stutta legu og verður
jarðsunginn í dag. Hann veiktist
skyndilega og eftir fárra daga
legu varð að flytja hann á Lands
spitalann : og þar gátu æfðar
læknishendur enga björg veitt,
því stundin var komin eins og
forlögin höfðu ákveðið hana.
Haraldur var fæddur hjer í
bænum 8. október 1894 og var
því ekki nema rúmlega 54 ára,
er hann ljest. Foreldrar hans
voru hjónin Andrjes Andrjesson,
þá verslunarmaður við Brydes-
verslun í Reykjavík, og Kristín
Pálsdóttir. Föðurætt hans er úr
'Árnessýslu — hin kunna Lang-
holtsætt — en móðurættin úr
Borgarfirði.
Er Haraldur hafði aldur til, var
hann settur til mennta og lauk
hann gagnfræðaprófi, en síðan
lærði hann vjelfræði og var um
nokkur ár vjelstjóri á togurum.
Þegar til lengdar ljet, þótti hon-
um það starf full tilbreytingar-
lítið og ekki fullnægja þeirri at-
hafnaþrá, sem hann var gæddur
í svo ríkum mæli og ennfrem-
ur mun hann snemma hafa orðið
þreyttur á sjóvolkinu, svo að
hann fór í land fyrir fullt og allt
og stofnaði Nýju Blikksmiðjuna
með Einari Pálssyni, blikksmíða-
meistara. Voru þeir fjelagar sam-
hendtir og jafnan var samvinna
þeirra eins og best verður á kos-
ið, enda dafnaði fyrirtækið og
stækkaði ár frá ári og er nú
orðið stórt fyrirtæki á íslenskan
mælikvarða.
Laust eftir að hann var kominn
i land og hafði kvatt sióinn, varð
hann fyrir þungu áfalli. Hann
veiktist af mænuveiki og um
tíma leit út fyrir, að hann mundi
ekki ná sæmilegri heilsu aftur.
En það rættist þó betur úr þessu
en á horfðist, og þótt hann hafi
aldrei borið sitt barr eftir þessi
veikindi þá fannst mörgum það
ganga kraftaverki næst, hversu
vel hann komst til heilsu aftur.
Haraldur var gáfaður maður
og hafði til að bera skarpa dóm-
greind. Honum var eiginlegt að
leita kjarnans í hverju máli og
var oft ánægjulegt að ræða við
hann um ýms vandamál. Af þess-
um sökum var honum ljett um
að fá rjetta yfirsýn yfir þær fram
kvæmdir, sem hann hafði með
höndum, án þess að láta glepjast
af aukaatriðum. Hann hafði því
þá eiginleika í ríkum mæli, sem
einkenna hinn raunhæfa athafna
mann og brautryðjanda í verk-
legum framkvæmdum, enda
hygg jeg að hann hafi lagt ó-
venju mikinn skerf til íslensks
athafnalífs. — Samfara þessu
var Haraldur hið mesta góð-
menni, tillögugóður, ráðhollur og
traustur vinur vina sinna.
Auk áhuga síns í verklegum
efnum, átti Haraldur sjer hugð-
arefni, sem hann leitaði til í
tómstundum sínum, svo sem bók
menntir og tónlist. Hann hafði
aflað sjer óvenju mikillar þekk-
ingar við lestur góðra bóka og
hafði hið mesta yndi af tónlist.
Haraldur var kvæntur Lauf-
evju Einarsdóttur. Einar faðir
hennar var bróðir Guðmundar
heitins í Nesi á Seltjarnarnesi og
er það kunn ætt. Þau hjónin
eisrnuðust tvö börn, Hrafnhildi,
sem hefir verið heima hjá for-
eldrum sínum og Andrjes, sem
hefir dvalið við vjelfræðinám
erlendis.
Hið sviplega fráfall Haraldar
var mikið reiðarslag fyrir konu
hans, sem hafði hjúkrað honum
með sjerstakri alúð og fórnfýsi,
er hann veiktist af mænuveik-
inni á sinum tíma og svo að segja
gengið á hólm við veikindi hans
þá og æ síðar reynst honum hin
besta stoð í lífinu og einnig fyr-
ir börn hans, sem eiga á bak að
sjá ástríkum föður, sem með
reynslu sinni og víðsýni var þeim
ómetanlegur ráðgjafi.
Við, sem kynntumst Haraldi
Andrjessyni, minnumst hans með
söknuði og þökkum í hljóði á-
nægjulegar og fræðandi samveru
stundir og trausta vináttu.
Jón Ólafsson.
Bjarni Jóhannes
Jónsson áttræóur
HINN 22. júlí s. 1. varð áttræð-
ur Bjarni J. Jónsson verka-
maður í Vík í Mýrdal. Hann er
fæddur í Vestmannaeyjum, en
ólst upp að mestu í Varmahlíð
undir Eyjafjöllum. Eftir tvítugs-
aldur fluttist hann austur í
Skaftafellssýslu og var þar í
vinnumensku á ýmsum stöðum.
2. nóv. 1907 kvæntist hann Sig-
urveigu Vigfúsdóttur, ættaðri úr
Meðallandi, góðri konu. Voru
þau fyrst vinnuhjú, en fluttust
síðan til Víkur og komu sjer þar
upp litlu og snotru íbúðarhúsi
og bjuggu þar æ síðan. Sigurveig
andaðist haustið 1946 eftir iang-
varandi vanheilsu. I banalegunni
naut hún framúrskarandi að-
hlynningar og umhyggju eigin-
manns síns, er nú varð einn
eftir í litla húsinu, með söknuð
og trega.
Lífsferill Bjarna Jóhannesar
Jónssonar hefir ekki verið marg-1
brotinn eða viðburðaríkur. En j
trúmenska og skyldurækni hefir
einkent hans starf. Enginn get-
ur merkt það, að Bjarni Jóhannes
sje áttræður. Hann er teinrjett-
ur og svo ljettur á fæti, að sex-
tugir standa honum ekki á
sporði. Margir heimsóttu hann á j
áttræðisafmælinu og glöddu á
ýmsa lund.
Vinur.
MORGUTSBLAÐIÐ
Cl Cý
210. dagur ársins.
Ólafsmessa hin fyrri.
Tungl rtæst jörðu.
Árdegisflæði kl. 8,50.
Siðdegisflæði kl. 21,10.
Næturlaíknir er í lækne.varðstof-
unni, síiii 5030.
Næturvdrður er i Lyfjabúðinni Ið
unni, síifii 7911.
NæturaJfstur annast Hreyfill, sími
6633. |
I.O.O.F. \ 3=1217291=-I-Þ.
Afmæli!
85 ára ýerður í dag frú Guðrún
Jónsdóttir, fFramnesveg 40.
Hjónaefni
Flinn 27|þ.m. opinberuðu trúlofun
sína ungfrfi Rannveig Magnúsdóttir
og Ragnaí V. Georgsson kennari,
Víðimel 32f.
Ungir Sjálfstæðismenn
efna til sumarhátíðar i Ö'ver um
næstu helgi. Upplýsingar á skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins.
Sagður of gamall
1 frásögninni af skemmtiferð gamla
fólksins til Þingvalla, í þriðjudags-
blaðinu, var Ólafur Ólafsson sagður
vera um áttrætt. Þar átti að standa
,,á áttræðisaldri". Hann verður 75
ára í haust.
Flugferðir
Loftleiðir:
1 gær var flogið til Isafiarfar, Pat
reksfjarðar, Bíldudals, Sands og Vest
mannaeyja (2 ferðir).
I dag er áætlað að fljúga til Vest-
mannaeyja (2 ferðir), Isafjarðar, Ak
ureyrar, Þingeyrar og Flateyrar.
Hekla fór til Prestwick og Kaup-
mannahafnar kl. 08,00 í morgun með
40 farþega. Væntanleg um kl. 17,00
á morgun fullskipuð farþegum.
Geysir fer á morgun til New York.
I Oft er hætta á því, að niaður
herði og niikið á, þegar maður
festir hnapp. Gott ráð við því er
að sauma yfir tvo títuprjcna, þvi
þegar þeir eru teknir úr slaknar á
þræðinum.
100 bandarískir dollarar______ 650,50
100 kanadískir dollarar_______ 650,50
100 sænskar Krónur__________181.00
100 danskar krónur__________135,5»
100 norskar krónur__________131,10
100 hollensk gyllini_________ 245,51
100 belgiskir frankar_________14,86
1000 fai.skir frankar------------23,90
100 svissneskir frankar_______152,20
Söfnin
Landsbókasafnið er opið ki. 10—
12, 1—7 cg 8—10 alla virka dagt
nema laugardaga, þá kl. 10—12 og
*—7. — Þjóðskjalasafnið kl. 2—7
' alla virka daga. — Þjóðminjasafnið
kl. 1—3 þriðjudaga, fimmtudaga ov
sunnudaga. — Listasafn Einart
1 Jónssonar kl. 1,30—3,30 á sunnu
dögum. — Bæjarhókasafnið kl
10—-10 alla virka daga nema laugar
daga kl. 1—4. Nátúrugripasafnið
opið sunnudagw kl. 1,30—3 og þriðjv
daga og fimmtudaga kl. 2—3.
Flugfjelag fslands:
I dag verða áætlunarferðir til Ak-
ureyrar (2 ferðir), Vestmannaeyja,
Keflavíkur, Austfjarða, Kirkjubæjar-
klausturs, Fagurhólsmýrar, Horna-
ifjarðar og Siglufjarðar.
1 gær voru farnar 5 ferðir til Vest
Imannaeyja og 1 ferð til Keflavíkur.
Siglufjarðar og Ólafsfjarðar,
I Gullfaxi er væntanlegur til Reykja
vikur í dag kl. 17,00 frá ósló og
Stavangri. Flugvjelin fer í fyrramál-
ið kl. 8,00 til Kaupmannahamar með
40 farþega.
Skipafrjettir
Eimskíp.
Brúarfoss fór í gærkvöldi frá Reykja-
vik til Gautaborgar og Kau; manna-
hafnar. Dettifoss er á leið til Ant-
werpen. Fjallfoss er á Siglufirði.
Goðafoss er á Isafirði. I.agaifoss er
í Reykjavík. Selfoss er á leið til
Antwerpen og Köge. Tröllaíoss er í
New York. Vatnajökull er í Reykja-
vik.
E. & Z.:
Foldin er í Reykjavík. Lingestroom
er í Færeyjum.
- jBSEsærm
Ríkisskip:
Hekla er á leiðinni frá Glasgow til
Reykjavíkur. Esja fór frá Reykjavík
kl. 20 í gærkvöld austur um land til
Siglufjarðar. Herðubreið ler frá
Reykjavík í kvöld til Vestfjarða.
Skjaldbreið er í Reykjavík og fer það
an á morgun til Vestmannaeyja. Þyr-
ill var á Vestfjörðum í gær.
Eimskipafjelag Reykjavíkur:
Katla kom til Álaborgar i gær.
í frásögn
af úthlutun styrkja úr Menningar-
og minningarsjóði kvenna, ei’ birtist
hjer í blaðinu í gær, var það rang-
hermt að Gerður Helgadóttir hafi
tekið þátt í sýningu í Paris. Standa
átti að hún hefur tekið þátt í sýning
um í Florens og Feneyjum. Þá hafði
upphæð styrksins, sem voru 1500 kr.
misritast í greininni.
Gengið
Sterlingspund____________ 26,22
Ungbarnavernd
Líknar í Templarasundi, er opii
þriðjudaga og föstudaga frá kl. 3,1?
til 4.
Til bóndans í Goðdal
Sveinbjörg 50, Dóra 100.
(Jtvarpið:
8,30—9.00 Morgunútvarp. — 10,10
Veðurfregmr. 12,10—13,15 Hádegis-
útvarp. 15,30—16,25 Miðdeg sútvarp
— 16,25 Veðurfregnir. 19,25 Veður-
fregnir. 19,30 Tónleikar: Óperulög
(plötur). 19,45 Auglýsingar. 20,00
Frjettir. 20,30 ÍJtva rpssagan: „Cata-
Iína“, eftir Somerset Maugham; 18.
lestur (Andrjes Björnsson). 21,00
Tónléikar: „Feneyjar og Napoli", pí-
anóverk eftir Liszt (plötur). 21,15
Frá útlöndum (Benedikt Gröndal
blaðamaður). 21,30 Einsöngur: Elsa
Sigfúss og Einar Kristjánssou syngja
(nýjar plötur). 20,00 Frjettir og veð
urfregnir. 22,05 Vinsæl lög (plötur)
22.30 Dagskrárlok.
Erlendar útvarps-
stöðvar
Bretland. Til Evrópulanda. Bylgju
lendgir: 16—19—25—31—49 m. —
Frjettir og frjettayfirlit: KI. 11—13
—14—15,45—16— 17,15 —18—20—
23—24—01.
Auk þess m. a.: KI. 14 15 Fiðlu
koncert i a-moll eftir Schumann. Kl.
15,45 Heimsmálefnin, fyrirlertur. KI.
8.30 Lundúna-symfón’uhliómsveitin
lcikur frá Albert HnlJ. K’. 20,15
Hljómleikar frá hinu konunglega
leikhúsi. Kl. 0,15 Lund ú’ia-svmfóniu
hljómsveitin leikur Lundúnasyfón-
íuna eftir v. Williams.
Noregur. Bylgjulengdir 11 >54
452 m. og stuttbylgjur 16—19—25
—31,22—41—49 m. — Frjettir kl
07,05—12,00—13—18,05— 19,00 —
21,10 og 01.
Auk þess m. a.: Kl. 16,25 Laugar-
»Ia gskvökl, eftir Ingeborg Refling
Hagen, upplestur. K1 16,40 ðtephan ■
Barrat Due leikur einleik á fiðlu, KI. I
19,00 Frá íþróttakeppni Norðurlanda
og USA. Kl. 19,30 Dagskrá th minn-
ingar um fall Ólafs helga i orust-
unni við Stiklastaði.
Danmörk. Bylgjulengdir 1250 og
'31,51 m. — Frjettir kl. 17,45 og
kl, 21,00.
Auk þess m. a.: Kk' 16.40 Frá
skemmtiferð KFUM. Kl. 17,10 Noel
Coward syngur lög úr „Cavalcade".
Kl. 19,55 Leikrit eftir Peter Koch. Kl,
21,40 Músik frá Tivoli.
Auk þess m. a.: Kl. 18,30 Olle
Johnny leiltur á harmoniku og solo-
vox. Kl. 19,15 Symfóniuhljómleikar.
Kl. 20,50 Frá Atlantshafi til Ind-
landshufs. Kl. 21,30 Genéves jazz-
symfóniuhljómsveitin leikur.
• Jeg er að velta því
fyrir mjer
Hvort kolamokari e gi ekki
illt ineft að malda í móinn.
<♦----------------------------f
I gær og á morgun
4——------—----------------- '•>
UMHUGSUNAREFNI
Lífsreynd kona segir í „Dagens
Nyhefer“;
Sannarlega vil jeg heldur lifa ■
haniingjusömu hjónabandi nieð
manni, sem jeg er ekki hrifin af,
en að vera óhamingjusöm meö
manni sem jeg elska.
KI.ASSISK VERK
Mark Twain komst þannig aö
oröi:
Klassisk ritverk eru þau sem
allir óska eftir að liafa lesið en
fáir nenna aö hafa fýrir að lesa.
EINN RÆÐUR EIGNUM,
LÍFI OG DAUÐA
Margir á Vesturlöndum fyrirgefa
stjórn Eovjetríkjanna stórsyndir
hennar, vegna þess, að hún hefir
afnumið eignarjett einsiakling-
anna. En vert er að minnast þess
að þetta er ekki rússnesk uppfinn-
ing. I hinum fornu keisaradæmum
Austurlandi átti einvaldurinn alt.
En þetta varð til þess, að hinn ein-
valdi keisari, sem hafði allar eign
irnar í sínurn höndum, fjekk líka
uiuráð yfir lífi og dauða þegnanna,
segir Stefan Osusky fyrv. ráðherra
í Tjekkóslóvakíu, nú prófessor í
Bandaríkjunum.
Fyrirspurn út ai Ling-
för glímunanna
Hr. ritstjóri!
í MORGBL. 27. júlí, er frá
því skýrt, að 12 glímumenn frá
Glímufjel. Armann, undir
stjórn Þorgils Guðmundssonar,
hafi farið til Ling-fimleikahá-
tíðarinnar í Stokkhólmi, til að
sýna þar íslenska glímu. Glímu
mennirnir eru allir nafngreind-
ir í umræddri grein.
Við athugun kemur i ljós, að
þar er að finna kunna glímu-
menn, sem þó ekki hafa þá
^límukunnáttu, að þeir sjeu
hæfir til að sýna glímu erlend-
is. Hinir eru enn kunnáttu-
minni, auk þess sem margir
hafa ekki æft glímu að und-
anförnu. Það má telja þrjá af
þessum tólf glímumönnum
góða, t. d. Grjetar Sigurðsson,
sem hlotið hefur góða dóma.
Mig langar til að leggia þá
fyrirspurn fyrir glímuráðið,
hvort það hafi lagt blessun sína
á þetta val glímumannann.
Jeg tel hættu á því, að það
geti spillt fyrir að íslensk glíma
verði eftirspurð iþrótt til sýn-
inga erlendis, ef menn, sem
ekki kunna Þá íþrótt, eru látn-
ir sýna hana.
Með þökk fyrir birtinguna.
Reykjavík, 28. júli 1949.
Unnandi glímunnar.