Morgunblaðið - 05.08.1949, Page 1
r
36.
argangur.
175- tbl. — Föstudagur 5. ágúst 1949.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandarísku herforingj-
arnir komnir til Parísar
Æfla að ræða yið Monlgomery rnarÉálk
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
PARÍS, 4. ágúst. — Yfirforingjar herstyrks Bandaríkjanna fcru
irá London um miðjan dag í gær, eftir að hafa átt viðræður
við herforingja Breta, Dana og Norðmanna. Komu þeir til
París, ætla að dveljast hjer í tvo daga og ræða við franska,
belgíska, hollenska og portúgalska herforingja. Auk þess munu
þeir ræða við Montgomery marskálk, yfirmann sameiginlegs
herstyrks Vestur-Evrópu.
Fundur með frönskum
yfirfcringjum.
Herforingjarnir, sem koma
fram í viðræðunum fyrir hönd
Frakka eru George Marie her-
ráðsforingi, Lemonnier *flota-
foringi og Lecheres flugforingi.
Viðstaddur verður einnig Paul
Reynaud landvarnarmálaráð-
herra Frakka. Fundur þessi
verður fyrir hádegi á morgun.
Ræða við Montgomery.
A eftir munu bandarísku
herforingjarnir fara til við-
ræðna í Fontainebleu höllinni
í París við Montgomery mark-
skálk, yfirmann sameiginlegs
herafla Vestur-Evrópu. A þeim
fundi verða einnig Tassigny
hershöfðingi, Jaujard flotafor-
ingi og Robb flug'marskálkur.
Skipulagning hervarna.
Denfeld yfirflotaforingi
Bandaríkjanna skýrði frá því í
dag, að á öllum viðræðufund-
unum undanfarið hefði ríkt hið
besta samkomulag. Unnið hefði
verið að skipulagningu her-
varna Vestur-Evrópu í sam-
ræmi við Atlantshafssamning-
in og hefði nokkuð verið rætt
um tilvonandi skiptingu á her-
gagnasendingum til Vestu,--Ev-
rópu-ríkjanna
PARÍS, 4. ágúst. — Aga Khan,
hinn indverski auðjöfur og
kona hans komu til París í dag,
eftir að hafa dvalist í Nissa í
Suður-Frakklandi, en þar var
stolið frá þeim gimsteinum og
skartgripum að verðmæti 213
milljón frankar. í fyrstu ndt-
aði hann að tala við blaðamenn,
en hálftíma siðar átti hann fund
með þeim. Var hann þá hlæj-
andi og sagði m. a.: „Nú þurf-
um við ekki að vera hrædd við
þjófa, við eigum ekkert eftir,
sem hægt er að stela frá okkur.“
— Reuter.
Taugasfríðið æflar aldrei
að faka enda í
Kanfaraborg
KANTARABORG — í síðustu
styrjöld var það þáttur í tauga-
stríði Þjóðverja gegn almennum
borgurum í Englandi, að setja
flautur á stjelin á sprengjum
þeim, er þeir vörpuðu yfir
breskar borgir. Flauturnar gáfu
frá sjer skerandi hvinhljóð. svo
að hverjum einum fannst sem
sprengjan væri óðfluga að nálg-
ast. Styrjöldinni lauk, en í Kant
araborg heyrist oft sama hljóðið
og í hryllingsflautunum. Sem
betur fer er samt engin hætta
á ferðum heldur kemur hljóðið
frá páfagauk, sem lærði að
herma eftir hljóðinu. Pafagauk-
urinn heitir Polly. Hann kann
einnig að líkja eftir vjelbyssu-
skothríð. — Reuter.
Truman vcngóður
um fjárveitingu
WASHINGTON, 4. ágúst: —-
Truman forseti Bandaríkjanna
átti fund með blaðamönnum í
dag, þar sem hann sagði, að
hann teldi líklegt, að banda-
ríska þingið myndi óbreytt fall
ast á að veita fjárupphæð þá,
sem hann hafði fari^ fram á
til hergagnasendinga til Ev-
rópu. Upphæðin var 1450 milj-
ón dollarar. Hinsvegar taldi
Truman, að þingið myndi vilja
setja vissar reglur um, hvert
hergögnin yrðu send. — Reuter.
Drobny fær svissnoskf
vegabrjef
GENF, 4. ágúst; — Tjekkneski
tennismeistarinn Drobny, sem
neitað hefir að snúa heim und
ir stjórn kommúnista, er nú
farinn frá Svisslandi. — Hann
ætlar að taka þátt í tennis-
keppni á þriðjudaginn kemur
í Ostend í Belgíu. Hann fjekk
vegabrjef hjá svissnesku stjórn
inni. Síðar í mánuðinum mun
hann fara til Bandaríkjanna,
taka þátt í keppni og ef til vill
setjast þar að. — Reuter.
Útvarpsstyrjöld.
LONDON — Utanríkisráðuneytið
hefir tjáð júnginu, að Bret.and og
Bandai íkin sjeu að vinna „útvarps-
styrjöld“ við Rússland.
Kommúnistaher hefur
foyrjað innrás í S-Kóreu
Syngman Rhee
Þessi mynd var tekin nýlega
af Syngman Rhee, forseta
Suður-Koreu.
Mei í fyggigúmmí-
úfflufningi
WASHINGTON; — Utflutn-
ingur Bandaríkjanna á tyggi-
gúmmí hefir aldrei fyrr verið
meiri en á síðasta ári. — Nam
útflutningurinn 5,500 smálest
um. Mest var flutt út til Filipps
eyja eða um 25 prósent.
— Reuter.
Nota tækiíærið erbanda-
ríska hernámsliðið hvarf
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Rcuter.
SEOUL, 4. ágúst. — Það var tilkynnt í dag, að hersveitir kornm-
únista í Norður-Kóreu hefðu gert innrás í Suður-Kóreu og
standa nú yfir bardagar á landamærunum. Er attiyglisvcrt,
£.ð þetta gerist daginn áður en Chiang Kai Shek og Syngrnan
Rhee forseti Suður-Kóreu koma saman í Seoul til að ræða
stofnun Kyrrahafsbandalags.
"^Bandaríska hernámsliðið far-
I ið á brott.
Fíugferðir fii Hong Kong Landamærj Suður- og Norð-
ur Kóreu liggja eftir 38 hreidd
arbaug. Sú skifting var ákveð-
in? þegar landinu var skift nið-
LONDON, 4. ágúst: — Breskaiur í hernámssvæði Bandaríkj •
flugfjelagið BOAC tilkynnti í anna og Rússa. Nú hefur verið
stofnað lýðveldi í Kóreu og er
allt bandaríska hernámsliðið á
dag, að það hefði ákveðið að
taka hina langfleygu tegund
farþegaflugvjela Argonaut til
flugferða frá Bretlandi til
Austur-Asíu. Verður flogið um
Indland. Ferð til Hong Kong
mun taka þrjá daga og til
Tokyo fjóra daga. Flugvjelar
þessar munu taka 40 farþega.
— Reuter.
..Voveiflegur dauðdagi.
LONDON — Fyrir vköminu
fanst kona nokkur í Glasgow dauð
á heimili sinu. Halði verið skorið á
slagæðar beggja lianda. Tveimur
dögum síðar þekktist lík manns
hennar, en það hafði fundist í ánm
Clyde nokkru fyrr. Hjónin höfðu
verið 6 mánuði í hjónabandi.
Tito marskálkur óttast
herárás á Jágóslavíu
Biður hermenn að vera filbúna fil varnar
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
EELGRAD, 4. ágúst. — Tító marskálkur, einræðisherra Júgó-
slaviu, sem nú er á ferð í suðurhluta Júgóslavíu, hjelt ræðu í
dag yfir júgóslavneskiim hermönnum. Virðist eftir ræðunni að
dæma, að Tító sje farinn að óttast róttækari aðgerðir Rússa og
ef til vill innrás í Júgóslavíu.
ÍMeesta hættan í Makedóníu.
Tító sagði í ræðu sinni, að
hermennirnir yrðu jafnan að
vera viðbnnir til að verja
frelsi Júgóslavíuu. Hann sagði,
að Makedónia væri sá hluti
Júgóslavíu, sem væri í mestri
hættu fyrir árásum.
Óttast stríð.
Hann kvað þar vera bestu
hermenn Júgóslavíu og þeir
væru jafnan viðbúnir til að
verja frelsi Júgóslav u og
mynda skjaldborg um nýsköp-
un landsins. Þá sagði hann það
andvaraleysi, að ímynda sjer,
að Júgóslavia fengi jafr.an að
búa í friði.
t>ingmanni ræni á
Sikiley
PALERMO, 4. ágúst: — ít-
alsld þingmaðurinn Giovanni
Lomonte var nýlega á gangi
eftir þjóðveginum nálægt Cast-
ronova, þegar vopnaðir ræn-
ingjar spruttu upp við vegar-
brúnina, bundu hann og kefl-
uðu og höfðu á burt með sjer.
Hafa ræningjarnir krafist lausn
argjalds fyrir þingmanninn, en
lögreglan leitar í nágrenninu
með fjölda blóðhunda.
burtu þaðan.
Bardagar á Ong Chin skaga-
Kommúnistar frá Norður-
Kóreu hafa gert innrás á Ong
Chin skagann, sem er landfast-
ur við Norður Kórea, en
fremsti oddi skagans er fyrir
sunnan 38. hreiddarbaug og
tilheyrir því Suður Kóreu. —-
Talið er, að um 5000 manna
herlið kommúnista hafi ráðist
inn fyrir landamærin, en Suð-
ur Kóreuliðið hefur búist til
varnar og standa yfir harðir
bardagar á skaganum.
Viðræður uni Kvrrahafs-
handalag.
Á morgun koma Chiang Kai
Shek foringi Kuomintang
flokksins kínverska og Syng-
man Rhee forseti Kóreu saman
á fund í Seoul, höfuðborg Ko
reu. Munu þeir ræðast við urn
stofnun Kyrrahafsbandalags á
móti kommúnistum, en áður
hefur Quirino forseti í ilipps-
eyja lýst sig fylgjandi stofnun
slíks handalags.
Forsefi heiðrar
dr. Björn Þórðarson
1. ÁGÚST sæmdi forseti ís-
lands fyrrverandi forsætisráð-
herra, dr. juris Björn Þórðar-
son stórkrossi Fálkaorðunnar.
Eins og kunnugt er var dr.
Björn forsætisráðherra er lýð-
veldið var stofnað, auk þess
gengdi hann samviskusamlega
einu umfangsmesta og vanda-
mesta dómaraembætti á Islandi
um langt árabil, svo og ýms-
um trúnaðarstörfum. Var með-
al annars sáttasemjari ríkisins
í rúm 16 ár Ennfremur hefir
hann innt af hendi merkileg
ritstörf.