Morgunblaðið - 05.08.1949, Síða 8
8
7Í . | 7T*ltf
MORGUNBLAfílÐ
Föstudagur o. ágiist 1949.
— Meðal annara orða
Frh. af bls. 6.
enn sætu þar. Síðan var skila
boðum komið til aðstandenda
hinna óhamingjusömu manna.
Nú hefir Hildebrandt spjald-
skrá yfir 12,000 óbreyttra borg
ara, sem hann veit um í Rúss-
neskum fangabúðum. En frá
því stríðslok hafa um 250,000
manns horfið á dularfullan hátt
á rússneska hernámssvæðinu.
En 7,000 beiðnir um upplýsing
ar liggja fyrir hjá fjelagsskapn
um.
• •
REYNA AÐ VINNA
HYLLI HANS
KOMMÚNISTAR lýsa því yf-
ir, að Hildebrandt sje ekkert
annað en ensk-bandarískur
njósnari. Samt hafa þeir hvað
eftir annað sent fulltrúa til
hans til að reyna að vinna
hann á sitt band.
Úfflufningur Berlín eyksf
BERLÍN, 4. ágúst: — Útflutn-
ingur iðnvarnings frá Berlín
hefir aukist mikið síðan járn-
brautarsamgöngur opnuðust á
ný. Nam hann í júlímánuði
1 milljón 600 þús. dollurum.
| Renoult |
| 4ra manna, lítið keyrður, \
= til sölu við austurenda j
j Hafnarhússins kl. 5—6 í ;
I dag. —
Trjen hans Mendelsohn
fá að lifa
CAMBERWELL í Bretlandi. —
Felix Mendelsohn bjó um tíma
í Camberwell. Hann unni því
mjög að dveljast í stórum trjá-
garði skammt frá borginni. Þar
voru rúmlega 100 trje og um
vor eitt, er þau voru að laufgast
kom andinn yfir Mendelsohn og
hann samdi yndisfagurt lag
,,Vorsönginn“ sem flestir kann
ast við. í sumar ákvað bæjar-
ráð að það skyldi höggva 70
trje vegna þess, að þau væru
orðin hættuleg og gætu fallið
og valdið slysum. Átti að fara
að hefja verkið, en þá kom upp
sterk mótmælaalda Brjef bár-
ust svo þúsundum skifti þar sem
trjánum var beðið lífs. Og ný-
lega sat bæjarráð fund að nýju.
Þar var ákveðið, að trjen
skyldu fá að vera óhögguð
—Reuter.
Einvígiskappi missir marks.
HAVANA: Eduardo Chiba; fyrr-
verandi öldungadeildarþingmaður,
sem hefir sex sinnum skorið úr stjóm
málaerjum við andstæðinga sína með
því að skora þó á hólm. fór nýlega
enn einu sinni til einvigis, en hvorki
hann nje andstæðingurinn særðust.
Aldrei þessu vant hafði Chibas
skammbyssu að einvigisvopni, en
venjulega hefir hann barist með
sverði.
Skutu Chibas og rithöfundur sá,
er á hólminn gekk móti honum, sin-
um tveimur skotunum hvor í 20
skrefa fjarlægð. en hæfðu víðs fjarri
settu marki. Einvígisdómarinn taldi
heíðrinum þó borgið og stöðvaði frek
Lá við dauðaslysi
Frá frjfettaritara Mbl.
í Kjós.
NÝLEGA VAR á-
ætlunarbíllinn R 2050 að koma
frá Reykjavík. En hann hefir
daglegar ferðir upp í Kjos. Var
bíllinn á leið upp í Laxárdal.
Staðnæmdist hann á móts við
hinn nýja barnaskóla eri hann
stendur skamt frá aðalvegi. —
Vinna 3 menn við skólann,
auk þeirra eru þar hjón með
dreng tæpra 2ja ára oamlan. Á
meðan billinn stansaði hafði
drengurinn hlaupið upp að bíln
um, en bílstjórinn stansaði,
sá hann drenginn hfcitna við
skólann og einn af verkamönn-
unum, sem vinna við skólann
fór upp að bilnum og var dreng
urinn þá heim við skólann. —
Hafði því drengurinn hlaupið
upp að bílnum án þess að bíl-
stjórinn eða aðrir, sem í biln-
um voru eoa þessi verkamaður
vrði hans vör. En móðir drengs
ins og menn þeir, sem heima
voru við skólann, sáu htnsveg-
ar til ferða drengsins og hljóp
til þess að forða honum frá
slysi, en varð of sein. Og skipti
það engum togum, er bíllinn
ók af stað, hafði drengurinn
þá verið fyrir framan bílinn,
fjell hann þegar undir bilinn
og varð drengurinn á nnili hjól
anna og segir sjónarvottur er
nærstaddur var, að annað aft-
urhjól bílsins hafi lítille?a snert
hann. Fór bilstjórinn strax suð
ur með drenginn. Við athugun
kom í ljós, að hann er töluVert
marinn á öðrum fæti og upp á
læri og mjðm, en óbrotmn.
Drengurinn heitir Róbert
Gunnar. Foreldrar hans eru
Ása Þórarinsdóttir og Alan
E. Boncher, M. A. Er hann
vörslumaður við Laxá í sum-
ar. 1 sambandi við þessa frjett
skal það tekið fram, a* hjer
hafi engum verið hægt um að
kenna, eins og að framan er
frá skýrt. Enda er bílstjóri sá
er stýrir þessum bíl, viður-
kendur ágætis bilstjóri og hef-
ir fengið sjerstakt orð fyrir
gætilegan akstur og er hann
búinn að keyra bíl í fjölda
mörg ár. St. G.
! Amerísk sumarföf |
I ljós einhneppt vönduð á :
l meðalmann, til sölu án i
i miða. Upplýsingar Hverf- i
i isgötu 40 frá kl. 1—8 í f
I dag. Sími 80158
Maður druknar
við Álffanes
SÍÐASTLIÐIÐ laugardags-
kvöld vildi það sviplega slys
til að Grímur Thomsen Tómas-
son húsasmíðameistari, fjell
út af trillubát sínum og drukkn
aði.
Grímur heitinn var nýfluttur
að Katrínarkoti á Álftanesi.
Fór hann þetta kvöld í bát sín
um til þess að vitja um hrogn-
kelsanet úti á firðinum •— Ná-
granni hans Valgeir Eyjólfsson
bóndi á Hausastöðum, varð
honum samferða á sínum bát,
því netalagnir þeirra voru á
sama miði. Er þeir voru komn
ir skammt frá landi bilaði vjel
in í bát Gríms heitins, eða var
í ólagi, svo Valgeir dró bát
Gríms út -að netunum. En þeg
ar þeir voru komnir nálægt
netunum, var dráttartaugin
losuð og ætlaði Grímur heitinn
að róa út að sínu dufli. Hafði
hann lagt út árar. En það skipti
engum togum. Rjett á eftir varð
Valgeir þess var, að Grímur
steyptist útbyrðis. Valgeir hafði
stöðvað vjelina í sínum bát og
rjeri nú eins hratt og hann gat
þangað sem bátur Gríms var,
En Grími skaut ekki upp. Ekki
er hægt að gera sjer fulla grein
fyrir hvernig á því stóð að
Grímur heitinn fjell úr bát sín
um, en talið líklegt að hann
hafi fengið aðsvif.
Á sunnudaginn tókst að finna
lík hans, því hægt var að finna
staðinn af duflinu. Með fjör-
unni sást hvar líkið lá í botn-
inum á 3% faðms dýpi.
Grímur heitinn var 41 árs að
aldri. Hann lætur eftir konu
og fjögur börn, það yngsta 4ra
ára, en það elsta ftýfermt. —
Ekkja hans er Anna Kristins-
dóttir.
Eggert Claessen
f Gústaf A. Sveinsson |
| Odfellowhúslð Sími 1171 \
hæstarjettarlögmenn
I Allskonar lögfræðistörf ?
MlJIIHMMMMIMMMMIHMMIIIHMIMIimiMMIIIHIIMHW
.......................MMMIMMMMMMM
jViðtalstími j
jj minn verður framvegis I
I kl. 1—2V2 laugardaga 10 \
Hannes Þórarinsson
§ læknir
i Vesturgötu 4. Sími 81142. i
IflMIMIIIIIIIMIIIMIIIIIIIIIMIIIIIMMIIIIIMMIMIMIIIIIMIIIIMI
• lllllllfllllflfllllllllMMIIIIMIIIIMIVIlriMIM
Tilboð óskast í 3—5 kgw. (eftir vatnsfallshæð 20
—30 m)
vatnsaflsrafstöð
110 w. jafnstraumur með ýmsu tilheyrandi svo sem
110 m. af vírbundnum 6’ trjerörum, mælura, heimilis-
tækjum o. fl.
Upplýsingar hjá undirrituðum
Guðjón A. Sigurðsson,
Gufudal — ölvesi.
iminnun
Gorðsiólor
Vandaðir garðstólar fyrirliggjandi. — Sendum gegn
póstkröfu út a land.
^JJeiiduerái S>oíiclo
Sími 3616.
HV ' THESE ^
MU3T BE MARK'S
PICTURES OF AAORLEY
mr The 'níi
4/ RUNAWAV \\
1LOGGING TRAIN\
GATHERS TERRIFICl
SPEED AS IT
, APPROACHES l
Vbeaver run /
TRE5TLE /t
'BM
| Markúe & á* Eftir Ed Dodd
— Þetta hljóta að vera mynd-
ir, sem Markús hefur tekið af
Vígbirni. Hjerna eru filmurnar.
I Vígbjörn og Markús nálgast
hvorn annan, varlega og það er
’ útilokað annað en að þeim lendi
’ saman í hatrömmum bardaga.
Vígbjörn er sterkari og langtum
þyngri, en Markús er fimari.
Eimreiðin æðir á meðan
stjórnlaust áfram. — Hraðinn
eykst óskaplega og þeir eru að
komast fram á hættulegan stað:
beygjuna við Bjórstíflu.
Sr. Óskar J. Þorláks-
son á Rolaryþingi
SJERA ÓSKAR Þorláksson,
umdæmisstjóri Rotary klúbb-
anna hjer á landi, er nýkominn
heim frá Bandaríkjunum, þar
sem hann sat 40. alþjóðaþing
Rotary International, sem hald
ið var í New York dagana 11.
—16. júní s. 1. Var þing þetta
hið 40. í röðinni og jafnframt
hið fjölmennasta, sem haldið
hefur verið til þessa.
Alls voru mættir þarna full-
trúar frá 64 löndum en Rotary-
fjelagar og gestir á mótinu
voru um 16 þús. að tölu. Að
þessu sinni voru mættir full-
trúar frá Þýskalandi og Japan,
en Rotary-klúbbarnir hafa ný-
lega verið endurvaktir í þessum
löndum, en fyrir allmörgum ár-
um voru þeir leystir þar upp
af stjórnarvöldum þessara
landa.
Hlutverk þessa þings eins og
Rotary-hreyfingarinnar yfir-
leitt, var að efla samstarf og
kynningu og hvetja til þjón-
ustu við hugsjónir friðar og
mannrjettinda.
Efling góðvildar, voru ein-
kunnarorð mótsins.
Á Þinginu fluttu ræður ýms-
ir heimskunnir menn, svo sem
Trygve Lie, ritari Sameinuðu
þjóðanna, O. Dwyer, borgar-
stjóri New Yorkborgar og for-
ustumenn Rotary International
Angus S. Mitchell og Percy
Hodgson.
Angus S. Mitchell forseti
kom hingað til íslands s. 1. vor,
en Porcy Hodgson var kjörinn
forseti fyrir næsta starfsár, sem
byrjaði 1. júlí s. 1.
Rotary-fjelagsskapurinn á
miklu fylgi að fagna víða um
heim, og mun vera einn alþjóð-
legasti fjelagsskapur, sem til
er. Höfuðtilgangur hans er að
efla skilning og góðvild milli
manna, er stunda ólík störf í
þjóðlífinu, vinna að hjálpar- og
menningarstarfi, og efla kynn-
ingu og samstarf þjóða á milli.
Þá ferðaðist sjera Óskar all-
mikið um New York ríki og
flutti þar 20—30 erindi um ís-
land í Rotary-klúbbum, skólum
og kirkjum.
Hafði einn af umdæmisstjór-
um Rotary International í því
ríki, Herbert E. Pickett, skóla-
stjóri í Cooperstown undirbúið
ferð hans og boðið honum að
heimsækja klúbbana.
Sjera Óskar fjekk allstaðar
hinar bestu viðtökur og naut
mikillar gestrisni Rotary-fje-
laga.
Alls munu 3—4 þús. manns
hafa hlustað á erindi hans og
var þeirra víða getið í blöðum.
Nazistar í Þýskalandi.
MuncHKn — McCloy hernámsstjóri
Bandarikjanna í Þýskalandi, hefur
fyrir skömmu skýrt frá því, að hann
mundi rannsaka, hvort nokkuð væri
h.eft í þeim orðrómi. að fyrrverandi
nasistar vaeri meðal æðstu embætt-
ismanna stjórnarinnar i Bayern.
Tek að mjer (
= að mála og bika þök. — §
| Upplýsingar frá 7 til 9, |
: síðdegis í síma 6060.