Morgunblaðið - 01.09.1949, Page 8
8
MORGUTSBLAfílÐ
Finmitudagur 1. sept 1949.
i
JHmpguttfrlðfrifr
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
1Jílzuem óhripar:
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands,
kr. 15.00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók.
Er púðurtunnan
á Balkan ?
SÍÐAN Moskva og Kominform settu Tito marskálk og komm-
únistaflokk Júgóslavíu út af hinu pólitíska sakramenti, hef-
ur sambúð Júgóslava og Rússa stöðugt verið að versna.
Rússar hafa gert allt, sem þeir hafa getað til þess að spilla
sambúð þeirra við aðrar Balkanþjóðir og torvelda þeim
viðskipti við þær. í þessari viðleitni hafa Rússar notið dyggi-
legs atbeina Kominform.
Hin upprunalega ástæða þess að til fjandskapar dró milli
Sovjetstjórnarinnar og Titos marskálks var sú að Rússar
töldu að Júgóslavar hefðu ekki verið nægilega tillitssamir
við umboðsmenn þeirra í Júgóslavíu. Rússneskar hernaðar-
sendinefndir og starfsmenn þeirra hefðu jafnvel orðið fyrir
ýmiskonar hnýsni af hálfu júgóslavneskra yfirvalda. Töldu
Rússar ennfremur að stjórnarstefna Titos miðaðist meira
við hagsmuni þjóðar hans en Moskvu og hins alþjóðlega
kommúnisma. Þess vegna var honum gefið að sök að hann
hefði svikið Marxismann og gengið „auðvaldinu“ á hönd.
Tito svaraði hins vegar með því að ásaka Sovjetstjórnina
íyrir að vinna markvíst að því að undiroka Júgóslavíu og
gera hana algerlega háða Rússum efnahagslega.
Engum áhorfanda þessara viðskipta milli Moskvu og
Titos hefur komið þau á óvart eftir að vitað var að stjórn
Júgóslavíu vildi varðveita sjálfstæði landsins gagnvart Rúss-
landi. Þau hafa sannað það eins áþreifanlega og frekast er
unnt að kommúnistastjórnin rússneska krefst þesá af öllum
kommúnistastjórnum að þær setji velferð og hagsmuni hins
rússneska heimsveldis ofar hagsmunum sinna eigin landa.
Ef þær ekki gera það, þá sétur Moskva og verkfæri hennar,
Kominform, þær út af sakramentinu. Þetta er það, sem gerst
hefur gagnvart Tito. Hans yfirsjón var sú að halda að sjálf-
stæð og óháð Júgóslavía gæti samræmst kommúnistiskri yfir-
stjórn og þátttöku í alþjóðasamtökum kommúnista.
En Moskva er stöðugt að herða sóknina gegn Júgóslavíu.
Ásakanir Stalins á hendur Tito verða stöðugt ofsafengnari.
Minna þær greinilega á aðfarir Hitlers gagnvart smáríkj-
um þeim, sem hann hugði á að leggja undir sig og rændi að
iokum sjálfstæði.
Síðustu daga hafa hótanir Moskvavaldsins verið hvað ofsa-
legastar. Verður varla annað sjeð en að Stalin hafi í hyggju
að ganga milli bols og höfuðs á stjórn Titos jafnvel þó að
það kosti vopnuð átök. Margt bendir þó til þess að Rússar
muni fremur kjósa að beita nágrönnum Júgóslava, Ungverj-
um og Rúmenum, fyrir sig og láti þá verða til þess að egna
til óeirða til þess að fá ástæðu til að skerast sjálfir í leikinn.
Auðsætt er að Rússar ætla ekki að þola Tito að standa
upp í hárinu á Moskva og.Kominform. Hefur það ekki síst
vakið reiði Stalins að Tito hefur orðið að leita fyrir sjer um
aukin viðskipti og jafnvel lán í Bandaríkjunum. Ennfremur
hafa töluverð viðskipti tekist við Ítalíu þrátt fyrir deiluna
um Trieste.
Það er þess vegna eðlilegt að spurningunni um það, hvort
púðurtunnan, sem ógnar heimsfriðnum, sje ekki einmitt á
Balkan, skjóti upp. Vopnuð innrás Rússa og leppríkja þess
i Júgóslavíu væri hnefahögg framan í hina alþjóðlegu frið-
arviðleitni innan samtaka Sameinuðu þjóðanna. Þau sýndu,
greinilegar en að um yrði villst, hvað Rússar hyggjast fyrir.
Eru ýmsir þeirrar skoðunar, að ef Rússar rjeðust inn í Júgó-
slavíu nú í haust, þá myndu þeir jafnhliða gera Finnlandi
svipuð skil. Er vitað að eftir kosningaósigur finnskra komm-
únista í síðustu kosningum hafa verið uppi háværar kröfur
frá hinni finnsku fimmtuherdeild um vopnaða innrás Rússa
j Finnland. Er talið líklegt að verkföll þau, sem kommún-
istar efndu til í landinu fyrir skömmu standi í sambandi við
þessar krofur.
Kjarni málsins er sá að heimsfriðnum og frelsi og öryggi
þjóðanna stafar í dag fyrst og fremst hætta af heimsveldis-
og drotnunarstefnu Rússa og hins alþjóðlega kommúnisma.
Stalin marskálkur hefur sett púðrið í tunnuna. Hvenær ber
hann tundrið að henni?
Undir smásjánni
KYNSTUR HEFIR verið skrif-
að um okkur í ensk blöð í sum
ar. Nýlega hefi jeg komist yfir
safn úrklippna úr ensku blöð-
unum frá júlí og ágúst og minn
ist jeg ekki að hafa áður sjeð
svo margar gieinar frá jafn
stuttum tíma.
I þessum greinum um land
okkar og þjóð kennar margra
grasa — satt og logið eins og
þar stendur. Höfundarnir eru
fex'ðamenn, blaðamenn, konur
og kaxlar.
•
Útsvarsskráin
I EINNI smágrein, sem birtist
í blaðí í Newcastle segir frá
því að sígarettupakkinn á ís-
landi kosti hátt á sjöttu krónu
og þar sje sá undarlegi siður
viðhafður, að gefin sje út bók
með nöfnum skattgreiðenda og
upphæðum sem þeim er gert að
greiða í ríkiskassann. Bókin
sje vitanlega metsölubók af
þeim ástæðum að allir hafi gam
an að hnýsast í annara hagi.
Greininni lýkur með því, að
fullyrða að íslensk stjórnar-
völd fari ákaflega sparlega með
almenningsfje!
Fjekk egg í vörpuna
í FRJETTUM Morgunblaðsins i
gærmorgun er skýrt frá því,
að Akurey hafi fengið 27 feta
langan hákarl í vörpuna út af
Eldey. Það hefir verið voðaleg
skepna og býst jeg við að
Kristján skipstjóri hafi orðið
undrandi, þótt ekki hafi hann
haft neitt á móti að fá 9 tunn-
ur af lifur alveg óvænt.
En hugsið ykkur svipinn á
skipstjóranum á breska togar-
anum Lord Sands, sem var að
veiðum hjer við land í sumar
og fjekk fuglsegg í vörpuna.
•
„Óskiljanlegt“
BRESKI togaraskipstjórinn,
sem heitir Thomas Fox, fór;
með eggið til Hull, fjekk það
hendur sjerfræðingum og sagð
ist ekkert skilja í þessu.
Því miður Tekja þresku blöð
in, sem frá þessu skýrðu, ekki
söguna um eggið, sem veiddist
við íslandsstrendur lengra, svo
ekki er vitað hvaða fuglsegg
það var.
•
„Oop Takcn“
og ,,opin“
OG ÞAR SEM jeg virðist hafa
alla viskuna í dag úr breskum
blaðaúrklippum, er best að
halda áfram að segja sögurnar.
Næst verður þá fyrir grein
herra W. K. Holmes, sem birt
ist í Glasgow Citizen. Höfundur
gefur mönnum ýms góð ráð,
sem ætla að ferðast til íslands
og segir xjettilega, að þeir geti
ekki búist við neinum ,,luxus“
þar, en þeir, sem hafi gaman
af að losna við hann geti skemt
sjer vel þarna norður frá.
Og svo kennir höfundur les-
endum sínum að segja ,,oop
Takin“, sem þýði „frátekin“ og
„opin“, sem hann segir að þýði
það gagnstæða.
•
Saga gamla
skipstjórans
LIVERPOOL DAILY POST
birtir viðtal við einn af elstu
togaraskipstjóranum í Fleet-
wood, sem George Birch heitir
í tilefni af því að hann og kona
hans áttu 75 ára hjúskaparaf-
mæli. Fyrir rúmlega 50 árum
sigldi Birch-karlinn á Islands-
mið, segir hann í viðtalinu.
„Þá voru engir vitar til við
strendur íslands, nema við
Reykjavík, en á þeim vita var
ekki kveikt nema þegar von
var á póstbátnum.
•
íslendingar nefndir
,,skinnfætur“
OG BIRCH GAMLI skipstjóri
heldur frásögrí sinni áfram.
,,í þá daga veiddum við spröku
og kola eins og við vildum. Þeg
r við fengum þorsk og rusl-
ífisk eins og maður sjer nú
koma af Islandsmiðum, fleygð-
um við ruslinu í sjóinn, eða gáf
um íslendingum til að jeta“.
„Breskir sjómenn kölluðu þá
íslendinga ,,Skinnfætur“, þar
sem það var ekki nema einn
maður af fimmtiu, sem gekk í
stígvjeium, hinir voru i heima
gerðum skinnskóm“.
„Ysoroddur“
JA, það kennir margra grasa í
þessum úrklippum og hefir ver
ið krafsað úr þeim hitt og þetta
hjer. En nokkrar eru eftir og
þar á meðal sagan um Ysorodd-
u: Cjurmundsson, sem kom til
Giasgow í sumar. Það nafn hefi
jeg aldrei heyrt á Islandi fyr.
Eða þá sagan um hundinn
,.Martz“. Það er ekki gott að
átta sig á því, hver var að gera
grín að hyorum, blaðamaður-
inn, eða sá, sem segir frá.
Vitur hundur
EN SAGAN birtist í einu af út
breiddustu Lundúnablöðunum
og heimildarmaðurinn er einn
af starfsmönnum Ferðaskrif-
stofu ríkisins, sem var jað sóla
sig i London. Það var einu sinni
er hann var að fylgja ferða-
mönnum upp á eldfjallið Heklu
að hann rakst á hundinn Martz
húsbóndalausann og yfirgefinn.
Hann tók hundinn að sjer og
seppi launaði það vel því
nokkru síðar, er leiðsögumað-
ur ætlaði að fá sjer að drekka
úr lind við Heklurætur. fjekk
Martz hann ofan af þvi með
því að láta illa.
Þremur dögum síðar fann
leiðsögumaðurinn þrjár dauðar
sauðkindur við lindina. Vatnið
í lindinni var auðvitað eitrað
og það vjssi vitri hundurinn
,,Martz“, sem bjargaði lifi hús-
bónda síns og Ferðaskrifstofu
rikisins frá að missa málugan
leiðsögumann.
.........................................IIIIII1111IIIIIIIIII11IIIII IT*I I »*M|111IIIIII11III11MIII rt IIIIIII11III1111.IIIIIIIIIIIIIIIIII M III MIIMIII11)
MEÐAL ANNARA ORÐA ....
.....................................
Flóttantannavandamálið að leysasl
Eftir frjettai'itara Reuters
í Þýskalandi.
UM það bil 25,000 flótta-
menn flytja mánaðarlega frá
Þýskalandi vestur um haf, þar
sem þeir vonast til að fá að
lifa í friði, lausir undan hinum
sífelda stríðsótta.
Er þetta lausnin á mjög erf-
iðu þjóðfjelagsvandamáli, og
hafa Sameinuðu þjóðirnar unn-
ið að lausn þess frá stríðs-
lokum.
• •
MARGAR MILJÓNIR
FLÓTTAFÓLKS
Þegar Þýskaland gafst upp,
1945, voru 8 miljónir flótta-
fólks í landinu. Bandamenn
urðu að taka á sig það erfiða
verk að sjá þessu fólki fyrir
fæði, klæðum og húsaskjóli. —
Þá var einnig unnið þýðing-
armikið starf , við að flytja
flóttafólkið til sinna fyrri heim
kynna og hjálpa því við að
setjast þar að að nýju. Nú hafa
sjö miljón flóttamenn fengið
fasta búsetu, en mikill hópur
býr enn í flóttamannabúðum í
Vestur-Þýskalandi.
• •
KOSTNAÐAR-
HLIÐIN
Eru þeir nú á vegum Alþjóð-
legu flóttamannastofmmarinn-
ar (IRO), sem var stofnuð fyr-
ir atbeina Sameinuðu þjóðanna.
Mikill kostnaður er fylgjandi
starfi hennar en á fjárhagsár-
inu 1948—49, hafa átján lönd
skuldbundið sig til að greiða
um 700 miljón krónur til stofn 1
unarinnar.
Nýjustu skýrslur sýna, að
427 flóttamenn lifi enn í flótta
mannabúðum er unnið að því
ýmist að senda þá til sinna
fyrri heimkynna eða að gefa
þeim kost á að setjast annars-
staðar að. Ef nýir flóttamenn
geta sannað, að þeir hafi flúið
heimkynní sín af pólitískum á-
stæðum, geta þeir krafist
verndar.
Mestur hluti flóttamannanna
eru frá Eystrasaltslöndunum,
Ukrainu, Póllandi. Tuttugu og
eitt prósent af þeim eru Gyð-
ingar.
• •
100—1000 MANNA
FLÓTTAFÓLKS-
BÚDIR
Flóttamannabúðir eru víðs-
vegar í Vestur-Þýskalandi, og
mismunandi að stærð Sumar
með 100 flóttamenn, aðrar með
10,000. Flóttamennirnir fá
enga atvinnu í Þýskalandi —
Bæði vilja þeir ekki vinna und-
ir þýskri stjórn og auk þess
er atvinnuleysi í Þýskálandi.
Flóttamannastoínunin hefur
unnið með atorku að því, að
leysa þetta vandamál. — Hún
Ihefur leitað fyrir sjer um inn-
flutning til ýmissa landa í öðr-
um heimsálfum og er nú far-
inn að sjást árangur starfsins.
• •
BANDARÍKIN
TAKA DRJÚGAN
SKERF
Bandaríkin hafa fallist á að
veita móttöku 335,000 flótta-
mönnum frá til júlí 1950. Auk
þess munu Argentína, Brasilía,
Chile, Venesúela, Kanada. Nýja
Sjáland, Norður Afríka, Tyrk-
land og Ísraelsríki taka við
nokkrum flóttamannahópum.
PJóttamannastofnunin hefur í
sinni þjónustu 36 farþegaflutn-
ingaskip, sem nú sigla um öll
heimsins höf með fána stofn-
unarinnai', grænan og hvítan,
við hún, Þau eru að flytja flótta
fólkið til annara heimsálfa. —
Auk þess ræður stofnunin yfir
30 járnbrautarlestum á megin-
landi Evrópu.