Morgunblaðið - 11.09.1949, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.09.1949, Blaðsíða 2
MOKGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 11. sept. 1945,'] Tj 7"3 Sýnliig Hendiðaskólans á litprereti og í TÍU ÁR hefur Handiða- og myndlistaskólinn starfað hjer í foæ, undir forystu Lúðvigs Guð mundssonar. Aðalstarfssvið skólans hefur verið, að kenna allskonar hand- fðt Er bað mála sannast, að Kk.ólinn hefir gert mikið gagn og notið góðra kennslukrafta. Við skólann hefur starfað myndlistadeild, sem aðallega tiefur búið menn undir fram- haldsnám erlendis, enda munu flestir þeir, sem utan hafa far- ið á undanförnum árum í þeim m-indagjörðum, notið sinnar íy x*stu fræðslu í myndlistadeild Handíðaskólans. Hafa margir þei.rra verið teknir inn í Iista- háskóla erlendis án frekari und ii'húnings og orðið þar góðir nemendur. Með þessu hefur mönnum spar ast það, að þurfa að verja und- irhiíningsárunum erlendis dns og áður var. Á komandi vetri á myndlista- deildin að starfa á líkan hátt og áður og með sömu kennur- um að því viðbættu, að nú hef- ur Jón Engilberts einnig verið ráðinn til að annast kennslu þar. Auk hinna föstu kennslu hef- ur Iíandiða- og myndlistaskól- jnn gengist fyrir nokkurri list- fræðslu fyrri almenning, t. d. með fyrirlestrum listfræðing- anná Björns Björnssonar og dr. Lindsay. í framhaldi af því starfi hefur skólinn viðað að sjer miklum fjölda litprentapa af frægum listaverkum eftir forustumenn ýmsra listíma- bita. alt frá dögum Michael Angelos til vorra daga. Sýning þessara listaverka var opnuð 9. sept. í húsakynn- urn skólans að Laugavegi 118. Verður hún opin í eina viku. Myndirnar munu vera um 100 að tölu, margar stórar eða allt að fullri stærð frummynd- anna. Flestar þessara litprentana hafa gert Braun & Co. í París og Claessen, Zúrich. Er óhætt að segja, að bæði þessi fyrir- tæki eru meðal þeirra bestu í Evrópu. Njóta litprentanir þeirra mikils álits. Fyrir okkur er þessi sýning kærkomin, því þó litprentanir geti aldrei algerlega komið í btaó fyrirmyndanna, gefa þær manni rnjög góða hugmynd um listaverkin sjálf. — Allar eru myndir þessar eftir frábæra listameim, svo sem Michael- Angelo, Leonardo de Vinci, Rafael, Botticelli, Hollendir.g- ana Rembrandt, Bruegel, og í?jóðverjana Holbein og Durer. Þá eru margar myndir eftir fronsku Impressionistana, svo sem Cezanné, Gaugain, Van Gogh, Picasso Sisley, Renoir. Bonnard. Loks eru margar myndir eftir yngri franska lista menn, t. d. Van Dongen, Dufy, Valminck. Af þessu má ráða að þarna er íækifæri til ao kvnn aoí. nánar starfi fjöhnargra lista manna, en hægt er af smámynd um í bókum, þar eð hinar eftir- gerðu myndir eru frábærlega vel gerðár. t»át5 var því vel til fundið af HandíðaskÖlanum að satna' mýndum þess'um saman <•; ., ; . þær- iji v —*átiai uo Lj' iiiJijiii id- málverkum góða aðsókn svo hægt sje að halda áfram slíkri kynningar- starfsemi í framtíðinni. Því vart er að búast við að hægt verði í náinni framtíð að sýna bjer listaverkin sjálf, sem mörg eru vandlega geymd á hinum ýmsu listsöfnum víðsvegar um heim og sjald.an eða aldrei lánuð úr landi. Orri, ,Biáa sijarnan' fer lil Akureyrar LEIKFJELAGIÐ Bláa stjarnan er um það bil að hætta sýn- ingum sínum hjer í borginni — um stundarsakii. Fer hún núna í vikunni með skemmtiskrá sír.a, „Svífur að hausti“, til Ak- ureyrar og mun halda þar sýn- ingar. Verður skemmtiskráin flutt óhreytt að öðru leyti en því, að í stað Fr. Weisshappel píanóleikaxa verður Rögnvald- ur Sigurjónsson með að þessu sinni. Aðsókn að skemtunum Bláu stjörnunnar að undanförnu hef ir verið með fádæmum mikil hjer í bænum og væntanlega verður það sama upp á ten- ingnum á Akureyri. Fjelagið mun þó ekki geta haft þar nema skamma dvöl. þar sem ráðning artími hinna erlendu lista- manna er senn útrunninn, en þó mun reynt að hafa okkrar skemtanir með þeim enn hjer í bænum, áður en þeir fara, Hey flui! á ffufeings- bandi í vofheystQrn SÍÐASTL. fimmtudag athueaði Verkfæranefnd ríkisins flutn- ingaband, er Einar Halldórsson, bóndi á Setbergi hefur komið upp hjá sjer til þess að flytja nýslegið gras upp í votheys- turn. Flutningabandið liggur eftir 20 m. löngum trjestokk. sem er 52 cm. breiður og 21 cm. á dýpt. Liggur hann skáhalt frá jörðu upp í 12 m. háan vot- heysturn. Því er snúið af 4 hest afla mótor með tvöfaldri kíl- reim. Reynd var flutninga geta bandsins. Nýslegnu grasi var mokað í það af tveimur mönn- um. Tók það 8 mínútur að tæma vagninn, sem í var 1120 kg af nýsleginni fremur blautri há (82.4% vatn). Flutningsgeta bandsins var þó ekki notuð tii fulls, vegna þess að heyið var smágert og seinlegt að moka því. Þetta magn af nýsleginni há svarar til 232 kg. af þurru heyi. Flutningabandið er sænskt. Einar Halldórsson hefur reynt það til flutnings á þurru heyi inn í hlöðu ög telur það vel fallið til þess, en ef vindur er, vill heyið fjúka og mun þá þurfa að hafa hlífðarborð á trje- stokknum. Verkfæranefnd vill taka það fram, að flutningaböndin eru alí álgeng við landbúnaðar'störf érlendis. Eru þau oft á hjól- um og hægt að hækka þau og lækka eftir vild. Frá verkfæranefnd rikisins [eykjavíkursýningiii erður mjög ijöibreylt Vonasl !i! að sýningin verði opnuð í okléber UNDIRBÚNINGUR að Reykjavíkursýningunni er í fullum gangi og gerir sýningarnefndin sjer vonir um, að hægt verði að opna sýninguna í októbermánuði í hinum rúmgóðu og glæsi- legu húsakynnum Þjóðminjasafnsins nýja á Melunum. En svo að segja allt húsið verður lagt undir sýninguna, sem verður einstæðasta sýning, sem haldin hefir verið hjer á landi. Viðað hefir verið að miklu efni. Morgunblaðið hefir átt við- tal við Vilhjálm Þ. Gíslason skólastjóra, formann sýningar- nefndar, um undirbúning og fyrirkomulag sýningarinnar og sagði Vilhjálmur, að þegar væri búið að viða að miklu efni í sýninguna. Hefir nefndin not- ið aðstoðar sjerfróðra manna á ýmsum sviðum við öflum sýn- ingarmuna og fyrirkomulag hinna ýmsu deilda sýningarinn- ar. — Reykvíkingaklúbbur. Reykjavíkursýningin verður að nokkru leyti byggð upp á nýjum grundvelli, því jafn- framt því, að safna munum, myndum, teikningum, skýrsl- um og þessháttar, er ætlast til að sýningin geti orðið sam- komustaður bæjarbúa á meðan hún verður opin. Á sýningunni verða sam- komusalir, þar sem fyrirlestr- ar verða fluttir og kvikmynd- ir sýndar. Þar verður setustofa og. veitingasalur. Verður þeim vistarverum komið fyrir í aust- urhlið hins nýja húss, þar sem útsýni verður gott austur yfir Tjörn og borgarhverfin þar fyr- ir austan. Þróunarsaga bæjarins og Reykjavík í dag. Það er ætlunin með Reykja- víkursýningunni, að gefa sýn- ingargestum sem besta hug- mynd um þróunarsögu bæjar- ins og ennfremur hvernig borg- in er í dag, atvinnumál henn- ar og menningarmál. Verður sýningunni að sjálf sögðu skipt niður í ýmsar deild ir. Þar verður t. d. iðnaðar- deild, verslunardeild, siglinga- og fiskveiðadeild, þar sem sýnd verða m. a. skipslíkön og skipa- teikningar, bátar, veiðarfæri og sjóklæði að fornu og nýju. Meðal annars hefir sýningar- nefndin fengið heilan fiskhjall, sem átti að rífa niður. Verður hann í heilu lagi á sýningunni og í honum harðfiskur, vos- klæði, veiðarfæri og annað, sem geymt var í hjöllunum í gamla daga. Gamlar og nýjar verslanir. Þá verður hægt að sjá á sýn- ingunni gamlar og nýjar versl- anir, eins og þær voru og eru nú í Reykjavík. Hefir gengið nokkuð erfiðlega, að útvega kramvörur, eins og þær voru í gamla daga, en von um að það takist. Bóka- og blaðasýning ásamt ligtsýningu verður ' þarnn og ýms fyrir tæki bæjarins sýna starfsemi sína, skól- ar og menntastofnanir og íþróttastarfsemi. Ekki verður þetta sölusýning og þessvegna sýna ekki einstök fyrirtæki. En nýtísku skrifstofur og skt if- stofuáhöld fá sýningargestir tækifæri til að bera saman við gömlu skrifstofurnar hjer í bænum. Að sjálfsögðu verða á sýn- ingunni búningar karla og kvenna, eftir því, sem til na:st, ljósmyndir og kvikmyndir úr bæjarlífinu. Væri æskilegt, ef áhugamenn í kvikmyndatöku eiga myndir úr bæjarlífinu, sem þeir vildu leyfa sýningu á. að þeir láni nefndinni þær til yf- irlits. Grundvöllur að bæjarsafni. Ýmsa muni, sem á sýningunni verða, hafa einstaklingar góð- fúslega lánað, en allmikið mun þó vera af munum í fórum ein- staklinga, sem sýningarnefndin hefir ekki náð til. Er ekki laust við, að sumir telji sig hafa ver- ið hvekta á því, að þeir hafi ekki fengið sýningarmuni sína aftur eða þá skaddaða, en óþarfi ætti að vera að óttast það hvað Reykjavíkursýninguna snertir. Hún er líka að mestu leyti bygð upp úr öðrum efniviði. Þótt mikið sje komið af mun- um verður að sjálfsögðu tekið með þökkum, ef menn vild.u lána sjaldgæfa gamla muni, ekki'síst gamlan húsbúnað og búsáhöld, sem allerfitt hefir reynst að afla. Það vakir fyrir þeim, sem að þessari sýningu standa, að með henni megi fá grundvöll fyrir bæjarsafni Reykjavíkur og væri vel ef það tækist. Ýms skemmtiatriði í undirbúningi. Sýningarnefndin hefir margs konar skemtiatriði í undirbún- ingi, söng, hljóðfæraslátt og jafnvel fatnaðarsýningar og sýn ingar á vinnubrögðum og dag- legu lífi liðinna tíma, en of skammt er sá undirbúningur á veg kominn til þess, að hægt sje að segja frá með vissu hver þessi skemmtiatriði verða í einstökum atriðum, að svo stöddu máli. Það er hægt að fullyrða, seg- ir Vilhjálmur Þ. Gíslason að lokum, að fullur vilji er fyrir höndum og áhugi á, að gera sýninguna sem best úr garði, svo hún megi verða til fróð- leiks og ánægju fyrir Reykvík- inga og aðra gesti, sem hana kunna að sækja. Pabistan og Filippseyjar. KARACHI — Stjórnmálasam- bandi hsfur. verið komið .á milli Pakistan og Filippseyja. Sendi- fulltrúi Filippseyja í Pakistan gekk í dag á fund utánríkisráð- herra Pakistan og afhenti hon- um embættisskilríki sín. itaksteinar Vanmat á kjósendum ,,Sálmáskáldið“ lýsir því yf- ir í Tímanum að enginn, sem hafi málflutning blaðs síns til samanburðar við mála- fylgju Morgunblaðsins og ísafoldar muni kjósa meo Sj álf stæðisf lokknum. Þessi yfirlýsing skáldsms sýnir tvennt: í fyrsta lagi gífurlegt vanmat á þroska kjósenda og í öðru lagi barnalega oftrú á sannfær- ingarkraft þess sjálfs og Tímadálka þess. En hvað knýr „sálma- skáldið“ til svona bjánalegra staðhæfinga? Hrakfarir þess sjálfs og blaðs þess. Skáldið hefir undanfarnar vikur is- að við að sannfæra almenn- ing um að skömtunarmiða- svartamarkaðs frumvarp Framsóknar væri flutt í anda Jóns Sigurðssonar. Þetta hef ir gengið illa. Fólk trúir ekki slíkum afkáraskap á forset- ann. Það veit að hann barð- ist allt sitt líf fyrir auknu verslunnrfrelsi. En sálma- skáldið veit þetta ekki og forherðist þegar því er bent á villu þess. En því er sann- arlega ekki ofgott að trúa því sjálft að almenningur í landinu trúi Tímanum. Það er hinsvegar mjög óheppi- legt fyrir Framsóknarflokk- inn að sálmaskáldið skuli hafa brotist úr ritbanmnu, En þess var varla von a6 flokknum tækist hvort- tveggja, að koma í veg fyrir að það spillti fyrir sjer og flokknum í framboði, og stöðva skrif þess. Andstæð- ingum skáldsins má vera það' mikið fagnaðarefni að sjá það standa á ritvellinum að nýju og rótast um. Þrengingar kommunista INNAN kommúnistaflokks- ins verður sambúðin stöðugt. ] erfiðari. Ýmsir af fyrrver- ] andi frambjóðendum flokks* ins eru tregir til framboðs ] fyrir hann og vilja augsýni- | lega #losna úr sálufjelaginu 1 yið Moskvamenn. Vitað er, ] að einn af þingmöhnum. : flokksins, fyrrverandi for- j seti Alþýðusambands fs- lands, Hermann Guðmunds ] son, aftók með öllu að' leggja nafn sitt lengur við 1 ósómann. Furða,r engan á | því. En fleiri munu sama sinnis. Nýjustu frjettir frá kommum herma, að Katríu 1 Thoroddsen æfi sig nú dag- , lega í prúðu orðfæri og hygg ] ist nú bæta fyrir íyrri brek. Ásmundur í vanda staddur EN Hornafjarðarþingmaðui ' kommúnista er í slæmr: klípu austur þar. Hafa Aust i ur-Skaftfellingar gengið £ i hann um snúning brjóstmynö ■ ar Jóns Sigurðssonar í Al- ; þingishúsinu, en eins og kunnugt er framkvæmdi. ! þessi þingmaður það afrek , grjótkastsdáginn, að snua 1 Framhald á bls. 12«

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.