Morgunblaðið - 16.10.1949, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.10.1949, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 16. okt. 1949. Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla' Austurstrœti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, kr. 15.00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með LesbóE. „Þeir eru hermenn en ekki búandmenn“ SÍÐAN það var fullreynt orðið, að Framsókn gat ekki verið bændaflokkur, og hætti tilraunum sínum eða tilburðum, til þess að vera umbótaflokkur, hefur tilvera þessa flokks verið ömurleg, flokkurinn, sem heild orðið sálrænt fyrirbrigði í þjóðfjelaginu, sem erfitt hefur verið að átta sig á. Allur til- verurjetturinn verið tvísýnn, stefnan orðið brask með völd, og starfið mótað af dutlungum einstakra manna. Hin ítarlega grein Páls V. G. Kolka hjeraðslæknis, sem birst hefur hjer í blaðinu undanfarna tvo daga, og fjallar að nokkru leyti um stefnu, starf og sálarástand Framsókn- arflokksins, gefur gleggri og meiri innsýn í þróun og aðstöðu þess flokks til þjóðmálanna og þjóðfjelagsins í heild, en áður hefur fengist. Skal hún því gerð hjer að nokkru umtalsefni. Kolka læknir hefur áður lýst því hjer í blaðinu, hvernig Framsóknarflokkurinn lenti snemma á villigötum. Hvernig forystumenn hans lögðu, og leggja enn, meiri áherslu á vörudreifinguna og allskonar verslunarbrask en það hlut- verk bændaflokks, sem kallar sig, að einbeina hug og starfi, að umbótum í atvinnu bændanna, jarðrækt og kvik- fjárrækt. Þeir hafa eins og Kolka kemst táknrænt að orði, lagt meiri stund á „pundarann en plóginn'C I þessari grein sinni rekur hann nánar ólánsferil Fram- sóknar, hvernig hún hefur innprentað mörgum upprennandi bændum, eða bændasonum, óbeit á öllu því, sem gamalt er og rótgróið í íslenskri menningu, af því Framsókn tókst að sverta hollar erfðavenjur með íhaldsnafni. Með þesskonar áróðri, hefur Framsókn að dómi Kolka, stuðlað að því, að rofnað hafa þau bönd, sem tengja bændastjettina við fortíð hennar og forna menning þjóðarinnar og hefur þannig „auk- ið á flótta hugarfarsins frá fornum þjóðlegum dygðum.“ Og þessari upplausn kemur Framsókn af stað einmitt þegar mest er þörf á djúpsettum og sterkum rótum í þjóðlífsakr- inum, „þegar skrælnandi næðingur leikur bæði frá austri og vestri um allan þann gróður, sem íslenskur getur kallast.“ Kolka efar ekki, að efniviður íslensku bændastjettarinnar standist fyllilega samanburð við bændastjettir nágranna- þjóðanna. En segir hann: „Á örlagaríkum tímamótum þeg- ar atvinnuhættir þjóðarinnar voru að bræðast í deiglu breyt- inganna, varð íslenska bændastjettin fyrir því áfalli að á henni náðu andlegum tökum, menn sem höfðu gleypt ofan í sig tormeltar fræðikenningar, upprunnar í öreigahverfum erlendra stórborga, þar sem sjónarmið neytandans voru ein- ráð, en ekki framleiðandans.“ „Framsóknarmenn eru hermenn, en ekki búandmenn,11 segir Kolka. „Það hefur aldrei vakað fyrir þeim að sameina bændur, með friðsamlegu móti um framfaramál landbúnað- arins.“ Skýringu á því þjóðfjelagsfyrirbrigði, að margir ungir Framsóknarmenn hafa hneigst til fylgis við kommúnismann á síðari árum, telur Kolka vera þessa: Kommúnistaflokkurinn hefur vaxið ,á rógi Tímans um þjóðskipulagið. Hver nýr árgangur af ungum Framsóknar- mönnum, er lengra frá þeirri drengskaparhugsjón, og sann- leiksást, sem var sterkur þáttur í gamalli þjóðmenning Is- lendinga. Hatrið til Sjálfstæðisflokksins aðal fulltrúa hins ríkjandi þjóðskipulags, eignarrjettar og athafnafrelsis verð- ur blygðunarlausara, eftir því sem gömlu bændurnir innan Framsóknarflokksins falla fleiri frá.“ Ungu Framsóknar- mennirnir sem fara úr sveitinni, segja fljótt skilið við íslenskt þjóðskipulag, því trúin á það hefur verið vængbrotin heima fvrir, segir greinarhöfundur ennfremur. Kolka læknir spáir því, að líkt muni fara fyrir Framsókn- arflokknum eins og sóttkveikjunum, sem framleiða svo mikið eiturefni, að það verður þeim með tímanum sjálfum að bana. Mistök Framsóknarflokksins hafa vissulega tafið fram- farir landbúnaðarins hættulega mikið. En það. skilur Kolka læknir, betur en margir aðrir, að hvernig sem saga Fram- sóknar hefur verið og hve torlæknandi sem þau mein verða, er af starfsemi hennar haía hlotist, þá hefur þörfin fvrir sterka, starfhæfa bændastjett, aldrei verið brýnni en nú. Uíhuerji óírij^ar: ÚR DAGLEGA LÍFINU Vetrarklúbburinn NÝJUNG er það í fjelagslifi höf uðstaðarins, að fyrir forgöngu nokkurra áhugamanna, verður starfræktur klúbbur hjer í bænum í vetur. Verður þetta fjelagsskapur, líkt og tíðkast víða erlendis og fá ekki aðrir að koma i salarkynni klúbbsins en þeir, sem gerst hafa fjelag- ar, eða gestir þeirra, eftir sjer- stökum reglum. Fjelagsskapurinn hefir hlot- ið nafnið „Vetrarklúbburinn“ og hefir tryggt sjer húsnæði í veitingahúsinu í Tivoli hjer suður í Vatnsmýrinni. e Eins og heimili FYRST UM SINN verður Vetr- arklúbburinn aðeins opin fjóra daga í viku. Þangað geta með- limir komið eftir k^lukkan 4 á daginn, fengið sjer hressingu, að loknu dagsverki, tekið slag á spil, eða rabbað saman. Verður þetta eins og annað heimili meðlima. Að kvöldinu verður svo framreiddur matur fyrir þá, sem það vilja og hljómsveit leikur fyrir dansi. • „Prívat“ FJELAGSSKAPURINN verður að sjálfsögðu alveg „prívat“ og gera má ráð fyrir, að það verði einhverjum takmörkunum háð, að fá að gerast meðlimur. Þeir sem sækja um upptöku verði að hafa góð meðmæli og aðrar serimoniur, sem nauðsynlegar þykja í sambandi við fjelags- skap, eins og þenna. Forstöðumenn klúbbsins munu fyrst og fremst leggja áherslu á góða og prúða fram- komu klúbbgesta í alla staði, svo ekki falli þar neinn blettur eða hrukka á. • Virðingarverð tilraun ÞESSI klúbbhugmynd er virð- inearverð tilraun til að auka fjölbreytni í fjelagslífi bæjar- ins. — Hvort hún tekst, mun tíminn einn sanna. Þ_;ð er vitað, að margir, bæði einstaklingar og hjón, myndu fara oftar út að skemta sjer. ef hægt væri að fá inni í lítilli veitingastofu, þar sem matur væri góður og þjónusta öll. Og þar sem ekki væri hætta á, að mönnum væri troðið um tær, eða svo það sje hreint út sagt, engin hætta á að, einhver bráð- ókunnugur maður reki hausin ofan í súpuna hjá manni og elsku vini mann allt kvöldið að tilefnislausu. Það væri óskandi að þessari huemvnd um einkaklúbb tæk- ist vel. • Sk*>mmtileg skáldsaga SKÁLDSAGAN nýja hans síra Jóns Thorarensen á eftir að vekia athygli og umtal. Það er jeg viss um. Það er ekki nóg með að þetta sje spennandi sögubók um atburði og örlög manna í samtals 220 ár. — í sögunni er samankomin sjór af fróðleik um gömlu sjósóknar- ana okkar. Vinnubrögð þeirra og venjur, bæði til sjós og lands. Ometanlegt, að slíkt skuli vera samynkomið í einni sögu. o Ekki er tilgerðin MÖRG SKÁLD hafa lagt það fyrir sig, að safna orðum, sjer- kennilegum orðum til að koma leser/um sínum á óvart við og við. Þetta er áróðursherbragð skáldsins gegn lesandanum. -— Það er vel þegið. Sr. Jón Thorarensen hefir í skáldsög- unni ,.Útnesjamenn“ safnað saman sæg af sjaldgæfum orð- um og orðatiltækjum. Kiljan lætur karlana í sínum bókum hrækja út úr sjer á þann hátt, að maður víkur ósjálfrátt til hliðar, til að forðast að verða f^'rir gusunni. Síra Jón lætur hin fágætu orð koma af sjálfu sjer og án allrar tilgerðar. Jeg held, að lllllllllv«llllllllllllllll(IIMIIIIIIIIIIIlMllllllllllt*vl**wm • ••• það sje ekki gert í áróðursskyni hjá Nessóknarprestinum, að hann skrifar gömul orð, sem horfin eru úr daglegu tali. Það vantar tilgerðina, eins og hjá hinum, sem taka sínar trillur af ásettu ráði og í viss- um tilgangi. Málið verður því eðlilegra hjá sr. Jónb • „Piltur og stiilka“ frá sjávarsíðunni RÓMAN síra Jóns Thoraren- sen er merkilegri fyrir það, að hjer er eivinlega fyrsta heil- steypta skáldsagan, sem skrif- uð er um baráttu útvegsbænda og búaliðs þeirra. Fyrri íslensk- ar skáldsögur eru allar úr upp- sveitum og lvsa lífi fólksins við heyskap og skepnuhirðingu. ..Útnesjamenn11 er eipinlega ..Piltur og Stúlka“. eða ,.Maður og kona“ sjávarsíðunnar. Þess- vegna þurfa allir, sem eitthvað vilia vita um líf fólksins við sjóinn, að kynna sjer þessa skáldsögu. Og það er óhætt, því ekki fer hann síra Jón rangt með. Verðmætum bjargað ÞESSI ,nýja skáldsaga vei'ður þess meira virði, sem lengra liður. Höfundur skáldsögunnar hefir bjargað frá gleymskunn- ar hvldýpis hít, miklum verð- mætum. Og verður honum seint bakkað að v-rðleikum. Undan- farin ár hefir gömlum sjófötum og verkfærum verið mokað út úr hjöllum við sjávarsíðuna. eins og hverju öðru rusli. En við eigum ekki sjóminja- safn. — Það er voðalegt að hugsa til þessa. Þeir hverfa nú óðum, sem muna lífsbaráttuna á árabátun- um .gömlu. — En ef við gleym um baráttu forfeðra okkar, hvort sem var upp til dala, eða fram við sjó, höfum við gleymt ckkar eigin uppruna og eig- um engan grunn til að byggja framtiðina á. MEÐAL ANNARA ORÐA .... ........ Kirkjuofsóknir kommúnista í Póilandi PÓLSKA stjórnin, sem farið hefir að dæmi annarra ríkis- stjórna í Austur-Evrópu og gert ítrekaðar tilraunir til að út- rýma áhrifum kirkjunnar, legg ur nú megin áherslu á að reyna að fá kaþólska presta til að lýsa yfir „stuðningi við ríkið og andstöðu við Páfagarð“. — Herferð þessi hefir ,þó ekki borið mikinn árangur, eins og sjá má á því, að af þeim níu til tíu þúsund kaþólsku prestum, sem nú eru í Póllandi, hafa að- eins nokkrir tugir fengist til að svíkja starfsbræður sína og ganga kommúnistum á hönd. • • Á FUND FORSETANS HIN kommúnistisku yfirvöld hafa þó að sjálfsögðu leitast við að gera sem mest úr bví, að örfáir prestar hafa fengist til að veita þeim liðveislu. — Þannig voru birtar um það margar og langar frjettagrein- ar, er 43 klerkar fóru á fund Bierut forseta og „lýstu þar opinberlega yfir stuðningi sín- um við pólska ríkið“. í frjettatilkynningum frá heimsókn þessari er komist svo að orði, að Bierut hafi full- vissað prestana um, að „þjóð- hollusta og kaþólsk trú geti vel farið saman“. Forsetinn bað prestana að breiða þennan boð- skap út meðal trúbræðra sinna. • • „ÓÞJÓÐHOLLAR RADDIR“ BIERUT á og að hafa lýst yfir, að „sem alþýðustjórn krefjumst við bess ekki, að prestarnir flytji áróður fyrir stjórnarvöld in“. En pólskir prestar ættu þó að gera sjer Ijóst, að hin nýja þjóðfjelagsstefna í Póllandi ,,er meirihluta þjóðarinnar fyrir bestu“- Þetta, sagði forsetinn ennfremur, hefðu þeir hins- vegar ekki gert, og því væri deilan til komin rnilli kirkjunn ar oo ríkisvaldsins. „Prestastjettin er alþýðu- stjórninni andvíg“, bætti hann við. „Það hefir þráfaldlega komið fyrir, að úr prjedikunar- stólnum hafa heyrst raddir, sem Verið hafa hræðilega, jafnvel glæpsamlega, óþjóðhollar“. í frjettatilkynningunni segir. að prestarnir hafi heitið því að kenna pólska æskulýðnum að hafa „ósvikna samvinnu við kommúnista“ PRESTASTJETTIN ÓHRÆDD ENGINN skyldi þó ætla, að heimsókn hinna 43 presta til pólska forsetans hafi haft í för með sjer minkandi kirkju- ofsóknir í Póllandi. Það er öðru nær. Leiðtogar kaþólsku kirkjunnar láta engan bilbug á sjer finna og engar líkur eru fyrir því, að kommúnistar geti kúgað þá til hlýðni. Því telja ýmsir líklegt, að pólsku stjórn- arvöldin grípi að lokum til sömu ráða og bau ungversku, það er að segja, að þau leggi allt kapp á að koma foringjum kaþólika í Póllandi fyrir katt- arnef, með í'jettarhöldum á borð við Mindszenty rjettar- höldin í Ungverjalandi. En pólsku kommúnistarnir eiga hjer vafalaust erfitt verk fyrir höndum, því prestarnir eru staðráðnir í að láta sig ekki fyrr en í fulla hnefana, enda vita þeir, að þeir njóta stuðn- ines nær því hvers einasta ka- þólika í Póllandi. Meirihluti Sjálfstæðisflokks- ins = frjálst þjóðfjelag, af- nám haftanna. KJÓSIÐ D LISTANN.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.