Morgunblaðið - 18.10.1949, Page 1
16 siður
er flisti
Sfáiistae&isilokksins
Leita a naðir Bretn
Einkaskeyti til Mbl. frá Keuter.
EERLÍN, 17. október. — Bresku yfirvöldin í Berlín skýrðu frá
því í dag, að þau hefðu veitt 2 rússnesku'm hermönnum dvalar-
leyfi í Vestur-Þýskalandi, sem „pólitískum flóttamönnum“. í til-
kynningu Breta segir, að hermennirnir sjeu meðal þeirra, ,,sem
upp á síðkastið hafa flúið frá rússneska hernámssvæðinu í
Þýskalandi“.
Rússnesku hermennirnir tveir'
hafa að sjálfsögðu skýrt bresku
yfirvöldunum frá því, hvers-
vegna þeir tóku það ráð að
flýja vestur fyrir járntjaldið.
Annar hermannanna upp-
lýsti það að tveir bræður
hans hefðu látið lífið í fang-
elsi, einn væri nú fangi í
Rússiandi og systir hans og
maður hennar í fangabúðum
í Síberíu.
Hinn hermaðurinn ljet í ljós
undrun yfir því, að jafnvel lífs-
kjör Þjóðverja gætu verið
betri en rússneskra borgara. —
Það hefðu þó verið Rússar, sem
fóru með sigur úr styrjöldinni,
en Þjóðverjar, sem sigraðir
voru.
MOSKVA —- Hæsti rjettur Sov-
jetríkjanna hefur bannað hjóna-
skilnaði, nema þegar hjónabönd
eru í andstöðu við „siðferðislög-
mál kommúnista.“
Kínverskir kommar
komnir ai merkjn-
lím Iii§ Kong
Brelar að heræfingum í nýlendunni.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
HONG KONG, 17. október. — Fremstu hersveitir kínverskra
kommúnista eru nú komnar að merkjalínunni við yfirráða-
svæði Breta umhvcrfis Hong Kong. Tóku kommúnistaher-
deildir í dag þorp eitt, sem landamærin skifta, þannig að Kín-
verjar ráða öðrum helmingi þess en Bretar hinum.
Enginn af hermönnum komn9*
únista hefur enn gert sig lík-
legan til að fara inn á breska
yfirráðasvæðið. Sýnilegt er þó,
að Bretar vilja vera við öllu
búnir þarna. í dag efndu þeir
þannig til heræfinga skammt
fyrir innan landamærin og not-
uðu bæði stórskotalið og flug-
vjelar.
Canton.
Frá Canton herma fregnir,
að alt sje þar nú með kyrrum
kjörum og líf borgarinnar óðum
að færast í eðlilegt horf. Bresk
skipafjelög í Hong Kong hafa
frestað öllum ferðum þangað,
þar til „ástandið verður skýr-
ara“.
Grísliir sltæruliðar segf-
ast vera hættir að berjast
Sfjórnmálaumræðurnar
í útvarpinu í kvöld
STJÓRNMÁLAUMRÆÐ-
UR verða í útvarpinu í
kvöld og hefjast klukkan
8.15.
Fyrstur talar Ólafur
Thors formaður Sjálf-
stæðisflokksins. — Tveim'
ur klukkustundum síðar,
eða klukkan 10,15 talar
Bjarni Bem?diktsson ut-
anríkisráðherra.
PARÍS, 17. okt.: — Jules Moch
skýrði Auriol Frakklandsfor-
seta frá því í kvöld, að hann
hefði gefist upp við stjórnar-
myndun. Moch skýrði eftir á
frjettamönnum frá því, að hann
hefði „rekist á allskonar erfið-
leika!“
Auriol hefir nú boðið Robert
Schuman, utanrikisráðherra frá
farandi stjórnar, að reyna
stjórnarmyndun. — Reuter.
Rússar efla lögregl-
una í Ausfur-
Þýskalandi
WASHINGTON, 17. okt.: — í
orðsendingu, sem Bandaríkin í
dag sendu utanríkisráðuneyti
Sovjetríkjanna, vísa þau alger
lega á bug þeirri fullyrðingu
Rússa, að bandaríska stjórnin
hafi brotið gerða samninga,
með því að stuðla að því, að
þýsk stjórn yrði mynduð í Vest
ur-Þýskalandi. Á hinn bóginn
saka Bandaríkjamenn rúss-
nesku stjórnina um að hafa
aukið og eflt lögregluliðið í
Austur-Þýskal., sjeð þvi fyr-
ir fyyverandi þýskum liðsfor-
ingjum sem yfirmönnum og lát
ið því í tje mikið af góðum
vopnum.
í bandarísku orðsendingunni
segir ennfremur, að Banda-
ríkjamenn voni. að að því
komi, að Sovjetstjórnin hætti
að þröngva vilja sínum upp á
Þjóðverja, en taki í þess stað
upp samvinnu við Vesturveld-
in, með velferð plls Þýskalands
fyrir augum. — Reuter.
íslendingar verða að þurka
út áhrif kommúnistanna eins
og Norðmenn — og losa fúlkið
við óttann af hryðjuverkum og
ofbeldi kommúnismans.
KJÓSIÐ D LISTANN.
Hafa 15 til 20 þúsund
manna lið utanlands
Tilkynning þeirra „sfaSiesiir staSreyndirnar"
Einkaskeyti til Mbl.
AÞENA, 17. október. — Her-
málaráðherra Grikkja sagði
hjer í Aþenu í dag, að ekkert
mark væri takandi á þeirri
fullyrðingu gríska skæruliða-
útvarpsins, að uppreisnar-
mennirnir í Grikklandi hefðu
nú lagt niður vopn. „Það er
ómögulegt að telja tiikynn-
ingu stigamannanna á nokk-
urn hátt mikilvæga“, sagði
ráðherrann. „Hjer er aðeins
um að ræða staðfestingu á
staðreyndum“. Mun hann
með því eiga við þá fullyrð-
ingu grísku stjórnarinnar, að
skæruliðarnir sjeu nú að
heita má algerlega sigraðir,
en stjórnin hefur enn einu
sinni endurtekið þá yfirlýs-
ingu, að hún muni aðeins fall-
ast á skilyrðislausa uppgjöf.
„Varúð“.
Bandarískur stjórnartals-
maður sagði frjettamönnum í
dag, að stjórnin iiti með „tals-
verðri varúð“ á útvarpstilkynn
inguna um það, að uppreisnar-
mennirnir hefðu lagt niður
vopn.
„Það er ómögulegt að kom-
ast að því, hvort skæruliðarnir
meina það, sem þeir segja“,
sagði talsmaðurinn. „Skærulið-
arnir hafa enn 15 til 20,000
jmanna lið í Albaníu, Búlgaríu
og Júgóslavíu. Þessi lönd hafa
hvert um sig lýst opir.berlega
yfir, að skærulíðarnir hafi ver-
ið afvopnaðir og fangelsaðir.
Við höfum ekki fengið þetta
staðfest, en jaínvel þótt við
gerum ráð fyrir, að rjett sje frá
skýrt, halda þessir uppreinar-
menn engu síður áfram að ógna
sjólfstæði Grikklandc“.
Auglýsing
Argus tapaðist úr Þjóðvilj-
anum á sunnudaginn. Skilvís
finnandi komi honum aftur
á sinn stað.
AÖeinseinn kjör-
dagur í Reykjavík
Athygli skal vakin á því,
að aðeins einn kjördagur
verður í Reykjavík og
kaupstöðunum — sunnu-
dagurinn, 23. október. —
Virðist þess misskilnings
talsvert gæta, að kiördag-
ar sjeu hjer tveir eða jafn
vel fleiri, EN SVO ER
EKKI.
Það er aðeins í sveitakjör-
dæmunum, sem kosið er
tvo daga í röð, en þrjá
daga því aðeins, að mjög
slæmt vcðurfar torveldi
mönnum að sækja kjör-
staði.
jr jr
LUTTIR I UTLEGÐ
Einkaskeyti frá Reuter.
WASHINGTON, 17. okt. —
Einn af talsmönnum banda-
ríska utanríkisráðuneytisins
skýrði frá því í dag, að því
hefði borist fregnir, sem
staðfcstu það, að um 17,000
Grikkir, sem til skamms
tíma voru búsettir í Svarta-
hafshjeruðum Rússlands,
hefðu verið fluttir til Kazak
histan í Asíu.
Talsmaðurinn sagði, cð
menn af öorum þjóðernum
— einkum Tyrkir og Persar
— sem bjuggu á ofan-
greindu landssvæði, hefðu
einnig verið gerðir útlægir.
í fregnum af þessu, sagði
talsmaðurinn, er skýrt frá
því, hvernig meðlimir rúss-
nesku ievnilögreghmnar
hafa að undanförnu unnið
að hreinsunum í ýmsúm
borgum í Kákasus. í hreins-
unum þessum hafa verið
handteknir allir borgarbúar
af erlendu bergi brotnir, og
engu um það skeitt, þótt þeir
hafi fyrir löngu öðlast rúss-
nesk borgararjettindi. Hin-
um handteknu hefur þvínæst
verið smalað saman á járn-
brautarstöðvum og sendir í
fjárflutningavögnum til Kaz
akhistan, — iðulega án vatns
og matar, en ferðin tekur
um tvær vikur.