Morgunblaðið - 15.11.1949, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.11.1949, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ 1 Þriðjudagur 15. nóv. 1949 j Krisljðna Jénsdóffir frá ánðAaui í>ANN 5. nóvember s.l. andaðist Kristjana Jónsdóttir, írá Ána naustum, tæpra 72 ára að aldri. og verður hún til moldar borir í dag. Með henni er horfin sjón um vorum ein af þessum hóg- látu konum, sem berast aldrei á en vinna verk sín í kyrþey a* einstakri tryggð og samvisku- semi. Kristjana heitin var fædd að Ánanaustum í Reykjavík, þann 13. nóvember 1877. Hún var dóttir hjónanna Jóns Björnsson- ar og Hildar Jónsdóttur, er bjuggu að Ánanaustum. — Var hún eina dóttirin af börnum þeirra hjóna, er upp komust, en bræður hennar voru þeir Björn skipstjóri, Jón sjómaður og Kristinn trjesmiður. Bæði for- cldrar hennar og bræður var al- þekkt sæmdarfólk, er ekki mátti vamm sitt vita, og var það sjer- .staklega dugmikið og áreiðan- legt í öllu sínu líferni, en þessa eiginleika ættarinnar átti Krist- jana i ríkum mæli. Dvaldi Kristjana í foreldra- húsum til 30 ára aldurs, en vist aði sig þá til Geirs T. Zoega, rektors. Síðan rjeðist hún til tengdaforeldra minna, Magnús- ar Guðmundssonar ,alþingism., og konu hans Sofíu Bogadóttur Guðmundsson og vann á heim- ili þeirra í 18 ár. Vann hún því heimili af slíkri kostgæfni og samviskusemi, að kona mín vildi enga frekar til sín ráða. þegar við -stofnuðum okkar heimili, enda voru henni fyllilega kunn- ir hinir góðu mannkostir Kristj- önu og því sjerstaklega, hversu óvenjulega barngþð hún var. ■ Herbergi riett við mjðbæinn. mcð hús- gögnum og aðgang að síma t.ii leigu. fvrir reglusainan karl mann (míctti vera útlendingur) Tilboð vinsaml. leggist inn á afgr. Mþl. fvrir fimmtudags- kvökl 17. þ.in. merkt: ..lýyrr- látur — 669“. BF.RGUR JÓNSSON MálfliUningsskrifstofa Laugaveg 65, sími 5833. aiiiiiiiini PELSAR Kristinn Kristjánsson Leifsgötu 30, simi 5644. iiiiiiiiiiiiiiii Fluttist hún síðan með okkur til Norðfjarðar á árinu 1937 og var með okkur þar í 8 ár, en síðan hjer í Reykjavík, til dauðadags. Þegar jeg nú minnist hinnar látnu, þá verður mjer sjerstakl. minnisstæð hennar órofa tryggð við heimili okkar hjónanna, og hversu góð og umhyggjusöm hún var börnum okkar. Reyndist hún þeim eins og önnur móðir, þolin móð og umburðarlynd, enda mót aðist breytni hennar af góðvild og hjartagæsku. Hún var hrein- lynd og hjartagóð og hafði sjer- stakt yndi af fögrum söng, enda var hún sjálf mjög söngvin og hafði ánægju af því að syngja börn okkar, sem hún unni, inn í draumheima svefnsins. Heim- ili okltar vann hún meðan heils an entist, eins og það væri henn- ar eigið, og stendur skarð henn- ar ófvllt og opið. í öllu dagfari sínu var Krigtj- ana mjög vönduð og vinnusöm kona, ábyggíleg og vinföst, en hún átt.i ekki marga vini utan fiölskvldu sinnaf. enda var hún að eðhsfðri dul í skapi og sótt- ist ekki eftir vinfengi annara en þeirra er hún þekkti mjög vel og gat f|>Ilt sig við. Hinsvegar var hún vinur vina sinna og vitdi aRt fyrir þá gera. Við hjónin og börn okkar stönd um í mikilli þakkarskuld við hina látnu og það er með djúp- um og einlægum söknuði, sem við nú kveðjum hana í hinsta sinn, en vfir minningu hennar mun alltaf vera bjart í hugum okkar. Friður Guðs sie með þjer, þeg ar bú nú hvílist eftir vel unnið lifsstarf í þágu annara. Jónas Thoroddsen. [ Fundur um húsnæðismáiin Leigjendafjelag Reykjavíkur heldur almennan fund í ■ Breiðfirðingabúð miðvikudaginn 16. þ. mán. kl. 8,30. * Verður þar flutt erindi um húsnæðismálin hjer í bænum ; og á eftir því fara fram almennar umræður. Eftir fund- \ inn verða sýndar skuggamyndir. \ ' Allir leigjendur í Reykjavík eru velkomnir á fundinn ■ meðan húsrúm leyfir. • STJÓRN LEIGJENDAFJELAGS REYKJAVÍKUR. AÐALFUNDUR Blindravinafjelags íslands verður haldinn í kvöld kl. 9 e. h. í Fjelagsheimili versl- unarmanna. Venjuleg aðalfundarstörf og lagabreytingar. STJÓRNIN. 318. dagur ársins. Árdegisflæöi kl. 0,25. Síðdegisflæði kl. 13,05. Næturlæknir er í læknavarðstof- unni, simi 5030. NæturvörSur er í Lyfjabúðinni Ið unni, sími 7911. Næturakstur annast Litla bils'.öð in, sími 1380. □ Edda 594911157=7. I.M.R. Föstud. 18.11., 1:1. 20.-Mt -Htl I.O.O.F. Aðgöngumiðasala kl.5-7 Lfmæli Sjötugsafmæli á í dag Gunnlangui ’orvaldsson, Þórsgötu 11. 70 ára er i dag frú Margrjet Gísla óttir, Eskihlíð 16. Verður stödd í heiinili sonar sins, Barmahlíð 5. Sextugur varð í gær, mánudaginr 14. nóv. Jóhann Stefánsson, skipst óri Þórsgötu 21 A. Sextugur er i dag Brynjólfur Simonarsonar, Víðistöðum, Hafnar- firði. Tískan (15,55 Veðurfregnir.) 18,25 Veður-t fregnir. 18,30 Dönskukennsla; II. —< 19,00 Enskukennsla; I. 19,25 Þing- frjettir. —- Tónleikar. 19,45 Auglýs* inar. 20,00 Frjettir. 20 20 Tónleikarj „Duo í A-dúr fyrir fiðlu og píanó op. 162 eftir Schubert (piötur). 20,45 Erindi: Um Clemenceau; fyrra ermdi (dr. Simon Jóh, Ágúsissan). 21,10 Tónleikar (plötur). 21,15 Gömul brjef: Ur brjefum Brynjólfs biskups Sveinssonar (Jakob Bem-diktsson rnag ister). 21,40 Tónleikar: T.jctt hljóm- sveitarlög (plötur). 22 00 Frjettir og veðurfregnir. 22,10 Vinsatl lög (plöti ur). 22,30 Dagskrárlok. Erlendar útvarpsstöðvar England. Bylgjulengdir: 16,99 —« 19.85 — 25,64 — 30,53 m. — Frjett-i ir kl. 17,00 og 19,00. Auk þess m. a.: Kl. 17,30 Prima Donna, eftir Arthus Benjamin (ÓperrJ hljómsveit BBC). Kl. 19,15 Þjóðleg hljómlistarhátíð í Albert Hall. KL 21,00 Kgl. filh. hljómsveitin leikuí frá British Concert Hall. Noregur. Bylgjulengdir: 19 — 25! — 31,22 — 41 m. — Frjettir kl< 06,05 — 11,00 — 12,00 — 17,05 —• Hjónaefni Opinberað hafa trúlofiin sína ung- frú Guðbjörg Bjarnadóttir saumakona Flókagötu 16 A og Óskar Lárusson, stýrimaður frá Vestmannapyjum. Á laugardag opinberuðu trúlofun sína ungfrú Bryndis Eiaarsdóttir — (Einarssonar byggingam.), Mánag. 25 og cand. jur. Stefán Pjetursson (heitins Magnússonar ráðh), Suð- urgötu 24. Brúðkaup Gtfin voru saman i hjónahr.nd s.l. laugardag af sr. Kristni Stefáns- syni, ungfrú Þóra Guðrún Guðmunds dóttir, Reykjavikurvegi 9, Hafnar- firði og Sigurjón Alfreð Kristinsson, Hraunstig 2 Flafnarfirði. Silfurbrúðkaup eiga þann 18. þ.in. hjónin Jónina Eyleifsdottir og Ingimundur Bern- harðsson. afgreiðslumaður, Heiðavegi 32, Vestmannaeyjum. Galdrabókin Ut er komin bók, 200 síður í litlu hroti, og nefnist hún Galdrabókin. Hún hefur'að geyma 100 sjónhverf- ■ingar, gátur og þrautir, valið af Houdini. sem talinn hefur verið mesti töframaður heimsins. Fróðlegur og ■ skemmtilegur formáli -im Houdini og töfrabrögð hans er í bókinni.1 Skýringamyndir fylgja 'iverju töfra-i bragði,- og mun auðvelt fyrir alla, j sem eru sæmilega fiu 'raliprir, að i læra töfrabrögðin og, skemmta með ' þeim kunningjum og gestum. Galdra- hókin er prentuð í Offsetprent h.f. t r I Boksalaf jelag Islands sem átti sextugsafmæli í síðustu I viku og hefur haft opna útsölu und- anfarið að Laugavegi 47, mun halda henni áfram, enn þessa viku, sökum sívaxandi aðsóknar siðustu dagana fyrir helgina, en þa var annars ætl- unin að ljúka útsölunni. Nokkrar hækur hafa selst alveg upp, en þó eru þarna enn hátt á þriðja hundrað baskur að velja úr, þarf af meira cn helmingur gefirm út fyrir stríð, og því með afarlágu verði og miklu lægra en þekkst hefur undanfarin ár. En flestallar nýrri bækur hafa verið lækkaðar stórlega, svo að þarna eru miklir möguleikar á því að gera verulega góð bókakaup. Breiðfirðingakvöld Breiðfirðingafjelagið sýnir í kvöld í Breíðfirðingabúð: Islenskar .og er- lendar kvikmyndir. Ferðasaga og fje- lagsvist á eftir. Kvenfjelag Neskirkju hcfur ákveðið að hafa basar til ágóða fyrir starfsemi sina sunnudag- inn 20. nóv. Fjelagskonur og safna- aðarfólk er vinsamlegast heðið að konia munum sern það hyggst gefa á basarinn til eftirtalinna kvenna: Ingihjarðar ThorarenSen, siini 5688. Dóru Halldórsdóttur, simi 2758. Olafiu Marteinss>m, sínii 1929, Hall- ►essi kápa er frá Digby M.æton í I.ondon. Hún er köllitð „Lálleysi“ og þarfnast ekki nánari útskýr- inga. I dóru Eyjólfsdóttur simi 4793 eða til Ingibjarðar Hjartardóttur, simi 2331. i j Háskólafyrirlestri |frestað | Þriðja fyrirlestri Martins Larsen sendikennara. um Söreu Kierke- gaard, verður frestað til miðviku- dagsins 23. nóv.. en vorður þá flutt- ur í II. kennslustofu hóskólans kl. 6,15 e.h. Náttúrulækningafjelag íslands i I heldur loka-aðalfund i VR í dag kl. 8,30. Á fupdinum segir frú Unn- ur Skúladóttir frá dvöl sinni hjá dr. Nolfi lækni í Danmörku. Kvenrjettindafjelag íslands heldur fund á morgun. miðvikudag kl. 8.30 i Aðalstræti 12 ^uppi). Fund arefni: Viðhorfið til hjónabandsins. Kvennadeild Sálrann- sóknarfjelags íslands heldur basar í G.iðtemplarahúsinu (uppi) í dag kl. 2 e.h. Flugferðir Flugfjelag Islanils I dag er ráðgert að fljúga til Akur eyrar, Kópaskexs og Vestmannaeyja. í gær var flogið til Akureyrar, Seyðisfjarðar, Reyðarfjarðar og Nes- kaupstaðar. 1 Skipafrjettir ■ Eimskip: Brúarfoss er í Kaunmannahöfn. Dettifoss fór frá Leith til Antwerpen og Rotterdam i gær. Fjallfoss er í Reykjavík. Goðafoss er í Reykjavík. Lagarfoss er í Reykjavik. Selfoss er i Kotka í Finnlandi. Tröllafoss er á leið frá Reykjavik til New York. Vatnajökull fór frá Keflavík í gær til London. 1E. & Z.: Foldin er í Reykjavík. I.mgestroom er i Amsterdam. ! Ríkisskip • ■ Hekla er í Reykjavík. Esja er í Ále.ykjavik. Skjaldbreið er í Reykja- ! vik. Herðubreið var á Homafirði í gær á leið til Fáskrúðsfjarð^r. Þyrill er norðanlands. Hermóður var í ísa- Jjarðartljúpi á norðurleið í gær. Helgi fer frá Reykjavík í kvöld til Vest- mannaeyja. Útvarpið: 8,30 Morgunútvarp. — 9,10 Veður fregnir. 12,10—13,15 Hádegisútvarp. 15,30—16,30 Miðdegisútvarp. — 20,10 — 24,00. Apk þess m. a.: Kl. 15,05 Síðdegis- hljómleikar. Kl. 18,00 Gurli-Lemou Bernhard syngur með útvarpshl jóm- sveitinni. Kl. 19,10 Norsk tónskáld. Svíþjóð. Bylgjulengdir: 1588 og 28,5 m. Frjettir kl. 18 og 21,15 Auk þess m. a.: Kl. 15,25 F’ægic pianóleikarar. Kl. 18.25 Sænska út- varpshljómsveitin leikur. Kl. 19,20 Utanrikismúl (Gunnar Franzén). Kl- 19,45 Pianósóló, Iso Elinson. Kl- 20,30 Bókmenntir, dr. phil. Jan@ Lundblad. Danmörk. Bylgjulengdir: 1250 og 31,51 m. — Frjettir kl. 17,45 og kl. 21.00. Auk þess m. a.: KI. 17,20 Hákoa jarl'hinn ríki. Kl. 19,10 Folmer Jen- sen leikur lög eftír Hartmann. KL 19,35 Verða menn afbrotamenn af að horfa á glrepamynd?_______ Nótnafjel, 'Tempé' hefur sfarfsemi sína TVEIR ÞEKKTIR hljóðfæra- leikarar hjer í bænuiji, þeic Bragi Hlíðberg og Svavar Gests, hafa stofnað fyrirtæki, er ber nafnið Nótnafjelagið „Tempó“. Markmið þess er að gefa út nótur og þá aðallega danslög, en á undanförnum árum hefir ekkert fluttst til landsins af slíkum nótum, þó þörf fyrir þær hafi verið tilfinnanleg. Fyrsta lagið frá „Tempó“ er að koma út um þessar mundir og er það ameríska danslagið ,,A, you ’re adorable“, sem hef- ir hlotið íslenska nafnið „Staf- róf ástarinnar“, en það lag vtr kynnt sem danslag kvöldsins I útvarpinu s. 1. laugardagskvöld. Var það sungið a fHauki Mort- ens með aðstoð hljómsveitp.r Björns R. Einarssonar. Lagið er gefið út í píanóút- setningu ásamt gítarhljómum, auk íslensks og ensks texta. Fyrirtækið mun leggja á- herslu á að gefa út danslög eft- ir innlenda höfunda, og er votl á einu slíku bráðlega. Þeim erlendu lögum, sem gef- in verða út, mun að jafnaði fylgja íslenskur texti. KALKÚTTA, 10. nóv. Breska flugvjelafjelagið BOAC hefur byrjað flutningaflug frá Tnd- landi til Bretlands. — Fvrsti farmurinn var sendur til ým- issa dýragarða í Evrópu. Það voru m. a. 45 apar, fjórir full- vaxnir hljebarðar, tvö ljón og 130 farfuglar af ýmsum teg- undum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.