Morgunblaðið - 18.11.1949, Side 2
2
morgvwblaðið
Föstudagur 18. nóv. 1949. 1
Oflugur stuðningur Sjálfstæðismenna við
umbætur í hús næðismálum Reykvíkinga
GUNNAR Thoroddsen borg-
arstjóri, fletti á bæjarstjórn-
arfundi í gær rækilega ofan
af skrípaleik kommúnista í
sambandi við framkvæmdir
foæjarins til úrbóta á húsnæð-
isvandræðunum. Hann sýndi
fram á, hvernig að þeir hefðu
með yfirborðstillögum sínum
gerst berir að því að leggja
til að sömu fjárveitingunum
yrði varið til tvennskonar
framkvæmda, íbúðarhúsa-
foygginga bæjarins við Bú-
staðaveg og lánastarfsemi til
einstakra manna, sem lent
hefðu í vandræðum með hús-
foyggingar sínar vegna láns-
fjárserfiðleika. Kvað borgar-
stjóri þessa framkomu sýna
greinilegast, hver alvara
kommúnistum væri með að
koma fram raunverulegum
bótum í húsnæðismálum bæj-
arbúa.
Tillaga Sjálfstæðismanna
í bæjarráði
Borgarstjóri hóf mál sitt á
því, að þar sem að þessi mál j
hefðu verið margrædd í bæjar- 1
stjórninni undanfarið, þá teldi
hann ekki þörf að vera fjölorð-
ur að þess sinni um þær. Hann
teldi þó rjett að drepa lauslega 1
á efni tillögu þeirrar, sem Sjálf
stæðismenn hefðu flutt á fundi
bæjarráðs 8. nóv. s.l., en í henni
væri mörkuð afstaða bæjar-
stjórnarmeirihlutans til þess-
ara mála í heild.
Margir einstaklingar, sem
ættu hús í smíðum, en lent
liefðu í örðugleikum vegna láns
fjárkreppu, hefðu sótt til bæj-
arstjórnar um lánsfje úr bæj-
arsjóði. í tilefni þessara um-
sókna vildu fulltrúar Sjálfstæð
ismanna í bæjarráði benda á
það, að bæjarsjóður styrkti
byggingu verkamannabústaða
með nær einnar milj. kr. fram-
lagi á þessu ári. Bæjarráð hefði
ennfremur ákveðið í samráði
við stjórn Eftirlaunasjóðs bæjar
ins, að lána byggingarsamvinnu
fjelögum starfsmanna bæjarins
til íbúðarhúsabygginga úr Eft-
irlaunasjóði. Sú fjárhæð, sem
bærinn legði fram í þessu skyni
gæti numið allt að einni milj.
kr. á þessu reikningsári.
Þá hefði bæjarstjórnin í
smíðum 100 íbúðir við Bústaða
•og Grensásveg, sem yrðu hent-
ugar og ódýrar miðað við nú-
verandi verðlag. Myndu þær
verða seldar fjölskyldufólki,
sem mesta þörf hefði fyrir þær
þcgar þær væru orðnar fok-(_
heldar. Gæfist efnalitlu fólki
þannig tækifæri til þess að eign
•ast eigin íbúðir og leggja fram
eigin vinnu til þess að fullgera
þær. En aukavinna þess við þá
framkvæmd hefði fyrir frum-
kvæði Sjálfstæðismanna verið
gerð skattfrjáls.
Hagkvæm lánskjör
Til kaupa á þessum íbúðum|
yrði kaupendum þeirra veitt lán
raeð óveniu hagkvæmum kjör-
•i’jtv. F-'amla" fi1 bess
£-' \ nga :"T,a 5—
Kommúnis!ar berir aS algerum
Úr ræðum Gunnars Thoroddsen borgar-
stjóra á bæjarstjórnarfundi.
•ya -.i'U ocE/ai'st.crnin
fið
þeim, sem hafa fjárfestingar- j
leyfi, en geta ekki notað þau
vegna f járskorts, kost á að skila
þeim til bæjarins gegn því að
bærinn byggi fyrir þá íbúð af
sömu gerð og með sömu kjör-
um og fyrrnefndar íbúðir. —
Mundu allmargir notfæra sjer
það tilboð og bærinn þurfa að
leggja fram 1—2 milj. kr. vegna
þeirra.
100 íbúðir í viðbót
Borgárstjóri kvað bæjar-
stjórn hafa samþykkt að byggja
200 íbúðir af þessari gerð og
þótt bærinn hefði aðeins fengið
fjárfestingarleyfi fyrir helm-
ingi þeirra, þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunir, þá væri bæjar-
stjórnarmeirihlutinn þess alráð
inn að halda fast við fyrri á-
kvarðanir sínar um að halda
áfram á þessari braut og
byggja eins margar íbúðir af
þessari gerð og leyfi fengist
fyrir. Teldi hann hagkvæmast
fyrir lausn húsnæðismálanna
að bæjarsj. notaði allt það fje,
sem hann gæti varið til íbúðar-
bygginga, til þess að halda á-
fram þeirri byggingarstarfsemi,
sem byrjað er á við Bústaða-
veg.
Æskilegt að geta rjett
hjálparhönd
Það hefði að vísu verið æski-
legt, sagði borgarstjóri, að geta
rjett þeim mönnum hjálpar-
hönd, sem stöðvast hefðu við
húsbyggingar sínar vegna láns
fjárskorts. En meirihluti bæj-
arráðs hefði litið svo á, með til-
vísun til annars stuðnings bæj-
arins við húsbyggingar, að ekki
væri fært fyrir bæjarsjóð að
leggja út á þá braut almennrar
bankastarfsemi, að lána þeim
mörgu einstaklingum, sem í
vandræðum væru og lent hefðu
í vandræðum. Hinsvegar hefði
bæjarráð beint þeirri eindregnu
áskorun til lánsstofnana að leit
ast við að greiða götu þeirra
manna, sem nú eiga íbúðir í
smíðum í Reykjavík, þannig að
þeir gætu fullgert þær.
Byggingunum við Bústaðaveg
miðar vel áfram
Borgarstjóri upplýsti að bygg
ingunum við Bústaðaveg mið-
aði vel áfram, þótt nokkrar taf
ir hefðu orðið við þær vegna
efnisskorts og veðurfars. Búið
væri að steypa fyrstu hæð 16
húsa, 5 væru alveg uppsteypt
og þaksperrur hefðu verið reist
ar á einu.
Steinþór vill nota sama f jeð til
tveggja framkvæmda!!
Steindór Guðmundsson tók
ræ^tirr til málr. um þessi mál
•’-i'c HUögur
kommúnista um að það fje, sem
bæjarstjórn hefur samþykkt að
verja til byggingarfram-
kvæmda við Bústaðaveg, yrði
einnig notað til þess að lána
það til annara byggingarfram-
kvæmda, þ. e. lánað einstakling
um, sem skorti lánsfje.
Borgarstjóri svaraði Stein-
þóri og benti á nokkur atriði,
sem sýndu mótsagnirnar í mál-
flutningi kommúnista í þessu
máli.
Kommúnistar hefðu tví-
vegis flutt tillögu, sem færi
fram á að því fje, sem bær-
inn hefði ráðstafað og tekið
frá til 100 íbúða til viðbót-
■ ar við Bústaðaveg, yrði ekki
varið til þeirra. Jafnhliða
skoruðu þcir á Fjárhagsráð
að veita fjárfestingarleyfi
fyrir þessum byggingum. Síð
ast í gær hefðu þeir vcrið
með honum á fundi í Fjár- j
hagsráði um þessi mál.
Það, sem kommúnistar j
vildu, væri að nota sömu
fjárupphæðina tvisvar. í
fyrsta lagi til bygginganna
við Bústaðaveg og í öðru
lagi til þess að lána hana
einstaklingum til annara
byggingarframkvæmda.
Þennan einstæða skrípa
leik hefðu kommúnistar
leikið á fjórum bæjarstjói'n
arfundum í röð. Með slíkri
framkomu væri svo langt
gengið að það væri jafnvel
fyrir neðan virðingu kom-
múnista að leika slíkan leik.
Önnur mótsögn í
tillögum kommúnista.
En auk þess væri önnur mót-
sögn í tillögum kommúnista í
jþessum málum. Þeir krefðust
'þess nú að bærinn lánaði ein-
staklingum fje til bygginga-
framkvæmda. En þegar rætt
hefði verið um lán Eftirlauna-
sjóðs, þá hefði Steinþór Guð-
mundsson ómögulega viljað
j lána nema byggingarsamvinnu-
fjelögum. Þá hefði hann verið
á móti lánveitingu til einstakl-
inga. Þetta væru mótsagnir,
sem hver maður kæmi auga á.
Ef till. kommúnista væri sam
þykt, þá þýddi það stöðv-
un þeirra 100 íbúða er ákveð
ið hefði verið að byggja til
viðbótar við Bústaðaveg, ef
leyfi fengist til þess. Þá yrðu
ekki fleiri íbúðir byggðar
þar í bili, en byrjað væri á
og leyfi fengið fyrir. — Svo
ljeti Steinþór Guðmundsson
málgagn sitt staglast á svik-
um mcirihluta bæjarstjórn-
ar um að byggja þessar 100
viðbótaríbúðir!!
Borgarstjóri kvað Steinþór
hafa reynt að snúa út úr til-
lögu sinni um byggingu 600
íbúða á ári í Reykjavík. í henni
væri að sjálfsögðu ekki átt við
að bærinn byggði 600 íbúðir á
ári. Hinsvegar væri þar óskað
eftir að 600 fjáríestingarleyfi
fengjust í Reykjavík til þess að
ráðast í húsbyggingafram-
kvæmdir.
Tillaga Sigfúsar
Sigfús Sigurhjartarson hafði
fyrr á fundinum flutt tillögu
um að bæjarstjórn samþykkti
áskorun til Alþingis um að það
legði fyrir lánsstofnanir að
verja ákveðnum hluta fjár-
magns síns til húsbygginga. —
Borgarstjóri kvað með henni
hreyft máli,.sem vert væri að
athuga. Eh það væri ekki tíma
bært fyrir bæjarstjórn að gera
nákvæmar tillögur um, hve
miklum hluta af lánsfje bank-
anna skyldi varið til slíkra
framkvæmda.
Framsókn á móti auknum inn-
flutningi byggingarefnis
Borgarstjóri kvað það sýna
hug Framsóknarflokksins til
byggingarmála Reykvíkinga að
þegar Fjárhagsráð hefði nýlega
samþykkt að veita leyfi fyrir
auknum innflutningi á timbri
og sementi til þess að bygging-
ar þyrftu ekki að stöðvast
hefðu fulltrúar Framsóknar-
hefðu ekki aðeins greitt atkv.
gegn því, heldur áfrýjað þess-
ari samþykkt fjárhagsráðs til
ríkisstjórnarinnar.
Borgarstjóri vakti athygli
á því að nú væru allir bæjar-
fulltrúar ánægðir með Bú-
staðavegsbyggingarnar. En
áður hefðu fulltrúar kom-
múnista kallað þær „sápu-
kúlur borgarstjórans“.!!
Það vissu hinsvegar allir
að verkamenn og aðrir efna-
litlir menn myndu hafa
meira gagn af þeim> en sýnd-
artillögum og skrípaleik kom
múnista.
„Einstaklingarnir byggja
ótrúlega“ ódýrt
Jóhann Hafstein benti á hin»
gjörsamlega snarsúning kom-
múnista í umræðunum um bygg
ingarmálin. Steinþór Guð-
mundsson hefði haldið því fram
að öll byggingarstarfsemi í land
inu ætti að vera í höndum hins
opinbera. Afstaða hans hefði
jafnan verið sú að hindra alla
sjálfstæða byggingarstarfsemi
einstaklinga. Nú segði þessi
sami Steinþór: „Eftirtektarvert
er, hve einstaklingarnir kom-
ast upp á lag með að byggja ó-
dýrt“, en þannig hafði Steinþór
komist að orði í ræðu sinni.
Þessu hefir bæjarfulltrúinn
áttað sig á, sagði Jóhann Haf-
stein. Og nú leggur hann til a3
bærinn eigi að styrkja einstakl
inga til húsbygginga.
Hin rjetta grundvallarstefna
í þessum málum væri samhjálp
bæjarfjelagsins og einstakling-
anna. Þessvegna væri hag-
kvæmara að leggja höfuð-
áhersluna á bvggingarnar við
Bústaðaveg, en fara að lána ein
staklingum almennt til hús-
bygginga.
í tilefni af tillögu Sigfúsar
sagði Jóhann Hafstein, að nauð
syn bæri til þess að finna grund
| völl hagkvæmrar lánastarfsemi
; fyrir byggingarframkvæmdir
■ í bænum. Þessvegna væri hann
sammála tillögunni að efni til.
En ógjörningur væri að sam-
þykkja óundirbúna og lítt hugs
aða tillögu í slíku máli. Lagði
hann því til að þetta mál yrði
athugað af þar til kjörnum
mönnum og niðurstaða þeirra
síðan löeð fvrir bæiarstiórn. ■—.
! Líklegt væri að það yrði síðan
að koma til kasta Albingis. Var
þessi tillaga Jóhanns Hafstein
samþykkt með 13 atkvæðum
gegn 1 (Steinþórs). —
Gagngerð viðgerð ú
Verkamannaskýlinu
BORGARSTJÓRI skýrði frá því á bæjarstjórnarfundi í gær,
að viðgerð á Verkamannaskýlinu við höfnina væri nú að verða
lokið. Yrði það opnað um eða upp úr næstu mánaðamótum, eft-
ir að gagnger viðgerð hefði farið fram á því.
Viðgerð í nokkrar vikur.
Viðgerðin á Verkamannaskýl
inu hefur staðið yfir í ookkrar
vikur. Hefur verið sett í það
miðstöðvarkerfi og verður það
tengt hitaveitunni einhvern
næstu daga.
Þá hafa verið framkvæmdar
ýmsar lagfæringar innanhúss.
Nýjar þiljur hafa verið settar
með útveggjum og nokkur
breyting gerð í austurhluta sal-
arins. Eldhús hefur verið end-
urbætt og gluggar þjettir og
lagaðir. Þá er nú verið að mála
skýlið að innan. Ennfremur er
unnið að því að smíða í það
ný borð og bekki. Ætti þessum
umbótum að vera lokið um
mánaðamótin.
Ráðning eftirlitsmanns.
Nokkrar umræður urðu um
ráðningu eftirlitsmanns með
skýlinu. Upplýsti borgarstjórl
að margar umsóknir hefðu bor-
íst til bæjarráðs um það starf
og teldi hann eðlilegt að það
rjeði mann til þess.
)
Ummæli hershöfðingjans
STOKKHÖLMI, 17. nóv.: —.
Jung hershöfðingi hjelt hjcr
ræðu nú í vikunni. Fórust honum
m.a. orð á þessa leið: „Okkar
friðelskandi þjóð, veitist ekki
auðvelt að skilja, hve mikil sú
hætta er, sem vofir yfir friði oklá
ar og frelsi‘‘. ,