Morgunblaðið - 18.11.1949, Síða 7

Morgunblaðið - 18.11.1949, Síða 7
Föstudagur 18. nóv. 1949. 7 MORGUNBLAÐIÐ Sigu Frh. af bls. 6 það, sem er öllum lærdómi Eeðra og fyrnist ekki með förl- andi minni á námsefnin. Hann ýmist vakti eða glæddi hjá okk- ur ást á íslenskri tungu, til- finningu fyrir blæbrigðum málsins, yndi af skáldlegri feg- urð, ástríðu til bókmenntal.estr- ar, undrun yfir sköpunarmætti mannlegs anda. Hér var ofið inn í þá eðlisþætti, sem deyja ekki, meðan persónuleikinn lifir. Eir það er ekki að furða, að slíkur kennifaðir og uppalandi yrði einhver mesti skólastjóri, sem íslendingar hafa átt. Skóla- stjórnargifta hans átti sér þrennar rætur dýpstar: Viið- ingu hans fyrir manninum, persónuleika sjálfs hans, stoð- ina frá konu hans. Virðing hans fyrir mannlegu eðli var lotningarkennd, en hún jók aftur á næmleika hans og glöggskyggni á þau ungmenni, er hann átti ávallt saman við að sælda, og nærfærni í um- gengni við þau. Og þessi virð- ing fyrir manninum, fyrir líf- inu, hlaut einnig að koma fram sem virðing fyrir hlutskipti sínu og hlutverki í mynd einstæðrar Samviskusemi. Af þeim sökum miklaðist það fyrir augum hans. Það liggur við, að, segja megi, að fyrir Sigurði hafi skólinn verið miðdepill veraldar. Ofur- ræktin við skólann gat virst með öfgum í augum þeirra, sem utan við stóðu. En þessi alhug- ur og einhugur Sigurðar var einmitt einn meginstyrkur hans. Ég held, að ég hafi aldrei kynnst manni, sem var jafn- samgróinn starfi sínu, lifði og hrærðist í því til jafnmikillar fullnustu. Skólanum fórnaði hann kröftum sínum öllum, jafnvel um fram eigið heimili. En hann gerði líka miklar kröf- ur til annarra í skólans gatð, bæði veraldlegar og andlegar. Allt skyldi víkja fyrir þörfum skólans. Ég veit þess ekki dæmi, að nokkur kennslu- né fjár- málaráðherra á skólastjórnar- árum Sigurðar hafi verið gædd- Ur því mótstöðuafli, sem hafi ekki að lokum látið undan síga fyrir þrálátri fjárbón hans skól- anum til handa. Og við okkur bekkjarsystkinin sagði hann, þegar hann kvaddi okkur, að ef nokkur sá, sem verið hefði nemandi Menntaskólans á Ak- ureyri, gerði nokkurn tíma nokkurt vanvirðuverk, setti hann óafmáanlegan blett á Skjöld skólans. Þannig varð hver nemandi ævinlegur þegn skólans. Sómi og vanheiður hvors um sig var gagnkvæmur. Það lætur að líkum, að svo kröfumikill skólameistari ól ekki nemendur sína upp í neinu andvaraleysi né værðarmóki. Trúmennska, þegnskapur, sjálfs agi voru þær megindyggðir, sem hann reyndi að innræta okkur. Sérhver skyldi stefna höfuð- kröfum sínum á hendur sjálf- um sér. En virðing Sigurðar fyrir þeim mannssálum, er hann skyldi móta, metnaður hans fyrir skólans hönd, einlægur vilji og viturleg dyggðaboðun hefðu ekki mátt sín mikils, ef hann hefði ekki ráðið yfir innra afli og myndugleika til að bera þetta uppi og bera það fram. Meistari — eins og við norð- anmenn kölluðum hann alltaf — var merkilega samsettur maður og einhver sérkennileg- asti persónuleiki, sem um getur. Hann var úthverfur að eðlis- fari, áhrifanæmur og opinskár geðsveiflumaður, en iðkaði af ásetningi sjálfskönnun hins inn- hverfa manns. Hann var ofur- viðkvæmur, svo að smávægi- legar yfirsjónir nemenda gátu komið honum út úr öllu jafn- Vcögi og í svipinn orðið honum mestu stórmál heimsins, og sjaldan mun hann hafa kvatt nemanda sinn klökkvalaust. En hins vegar bjó hann yfir ör- uggum stjórnartökum, hörku- lausri festu. Hann var mjög hrifnæmur, einkum á náttúru- fegurð, skáldskap og myndlist, og hann hafði valið af smekk- vísi málverk á heimili sitt og til skólans. En hann var fágæt- lega ósöngvinn. Hann var ákafamaður, kappsmaður og málafylgjumaður, en skipaði lilutlægni meðal æðstu mann- kosta. Hann var í senn fram- hleypinn og þó svo háttvís sem væri hann tiginborinn. í fasi var hann frjálsmannlegur, hnarreistur og gustmikill, svo að sópaði að honum, hvar sem hann fór. Úti gekk hann jafnan með staf í hendi, en lét hann sjaldan nema við jörðu og hélt öllu oftar um þann endann, sem aðrir menn láta vísa niður, og sveiflaði stafnum fyrir sér. Allt gerði þetta hann fyr- irferðarmikinn á velli. — Hann var hávaðamaður mikill, eins og margir Austur-Hún- vetningar, og glaðværðarmað- ur, svo að hann var hrókur alls fagnaðar í hverju því sam- kvæmi, er hann sat, kunni flest- um mönnum betur að njóta slíkra mannfunda og öllum mönnum betur að stilla þeim í hóf, hætta hverjum leik þá, er hæst stóð. Vín taldi hann gleði- gjafa þeim, sem með það kynnu að fara, og hafði yndi af að hafa það um hönd í hófi með góðum gestum, en enginn veit þess dæmi, að vín hafi nokkru sinni á honum séð. Ekki gat skemmti- legri, frjálsmannlegri og ástúð- legri gestgjafa en þau skóla- meistarahjónin, enda er róm- aður um gjörvallt ísland, og einnig út fyrir landsteina, höfðingsskapur þeirra og „sú kurteisin sanna“, sem „kom að innan“. En á þennan gleðimann sóttu á köflum áhyggjur mikl- ar, þunglyndi og bölsýni. í sál- arlífi hans var samt aldrei Já- deyða, heldur sífelld ólga og' umbrot. Ég hef oft að því dáðst, hve andlega vakandi honum tókst að halda sér alla tíð, þar sem svo fátt var oft til örvunar sem í mínum elskulega fæðing- arbæ, Akureyri. En þar var einn aðalaflvaki Sigurðar, hve mikill undrunarmaður hann var. Dásemdir lífsins greindi hann jafnt í hinu smæsta sem stærsta. Jafnvel það, sem öðr- ‘um var hversdagslegt og sjálf- sagt, gat orðið honum að furðu- verkum og stórmerkjum. Og ræða hans öll bar vitni þessari innlífun. Ég hef aldrei þekkt mann, sem var jafnaltekinn af sérhverju því, sem á góma bar. Enn gat hann sjötugur talað um ástir af eldmóði seytján ára unglings. — í ræðuflutningi sínum gat Sigurður verið ó- skýrmæltur og honum jafnvel vafist tunga um tönn. En allt um það var leitun á manni, sem flutti ræður sínar af slíkum þunga og með slíku áhrifamagni og hann. Svo mjög lagði hann sig þar allan fram, og svo mik- ið var þar fram að leggja. Lestrarlag hans, einkum á ljóð, var ákaflega einkennilegt, þar sem röddin steig og hneig sí- fellt með syngjandi eða söngl- andi hreimi. Sjálfsagt hafa þar verið þverbrotnar ýmsar kenni- setningar framsagnarlistar. En ekki var þar brotið það grund- vallarlögmál, sem mestu varð- ar: Það var lesið af skilningi, gleymt sjálfum sér, en lifað og hrærst í lestrarefninu. Þess vegna gat ljóðalestur skóla- meistara orðið mönnum opin- berun. Sigurður var haldinn heyrn- ardeyfu, sem háði honufn alla tíð mjög mikið. Fyrir vikið var honum hætt til misheyrnar, en auk þess var honum mismæla- gjarnt-, og ennfremur var hann oft viðutan, svo að jafnvel gat komið fyrir, að hann gleymdi sér í kennslustundum "j eigin hugarleiðslu. Ósjálfráðar vipr- ur hafði hann oft í andliti og bærði stundum varirnar án þess að mæla orð frá munni, eink- um er hann féll í þunga þanka. Skólameistari var því það, sem kallað myndi undarlegur maður. Alkunna er, að engir eru hafðir eins að skotspæni háðs og glettna sem •kennarar af nemendum sínum, er vaka yfir hverju tilviki þeirra. Og ýmsir hafa þar orðið illa úti, sem stað- ið hafa skemmra frá hversdags- leikanum og meðalmennskunni en Sigurður Guðmundsson. Auðvitað eru til um meistara margar skrýtlur, í senn saklaus- ar og skemmtilegar. En ekki veit ég þess dæmi, að nokkur nemandi hafi nokkru sinni hæðst að því, sem undarlegt var í háttum hans. Nemendur hans báru fyrir honum meiri virðingu og höfðu á honum meiri ást en svo, að nokkrum dytti slíkt í hug. En hvílíkan persónuleika þarf ekki til að hefjast upp yfir eigin skrýtni í augum lítt þroskaðra nemenda og hafa á nokkrar þúsundir unglinga jafndjúptæk áhrif og raun ber vitni um Sigurð skóla- meístara. Óhugsandi er, að til hafi ver- ið nánara og innilegra sam- band kennara og námsfólks eji Sigux-ðar og nemenda hans. Föðui'hjarta hans var svo vítt, að þar rúmaðist ást til okkar allra. Og honum nægði ekki að vaka yfir okkur, meðan við sát- um í skólanum. Eftir föngum fylgdi hann ferli okkar og stóð í tengslum við okkur, eftir að þaðan fór, harmaði ófarnað okkar og fagnaði velgengni okkar, átti bréfaskipti við hundruð gamalla lærisveina og námsmeyja og dó frá því að skrifa eftirmæli um látinn nem- anda. Sigurður var enn í fullu and- legu fjöri, þegar hann féll frá, tilfinningalífið óvisnað og hug- myndalífið frjótt, og hann hafði aðeins beðið eftir viðunandi að- búnaði til að taka nú til við að skrifa um allt það, sem lá hon- um á hjarta. En þó að Sigurður væri mik- ill af sjálfum sér, hefði honum aldrei auðnast að verða það, sem hann varð, ef hann hefði ekki notið við konu sinnar. Ég þykist vita, að frú Halldóru sé ekki að skapi, að hér sé um hana fjölyrt. En ekki gat sam- hentai'i og samrýndari hjón en þau. Og hún var honum ávallt hin styrka stoð og þeim mun bjargfastari sem meir reyndi á. Þegar andstreymið lagðist sem þyngst á hann og áhyggjurnar voru að sliga hann, þá var það hún, sem undir þungann gekkst. Ég veit, að’sá skapstyrkur hef- ur ekki fengist átakalaust. En þeim mun þakkarverðari er hann. Og það er ein huggun okkar í því fráhvarfi, sem hér hefur orðið, að Sigurður skyldi ekki lifa konu sína. Þá hefði hann orðið se"m athvarfslaus, enda þótt hann eigi góð og ást- úðleg böi'n, sem hefðu annast hann af mikilli umhyggju. En enginn hefði verið þess um- kominn að fylla þar upp rúm írú Halldóru. En ekki er þetta eina huggun okkar. Sú er mest, að Sigurður valdi sér hið góða hlutskipti, að vinna af árvekni og alhug á þeim lífsins akri, sem einn er vænlegur til ávaxtar, að rækta mannssálina, auka manngildið. Mikill hluti íslensku þjóðarinn- ar hefur annaðhvort notið leið- sagnar hans beinlínis eða á börn, maka eða systkini meðal nemenda hans. Og með óborn- um kynslóðum mun enn spi'etta gróður, sem rekja má til þeirra fræja, er Sigurður sáði í ann- 1 arra manna hjörtu. Það sér því ekki út fyrir endimörk þeirrar fylkingar, sem drúpir höfði í þakklæti og virðingu við Sig- ui'ð skólameistara. Steingrímur J. Þorsteinsson. Akraliorg tii Skagastrandar, Sauðárkróks, Hof? óss og Hríseyjar. Tekið á móti ilutn- ingi í dag. IIIMIIIUIMIH I Til leigu í veSturbæi Herbergi fyrir reglusaman mann. Sá sem getur lagt til símaafnot geng- ur fyrir. Tilboð merkt: „Simi — 742“ leggist á afgr. blaðsins íyrir liádegi á laugardag. NM|IIIM'lllllllll<l|ll|||HI.IIHieHIIIIIIIIIII|im|| nMMIHIHMIIIHIIIIIllllllllllllUUMiminilll'MIMIIIMIM* I I 1 Keflavík og nágrenni ( I 5 | /' meríkani giftur islenskri stúlku | : óskar eftir herbergi og efdunar- S 1 jJási, um áramót, eða í janúar. E ■ I Tilboð merkt: „Hjálpið nauð- | I : stöddum — 749“ sendist afgr. | , { Mbl. átvinnurekendur i IJngur maður með 250 hk. rjett : i ;ndi óskar eftir atvinnu nú þeg- | j ar Mnrgskonar önnur vinna i | ; kæmi til greina t. d. vjelavið- : Í j gerðir »ða einhver önnnr vinna : j : Uppl. i sima 80178 í dag frá i ' I kl. 1—3 og 5—7. n i IIII^IMIIilllMMflllllllllirlllMMIfllMlllllltMK Kioaf 4Afiuiti<i»suii txo'nuir iHttartofsmaóur 'krif r l o f a , t'jarnargötu 10 — Simi S4.II7 NHKBmiH 'lllll tllMISI ItllllmMIMUIIMimilMMMHMn MINNINGARPLÖTUB | • leiði. Skiltagerðin, Skólavöiðustíg 8. ommimiimi iiMiiiiiiiiliiuiirilil' r Sjómannaúfgófan Þeir áskrifendur, sem ekki hafa fengið síðustu bækur sjómannaútgáfunnar, sem eru: „í sævarklóm“ og „Blá- maður um borð“, nr. 10—11, hringi í síma 5898, eða vitji þeirra til HJJÁLMARS STEINDÓRSSONAR, Framnesveg 24 A. Lögtak Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undan- gengnum úrskurði, verða lögtök látin fram fara, á kostn- að gjaldenda, en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir ógreiddum bif- reiðaskatti, skoðunargjaldi af bifreiðum og vátryggingar- iðgjaldi ökumanna bifreiða, sem fjellu í gjalddaga 1. apríl síðastliðinn. Borgarfógetinn í Reykjavík, 15. nóv. 1949. KR. KRISTJÁNSSON. AUGLlí SING E R GULLS IGILDI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.