Morgunblaðið - 18.11.1949, Page 12
12
MORGVNBLAÐIÐ
Föstudagur 18. nóv. 1949.
Hreimun í kommún-
istuilikki Svíþjóður
:NORÐURLANDABLÖÐIN skýra frá því, að hafin sje hreinsun
innan Kommúnistaílokks Svíþjóðar. Með eins dags fyrirvara
boðaði flokksstjórnin til fulltrúafundar í Stokkhólmi. Mættir
voru um 250 fulltrúar. Tvöföld dyragæsla var við innganginn
og fjekk enginn fulltrúi að koma inn nema að sýna skírteini
og auk þess er hver maður yfirheyrður við innganginn.
Nánara samstarf við
Kominform
Flokksstjórnin hafði boðað
:til þessa fundar til að krefjast
inánara samstarfs við Komin-
iform og krefjast af flokksdeild
unum, að þeir fjelagar, sem
ekki væru álitnir trúir komin-
formmenn væru þegar reknir
úr flokknum. En á fundinum
kom til harðra átaka gegn
flokksstjórninni og var brott-
rekstrinum úr flokknum harð-
iega mótmælt.
Heimta ástæður fyrir
brottrekstri
Stjórnarandstaðan á fundin-
um krafðist þess, að þegar
kunnir flokksmenn eru reknir
úr flokknum, eins og átt hefir
sjer stað undanfarið, þá geri
flokksstjórnin grein fyrir ástæð
unum að brottrekstrinum og
tilkynni flokksmönnum þær.
Flokksstjórnin í Stokkhólmi
reyndi að bera í bætifláka fyr-
ir framkomu flokksstjórnarinn
ar, en viðurkenndi þó, að of
mikil leynd hvíldi yfir brott
rekstri margra flokksmanna.
•Wkar
í FYRRAKVÖLD voru haldnir
miðnætur-jass-hljómleikar í
Gamla Bíó við fjölraenni áheyr
enda. Lieku bar þrjár kimnar
jasshljómsveitir, þær K.K-sex-
tettinn.. sem Imfir tvo góða
sólóista, Jón Sigurð; son frá Ak-
urevri og Ólaf Pjotursson. —
Karl Jónatansson og hljómsveit
hans; með þeirri hljómsveit
söng SivWm Jónsdóttir við
mikla aðdáun áheyrenda, og
Hljómsveit Björns R. Einars-
sonar. ra~ð "ítaranillingnum
Ólafi Gauk, oa trommuleikaran
um Guðrrmndi R. Einarssjmi,
sem vakti fádæma hrifningu.
Allir meðlimir þessarar hljóm-
sveitar hafa á sier frægðarorð,
og vöktu ekki hvað síst aðdá-
un fvrir frjálsa og skemmtilega
framkomu á ,.senunni“.
Svo virðist sem jass-áhugi
hjer á landi fari síf«llt vaxandi
og bá. em<5 orr að líkum lætur,
mest meðal unga fólksins.
<s>-
„Hálfsögð saga"
í MORGUNBLAÐINU síðastl.
sunnudag, 13. nóv., er grein,
sem heitir: ,,Hálfsögð saga“. —
Við erum margar þær konur,
sem höfum beðið eftir ein-
hverju svari við grein þessari
frá t. d. Kvenrjettindafjelagi
íslands. Það er vitað að þetta
er ekki málefni, sem Rannveig
Þorsteinsdóttir berst „prívat“
fyrir, nei, þetta er hagsmuna-
mál kvenna, sem K. R. F. í.
hefur á stefnuskrá sinni og á
að svara fyrir. Umrædda grein
R. Þ. hefi jeg ekki lesið, en
veit, að þó hennar „saga“ hafi
verið „hálfsögð“, þá er þessi
„saga“ verri en „hálfsögð“. —
Treystum vjer konur, að K. R.
F. í. birti það rjetta, það er
að segja: segi söguna alla.
Sjálfstæðiskona.
Konsúlssverð selt
á tæpl. 300 kr.
í GÆR var haldið uppboð á als-
konar varningi bæði nothæfum
og ljelegum.
Fór uppboð þetta fram í kjall
ara Arnarhvols, en þessi upp-
boðsstaður er mjög óheppilegur
í alla staði og ætti ekki að halda
uppboð þar í framtíðinni. —
Uppboðsstaðurinn er þannig úr
garði gerður, að þeir einir sjá
munina vel, er selja skal, er
bjóða þá upp og næstir þeim
standa. Þarna er nefnilega svo
lágt undir loft ,að ekki er mögu
legt, að því er virðist, að koma
fyrir upphækkuðum palli, þar
sem vörurnar væru sýndar, svo
sem venja er til við uppboð
611.
Það sögulegasta við uppboðið
var, að skraut-sVerð, „konsúls
sverð“, var slegið fyrir 275 kr.
All vel útlítandi samkvæmis-
föt „kjöll“, fóru á 50 kr. Voru
nokkrir fatnaðir boðnir þarna
upp, en fornsalar yfirbuðu alt-
af og munu það hafa verið að-
eins fornsalar, sem keyptu föt-
in. — Einn smoking, vel útlít-
andi, f jekk einn fornsalinn fyrir
150 kr. Þá voru slegin 25 skot-
hylki í hagllabyssu, fyrir 15 eða
20 kr. Rjúpnaskytta hefði getað
gert þarna góð kaup. Stand-
lampi var sleginn á 20 kr. og
ljótt veggteppi á 40 kr.
Churchill gognrýnir
sfefnu stjórnurinnur
Frelsið í Tjekkóslóvakíu áþekkf og í fangabúðum.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
LONDON, 17. nóv. — Bevin utanríkisráðherra Breta talaði í
neðri málstofu þingsins um utanríkismál í dag. Hvatti ráðherr-
ann til varúðar í Þýskalandsmálunum og tók skýrt fram, að
breska stjórnin væri afar varkár í öllu, sem hún tæki sjer
fyrir hendur, svo að ekki kæmi til vandræða síðar meir, eins
og eftir næst síðustu heimsstyrjöld.
Bevin vjek í ræðu sinni a ^
samskiptunum við Bandaríkin,,
hefði skortur á efnahagslegu j
jafnvægi milli dollara- og sterl-1
ingssvæðisins verið örðugt við-|
ureignar. Sagði hann ennfrem-
ur, að ráðherranefnd Evrópu-
ráðsins mundi reynast öflugt
tæki til að skapa eining álf-
unnar.
MargþæH sfarfsemi
INGIMUNDUR GUÐMUNDSS0N
Irá Bakka.
70 ÁRA 18. NÓVEMBER 1949.
Nú sagt er, þú fyllt hafir sjöunda tug,
þá sendi jeg þjer kveðju með þakklátum hug
fyrir það löngum liðna.
Jeg man alla þrautseigju á mannraunastund,
jeg man þína hjálpfýsi, glaðværa lund,
og höndina haga og iðna.
Ef ár þurfti’ að smíða, eða oka í hrip,
upphressa bæ eða gera við skip.
— Og þó væru’ ei laun nema’ að þakka —.
Járnklæða þak eða járna einn hest;
Þá jafnan var viðkvæðið: „Það er víst best,
að biðja hann Munda á Bakka“.
Þitt dagsverk er margþætt og mörgum í hag.
Þín minnast nú frændur og vinir í dag
í faraheill förnum á vegi.
Fyrir þinn atbeina’ í byggð er „minn“ bær.
Blessunar hverskonar vinur minn kær,
þjer óska á afmælisdegi.
J. H.
Churchill tekur til máls.
Churchill tók einnig til máls.
Hvatti hann mjög til að Þýska-
landi yrði heimiluð þátttaka í
Evrópuþinginu. Gagnrýndi
hann stjórnina ákaft. Sagði
hann, að utanríkisráðherrann
hefði gloprað mörgum tækifær-
um og góðum úr höndum sjer.
„Þegar Bevin kom til valda, var
Bretland virðingarverðasta
land álfunnar. Nú hefir áliti
landsins mjög hrakað. Á þing-
inu í Strassborg misstu leið-
togarnir feitt úr askinum sín-
um. Þeir höfðu lengi ætlað sjer
forystu í hópi jafnaðarmanna-
flokka álfunnar, en gerðu þær
vonir sínar þar að engu.
Ekki tókst betur til, þegar
Bretar studdu kosningu Tjekkó
slóvakíu í Öryggisráðið. Eng-
inn af fulltrúum Tjekka hcfir
nokkurn rjett til að tala þar í
nafni hinnar hraustu þjóðar
sinnar. En nú er þetta land,
Tjekkóslóvakía, rússneskar
fangahúðir.
2000 sækja um
750 þvottavjelar
NORSKU gjaldeyrisyfirvöldin
hafa nýlega leyft innflutning
á 750 þvottavjelum, en það eru
eftirsótt tæki þar í landi, eins
og víðar.
Um 2000 umsóknir bárust
frá fólki, sem vildi kaupa vjel
arnar. — Tók stjórnin það ráð,
að fela Húsmæðrasambandi
Neregs að úthluta vjelunum.
gMH
liMmiMlllllllllllfl'llllllllllllllllllllllllllllllimiflllllllllllfllllllllllllllllMIMIItmiMIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIHIimilflllllltlllUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMi
Markús
|>IHIMMIIIIMIIIIIIIIIIMIIIIMMMMII
IIMMIIIIIIIIMIIMIMIIIIMIIIIIIIIIIMIMIMMMI' ^
Eftir Ed Dodd
ilMMMMMMMMMMMMMMMMIIIIMMMMMMMMIii
GUM ANO PACKED fT
ON THE CLEDGE...ANO
— Upp með þig, Tófi. Farðu
, lappir. Við leggjum af stað
— Jeg afhlóð byssuna þína
og ljet hana á sleðann. Jeg verð
alltaf viðbúinn með mína
byssu.
— Það er best, að þú stjórn-
ir sleðanum. Jeg fylgi fast á
eftir með byssuna.
Hvað getur það verið, sem
gengur að mjer. Höfuðið á mjer
er eins og blý og jeg hef maga-
verk.
bindindismanna
SAMVINNUNEFND bindindis-
manna, sem starfað hefir síð-
astliðin 7 ár, áttu tal við blaða
menn í gær. Nefndin hefir lát-
ið bindindisstarfsemina undan
farin ár, mjög til sín taka. —
Framkvæmdastjórn nefndarinn
ar skipa Pjetur Sigurðsson, Jón
Gunnlaugsson og Gísli Sigur-
björnsson, en að samvinnu-
nefndinni standa átta fjölmenn
fjelagasambönd, Stórstúka ís-
lands, íþróttasamband íslands,
Samband íslenskra barnakenn-
ara, Ungmennafjelag íslands,
Samband bindindisfjelaga í
skólum, Áfengisvarnarnefnd
kvenna, Prestafjelag íslands og
Alþýðusamband íslands. — ÖU
hafa þessi f jelagasamtök sam-
þykkt tillögur á ársþingum sín
um, um algert bann.
Samvinnunefndin fjekk á sín
um tíma kr*. 15.000,00 til starf-
semi sinnar, en svo vel hefir
hún haldið á fjenu, að nú hefir
hún greitt út um 66 þúsund.
krónur.
Nefndin hefir gengist fyrir
bindindissýningum á fimm stöð
um hjer á landi, Reykjavík,
Hafnarfirði, Akranesi, Sauðár-
króki og Akureyri. — Vöktu
sýningar þessar mikía athygli.
Þá hefir nefndin gefið út 5 daga
töl, og er dagatal hennar fyrir
árið 1950 komið út. Þar eru
myndir af 12 kaupstöðum og
kauptúnum og stutt frásögn af
bindindisstarfseminni á þeim
stöðum. Hefir mikil vinna verið
’ögð í að gera dagatal þetta
sem best úr garði.
Samvinnunefndin hefir einn
ig gefið út allmikið af smárit-
um og bæklingum, og nú er í
urentun bæklinrar um áfengið
og umferðarslvsin.
Nefndin hefir einnig beitt
sjer mjög fyrir bví. að áfengi
verði ekki haft um hönd í ferm
ingarveislum og birt fiölda á-
skorana til foreldra í þeim efn-
um. Er gleðilegt, að áberandi
er, hve áfenmsnotkun Trig shk
tækifæri hefir minnkað.
PARÍS, 17. nóv.: Tvn»- tóm-
ar líkbörur vofu til staðar við
minningarathöfn. sem hier var
haldin í dag um franska fiðlu-
snillinginn Ginette Neveu og
bróður hennar. Fórust þau í
Uugslysinu mikla, sem varð á
Azoreyjum fyrr í mánuðinum.
Hvorki varð lík Neveu nje
bróður hennar bekkt úr þeim
48 líkum, sem voru i flucrvjelar
flakinu eftir slysið. — Reuter.