Morgunblaðið - 30.11.1949, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.11.1949, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 30 nóv. 1949 Sformasamf á Halamiðum UNDANFARNAR vikúr, hafa verið óvenju stirðar gæftir á Halamiðum, en þar hafa marg- ir togarar verið að veiðum und anfarið. Það er ekki oft sterkt til orða tekið, að yfirleitt hafa veiði- ferðirnar verið þannig, að einn til tveir dagar hafa komið, sem gefið hefir, en síðan skollið á stormur, sem staðið hefir í fjóra, fimm eða jafnvel sex daga samfleytt. Togararnir, sem komið hafa nú síðustu daga af veiðum, hafa verið þetta frá 14 til 16 daga og jafnvel lengur. Þrátt fyrir svo langa útivist, hafa margir togaranna ekki náð fullfermi. Enn er markaðurinn í Bret- landi óhagstæður á okkar mæli kvarða, enda berst mikið þang að af fiski úr Hvítahafinu. Þótt sá fiskur þyki ekki eins góður og íslandsfiskur, þá er það samt svo, að hann' heldur markaðin- um niðri. Á mánudag var lokið við að selja úr Úranusi, sem var með Hvítahafsfisk og seldi togarinn um 276 tonn fyrir um 4752 sterlingspund. Þá seldi togarinn Mai, fyrir síðustu helgi, 2056 kit af fiski fyrir aðeins 2170 sterlingspund. Á rúmlega 13 klst. frá New York til Keflavíkur í FYRRAKVÖLD kom ein af Constellation-flugvjelum am- eríska fjelagsins A.O.A. til Keflavíkúr, en flugvjelin hafði sett nýtt met á flugleiðinni New York—Keflavík. Hafði flugvjelin flogið leiðina á átta klst. og þrettán mín., en metið var eitthvað um 12 klst. Flugskilyrðin, er Constellation- flugvjelin setti þetta met, voru sjerlega hagstæð til þess, und- anvindur alla leiðina og vind- hraðinn um og yfir 12 vindstig. Flugvjelin hjelt áfram ferð sinni til Stokkhólmsí fyrrinótt. Douglas heiðraður LONDON: — Lewis Douglas, sendiherra Bandaríkjanna í Bret landi, var nýlega gerður heiðurs doktor við háskólann í London. Ringulreið (Chungking Lítil andsiaða HONG KONG, 29. nóv.: — Alt var á ringulreið í Chungking í kvöld, enda eru skæruliðar kom múnista komnir í úthverfi borg arinnar og aðalherinn í aðeins sex kílómetra fjarlægð á suður bakka Yangtse. Menn, sem í dag komu hing- að flugleiðis frá borginni, skýra frá því, að mikil hræðsla hafi þá verið tekin að breiða um sig meðal íbúanna, en skotdrun ur heyrðust á alla vegú. Þeir fáu af hermönnum stjórnarinnar, sem þarna voru ennþá, veittu kommúnistum lít ið viðnám. Búist er við því, að Chung- king verði öll í höndum kom- múnista eftir svo sem sólar- hring. — Meðal annara orða Frh. á bls. 8 þar svartklædd kona. ekkja forsetans. íbúar borgarinnar fengu vitneskju um atburðina og þeir horfðu á eftir henni tár- votum augunum, þar sem hún gekk stafi studd um göturnar. Og fólkinu sást ekki yfir þessa harmsögu, enda þótt lögreglan hrifsaði til sín menn úr tug- þúsundum fjölskyldna, svo að margur harmur var kveðinn um þessar mundir. • • ENN KREPPIR AÐ SÖGUNNI er ekki lokið enn. Þéssar morgungöngur Hönnu og hin þögla furða, sem lesa mátti úr augum fólksins hlaut að berast til vitundar þeirra 10,000 njósnara, sem eru í þjónustu lögreglunnar. — Dag nokkurn nam lögreglubifreið staðar fyrir dyrum ekkjunnar. Hún var færð út í hann og ekki linnt ferðinni fyrr en komið var til Lansky. Er það þorp í sunnanverðu landinu, þar dvaldist Benes í sumarbú- stað sínum. Svo var lagt fyrir Hönnu, að hún færi ekki frá Lansky og ekki einu sinni úr húsinu. Annars kostar skyldi hún eiga á hættu að verða sett í fangelsi fyrir „múgæs- ingar gegn alþýðulýðveldinu“. Tjekkneska alþýðulýðveldið hefur svipt ekkju Benesar sjóninni og óttast nú skugga gamallar, blindrar konu. Atvik þessi varpa skýru ljósi yfir veikleika og vesöld stjórnar- fyrirkomulagsins. Hagur Ferðafje- lagsins góður Frá aðalfundi þess AÐALFUNDUR Ferðafjelags íslands var haldinn í fyrra- kvöld. Hagur fjelagsins ér nú góður. Á síðasta starfsári juk- ust sjóðir fjelagsins um 36 þús. krónur og eignir um 60 þús. Fjelagið á nú samtals í sjóðum 126 þús. kr., en eignir þess nema alls rúmlega 300 þús. kr. 7 sæluhús Fjelagið á 7 sæluhús, sem öll eru í góðu lagi, og hyggst hið fyrsta að reisa sæluhús í Þórs- mörk. Verður þegar hafist handa um að reisa það. ér fjár- festingarleyfi hefir fengist. Ákveðið hefir verið að setja útsýnisskífu á Reykjafell fyrir ofan Skíðaskálann í Hvera- dölum. Þar er víðsýni mikið og staðurinn fjölsóttur. Á fundin- um var samþykkt, að veita Ferðafjelagi Akureyrar 5 þús. kr. styrk til sæluhússbyggingar. Vonir standa til, að brýrnar yfir Svartá og Jökulfallið á Kili verði smíðaðar á næsta sumri. Kemst þá sæluhúsið í Kerlingarrjöllum aftur í notk- un, en það hefir lítið sem ekk- ert verið sótt undanfarin sum- ur vegna erfiðra samgangna. Ársbækur Ferðafjelagsins Árbók Ferðafjelagsins fyrir 1949 er nýkomin út. Ritar Jóhann Hjaltason þar um Norður-ísafjarðarsýslu. Hand- ritið að Árbókinni 1950 á að vera tilbúið til prentunar um næstu áramót. Er það lýsing suðurhluta Borgarfjarðarsýslu, eftir Jón Helgason blaðamann. Stjórnarkosning Geir G. Zoega, vegamála- stjóri var endurkjörinn forseti Ferðafjelagsins og Pálmi Hann esson rektor, varaforseti. — Meðstjórnendur voru einnig endurkjörnir: Jón Eyþórsson, Gisli Gestsson, Guðmundur Einarsson, Lárus Ottesen og Páll Jónsson. Kosningar LONDON, 29. nóv.: — Kosn- ingar fara fram í Nýja Sjá- landi í dag og á morgun. Átökin eru aðallega milli tveggja flokka: þjóðflokksins og verka- lýðsflokksins, sem farið hefir með stjórn frá því 1935. •— Reuter. Minkandi slyrjald- arhætta LONDON, 29. nóv.: — Louis Johnson, hervarnaráðherra Bandaríkjanna, fór í dag flug- leiðis frá London til Parísar. Ráðherrann ræddi við frjetta- menn, áður en hann hjelt af stað, og ljet meðal annars í ljós þá skoðun, að nokkuð hefði dregið úr styrjaldarhættunni á undanförnum mánuðum. En þrátt fyrir þetta, sagði hann ennfremur, mundu Banda ríkin enn halda áfram að leggja áherslu á öflugar hervarnir, og ekki yrði dregið úr f járveiting- um til þeirra, þar til vinaþjóð- ir Bandaríkjanna væru orðnar öflugri en nú. — Reuter. Aflanfshafsbandalagið PARÍS, 29. nóv.: •— í dag komu saman á fund í París yf- irmenn herforingjaráða þátt- tökulandanna í Atlantshafs- bandalaginu. Fyrir íslands hönd, var íslenski sendifulltrú- inn í París mættur á fundinum. — Reuter. - Sjálfslæðism. í An. Framhald af bls. 2 Eftirfarandi tillögur voru samþykktar samhljóða á fund- inum: Aðalfundur SUS í Árnessýslu haldinn á Selfossi, 27. nóv. 1949, lítur svo á, að ekki sjeu nú önnur mál frekar aðkallandi fyrir Ámesingá, en bygging sjúkrahúss hjer sunnanlands. Fyrir því skorar fundurinn á hvert það fjelag í sýslunni, sem lætur sig almenningsheill nokkru varðá, að taka upp bar- áttu, málinu til framdráttar. Aðalfundur SUS í Árnessýslu haldinn á Selfossi 27. nóv. 1949, skorar á stjórn Sambandsins að verja árlega hagnaði einnar samkomu hjá sambandinu, til styrktar sjúkrahússbyggingu í Árnessýslu. Aðalfundur SUS í Árnessýslu haldinn á Selfossi 27. nóv. 1949, telur að bygging áburðarverk- smiðju sje eitt af aðkallandi málum landbúnaðarins. Skorar fundurinn því á ríkisstjórnina að herða svo sem efnahagsástæð ur þjóðarinnar leyfa, fram- kvæmd laga um áburðarverk- smiðju. í því sambandi telur fundur- inn að reisa beri verksmiðjuna austanfjalls. Þ R Ó T T I R Breska knattspyman Á LAUGARDAG hófst 1. umf. Bikarkeppninnar ensku, með þátttöku 41 liðs úr 3. deild og 17 annarra, sem komust í gegnum undirbúningsumf. Lincoln City tapaði fyrir Carlisle 1:0 og er þar með úr sögunni. Stærstur var sigur Bradford City yfir Fleetwood (9:0). Sex fjelög ut- an lígunnar sigruðu, þar á meðal Yeovil Town, sem á síðasta ári fjell úr í 5. umf. fyrir Manc. Utd, en hafði áður slegið Sund- erland og Bury út. Mansfield, Doncaster og Nott. County komast í 2. umf. I 1. deild urðu úrslit: Aston Villa 1 — Arsenal 1. Blackpool 3 — Manch. Utd. 3.. Charlton 0 — Bolton 0. Everton 2 — Stoke City 1. Fulham 0 — Derby County 0. Hudderfield 1 — Burnley 2. ManCh. City 4 — Birmingh. 0. Middlebro 2 — Chelsea 1. Newcastle 5 —- W. Bromwich 1. Portsmouth 2 — Sunderl. 2. Wolverhampton 1 — Liverp. 1. Liverpool hefur nú leikið 18 leiki án taps, áður hefur Arsenal leikið fyrstu 17 án taps og Derby County í fyrra fyrstu 16. Leik- urinn í Wolverhamton var afar skemmtilegur. Liverpool hafði alveg yfirhöndina fyrri hálfleik inn, en í þeim síðari tók heima- liðið við, en tókst ekki að skora vegna snilldarlegrar markvörslu Sidlows, sem jafnframt er mark maður Wales, fyrr en 30 sek. voru eftir. Gerði það annar landsliðsm. frh. Wolverhtn, Wils. haw. — í vor var hann kallaður úr varaliði Wolverh. til þess að leika gegn Finnlandi! í Blackpool var heimaliðið 3 undir eftir 65 mín., en í stað þess að leggja árar í bát, tókst því að jafna á síðustu mínútum. (Leikmenn fá £1 fyrir jafntefli, £2 fyrir vinning!). 2. deild: Blackburn 0 — Sheff. Utd. 2. Bury 1 — Preston 1. Cardiff 1 — Grimsby 0. Shesterf. 0 — Southamt. 0. Hull 2 — Barnsley 0. Sheff. Wed. 1 — Luton 1. Totterh. 3 — Queen’s P. R. 0. Southamton hefur nú leikið 10 leiki án taps og farið úr 19. sæti upp í 6. í fyrra hafði sama fje- lag 8 st. forskot, þegar 6 leikir voru eftir, en varð að horfa á eftir Fulham og W.B.A. upp f 1. deild. Totterham er því ekki alveg öruggur meðlimur 1. deild ar næsta ár, þrátt fyrir forskot- ið. — Markúa ák & ák £k Eftir Ed Dodd ■lltlMIIIIIMfMflMMf IIIMflltttlff f llfllf lllllllltf f llf fllff lf llttf f lf |f f Mff ft' IMMIMMMMMMMMMM IMIMMIff IMMMMMMMMMIIMMIMMMIM VOL/ DIO IT, JOHtJNJY. VOU CAME FOR M JUST IN TIME/ COME QUICK, JOHN saalotte/ BIG OOG RJLLINS IN STRANGE tr\ sledge/ , vou SAVED M M.ARIE'S LIFE - OOCTOR/ — Þú hefur bjargað lífi Maríu konu minnar, læknir. — Nei, það var ekki jeg. Það varst þú, sem gerðir það. Þú komst einmitt á rjetum tíma, Jói, og gafst henni nýja von og nýja þrá til lífsins. Indíáni kemur inn og segir: — Kom fljótt Jói Malotte. Stór hundur dregur hingað stóran sleða. Og það er rjett. Þarna kemur gamli góði Andi, tryggur og ör- uggur eins og altaf áður. Totterham 18 15 2 1 47. 12 32 Hull City 18 12 2 4 40. 33 26 Sheff. Wedn 17 9 5 3 30. 18 23 Preson NE 19 7 7 5 25. 19 21 Cþesterfield 19 8 5 6 21. 21 21 Southamptn 17 7 6 4 25. 20 20 Sheff. Utd 19 6 8 5 25. 30 20 West Ham 18 7 5 6 26. 25 19 Swansea 18 7 5 6 23. 23 19 Barnsley 18 7 5 6 28. 29 19 Bury 18 7 4 7 37. 28 18 Leeds Utd 19 6 6 7 20. 22 18 Grimsby 18 7 3 8 36. 36 17 Blackburn 19 8 1 10 29. 31 17 Luton Tn 18 4 8 6 18. 23 16 Brentford 19 5 5 9 16. 25 15 Cardiff 17 5 4 8 16. 20 14 Bradford 18 5 4 9 25. 36 14 Leicester 19 4 6 9 27. 32 14 Q. P. R. 19 4 5 10 19. 28 13 Coventry 17 4 4 9 23. 31 12 Plymouth 18 4 4 10 22. 35 12 A miðvikud. sigraði Wales Belgíu i Cardiff með 5:1. J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.