Morgunblaðið - 11.12.1949, Blaðsíða 9
Sunnudagur II. des. .1949.
MORGUXBLAÐIÐ
'T^ •T> 1
EIÐURINN,
EFTIR ÞOIÍSTEIN ERLINGSSON
Þorsteinn er einn af vinsælustu skáldum ísl. þjóðar*
innar og Eiðurinn er fáguð perla, sem ekki fyrnist.
Þetta er 4. útgáfa og hefur Ragnhildur Ólafsdóttir
teiknað smekklega borða fyrir ofan kaflaskipti. Legg-
ið Eiðinn með jóíagjöfinni. Bókin er öllum jafn
kærkomin.
BÓLU-
HJÁLMAR.
Matur og drykkur
Þetta er fyrsta héildarútgáfan af verkum þessa stórbrotna skálds.
Fyrir þrjátíu árum konru kvæðin hans, og sjötíu ár eru liðin síðan lengjta
kvæði hans, Göngu-Hrólfsrímur, voru prentaðar- í 5. bindinu eru sagna-
þættir og þau brjef Hjálmars, senr til náðist. Þó að bækur Bjálnnrs hafi
verið ófáanlegar áratugum saman, þá hefur þjóðin ekki gleymt honitm,
hann hefur lifað á vörum hennar.
Manneldi og heilsufar í fornöld,
f:ftir dr. sklla glðjónsson
„Má það ekki einu gilda, hvað menn átu á lÖngu
liðnum öldum?44, spyr Skúli í inngangsorðum. ,-Nei,
einskisvert er það ekki- Menning vor vex upp úr
fortíðinni. Hún stendur þar djúpum róturn. En lítt
skiljanlegt er það, að sagnfræðirannsóknir hafa
sýslað um hvað eina, annað en manneldissöguua.
Þau blöð eru að mestu leyti óskráð enn í flestum
löndum. Og þessi saga er þó, ef til vill athyglisverð-
asta greinin eða stofnihn, sem margir aðrir söguíegir
atburðir kvíslast frá.44 — Þetta er merk bók, sem
vekja mun athygli.
"TSI
Elísabet
Englandsdrottning
EFTIR JOHN E. NAIL
sem er prófessor í sögu Englands við Lundúnahá-
skóla* Þegar bókin hefst, er England í rauninni kot-
ríki, þar sem alt logar í trúarbragðadeilum siðaskipt-
anna. En þegar henni lýkur, er England orðið heims-
veldi, og sá grundvöllur lagður í öllu verulegu, sem
það hefur staðið á fram á þennan dag. — Þessi bók
er talin ein besta og skilrikasta bókin, sem rituð hef-
ur verið um Elísabetu drottningu og tímabilið í sögu
Englands, sem hún (ifði á-
matreiðslubók Helgu Sigurðardóttur, kemur hjer í
nýrri útgáfu, aukin og endurbætt. Matreiðslubókin
er nauðsynleg hverri húsmóður, en hefur verið ófá-
anleg undanfarið og mikið eftirspurð.
iJóLueróían Jióajoidar