Morgunblaðið - 24.12.1949, Qupperneq 16
HVASS S í dag. Hvöss SV og
ALL-HVASS eða hvass SV —■
MORGUNBLAÐIÐ er 48 síður
skúrir eða eljaveður.
í dag, hlað I, II, III. — Glcði-
leg jól.
r
11 ungir Ssraelsmenn koma
á eigin skipi til Islands
HJER í HÖFNINNI liggur flutningaskipið „Merkur“. Er það
eign 11 ungra Gyðing'a, sem tóku þátt í styrjöldinni í Gyðinga-
lanái, en keyptu skip þetta í Danmörku og stofnuðu um það
samvinnufjelag. Skipið keyptu þeir fyrir peninga þá, sem þeim
voru greiddir er þeir gengu úr herþjónustu og hugsa þeir sjer
cð gera skipið út til siglinga í Miðjarðarhafi í framtíðinni.
Taka fisk á íslandi.
„Merkur“ er 1050 smálestir
og er það hingað komið til að
taka saltfisk og flytja til ítalíu,
en síðan fer skipið til Palestínu,
þar sem því verður gefið nýtt
nafn. Fengu hinir ungu Gyð-
ingar lánað flagg hjá ræðis-
rnanni ísraels í Kaupmanna-
höfn til að nota í þessari ferð.
Norsk og dönsk áhöfn.
Skipstjórinn á „Merkur“ er
ftorskur, Alf Bergesen, stýri-
menn danskir, en eigendumir
vinna sjálfir um borð við vms
störf. (
Talsmaður skipaeigendanna
er Kongreiki, ungur Gyðingur.
Segir hann að ísraelsmenn sjeu
r.ú sem óðast að koma sjer upp
kaupskipaflota.
Með skipinu er dansku.r og
amerískur blaðamaður. Jörgen
Simonsen, sem ætlar að skrifa
fyrir dönsk blöð um ferðalag-
ið og Palestínu og Mr. Harris
frá Boston í Bandaríkjunum,
sem ritar fyrir blöð þar. Mr.
Harris er sá eini, sem komið
hefir áður til íslands. Hann var
Ljer kapteinn í her Bandaríkj-
anna á stríðsárunum.
Hjeðan fer Merkur á mánu-
dag á hafnir úti á landi til að
taka fisk.
Mesta tlóð í 29 ár
NÍCOSIA, Kyprus, 23. des. —
Óttast er um líf 27 manna hjer
á Kyprus. Munu þeir hafa farist
í fióðunum. sem eru hin mestu
e: komið hafa í 29 ár. Yfir 140
(rianna voru heimilislausir
vegna flóðanna. Sums staðar
hafa allar samgöngur teppst.
— Reuter.
fiefði gjarnan viljað fá
Ti’yman í hijómsveifina
LOS ANGELES — Sjötugur
prentari, að nafni Clyde Marsh
aw, skýrði frjettamönnum hjer
í Los Angeles nýlega frá því.
að Truman forseti hefðí verið
„allgóður“ píanóleikari 1908 og
m anað minnstu, að hann yrði
ráðinn til að leika með hljóm-
sveit.
.ÖJeg var að stofna hljómsveit
í Kansas City og hefði gjarnan
viijað fá hann,“ sagði Marshaw.
„Hann var leiknari en píanist-
inn, sem við höfðum, en hljóm-
sveitin fór á höfuðið.11
Marshaw bætti því við, að
hann héfði lítið sjeð af Truman
eftir þetta. enda þótt núver-
anai forseti Bandaríkjanna ynni
þá um skeið í lyfjabúð í nánd
við prentsmiðjuna, þar sem
„• iómsveitarstjórinn“ starfaði.
Fjórir fórust í Guil-
fossbrunanutn
Einkaskeyti til Mbl.
KAUPMANNAHÖFN, 23. des.:
— Tveir þeirra manna, sem
skaðbrenndust er eldur kom
upp í Gullfossi á dögunum,
hafa látist í sjúkrahúsi. Hafa
þá fjórir dáið af afleiðingum
þessa eldsvoða. Tveir dóu
strax.
Tveir menn liggja enn í
sjúkrahúsi mikið brenndir.
— Páll.
Sýning á gömlum
eriendum málverk-
um opnuð í Rvík
í FYRRADAG var opnuð hjer
í Reykjavík sýning, á nokkrum
gömlum, erlendum málverk-
um. Er hún í íþróttahúsi Jóns
Þorsteinssonar og hefur Sig-
urður Benediktsson gengist
fyrir henni.
í formála fyrir sýningarskrá
segir hann að málverk þessi
sjeu flest hingað komin frá
Englandi, en nokkur frá Ítalíu,
Frakklandi og Hollandi.
Málverkin eru til sölu og
verður sýningin opin fram um
áramót.
Rudolf Hess heldur
jólin háliðleg
BERLÍN. 23. des. — Rudolf
Hess og samfangar hans sex, er
á sínum tíma voru nasistar í
virðingarstöðum munu halda
jólin hátiðleg með því að leika
jólasöngva af hljómplötum
Þessir 7 fangar, sem mega muna
fífil sinn fegri, eru í haldi í
stríðsglæpafangelsihu í Spand-
au í breska hernámshlutanum
í Berlín. — Reuter.
Togarar fara á
saltfiskveiðar
FYRSTI nýsköpunartogarinn,
sem gerður er út á saltfiskveið-
ar hóf veiðar sínar vestur á
Halamiðum í fyrradag. Er þetta
ísafjarðartogarinn ísborg og
leggur togarinn afla sínum upp
á ísafirði.
Sennilega munu tveir togar-
ar til, hefja saltfiskveiðar á
næstunni, er ahnar þeirra Ak-
urey en’hinn Venus.
Bidaull
GEORGES BIDAULT,
forsætisráðherra Frakka, sem
nýlega tók við stjórnartaum-
unum þar í landi og hefur set-
ið við völd á annan mánuð.
Framboðslisti
Sjáffstæðfsmanna
á Siglufirði
SIGLUFIRÐI, föstudag: — Sigl
firskir Sjálfstæðismenn hafa
fyrir nokkrum dögum, ákveðið
hvaða mönnum framboðslisti
þeirra skuli skipaður, við vænt
anlegar bæjarstjórnarkosningar
29. janúar næstkomandi.
Hjer á eftir fara nöfn sex
efstu manna listans: Bjarni
Bjarnason bæjarfógeti, Pjetur
Björnsson kaupmaður, Jón Stef
ánsson framkvstj. síldarútvegs
nefndar, Aage Schiöth lyfsali.
Alfreð Jónsson verkamaður og
Arnfinna Björnsdóttir kennari.
Nú hafa Sjálfstæðismenn tvo
fulltrúa í bæjarstjórninni. —
Guðjón.
Fjölmenn útför
Guðmundar i Bakka
SIGLUFIRÐI, föstudag: Hinn
kunni Siglfirðingur Guð-
mundur í Bakka, Bjarnason,
var til grafar borinn hjer í dag.
Var mjög mikið fjölmenni við
útförina, svo sem vænta mátti
og var kirkjan fullskipuð. Veð-
ur var mjög gott og setti það
:Svip sinn á útför þessa mæta
manns. — Guðjón.
Gullfaxi fiyiur vara-
sfykki í fogara og Ijósa-
úfbúnað í Þjédfeikhúsið
GULLFAXI, millilandaflugvjel
Flugf jelags íslands, kom hingað
til Reykjavíkur, um kl. 8 í gær-
kvöldi beint frá London. Með
flugvjelinni voru 16 farþegar,
en það sem athyglisverðast var
við flug þetta, er að flugvjelin
flutti nærri tvö tonn af þunga-
vöru, og farþegafarangri. Til
dæmis kom flugvjelin með vara
stykki í ljósavjel togarans Egill
Skallagrímsson, sem legið hefur
hjer í höfninni undanfarið. Þá
var komið með Ijósatæki í Þjóð
leikhúsið og vógu þessi tæki um
hálfa smálest. Loks flutti flug-
vjelin 124 poka af jólapósti frá
Bretlandi.
Togarartiir eru meS
2500- 3000 kit eítir
15 daga útivist
ÁFRAMHALDANDI aflatregða
er á Halanum, auk stirðrar veðr
áttu, svo útivist togaranna er
af þeim sökum löng oft á tíðum
og lítinn afla að hafa.
Þeiv togarar, af þeim 25 til
30, sem voru á Halamiðum í
gær, og lengsta útivist eiga að
baki, alít að hálfan mánuð, voru
með þetta frá um 2500 til 3000
kitt. Telst þetta lítill afli vfir
svo langan veiðitíma.
Mifcil umierð—
Engin slys
EINS og við mátti búast, var
umferðin hjer í bænum í gær
alveg gífurlega mikil.
Samkvæmt uppl'jsmgum frá
götulögreglunni, nunu engin
meiriháttar umlerðarslys hafa
orðið og árekstrar bíla nærri
óvenju fáir.
í úthverfum bæjarins, þar
sem göturnar eru malarbornar,
var færðin þó viðsjárverð,
vegna þess að enn var svell á
götunum, þrátt fyrir hlákuna
er gerði í fyrrinótt.
Jólalrje sett upp
á Hlemmtorgi
BÆJARYFIRVÖLDIN hafa lát-
ið setja upp mjög stórt og
fallegt jólatrje á Hlemmtorgi.
Hlemmtorg er þar sem mæt
ast Laugavegur og Hverfis-
gata og blasir þetta veglega trje
við þegar komið er til bæjarins
eftir Laugavegi.
Jólatrjeð hefur vakið mikla
ánægju meðal íbúanna í þessu
hverfi, en ,,Jólastemningin“
sem trjeið mun setja í hverfi
þessu verður mikil, þegar Raf-
magnsveitan er búin að kveikja
ljós á trjenu, sem væntanlega
verður gert í dag.
Mörg skip eru á ’iaf
úti í dag
BÚAST má við, að kveðjur til
sjómanna á hafi úti, verði marg
ar í útvarpinu í kvöld. í rær \
voru á veiðum vestur á Hala-
miðum milli 25 og 30 togarar
úr flotan-um. — Auk þess kaup-
skipin sem eru ýmist á leið til
landsins eða í ferðum meðfram
ströndum þess, en hjer mun
vera um allmörg skip að ræða.
Kviknar í sfræfisvagni
í GÆRDAG kviknaði i strætis
vagni, er hann var á ferð i
Hafnarstrætinu.
Lögreglumenn brugðu begar
við með handslökkvitæki og
kallað var á slökkviliðið, en
vökvinn í handslökkvitækjunr
um nægði. Litlar skemdir urðu
á strætisvagninum og var hann
eftir sem áður í akfæru ástandi.
JÓLA-LESBÓKIN var borin
út með blaðinu í gær. í hana
skrifa sr. Jón Thorarensen,
Magnús Jónsson, prófessor,
Halvard Mageröy, sendikenn-
ari, dr. Jón Stefánsson, Jakob
Thorarensen, skáld o. fl.
Að öðru leyti er efni Les-
bókarinnar mjög fjölbreytt,
sögur fyrir börn og fullorðna,
gáfnapróf, sagnir um gamla
jólasiði, verðlaunakrossgáta - og
verðlauna-myndgáta.
Það óhapp varð við prentun
nokkurs af upplaginu, að strik
kom upp í verðlauna-mynd-
gátunni efst, og mega menð
ekki láta það villa sig, því það
þýðir ekkert. — Þá varð. og
sú villa í seinustu skákþraut-
inni, að biskup er þar í stað
hróks á g7. Er vonandi að allir
sjái þá villu, því að taflstaðan
breytist ekki frá einni þraut
til annarrar annað en það, að
fyrst hverfur riddari af borð-
inu en síðan peð.
Egill Jónasson
verslunarmaður
fisnmlugur
FIMMTUGUR verður 27. des,
Egill Jónasson, verslunarmað-
ur í Húsavik. Hann er þjóð-
kunnur hagyrðingur og eru
margar vísixr eftir hann orðnar
landfleygar. Mörg kvæði hefur
hann ort í Spegilinn undir
ýmsum dulnefnum.
Egill var um eitt skeið
frjettaritari Morgunblaðsins.
— Frjettaritari,
Afkastaverðlaun
Prag. — Verkamönnum hafa
verið boðin sjerstök verðlaun fyr
ir aukin afk.öst í Tjekkóslóvakíu,
til að framleiðslan skuli aukast.
Hafa verið ískyggilega miklar
fjarvistir frá verksmiðjum íands
ins að undanförnu.