Morgunblaðið - 05.01.1950, Qupperneq 12
yEOURÚTLITIÐ- FAXAFLÓI:
RÍKISSTJÓRNIN
lcggug
N.A. stinningskaldi, skyjafl,
en árkomulaust að mestu.
nttblaöió
3. tbl. — Fimmtudagur 5. janúar 1950
Óskiifanleg truflun varð
á rafkerfi bæjarins í gær
Mörg hverfi straumiaas í nokkrar klst.
ÓSKÝRANLEG truflun varð á rafmagnskerfi Reykjavíkur í
gærdag. Truflunin varð á háspennukerfinu og orsakaði raf-
rrrjgnsleysi í ýmsum hverfum í Austurbænum, Miðbænum og
Vesturbænum. Voru hverfi þessi rafmagnslaus frá klukkan
nálegá 11 fyrir hádegi til kl. að ganga fimm í gærkvöldi, þau
sem Iengst voru straumlaus.
Strax og „rafrnagnsbilun“
<þessi varð var talið að einn af
Riör-gum ■ háspennustrengjum
rafkerfisins í bænum hefði
brunnið í sundur. Með hverj-
um hætti var ekki vitað.
MæSiíigarnar.
Víð mjög nákvæmar mæling-
ar á háspennukerfinu, kom ekk
ert það í Ijós. er benti til þess
að háspennustrengur hefði
brunnið í sundur. Hins vegar
gat hugsast, að strengurinn
hefðí brunrtið þannig, er skamm
hlaupið varð í honum, að stykki
hefð: íarið úr strengnum og
þyi ekki öruggt um að bilun-
in kæmi frani við mælingar.
Til þe.js að komast fyrir um
þetta voru enn frekari mæling-
ar gerðar, Alt fór á sömu leið.
Háspennukerfið virtist vera í
góðu lagi eftir þeim að dæma.
Mö.r-g hverfi.
Hverfin sem rafmagnslaus
urðu, voru dreifð um bæinn,
allt tnnan frá Frakkastíg og
vestur að Grandagarði. Af eðli-
legum ástæðum voru þau tekin
úr sambandi. meðan verið var
að kanna þessa mjög svo sjer-
stæðu rafmagnstrutlun.
Kftirf.ið í lagi.
Um k'ukkan að ganga fjögur
var byrjað að tengja hin straum
lausu hverfi á ný inn á há-
spennukerfið.
Þá kom það, sem menn geta
ekki gefið neina skýringu á, að
allt háspennukeríi bæjarins
starfaði með venjulegum og al-
veg eðlilegum hætti, eins og
það hafði gert áður en truflun-
in varð á því, rúmum fimm
klúkkustundum áður.
254 yísimenn á
ilíheimilinu
VISTMENN á Elli- og hjúkrv
unarheimilinu Grund voru alls
2!J4 um síðustu áramót, eða
flftiri en nokkru sinni áður.
A sama tíma í fvrra
voru þeir 245. Konur eru þar
í rniklum meirihluta, eða 179,
en karimenn eru 75.
Alls bættust við á árinu 85
vistmenn, 31 fór þaðan, en 45
Ijfttust. Meðalaldur hinna dánu
var rúml. 80 ár.
Ræjarsjóður Reykjavíkur
armast greiðslu á vistgjöldum
129 vistmanna og önnur
hreppa- og bæjarfjelög 13. 29
greiða vistgjald sitt sjálfir og
vaudamenn 83.
Á árunum 1935—1948 hafa
ali • dvalið 1344 vistmenn á
Eim Kmílinu.
Ný lögreglusföð
á ísafirði
ÍSAFIRÐI, 4. jan. — Um ára
mótin var nýja lögregluvarð-
stofan í Fjarðarstræti fullgerð
og tekin til afnota. Á síðast-
liðnu sumri var bygging varð-
stofunnar hafin, en hún er sam
byggð við fangahús bæjarins í
Fjarðarstræti.
Varðstofan er tvö herbergi,
varðstofa og rjettarsalur. Úr
varðstofunni er innangengt í
fangahúsið.
Með þessu og hinum nýja
lögreglubíl hefir lögreglunni
verið búin ágæt starfsskylyrði,
betri en víðast annarsstaðar í
smærri bæjum.
Yfirumsjón með verkinu
hafði bæjarfógeti. Byggingar-
meistari var Ingimundur Ög-
mundsson. — Kr. J.
Fisksöiutmðstöðin er
vesfur við Grandagarð
i>jóð¥itjinn spyr tii
vegar
RITSTJÓ^tN Þjóðviljans
var ó það bent í gær, að
rjettast væri fyrir Þjóð-
viljamenn, að hætta geipi
sínu um bæjarmálefni.
Þ%í þeim tnun meira sem
þeir fjölyrtu um þau, þeim
mun meira yrðu þeir sjer
til minkunar.
Ný sönnun fyrir þessu
kom í ijós í gær, er Þjóð-
viljinn spyr HVAR fisk-
sölumiðstöðin sje, sem
bæjarstjórnin ákvað á sín-
um tíma, að reist yrði hjer
í bænum.
SVAR: HÚN ER Á
VESTANVERÐUM HAFN-
ARBAKKANUM, VEST-
UR VIÐ GRANDAGARÐ.
NÁNAR TIL TEKIÐ í
FISKIÐJUVERI RÍKIS-
INS.
Bæjarstjórnin ljet rík-
inu í tje lóð undir iðju-
verið með því skilyrði, að
hluti af byggingunni yrði
hin umrædda fisksölumið-
stöð.
Það væri, eins og bent
var á hjer í blaðinu í gær,
heillaráð fyrir Þjóðvilja-
menn, að kynna sjer ofur-
lítið málin, áður en þeir
taka sig til og skrifa um
þau. En af einhverjum á-
stæðum hefur þeim altaf
verið það einstaklega ógeð
felt.
— Og þar við situr.
Konungur Irans í Bandaríkjunum
MOHAMED REZA PAHLEVI, konungur í Iran (Persíu) hefur
verið á ferðalagi um Bandaríkin undanfarið. Á myndinni sjest
er Tniman forscti tók á móti konungi í Washington fyrir nokkr
um vikum, en forsetinn hafði sent einkaflugvjel sína til Irans
til að sækja konunginn.
Mikill sóknarhugm’ Sjálf-
r
stæífisinanna á Isafirði
Framboðslisti flokksins ákveðinn
Á FJÖLMENNUM fundi Sjálfstæðisfjelaganna á ísafirði í fyrra-
hvöld var tekin endanleg ákvörðun um skipun framboðs flokks-
ins við bæjarstjórnarkosningarnar. Áður hafði uppstillingar-
nefnd og fulltrúaráð flokksins undibúið listann og gert tillögur
um hann til almenns flokksfundar.
Samþykkti fundurinn einróma tillögur fulltrúaráðsins, en
samkvæmt þeim er listinn þannig skipaður.
♦-------------------------------
Skipun listans
Matthías Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri, Baldur John-
sen, hjeraðslæknir, Marzelíus
Bernhardsson, skipasmiða-
meistari, Símon Helgason, hafn
arvörður, Kjartan J. Jóhanns-
son, læknir, Ásberg Sigurðs-
son, lögfræðingur, Kristján
Tryggvason, klæðskerameist-
ari,. Iðunn Eiríksdóttir, frú,
Ragnar Bárðarson, bygginga-
meistari, Ragnar Jóhannsson,
skipstjóri, Borghildur Magnús
dóttir, frú, Guðmundur B- Al-
bertsson, verkamaður, Jónas
Guðjónsson, húsgagnasmíða-
meistari, Elín Jónsdóttir, ljós-
móðir, Hálfdan Bjarnason, trje
smíðameistari, Samúel Jóns-
son, smjörlíkisgerðarmaður,
Elías J. Pálsson, forstjóri, og
Sigurður Bjarnason, alþingis-
maður.
Mikill einhugur ríkjandi
Mikill einhugur ríkti á fund
inum um framboðslistann. Eru
Sjálfstæðismenn á ísafirði í
miklum sóknarhug, og er -tak-
mark þeirra að vinna hreinan
meirihluta í bæjarstjórnarkosn
ingunum, en þeir hafa þar nú
4 fulltrúa.
Á þessum sama fundi flutti
Sigurður Bjarnason, alþingis-
maður, ræðu um stjórnmála-
viðhorfið og Matthías Bjarna-
son talaði um fjármál ísafjarð-
arkaupstaðar. .— Var ræðum
þeirra mjög vel tekið.
Jón Páll Halldórsson, formað
ur „Fylkis“, fjelags ungra Sjálf
stæðismanna, stjórnaði fundin-
um, sem fór hið besta fram.
Eiríkur Einarsson
tefcur sæSi á þingi
EIRÍKUR EINARSSON 2. þing-
maður Árnesinga tók sæti á Al-
þingi í gær, en hann hefur legið
veikur frá því að þing kom
saman.
Þá tók einnig sæti á þingi
Magnús Kjartansson, ritstjóri,
sem varamaður Lúðvíks Jós-
efssonar 2. landkjörins, en Lúð-
vík kveðst ekki geta mætt á
þingi sökum „óvenjulegra
anna“.
fram bráSabirgðalausn. Sjá
grein á bls. 2.
Jón Geirsson læknir
á Akureyri Ijest í gær
JÓN GEIRSSON læknir á Akur
eyri andaðist í gær. Hann var;
44 ára.
Jón veiktist skyndilega í
fyrrinótt og var fluttur í sjúkra
húsið á Akureyri í gærmorg-.
un, og ijest um 1 leytið, Bana-
mein hans mun hafa verið inn-
vortis lömun.
Jón læknir hafði vorið las-
inn undanfarna tvo daga, og
var við rúmið, en lasleiki hans
var ekki talinn alvarlegur,
énda mun hann hafa tekið veiki
þá, sem leiddi hann til bana,
mjög skyndilega í fyrrinótt.
Maður siasasl —
slysið éupplýst
JJMFERÐARSLYS varð í gær
hier í bænum og er eigi unp-
lýst með hverjum hætti- það
bar að.
Rúrik Jónsson, Miðtúni 19,
hafði farið að heiman frá sjer
laust fyrir klukkan eitt á reið-
hjóli, til vinnu sinnar. Um það
bil 15 mín síðar var komið með
Rúrik í ljósleitum bíl heim til
sín. Hafði hann orðið fvrir
slysi, en gat enga grein gert
fyrir því, nje heldur hver það
var sem flutt hafði hann heim
í ljósleita- fólksbílnum.
Sennilegt er að slys þetta
hafi orðið á Skúlagötunni aust-
an verðri
Nú eru það vinsamleg tilmæli
rannsóknarlögreglunnar til bíl-
stjórans á ljósleita bílnum og'
annara þeirra er upplýsingar
geta gefið í máli þessu, að hafa
sem fyrst tal af rannsóknar-
lögreglunni.
Ráðstefna um gin- og
klaufaveiki
Mexikóborg. — Alheimsráð-.
stefna, sem fjalla skal um varn-
ir og lækningu á gin- og klaufa-
veiki í nautgripum, verður hald-
in í Mexikó á miðju þessu ári.