Morgunblaðið - 06.01.1950, Page 8
8
IUORGUNPLAÐIÐ
Föstudagur 6. janúar 1950.
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands,
í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með LesbóE,
kr. 15.00 utanlands.
Framboðslistarnir
MÖRGUM er minnisstætt, þegar kunnur krati, sem stund-
um hefur verið álitinn standa nálægt kommúnistum, komsl
svo að orði.í Alþýðublaðinu um flokks- og skoðanabræðui
sina í bæjarstjórnarminnihlutanum, að þeir væru bæjar-
stjórnarmeirihlutanum bæði „hugsjónasnauðari og hand
ónýtari“. Er þetta rifjað upp hjer, því að ekki virðast hir.ii
þrír andstöðuflokkar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn hafa
látið þessa áminningu sjer að kenningu verða.
★
Nýlega hafa framboðslistar rauðliða við bæjarstjórnar-
kosningarnar í Reykjavík verið lagðir fram.
Fullyrt var um langt skeið, að Framsókn hefði ákveðið
að hafa Rannveigu Þorsteinsdóttur í einu efsta sæti listans,
en það er til marks um það, hvert orð hún hefur getið sjer
meðal Reykvíkinga eftir tæplega tveggja mánaða þingsetu,
að Framsókn treystist ekki að hafa hana á oddinum. Eru
nú vinsældir hennar meðal Reykvíkinga lagðar að jöfnu
vinsældum Eysteins Jónssonar, og finnst víst flestum ekki
við mikið að jafnast. í efsta sæti listans setja Framsóknar-
menn óþekktan mann, sem er atkvæðalítill talinn af þeim
láu, sem 'til þekkja. „Nytsamur sakleysingi“ í öðru sæti
listans gerir þá grein fyrir veru sinni hjá Framsókn, því
grein þurfti fyrir verunni þar að gera, að stefna Framsókn-
arflokksins í sjúkrahúsmálum höfuðstaðarins sje svo æski-
leg. Er þá líklega átt við það, að Framsóknarmenn á þingi
greiddu atkvæði gegn fjárframlagi til sjúkrahúsbyggingar í
Reykjavík.
Á lista kommúnista eru tveir gamlir fallkandidatar, sem
Reykvíkingar hlökkuðu yfir að vera búnir að losa sig við.
Þetta hefur kommúnistum verið ljóst, því að nú á að tryggja
kosningu þeirra eins rammlega og hægt er, því að þeir eru
settir í tvö efstu sætin. Steinþóri Guðmundssyni og Birni
Bjarnasyni er sparkað af listanum, en þeir menn, sem settir
eru í staðinn eru slíkir, að kommúnistar mega hafa sig alla
við,-ef þessum sætum á að halda og mun það samt verða
torsótt.
Kvennaslagur nokkur mun hafa verið á heimili krata með
þeim afleiðingum að konur munu þar ekki hafa áhrif í
bæjarstjórn á næsta kjörtímabili. Það tekur varla að nefna
þr breytingu, að skipt hefur verið um fulltrúa Alþýðublaðs-
ins á listanum, en það má alla kjósendur einu gilda, nema
aumingja Helga, sem er færður niður.
★
Það ber að harma, að mannval á listum andstæðinga Sjálf-
stæðisflokksins skuli ekki vera meira en raun ber vitni.
Bænum er nauðsynlegt, að sem flestir bæjarfulltrúanna
sjeu valdir menn. Þetta hafa Sjálfstæðismenn skilið og
tryggt bæjarbúum kost slíkra manna með skipun fram-
boðslista síns. Sex hinna átta efstu eiga nú sæti í bæjar-
stjórn, en meirihluti hennar hefur haldið svo á málefnum
bæjarins, að Reykjavík er best stæða bæjarfjelagið á landinu
og eru framkvæmdir hjer þó mun meiri en annars staðar.
Sjöundi maður listans er góðkunnur, Guðmundur H. Guð-
mundsson, form. Iðnaðarmannafjel. Reykjavíkur. Hefur
hann verið varafulltrúi þetta kjörtímabil, oft starfað sem
aðalfulltrúi og á sinn þátt í góðri stjórn bæjarins. í áttunda,
níunda og tíunda sæti eru allt ungir menn, sem þegar hafa
unnið margt gott. Pjetur Sigurðsson stýrimaður er einn
menntaðasti sjómaður, sem við eigum, sonur Sigurðar Pjet-
urssonar, skipstjóra á Gullfossi. Pjetur er kennari við Stýri-
mannaskólann og stjórnar sjómælingum á sumrin. Hann
var um eitt skeið formaður Stýrimannafjelagsins. Birgir
Kjaran er hagfræðingur, sem unnið hefur að ýmsum við-
skiptamálum fyrir ríkisstjórnina. Sveinbjörn Hannesson
verkstjóri er velþekktur, sjerstaklega meðal verkamanr.a.
Hann er varafulltrúi og hefur starfað í bæjarstjórninni s.l.
kjörtímabil. Hann er form. Óðins, fjelags Sjálfstæðisverka-
manna og sat um nokkur ár í stjórn Heimdallar.
(•: Þegar hvorttveggja er fyrir hendi, framúrskarandi góð
•stjórn bæjarins á undanförnum árum og valið lið á lista
'flokksins, þá fer ekki hjá því, að Reykvíkingar tryggi Sjálf-
‘/stæðismönnum glæsilegan sigur í bæjarstjórnarkosningun-
>um. ______
rar:
\Jílwerjl áhripa
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Stúlkan, sem ekki
kom.
HÚSMÆÐURNAR fá ekki að-
stoðarstúlkur, þótt vel sje boð-
ið, kaup og fríðindi. Þetta er
orðin nokkuð gömul saga. Sum
heimili hafa verið svo heppin,
að fá erlendar stúlkur, en ís-
lenskar vilja ekki vera vinnu-
konur. Enda hafa þær öðrum
hnöppum að hneppa og nóg að
gera fyrir betra kaup.
í gær varð jeg samferða kunn
ingja mínum og hann sagði
mjer söguna af stúlkunni, sem
hann átti von á til aðstoðar á
sínu heimili um áramótin. En
stúlkan kom ekki.
Varla hægt að lá
henni.
ÞESSI STÚLKA hafði áður ver
ið á sama heimili og kunr.að
vel við sig. Samdist svo um,
að hún kæmi aftur 1. janúar.
En fyrir nokkru barst brjef frá
henni þess efnis, að hún sæi
sjer ekki fært að fara úr þeirri
vinnu, sem hún væri í, þar sem
henni væru greidd þar svo góð
laun.
Stúlkan vinnur að fram-
leiðslu verkamannafatnaðar í
sveitaþorpi á Suðurlandi og seg
ir í brjefinu, að þær sjeu 10
stúlkur sem vinna þar að sömu
framleiðslu og að þær fái 70—
90 krónur á dag í kaup.
Það er varla hægt að lá stúlk
unni, þótt hún vildi ekki fara
í vist.
•
Þar eru stúlkurnar.
OG ÞETTA er ábyggilega ekk-
ert einsdæmi. Fjöldi ungra
stúlkna, sem myndu vera í
vist, sem kallað er, vinna nú á
verkstæðum, sem framleiða
ýmislegt, sem er miður þarf-
legra en verkamannaföt.
Það er sama sagan og með
sjómanninn, sem ságt var frá á
dögunum, sem fjekk meira
kaup í landi við framleiðslu
leikfanga, en fiskiveiðar á ný-
sköpunartogara..
•
Fleiri gangstjetta-
grindur.
ÞAÐ VAR þarfaverk, að setja
upp grindur við gangstjettir á
fjölförnustu gatnamótunum. —
Þær hafa borið tilætlaðan ár-
angur og eiga vafalaust eftir að
forða mörgum slysum og koma
betra lagi á umferð gangandi
fólks, sem síður æðir í blindni
út á umferðargöturnar, en áð-
ur.
Og slíkar grindur mættu
koma víða, t. d. við kvikmynda-
húsin Austurbæjarbíó, Stjörnu-
bíó og jafnvel við Gamlabíó
líka.
Stöðugur
bílastraumur.
INNGANGURINN í þessi kvik-
myndahús er við aðalgötur, þar
sem stöðugur straumur er bif-
reiða. Snorrabraut, Laugavegur
og Ingólfsstræti.
Þegar fólkið kemur úr kvik-
myndahúsunum gengur það
venjulega út á akbrautina. —
Menn eru þá stundum annars
hugar.
Grindur við gangstjettir á
þessum stöðum myndu ósjálf-
rátt dreifa mannfjöldanum og
forða því, að menn æði í hugs-
unarleysi beint út á götuna.
•
Skrautið tekið niður
í DAG er þrettándinn. Þeir,
sem halda við gömlum þjóðleg-
um siðum, munu gera sjer daga
mun.
Ennþá kann það jafnvel að
vera venja á sumum heimil-
um, að „spila út jólin“.
Einnig mun jólaskrautið
verða tekið niður í dag. Miss-
litu perurnar í görðunum,, jóla
trjen á götunum, skrautið í
búðargluggunum og á heimil-
unum.
Jólin eru liðin hjá í þetta
sinn.
Góðar gjafir
OG ÞEGAR við tökum niður
jólatrjen, sem staðið hafa upp-
lýst á almannafæri síðan á jóla
föstu, ættum við að minnast
gefendanna, Reykvíkingsins,
sem er búsettur erlendis og send
ir alltaf jólatrje á Austurvöll,
Osloar og Bergen, sem sendu
okkur trje, sem hafa verið
mörgum til auenayndis undan
farna daga. Þetta voru vina-
hót, sem við eigum ekki að
gleyma. Vafalaust hafa viðkom
andi yfirvöld bakkað það á
virðulegan hátt og — almenn-
ingur þakkar fyrir hugulsem-
ina.
Fótbrotni
jólasveinninn
GAMALL góðkunningi Reyk-
víkinga fótbrotnaði á gamlárs-
kvöld. Það var jólasveinninn í
sýningarglugea Haraldar Árna
sonar. — Hann hefir staðið
þarna árum saman um jólaleyt
ið með ljóskerið sitt.
En svo varð bað einhver dóni,
sem hrinti manni inn um rúð-
una á gamlárskvöld. — Sem
betur fór, meiddi maðurinn sig
ekki mikið, en jólasveinninn fót
brotnaði.
Vonandi að fóturinn verði
„gróinn“ fyrir næstu jól.
| MEÐAL ANNARA ORÐA .... |
■ I 'MIMIIIIMIMMmMMMimil||||||||||||||||||||immilMIIMMIMIIIIIimiimmmilimilMMM"IMMIMmillllllMIIMIIIIIIIIIIII»3
Atökin um dofnun sjónvarpssíöðyar í Svisslandi
Eftir John Myers.
frjettamann Reuters
GENF: — Hjer stendur nú
mikill styr um, hvort sett skuli
á stofn ríkissjónvarp í Sviss-
landi eða ekki, og fer deilan
um þetta mál harðnandi. Sam-
bandsstjórnin hefir afráðið, að
á þessu ári skuli fara fram til-
raunir til undirbúnings mál-
inu, hvort eða hvenær sem verð
ur svo úr framkvæmdum.
• •
STYRINN STEND-
UR DJÚPUM
RÓTUM
ÞAU rök, sem færð eru með og
móti sjónvarpinu, virðast eiga
sjer stoð í tveimur skaphafnar-
einkennum Svissíendingsins: —
Ástinni á tækni og fjandskap
við hvað eina, sem stutt getur
að því, að vald eða áhrif safn-
ist á eina hönd.
Menn sætta sig við útvarpið
vegna þess, að hver og einn
getur, hvenær sem hann vill,
skipt um stöð og hlýtt á nýja
dagskrá á einhverju af tungu-
málunum þremur,sem töluð eru
í landinu, þýsku, frönsku og
ítölsku. Þannig er engin hætta
á, að menn verði neyddir til
að hlusta á nokkuð það, sem
minnir á eina alráða yfirstjórn.
• •
VIÐKVÆMT MÁL
EN sjerfróðir menn segja, að
Svissland geti ekki borið nema
eina „ríkis“-sjónvarpsstöð, og
þessvegna er það, sem þetta
verður svo viðkvæmt og erfitt
mál í Svisslandi, miklu meira
vandræðamál en annarsstaðar:
Hvar á að setja aðalsendistöð-
ina.
í Svisslandi er valdinu mjög
dreift, einnig að hvert fylki
(kantona), sem í ríkinu er, hef-
ir víðtækt vald. Er hörð keppni
með yfirvöldum einstakra
staða.
• •
KRYTUR
MILLI FYLKJA
ÍBÚARNIR í Zurich-fylki eru
til að mynda fyrst og fremst
Zurichmenn, þar næst eru þeir
svissnesk-þýskir í hugsunar-
hætti, þá svissneskir — en æ-
varandi keppinautar allra ann-
arra fylkja og þá fyrst og
fremst þeirra, þar sem franska
og ítalska er töluð. Jafnvel þótt
svissneska sambandsstjórnin
bæri giftu til að leysa það vanda
mál á viðunandi hátt, í hvaða
fylki ríkissjónvarp skuli reist,
þá er ekki allur vandi þar með
úr sögunni. Mörg viðfangsefni
eru þó óleyst, og þá fyrst og
fremst kostnaðurinn við þetta
áhættufyrirtæki.
• •
KOSTNAÐARSÖM
DAGSKRÁ
KOSTNAÐURINN við sendi-
stöðina sjálfa verður ekki svo
ýkjamikill, heldur fyrst og
fremst kostnaðurinn við dag-
skrána. Til hennar ýrði að
leigja mikið efni svo sem film-
ur frá Bandaríkjunum, Bret-
landi og Frakklandi. Þeir, sem
berjast gegn sjónvarpstöðinni,
segja, að þessi kostnaður verði
isvo mikill, að reksturhalli sje
óumflýjanlegur.
Til gamans skal getið hjer
ummæla aðalblaðsins í Genf.
Blað þetta „La Suisse“, hefir
barist með oddi og egg gegn
því, að sett verði á stofn sjón-
varpsstöð í Sviss, og hefir lýst
átakanlega, hvernig þesskonar
fyrirtæki muni gína yfir skoð-
unum fólksins: „Það er betra
að bíta í skjaldarrendurnar og
æpa heróp, meðan enn er hægt
að stemma stigu fyrir óláninu
heldur en stynja máttvana, þeg
ar það hefir dunið yfir“, lýkur
blaðið máli sínu.______
100 fonn af eggjum
OSLO, 5. jan. — Norska versl-
unarmálaráðuneytið veitti í
dag leyfi sitt til að flutt yrðu
út 100 tonn af eggjum til Sviss-
lands og Vestur Þýskalands.
— Reuter.
Hraðamet
LONDON — Nýtt hraðamet var
nýlega sett á flugleiðinni Lond-
on—Stokkhólmur. Metið setti
sænskur flugmaður, sem flaug
þessa 935 mílna vegalengd á
tveimur klukkustundum.