Morgunblaðið - 06.01.1950, Blaðsíða 16
VEDUBÚTLITIÐ. FAXAFLÓI:
A.'i <TAN og N'A kaldi. Rigning
effa slydda.________________
4. tbl. — Föstudagur 6. janúar 1950
RÍKISSTJÓBNIN legguj’
SAGT frá Staljnsafmælinu 21.
des. á b!s. 2.
Ræðir yið MacArHiur
m frlðarsamninga
TOKYO. 5. jan. — Dr. Jessup,
Sjérstakur sendiherra Banda-
ríkjenna, sem nú er staddur í
Tckvo, skýrði frá því í dag, að
har ; mundi eiga viðræður við
MicArthur hershöfðingja, um
væntanlega friðarsamninga við
Ja.pan. Hann kvað Bandaríkja-
íiv. n vilja flýta þeim degi, er
Japanir gætu á ný tekið sjer
st.Öðu meðal annarra þjóða,
ser friðsamleg lýðræðisþjóð.
Um stefnu Bandaríkjanna í
Asíu hafði dr. Jessup annars
það að segja, að þau mundu
ekkt hætta skiftum við Kína
eða. nokkra þjóð aðra í álfunni.
En hann kvað Bandaríkja-
mer.n jafnandvíga kommún-
iíttna og heimsveldastefnunni,
— Reuter.
Rússar heimfa
53»|rglaðar sigareHur
VÍNARBORG, 5. jan. — Lög-
regian í Vínarborg hafði í gær-
kvöídi upp á 4,200,000 sígar-
ettum, sem smyglað hafði verið
frá Ungverjalandi og talið er
samtað, að í ráði hafi verið að
selja á svörtum markaði.
í dag brá hinsvegar svo við,
að rússnesku yfirvöldin í Aust
urríki kröfðust þess, að sígar-
etturnar yrðu afhentar þeim,
þar sem þær væru „rússnesk
eigr.“.
Enn er ekki vitað, hvernig
Austurríkismenn verða við
þessari kröfu. ‘— Reuter.
Kofflingasigur waid-
isla í Egyptalandi
CAIRO, 5. jan. — Sýnt er nú,
að- vafdisíar í Egyptalandi hafa
urmið mikinn sigur í þingkosn-
ingimum þar. Hafa þeir þegar
tryggt sjer meirihluta á þingi,
hlotið 161 sæti af 319.
. Samfylking sadhista og frjáls
lyndra hefur fengið 46 þing-
sæti, óháðir 27, þjóðernissinnar
fjógur og sósíalistar eitt.
Þvl má slá föstu, að almenn-
ingur sje ánægður með kosn-
ingasigur wafdista. — Foringi
flokksins er vinsæll stjómmála
rnaður og hefur sjö sinnum ver
ið forsætísráðherra Egypta-
laads. — Reuter.
Égerðarmenn á
íramhaklslundi
í G.ERKVÖLDI kom fulltrúa-
fmidur Landssambands ísl. út-
vegsmánna saman til fram-
h.udsaðalfundar hjer í bænum.
Fyrir fundinum liggur að
ro-ða ástand og horfur í mál-
efnum útvegsins. Á fundinum í
gærkvöldi, gerði nefndin, sem
kjörin var til viðræðna við rík-
i;. tjórnina -um málefni útgerð-
a> ’ "iar. grein fyrir störfum
áki frúir enn á
Semenoif
FYRSTA umræða um
frumvarp ríkisstjórnar-
innar um ríkisábyrgð á
vörum bátaútvegsins hjelt
áfram í gærkvöldi og
stóð fram á nótt.
Ætlunin var þó að
Ijúka umræðunum í nótt
og afgreiða frumvarpið
til nefndar.
Ríkisstjórnin lagði ríka
áherslu á að málinu yrði
flýtt sem mest, en and-
stæðingar hennar hjeldu
uppi furðúlegu málþófi.
Kom þar margt ein-
kennilegt fram, en ræða
Áka Jakobssonar var
einna furðulegust.
Vildi Áki hækka ábyrgð
ina, en taldi tekjuöflun
til að standa undir byrð-
inni óþarfa.
Hann vitnaði klökkur í
Semenoff sinn gamla og
taldi hann hafa ætlað að
opna Rússland fyrir tog-
arafiski.
Fjármálaráðherra upp-
lýsti að hann hefði verið
í Rússlandi í tíð Semen-
offs samninga Áka, og
hefði Rússar ekki verið
viðmælandi um að reyna
svo mikið sem einn tog-
arafarm.
VETRARKULDAR Á
N0RÐURIÖNDUM
MIKLAR vetrarhörkur eru nú
um allan Noreg og Sviþjóð og
einnig talsverður kuldi í Dan-
mörku.
Veðurstofan skýrði Mbl. svo;
frá í gærkveldi, að um hádegis-
bil í gær hefði verið um 20
stiga gaddur í Stokkhólmi og
um 16 stiga gaddur í Osló.
Nokkurt frost mun einnig vera
um allá Danmörku. Um austur
hluta landsins var frostið frá 7
til 10 stig en hve mikið það
var í Kaupmannahöfn, höfðu
ekki borist frjettir um.
Það er norðaustan átt sem
veldur þessum vetrarhörkum.
Nokkur snjókoma var í gær um
Skandinavíu.
Samtímis þessu vetrarríki í
nágrannalöndum okkar var
hjer um land allt fi'ostlaust í
gær. Hjer í Reykjavík var hit-
inn fjögur stig.
Gríska sljórnin
segir al sjer
AÞENA, 5 jan. — Alexander
Diomedes, forsætisráðherra
Grikklands, afhenti Páli kon-
ungi í dag lausnarbeiðni sína
Og ráðuneytis síns. Er talið, að
lausnarbeiðnin standi í sam-
bandi við ákvörðun Papagos
yfirhershöfðingja um að segja
af sjer. sem æðsti rnaður grísku
I herjanna. — Reuter.
Endurreisn í Evrópu
ENDURREISNIN gengur vel í Vestur-Þýskalandi. Er nú verið að
gera við vegi og brýr, sem sprengt var í styrjöldinni. Hjer sjest
hin 65 metra liáa brú yfir Wiedback-dalinn, sém er á veginum
milli Frankfurt og Köln. Brú þessi var sprengd í styrjöldinni,
en nú er viðgerð á henni að verða lokið.
Njósnuðu fyrir ríki
í Austur Evrópu
Rjeltarhöld að hefjast í Rótnaborg
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
RÓMABORG, 5. janúar — Rjettarhöld munu á næstunni hefj-
ast hjer í Rómaborg í máli fimm ítala, sem sakaðir eru um að
hafa stundað n.iósnir í þágu ríkis í Austur-Evrópu. Meðal hinna
ákærðu eru tveir yfirmenn skæruliðasveitar.
Upplýsingar ®
um herinn
Það voru menn úr ítölsku
leyniþjónustunni, sem nýlega
handtóku njósnarana í Norður-
ítalíu. Fullyrt er, að þeir hafi
gefið erlendu herveldi upplýs-
ingar um ítalska herinn og her-
varnir á Ítalíu.
Upplýsingunum Var komið í
héndur hermálafulltrúa við-
komandi ríkis í Rómaborg.
Verkfaflið hjá
llugvifkjum
ENN er allt tíðindalaust af
verkfalli flugvjelavirkja. Sátta
semjari hefur málið enn til at-
hugunar og hefur ekki kallað
deiluaðila til fundar.
Flugfjelögin munu fyrst um
sinn geta haldið uppi ferðum
á flugleiðum sínum, en búast
má við, að flugferðirnar verði
ekki eins reglubundnar og ver
ið hefur. Flugfjelögin munu
einnig fyrst urú sinn halda uppi
ferðum flugvjela sinna til ann
ara landa samkvæmt gerðri
áætlun. Á þriðjudaginn fer
Gullfaxi til Prestvíkur og
Hafnar.
Engin skýring fengin
á biluninni
VERKFRÆÐINGAR Rafmagns
veitu Reykjavíkur hafa unnið
að því að rannsaka orsökina
til þeirrar óvenjulegu bilunar
er varð á háspennukerfi bæj-
arins í fyrradag.
Athuganir þessar á kerfinu
og útbúnaði þess, hafa enn sem
komið er ekki borið neinn ár-
angur. Hins Vegar munu verk-
fræðingarnir halda athurunum
sinum áfram uns þeir telja sig
hafa komist fyrir um ástæð-
una fyrir straumrofinu.
Var fimm mínúfur að
sigia yfir síldarforfuna
BERGEN, 5. jan. — Um há-
degi í dag bárust þær frjettir
til Bergen, að skip, sem var á
ferð skammt frá Marsteinen,
hefði siglt yfir stóra síldartorfu
sem stóð á 60 faðma dýpi. Skip-
ið varð vart við torfuna í berg-
málsdýptarmæli og var um
fimm mínútur að sigla yfir
hana.
í kvöld verður sent út skip
með bergmálsdýptarmæli til
þess að leita síldar. — NTB.
Framboðslisii Sjálf-
stæðismama
... s jíIS
í Eyjum
VESTMANNAEYJAR, fimmtu-
dagskvöld. — Sjálfstæðisfjelag
ið hjer í Vestmannaeyjum hjelt
fund í kvöld og var rætt um
framboð flokksins við væntan-
legar bæjarstjórnarkosningar.
Nú eiga Sjálfstæðismenn fjóra
fulltrúa af níu.
Framboðslisti flokksins var
lagður fram á fundinum og
samþykktur, en níu efstu
menn listan eru þessir:
Magnús Bergsson, bakara-
meistari, Guðlaugur Gíslason,-
forstjóri, Björn Guðmundsson,
kaupmaður, Þorsteinn Sigurðs-
son, útgerðarmaður, Ársæll
Sveinssón, útgerðarmaður, Hep
jólfur Guðjónsson, verkstjóri,
Bergsteinn Jónasson, hafnar-
vörður, Sighvatur Bjar.nason,
skipstjóri, og Páll Scheving,
vjelstjóri. — Bj. Guðm.
Vill aukna samvinnu
breska samveldisins
og Bandankjanna
COLOMBO, 5. jan. — Stjórnar
völdin á Ceylon hafa nú að
heita má lokið að undirbúa
samveldisráðstefnuna bresku,
sem þar á að hefjast á mánu-
dag. í ráðstefnunni munu taka
þátt sendinefndir frá átta sam
veldislöndum.
Utanríkisráðherra Nýja Sjá-
lands, sem nú er á leiðinni til
Ceylon, sagði frjettamönnum i
dag, að hann vonaði, að ráð-
stefnan legði áherslu á, hversu
góð áhrif breska samveldið
gæti haft á gang heimsmál-
anna. Hann ræddi ennfremur
um nauðsyn aukinnar sam-
vinnu samveldisins og Banda-
ríkjanna, í þágu heimsfriðar-
ins. — Reuter.