Morgunblaðið - 05.02.1950, Page 6

Morgunblaðið - 05.02.1950, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 5. febrúar 1950. ÍÞBÓTTI Skjaldarglíma Ármanns Krisfmann Guðmundsson skrifar um rjef og ritgerðir HJER á eftir er frásögn af síð- nsíu skjaldarglímu Armanns. — Er. skýrt lítillega frá hverri ein- stjkri glímu, byggt á frásögn gamals glímumanns. Ármann J. Lárusson bar signr úr býtum Eftir Stephan G. Step- liansson_ I.—IV. með for málum eftir Þorkel Jó- hansson. — Þjóðvinaf je- lagið. 1. Fyrst glímdu Kristján Sig- urðsson og Anton Högnason. — GJ^íman var frekar sein, og lauk með sigri Kristjáns. 2. Ármann J. Lárusson og Grjetar Sigurðsson: Sæmileg glíma, sem Ármann vann. 3. Rúnar Guðmundsson og Gftnnar Ólafsson: Rúnar vann, en Gunnar átti mikið í glímunni. 4. Sigurjón Guðmundsson og- Irvgólfur Guðnason: Sæmileg glíma, sem Sigurjón vann. •5. Þórður Jónsson og Kristján Sigurðsson: Glíman gekk fljótt og bar Kristján hærri hlut. 6. Anton og Ármann: Ármann vann eftir stutta viðureign. *7. Grjetar og Rúnar: Rúnar vánn eftir góða glímu. 8. Sigurjón og Gunnar: Glím- an var góð. Sigurjón vann. ’9. Ingólfur og Þórður: Þetta var ekki falleg glíma. Ingólfi var dæmdur sigurinn, þó hann ýtti Þórði tvívegis úr handvörn. 10. Kristján og Ármann: All- hörð glíma. Kristján þaulsótti á Ármann, þar til hann kom hon- um niður. Kristján tognaði lítið eitt í þessari viðureign. ‘ll. Antor og Grjetar: Grjetar vann eftir fjöruga, en þó ekki góða glímu. Fóru þeir einu sinni út af pallinum. 12. Sigurjón og Rúnar: Góð glíma, sem stóð stutta stund. — Sigurjón vann. 13. Gunnar og Ingólfur: Gunn- ar vann eftir nokkuð langa glímu og heldur góða. 14. Ármann og Þórður: Glím- an var heldur dauf. Belti Þórðar slitnaði. Þar sem töf varð á að hann fengi nothæft belti, varð þessi glíma að bíða þar til seinna. Þá vann Ármann. 15. Grjetar og Kristján: Góð glíma. Henni lauk þannig, að Grjetar náði utanfótar hælkrók á Kristjáni og lagði hann. Kom greinilega fram í glímu Kristjáns að hann hafði tognað, og gekk hann úr leik eftir þessa glímu. 16. Anton og Sigurjón: Góð glíma, sem Sigurjón vann. 17. Rúnar og Ingólfur: Ekki svipmikil glíma, en lýtalaus. — Rúnar vann. 18. Grjetar og Ingólfur: Stutt, en góð glíma. Ingólfur vann. 19. Gunnar og Þórður: — Góð glíma hjá báðum. Þeir glímdu heila lotu án þess að úrslit fengj ust. — Er þeir tóku saman síð- ar, vann Þórður. 20. Ármann og Sigurjón: Ár- mann lagði Sigurjón eftir frekar stutta viðureign með fallegu háu klofbragði. 21. Anton og Gunnar: Gunn- ar vann á sniðglímu niðri, fallegt bragð. — Anton hafði áður lagt Gunnar, en það var dæmt ógilt. 22. Þórður og Sigurjón: Sigur- jón vann eftir stutta viðureign. Fylgdi hann Þórði fullfast eftir og felldi hann úr handvörn. 23. Ármann og Rúnar: Rúnar tók klofbragð. Ármann tók mót- bragð, en missti af því og fjekk veika afstöðu, sem Rúhar hag- nýtti sjer og felldi Ármann. 24. Ármann og Ingólfur: Ár- mann náði Ingólfi til falls og íjekk hann byltu, sem þó var dæmt ógild. Síðan vann svo Ár- mann á mjaðmahnykk. Glíma beggja var heldur ljót, því Ingólfur byrjaði glímuna með Ármann J. Lárusson ljótri varnarstöðu, sem gerði Ár- manni glímuna erfiða. 25. Grjetar og Gunnar: — At- burðarásin var fljót. Þeir bár- ust um í>allinn. Grjetar náði ut- anfótarhælkrók á Gunnari (sem sumir álitu utan markalínunnar), en Gunnari var samt dæmd bylta. 26. Þórður og Anton: Dauf glíma, sem Anton vann. 27. Rúnar og Anton: Rúnar vann á fyrsta bragði, hælkrók aftur fyrir báða fætur. 28. Grjetar og Þórður: Nokk- uð fjörug glíma. Þeir fjellu báð- ir, en Grjetari var dæmdur sig- urinn. 29. Gunnar og Ármann: Fal- leg glíma, sem endaði með sigri Ármanns. 30. Ingólfur og Anton: Frekar bragðlítil glíma, en Anton sótti sig og vann á góðu bragði. 31. Þórður og Rúnar: Þessi glíma var nokkuð ljett. Rúnar sigraði eftir að hafa lagt Þórð nokkrum sinnum á pallinn, en hann hafði komið fyrir sig vörn- um. 32. Grjetar og Sigurjón: Góð glíma. Sigurjón vann eftir vel heppnað bragð. Vinningarnir höfðu fallið þann ig, að Ármann, Sigurjón og Rún- ar voru jafnir með 6 vinninga hver. Grjetar Sigurðsson var með 3 vinninga, Anton, Gunnar og Ingólfur með 2 hver og Þórður með einn vinning. Þeir þrír efstu urðu nú að glíma til úrslíta. Viðureignin fór þannig: — Fyrst glímdu: 1. Rúnar og Sigurjón: Sigur- jón vann á háu og góðu bragði eftir skemmtilega glímu. Næst glímdu Ármann og Sig- urjón: Ármann vann eftir sæmi- lega glímu, sem stóð þó stutt. Að lokum glímdu Rúnar og Ármann. Ármann vann hjer einnig, á góðum mjaðmahnykk, eftir stutta viðureign. Ármann J. Lárusson vann því Ármannsskjöldinn að þessu sinni. Annar varð Sigurjón Guð- mundsson og þriðji Rúnar Guð- mundsson, sem vann fegurðar- verðlaunin, og var hann vel að þeim kominn. Fyrsta sundmót ársins næstkom- andi (imtudag FYRSTA sundmót ársins, sam- úginlegt sundmót Ármanns og Egis, fer fram í Sundhöllinni fimmtudaginn 9_ þ.m. í 300 m. skriðsundi karla •?ru 8 keppendur, meðal þeirra eru Ari Guðmundsson, Æ, og Ólafur Diðriksson, Á. Einnig bróðir Ólafs, Theodór. í þessu sundi er keppt um bikar. Hand hafi hans nú er Ólafur Dið- "iksson. í 100 m. bringusundi karla °ru 11 keppendur. Meðal þeirra eru Sigurður Jónsson, KR, og( Atli Steinarsson, ÍR, og má búast við harðri keppni á milli beirra. Einnig keppa tveir þektir utanbæjarmenn, þeir Kristján Þórisson, UMFR og Daníel Emilsson, UMFL. í 100 m. bringusundi kvenna eru 7 keppendur og þar mætast einu sinni enn þær Þórdís Árnadóttir og Anna Ólafsdótt- ir úr Ármanni. í 200 m. baksundi karla eru 5 keppendur, þar á meðal er Hörður Jóhannesson, sem synd ir nú 200 m baksund í fyrsta sinn, en menn muna hann ef- laust frá því í fyrra, er hann kom á óvart á meistaramótinu og setti metið í 400 m. bak- sundi. í þessu sundi keppir einnig Rúnar Hjartarson, Á. í 50 m. skriðsundi kvenna eru keppendur 4, meðal þeirra íslandsmethafinn Kolbrún Ól- afsdóttir, Á. í 4x50 m. skriðsundi karla má búast við skemmtilegri kepphi, þar sem A-sveitir fje- laganna eru taldar mjög jafn- ar, en 'alls keppa 6 sveitir í sundinu. Auk þess er keppt í 3x50 m. þrísundi kvenna og drengja, 100 m. baksundi drengja, 50 m. bringusundi drengja og 50 m. skriðsundi 'drengja, en þar eigast við m.a_ hinir ungu og bráðefnilegu drengir, Pjetur Kristjánsson, Á, og Þórir Ar- inbjarnarson, Æ. | Kjólföt I : s i til sölu i Sigtúni 23 (kjallara). f | { iiiiiiiiMimmiiiiiiraniiNifmHitMiMimHiNiHnniniim <iiiiliiiiiiiiiiiinriitiii«itHMIll«iiiiiiiiliilimililllllllllllll» HÖGNI JÓNSSON málflutningsskrifstofa Tjarnargötu 10 A. Sími 7739. aimiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiii,,,*ii,,,,i*,,i,,i*i' Nýja Sendibílastöðin Aðalstræti 16. — Sími 1393. SAFNRIT þetta var tiu ár að koma út, frá 1938 til 1948. — Áður höfðu ljóð Stephans, „Andvökur“ komið út í sex bindum, en úrval í einu bindi, gefið út af dr. Sigurði Nordal, birtist 1939. Nú mun í ráði að endurprenta „Andvökur“ og er það vel, því þær eru í of fárra eign. Flestir Islendingar vita nú orðið nokkur deili á þessu stór skáldi, er dvaldi mestan hluta starfsæfi sinnar vestan hafs og orkti þar, í hjáverkum og við vinnu sína þau kvæði, er tryggðu honum um aldur sæti í röð mestu skálda föðurlands síns. Hann fæddist árið 1853, 3. október, á koti einu í Skaga- firði. Hann var kominn af góðu og greindu fólki í báðar ættir, en foreldrar hans voru fátækir. Þegar hann var sextán ,ára að aldri, brugðu þau búi og fóru í vinnumennsku. Nokkru síðar fór hann til Vesturheims, (árið 1873) og stundaði þar daglaunavinnu fyrsta árið. Síð- an nam hann land, fyrst í Wis- consin ,þá í Norður-Dakóta, en síðast í Alberta í Canada, rjett hjá Markervilli. Þar bjó hann síðan, það sem eftir yar æfinnar_ Talið er að hann hafi lítillar kennslu notið í æsku, en lærði þó snemma að lesa og skrifa og las mikið. Nokkurrar ensku kunnáttu mun hann og hafa aflað sjer, áður en hann lagði á hafið. Ungur byrjaði hann að yrkja og eru elstu vísur hans, sem prentaðar eru í ,,Andvökum“ gerðar þá hann var aðeins fjórtán—fimmtán ára. Nokkr- um árum eftir að vestur kom, tók hann að birta kvæði í ís- lensku blöðunum fyrir vestan. En árið 1894 kom fyrsta ljóða- bókin hans út: „Úti á víða- vangi“. Síðan komu: „Á ferð og f lugi“, Reykjavík 1900; „Andvökur“, I—III, Rvík 1909 —1910; „Kolbeinslag“, Winni- peg 1914; „Heimleiðis“, Rvík 1917; „Vígslóði“, Rvík 1920; „Andvökur“, IV—V, Winnipeg 1923; „Andvökur“, VI, Rvík 1938. Árið 1938 hóf Þjóðvinafje- lagið að gefa út brjef Stephans og ritgerðir. En dr. Rögnvaldur Pjetursson hafði safnað þeim og varðveitt flest það annað, er í þessu safnriti birtist. Var það samkvæmt ós'- Stephans sjálfs, því hann arfleiddi dr. Rögnvald að öllum ritum sín- um og fal honum að ráðstafa þeim á þann hátt er honum sýndist best. Nú er útgáfu þessari lokið fyrir nokkru og er hún í fjór- um stórun^ bindum. Þrjú þau fyrstu eru brjef frá árunum 1889 til 1927, en fjórða bindið nefnist: „Umhleypingar*^ Er því skipt í fjóra kafla. Hinn fyrsti nefnist: „Hripað í hjá-, verkum“, og birtast þar ýms skáldverk Stephans í óbundnu máli, sem lítt voru kunn áður. Annar kafli hefur inni að halda endurminningar skáldsins o. fl. — Þriðji kaflinn nefnist ádrep* ur og erindi, en þar er margt tínt til, svo sem tækifærisræð- ur, fyrirlestrar, ávörp, ritgerð- ir, frjettaþættir, ritdómar o.s. frv. — Fjórði kaflinn inniheld- - ur aðallega ádeilugreinar höf. Eins og gefur að skilja er. efni þessara ritsafns svo fjöl-' þætt og margbrotið, að engin leið er að gera því gagnleg skil í stuttri blaðagrein! Um það mætti rita margar og stórar bækur, — enda verður það vafalaust gert. Skálið og mað- urinn Síephan G. Stephansson' er svo furðulegt fyrirbæri í lífi þjóðarinnar, — líf hans og starf svo stórmerkur þáttur, bæði í bókmenntum hennar og menningarsögu, — að æfi hans og þróun mun verða framtíð- inni mikið rannsóknarefni. Því verður naumast fullþakkað þeim, er bjargað hafa í tíma þessu mikla safni frá glötun. Útkoma bókar þessarar hefur enn ekki vakið þá athygli sem skyldi, en verkið á fyrir sjer langt líf og mun verða lesið af ókomnum kynslóðum_ Skáldskapur Stephans er svo mikill að vöxtum og gæðum, að hann einn myndi þykja stór merkt æfistarf, þó ekki kæmi fleira til. En Stephan var bóndi mestan hluta æfi sinnar og enginn smákarl á þeim vett vangi. Oftast mun hann hafa unnið sleitulaust frá birtingu til sólarlags, á búgarði sínum, og var þá ekki annar tími til skáldskapar, bókalesturs og brjefaskrifta, en sá, er tekinn varð af þeim stundum, er venjulegir menn verja til hvíld ar og svefns. Þrekmaður fá- gætur hefur hann vafalaust verið og heilsugóður. En hvern ig sem á er litið, sæta afköst hans undrun — og gleggri sönnun um ágæti þeirrar menn ingar, sem hann var runninn úr, mun vandfundið. Auk alls annars, hefur hann svo skrifast á við fjölda fólks, vestan hafs og austan — og ekki kastað höndunum til þeirra brjefaskrifta. Meginið af þeim er nú komið á prent í safni þessu og er stórkostlegur fengur í því fyrir íslenskar bók menntir. Þau lýsa miklum og fágætum persónuleika, heil- brygðum og heilsteyptum manni, sem margt hefur reynt og marga hildi háð, en vaxið við hverja þraut. Mörg þeirra eru bráðskemmtileg aflestrar, en einkum girnileg til fróð- leiks um ýmsa þá hluti, sem örðugt er að kynnast á anrian hátt. Menningarsögulegt gildi þeirra verður ekki of hátt met ið. Og það ætti að Vera sjálf- sagður þáttur í ménntun hv.ers íslendings að lesa þau. VIIIIIIIII,,llllllll,IMI,,,,tlllll,IMIII*,ll,llllll,,llll,,,,,,,,W LJÓSMYNDASTOFA Emu & Eiríkt er < Tnarólfeonóteki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.