Morgunblaðið - 07.02.1950, Side 1
16 síður
8'/, árgangur
31. tbl. — Þriðjudagur 7. febrúar 1930.
PrentsmiSja MorgunblaSsins
Sænskir sjómenn eru
ekki óhultir í Póllnndi
Ráðstafanir gerðar tii að
sverta minningu Benesar
Reglur sellsr í öryggisskyni.
STOKKHÓLMI, 6. febrúar: — Það ber ósjaldan við, að sænskir
sjómenn sjeu handteknir, er þeir koma í pólskar hafnir. Eru
örlög fanganna ýmiskonar. Sumir sleppa eftir skamma raun,
en aðrir sitja í fengelsum vikum saman áður en þeim er sleppt
úr haldinu. Andmæli sænskra yfirvalda hafa oft og tíðum eng-
an árangur borið, og telja sjómennirnir sig grátt leikna
Vegna þessa hefir sænska ut-
anríkisráðuneytið gefið út reglu
gerð, sem á að vera sænskum
sjómönnum, er sigla til hafna
í ,,alþýðulýðveldunum“, til eftir
breytni.
Nýjar reglur
Sjómönnunum er gert að
virða þau rjettarákvæði, sem
gilda í viðkomandi landi. Þeir
mega ekki fara í land án sjer-
staks leyfis, og eiga þá að hafa
með sjer öll skilríki, sem skylt
er að sýna, er þess er krafist.
Þeir mega ekki kaupa gjaldeyri
nemá á opinberum markaði og
ekki versla neitt. Ekki má
hleypa útlendingum um borð.
Egyptsks bofnvörpungs
saknað
ALEXANDRIA, 6. febrúar. —
Egypskar flugvjelar og strand-
gæsluskip hafa nú hætt leit að
togaranum Viktoria, sem leitað
hefir verið seinasta dægur. —
Týndist togarinn á austanverðu
Miðjarðarhafi með 12 manna
áhöfn. — Reuter.
<í>-------------------------
Nú er Robineau
orðinn nógu meyr
STETTIN 6. febr. —J dag hóf-
ust hjer rjettarhöld yfir sendi-
ráðsmanninum franska, Andre
Robineau, sem tekinn var fast-
ur í Póllandi í nóvember. Sagði
Robineau, að hann hefði veitt
forystu njósnafjelagsskap í Pól
landi fyrir frönsku upplýsinga-
þjónustuna. Viðurkenndi hann,
að hann hefði reynt að afla upp
lýsinga um hafnir, flugvelli og
herfylki svo og um hernaðar-
og þjóðfjelagsmál. Á morgun
(þriðjudag) verða þeir, sem
handteknir voru um sama leyti
og Robineau, yfirheyrðir. Er
þar um að ræða franskan raf-
virkja og 4 Pólverja.
— Reuter.
Verkfallið breiðist út.
NEW YORK, 6. febr. — Verkfall
námumanna í Bandaríkjunum
breiðist nú mjög út, og hefir Tru
man afráðið að grípa til neyðar-
ráðstafana.
Ætla kommúnistar að
taka Berlín herskildi?
Einkaskeyti til Mbl. frá Reutcr.
BERLÍN, 6. febrúar: — Frá því er skýrt í dag, að sjerstök
nefnd kommúnista hafi verið sett á laggirnar til að skipuleggja
„töku“ V.-Berlínar í október, er kosningar eiga að fara fram
í A.-Berlín. Kom nefnd þessi saman til fundar í bækistöðvum
éiningarflokks sósíalista (kommúnista), í Berlín í dag.
Nær hámarki á hvítasunnu
. Nefnd þessi mun hafa ráðið
af, að baráttan fyrir því að vest
urhluti borgarinnar vérði sam-
einaður austurhlutanum, skuli
pá hámarki á hvítasunnudag,
hinn 28. maí. Er svo ráð fyrir
gert, að þá skuli hálf milljón
manna úr æskulýðsfjelagsskap,
sem kommúnistar ráða yfir,
ganga kröfugöngu gegnum borg
ina.
Aukin í 30.000
Þegar þessir atburðir gerast
mun lögregla Austur-Berlínar
hafa verið aukin úr 12,000 i
30 000. Þetta lögreglulið á að
vera reiðubúið að fara inn í V.-
Berlín til að „vernda“ æskuna
á göngu hennar, ef nauðsyn
krefur.
Óráðið enn
Starfsmenn Vesturveldanna
í Berlín hafa vakandi auga
með þessum málum. Telja ýms
ir þeirra ólíklegt, að kommún-
istar hafi gert endanlega áætl-
un um atburði hvítasunnunn-
ar. Þeir telja, að úr því verði
ekki skorið fyrr en seint í maí,
hvort gangan um Berlín eigi að
bera á sjer friðarsvip eða reynt
verði að ,,taka“ borgina, með
valdi. Þetta verður komið und-
ir aðstæðum í Þýskalandi svo
og í alþjóðamálum, þegar þar
að kemur.
Thordi Smith kosinn
íormaður Blaða-
mannafjelagsins
AÐALFUNDUR Blaðamanna-
fjelags Islands var haldinn s. 1.
sunnudag. F.áfarandi formað-
ur, Helgi Sæmundsson, skýrði
frá starfsemi fjelagsins s. 1. ár,
en hún hefir einkum beinst að
ýmsum hagsmunamálum blaða
manna.
Thorolf Smith
Þá skeði það á sta /fsárinu, að
Blaðamannafjelagið fór að
dæmi bluðamannafjelaganna á
hinum Norðurlönaunum og
sagði sig úr Alþjóðablaða-
mannasambar.dinu, sem er að
gliðna í sundur, en fjelagið er
áfram í Norræna blaðamanna-
sambandiiiu. Fultrúar íslands
hjá því eru Valtýr Stefánsson,
Bjarni Guðmundsson og Jón
Magnússon. Verður næsta þing
þess haldið í Osló á þessu ári.
Sigurðui Bjarnason, formað-
ur stjórnar Menningarsjóðs
blaðamanna. skýrði frá störf-
um sjóðsins s.l. ár, og hafa
þau aldrei verið meiri en nú.
Hagur sjóðsins batnaði einnig
á árinu, en reikningar hans, á-
samt reikningum f jelagsins,
verða lagðir fyrir framhalds-
aðalfund.
Formaður Blaðamannafjelags-
ins var kosinn Thorolf Smith,
en aðrir í stjórn: Gisli J. Ást-
þórsson, Guðni Þórðarson, Jón
Bjarnason og Ingólfur Kristj-
ánsson.
Stjórn Menningarsjóðsins
var enduikosin, en hana skipa:
Sigurður Bjarpason, Hendrik
Ottósson og Jón H. Guðmunds-
son.
V arúðarráðstöf un
slökkviliðsstjórans.
DORDRECHT, HOLLANDI. —
Slökkviliðsstjórinn hjerna hefur
beðið alla símeigendur, að koma
fyrir sjerstöku merki utan húss,
svo að sjeð verði, hvaðan hægt
er að gera slökkviliðinu viðvart.
Lriklegt að nánustu fylg-
ismenn hans verði sak-
aðir um samsæri
Einkaskeyti til Mbl. frá Reutcr.
PRAG, 6. febrúar: — Þær frjettir komust á kreik í Prag í kvöld,
að tjekkneska stjórnin ætlaði mjög bráðlega að stefna fyrir
rjett miklum fjölda þeirra manna, sem voru nánastir fylgis-
menn Benesar heitins forseta. Mun þeim verða gefið að sök
að hafa í hyggju að steypa af stóli núverandi stjórn landsins.
Frjettin segir, að markmið þessara rjettarhalda verði það, að
koma bletti á minningu hins ástsæla forseta
Þessar ískyggilegu frjettir*...................................
eru ekki staðfestar, en koma ist á henni skrá yfir menn, sem
frá mönnum, sem hafa aðstöðu ættu að verða ráðherrar, þegar
til að vita satt og rjett um þessi núverandi stjórn hefði verið
m2l- komið á knje.
Fyrrum flokksmenn
Benéíiar
í frjettinni segir, að þeir, sem
stefnt verður fyrir rjett, sjeu
allir fyrrverandi fjelagar úr
flokki þjóðernisjafnaðarmanna
á þingi, en Benes forseti var
leiðtogi þess flokks, þar til
hann varð forseti 1935, og hætti
öllum afskiptum af flokkastarf-
semi í landinu. Helgaði hann
sig upp frá því þjóð sinni án til-
lits til, hver með völdin fór.
Yfirbugaður eftir
stjórnlagarofið
Kommúnistar bældu flokk
þenna niður eftir stjórnlaga-
rofið í febrúar 1948.
Skrá yfir ,,svikarana“
í hópi sakborninganna verða
Josef David fyrrum þingfor-
seti og nokkrar konur, sem áð-
ur áttu sæti á þingi, þar á með-
al Milada Horakova.
Heimildarmenn frjettarinnar
segja, að saksóknarinn muni
bera henni á brýn, að þegar hún
hafi verið handtekin, hafi fund
Margir handteknir
Ekki verður með sanni sagt,
hve margir verða kallaðir fyr-
ir rjett í þessu sambandi, en áð-
ur hafði verið frá því skýrt, að
15 háttsettir fjelagar þjóð-
ernissinnaflokksins að minnsta
kosti hafi verið teknir hönd-
um. Sumir þeirra voru ritarar
Benesar.
Blöðunum geflnn
laus tawnurínn
ASMARA. 6. febrúar. — Bresku
yfirvöldin í Eritreu hafa nú af-
numið þær hömlur, sem í des-
ember s.l. voru settar á útgáfu
blaða í landinu. Var beim bann-
að að birta nokkuð það, sem til
þess væri fallið að spilla lög-
um og góðri reglu. Eins og
menn mun reka minni til, þá
bar nokkuð á ókyrð í landinu
um þær mundir, sem bann
þetta var sett k.
— Reuter.
Frost og snjóar vió
austanvert IMiðjarðarhaf
HAIFA, 6. febr. — Snjór og
ís hefir nú um helgina vald-
ið tjóni á glóaldinuppsker-
unni í ísrael, svo að nemur
milljónum sterlingspunda. Á
hálendi varð snjórinn þriggja
feta djúpur og í Haifa varð
hann eitt fet á dýpt. Allar
samgöngur fjellu niður og
lamaðist allt athafnalíf borg-
arinnar. Skip bíða tugum
saman úti fyrir höfninni, þar
sem innsiglingin er ófær sök
um brims. Höfnin í Alex-
andríu var einnig lokuð í
dag.
í ísrael, þar sem þúsund-
ir flóttamanna búa í tjöld-
um, hafa að minsta kosti 4
manns látið lífið. Frost er
víða á þessum slóðum, og er
þetta einhver mesta harð-
indahrota, sem rioið hefir
yfir löndin f.vrir botni Mið-
jarðarhafsins í manna minn-
um.