Morgunblaðið - 07.02.1950, Page 6
MORGVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 7. febrúar 1950.
: *6
Brfef:
Hvert stefnir Tíminn ?
koskinn bóndi úr Rangár-
I
þingi skrifar:
Sú var tíðin, að við bænd-
ur, jafnvel hvar sem við stóð-
um í flokki, litum á Tímann
sem bændablað fyrst og fremst
énda þótt við sumir hverjir feld
um okkur hvorki við stefnu
hans, nje málflutning. Meðan
þeir skrifuðu í hann að stað-
aldri, Sigurður búnaðarmála-
stjóri, Jón Árnason, Árni Ey-
lahds, Tryggvi Þórhallsson og
fléiri mætir menn, kom
várla svo út blað af Tíman-
um, að ekki væri meira eða
minna um sjermál okkar og á-
hugaefni. Nú er þetta mjög
breytt. Nú líða stundum vikur,
án þess að minnst sje á nokk-
urt mál eða atriði, sem sveita-
fólk hefir áhuga fyrir, eða snert
ir- líf þess og baráttu, nema
helst nokkrar dánarminningar.
Sjaldan hefir þetta fyrir-
brigði þó verið jafn áberandi og
síðan leið á liðið ár og kosning-
ar nálguðust. Áreiðanlega vakti
það furðu. margra hjer um slóð
i'r, jafnt Framsóknarmanna,
sem annarra, hvernig Tíminn
hagaði sjer í Alþingiskosning-
unum í haust. Þegar kosningin
í Strandasýslu er undanskilin,
var varla hægt að segja, að
blaðið minntist á kosningu í
öðrum kjördæmum en Reykja-
vík. Áður tíðkaðist það mjög
hjá þessu blsði, að skrifa um
málefni hjeraðanna, um fram-
bjóðendur flokksins, kynna þá
sem komu nýir og vekja á þeim
athygli. Minnist jeg þess enn,
þegar verið var að vinna þeim
fylgi hjer í sýslu Helga og Svein
birni og reyndar líka Klemensi
Jónssyni á sínum tíma, að þá
var talið, að skrif Tímans um,
þá, og málefni hjeraðsins, hefðu
haft úrslitaþýðingu. Hið sama
hef jeg heyrt úr Skagafirði,
Barðastrandarsýslu og víðar.
En svo að jeg hverfi aftur að
kosningunum í haust, þá þótti á
reiðanlega öllum lesendum
blaðsins utan Reykjavíkur
meira en nóg um, hve einhliða
blaðið var undirlagt af áróðri
fyrir stúlkunni, sem þar var í
boði, þó að fyrst kastaði tólf-
unum, er farið var að senda út
um alla landsbyggðina, blöðin
með rauðu klessunum, þar sem
heilar síður voru lítt læsilegar
vegna upphrópana, sem prent-
aðar voru yfir lesmálið með
rauðu risaletri, þar sem skorað
var á alla lesendur, að kjósa ein
hverja Rannveigu. Jeg er nú
fáfróður um prentun blaða, en
einhvern veginn finnst mjer, að
þó að mennina langaði til að
sýna Reykvíkingum þetta rauða
letur og hjeldu að það hefði ein
hverja þýðingu þar, þá hefði
mátt fella það niður af þeim
meginhluta upplagsins, sem fer
út um land, en láta það aðeins
koma á þessum tólf eða fimmtán
hundruðum blaðsins, sem þeir
koma inn á Reykvíkinga. Þetta,
þótt smátt sýnist, hef jeg orð-
ið var við, að mörgum fram-
sóknarmönnum í minni sveit
þótti dæmalaus smekkleysa og
voru argir yfir. Og þegar svo
þar við bættist, að blaðið ljet
eins og okkar sýsla, og svo marg
ar aðrar, væru ekki til, þá get-
um við ekki allir orða bundist.
Þetta sama hefir endurtekið
sig núna í ný afstaðnum bæj-
arstjórnarkosníngum. Jeg var
að fá Tíman til janúarloka og
við það að líta yfir hann, verð-
ur varla sagt, að hann hafi síð-
an fyrir jól minnst á annað en
kosningarnar í Reykjavík. Þó
voru jafnframt í undirbúningi
kosningar í fleiri tugum staða
úti um land, sem flokkur blaðs
ins tók þátt í, en á málefni
þeirra staða lætur þetta „blað
dreifbýlL>ins“, eins og það nafn
ir sig stundum, ekki svo lítið
að minnast.
Jeg og fleiri hjer um slóðir
höfum nú verið að velta því fyr
ir okkur, hvernig standi á þess-
ari miklu breytingu, sem orð-
in er á nefndu blaði og nágranni
minn, framsóknarmaður, sem
talaði við mig í gær, held jeg að
hafi komið með rjetta skýringu.
Hann sagði á þessa leið: Jeg
þekki þá nú flesta þarna við
Tímann og þetta eru ekkert ver
gefnir drengir en gerist, þó að
enginn þeirra beri neitt af. En
það er annað verra: Enginn
þeirra á neitt áhugamál, nema
ef telja skyldi, að Halldór Kristj
ánsson er á móti brennivíni. —
Þeir eru nánast aktaskrifarar.
Þegar flokksforustan segir:
skrifið þið um þetta, eða hitt,
þá geta þeir gert það skamm-
lítið, en allt er það máttlaust
og án sannfæringar-krafts, af
því að neistann vantar. Og svo
er botninn dottinn úr öllu næsta
dag, af því málefna áhuginn er
ekki til. Þegar svo líður að
kosningum, sigar flokksforustan
þessum þjónustumönnum sín-
um eins og rökkum, eða spýtir
í þá eins og þar til gerð ílát,
því sem þeim er ætlað að segja
og skrifa. Er þá stundum lagt
fyrir þá eitt í dag og annað á
morgun ,eftir því hvor armur
flokksins gerir sig gildandi
þann og þann daginn.
Þetta var í stuttu máli skýr-
ing nágranna míns, sem virtist
þekkja heimilsástæður á Tíma-
bænum allvel og hafa nokkrar
áhyggjur af vinum síhum þar.
Og þegar maður hugleiðír orð
hans og ber saman við það, sem
lesa má út úr blaðinu, sjer mað-
ur, að þetta hlýtur að vera
rjett athugað hjá honum.
En hvar lendir það þlað, sem
svona er á vegi statt?: Það er
hætt að vera bændablað. Það
er heldur ekki neitt fyrir þorp-
in úti á landi. Og aldar þriðj-
ungs reynsla sýnir að ekki sinn
ir það málum Reykjavíkur,
nema þá til óþurftar og aðeins
í skyndi-upphlaupum fyrir
kosningar. Er nú að undra, þótt
spurt sje, af mörgum, til hvers
er verið að senda okkur úti
á landsbygðinni um 200 síð-
ur á mánuði af svona fram-
leiðslu. Jeg er áreiðanlega ekki
einn um þá skoðun hjer í sveit,
að það sje nánast móðgun við
sveitafólkið, að senda því í þús-
undum eintaka blöð eins og þau
með rauðu klessunum bæði í
haust og nú aftur í janúar, þeg-
ar alt snerist um einhverja
hjúkrunarkonu, sem sagðist
vilja byggja spítala í Reykja-
vík. Og heldur fannst okkur lít-
ið til um allar braggamyndirn-
ar, sem blaðið var fullt af dag
eftir dag.
En þó að jeg hafi ekki getað
stillt mig um að benda á þetta
fyrirbrigði. sem hjer var um
rætt, er mjer vitanlega ósárt
um, þó að blaðtetrið standi sig
sem hraklegast. Því meiri sem
niðurlæging Tímans verður og
því lengur sem hún varir, hljóta
augu fleiri manna að oþnast
fyrir því, að úr þeirri átt er
einskis gagnlegs stuðnings að
vænta við góð málefni.
Ekkja Syeinfajamar
Sveinbjörnsson
áitræð í dag
FRÚ Eleanora Sveinbjörns-
son, ekkja Sveinbjarnar Svein-
björnsson tónskálds. á áttræðis-
afmæli í dag. Hún er nú til
heimilis hjá börnum sínum í
Alberta í Kanada. Þar hefur
hún verið búsett frá því stuttu
eftir að maður hennar dó, 1927.
Um tvítugsaldur giftist hún
Sveinbimi Sveinbjörnsson. —
Hann var þá búsettur í Edin-
borg, og lengi síðan Þau fluttu
hingað tiU Reykjavíkur árið
1921 og voru hjer búsett um
þriggja áia skeið. En síðustu
æviár hans voru þau í Kaup-
mannahöfn.
Frú Sveinbjörnsson er prests
dóttir frá Edinborg. Hún er fjöl
mentuð kona. Hún var manni
sínum alla tíða stoð og stytta
og var hjónaband þeirra hið
besta.
Utanáskrift hennar er nú, 514
First Street Avenua, West-
Calgeri, Alberta Canada.
Nehru vísar ásökun-
um Pakislan á faug
NÝJU DEHLI, 6 febr. — Nehru
forsætisráðherra Indlands, hef-
ur vikið að þeim fullyrðingum
Pakistanmanna, að Indverjar
hygðu á styrjöld til að útkljá
Kashmirdeiluna. Sagði ráð-
herrann, að allur hernaðarund-
irhúningur. sem fram fáeri í
landinu,' væri aðeins í varnar-
skyni. Hinsvegar kæmi ekki til
greina, að Indland útkljáði
nokkra deilu með vopvnavaldi. .
—Reuter.
ivígméf K. R.:
Ásgeir Eyjélfsson
fyrstur í A-flokki og
Inglbjörg Árnadóílir
í A-flokki kverma
SVIGMÓT KR fór fram í
Hamragili við Kolviðarhól s. 1.
sunudag. Þetta er fyrsta skíða-
mót, sem haldið er hjer sunn-
an lands á þessum vetri. Þátt-
takendur voru rúmlega 70 frá
fjórum íþróttafjelögum.
Mót þetta var haldið til minn
ingar um. Stefán heit Gísla-
son, sem var ötull forvígismað-
ur og fyrsti formaður Skíða-
deildar KR.
Helstu úrslit urðu sem hjer
greinir:
A-flokkur:
1. Ásgeir Eyjólfsson, Á, 113,0
2. Þórir Jónsson, KR 113,5
3. Víðis Finnbogason, Á 127,6
B-flokkur:
1. Óskar Guðmundss., KR 108,8
2. Kristinn Evjóifsson, Á 114,6
3. Bjarni Einarsson, Á 115,9
C-flokkur:
1. Kristinn Magnússon, KR 77,6
2. Gísli Jóhannsson, Á 79,2
3. Steinþór Guðmundss.,KR 83,0
4. Úlfar Skæringsson, KR 89,6
Drengjaflokkur:
1. Pjetur Antonsson, Val 47,6
2. Sæmundur Ingólfsson, Á 65,5
3. Snorri Welding, Á 79,4
A-flokkur kvenna:
7. Ingibjörg Árnadóttir, Á 67,7
2. Sólveig Jónsdóttir, Á 76,4
3. Sesselja Guðmundsd. Á 105,9
B-flokkur kvenna:
1. Unnur Sigþórsd . Á 93,4
2. Ólína Jónsdóttir, KR 99,3
3. Stella Hákonard , KR 105,9
C-flokkur kvenna:
1. Þórunn Björgúlfsd. KR 51,4
2. Ásthildur Eyjólfsd. Á 54,7
3. Þuríður Ái’nadóttir, Á 58,4
Landsliði Finna
í handknattleik
boðið hingað!
ÁRSÞING handknattleiks-
manna í Reykjavík var haldið
s.l. sunnudag. Á þinginu var
mikið rætt um væntanlega ut-
anför handknattleiksmannanna.
Samþykkt var að styrkja för-
ina með 10 þús. króna fram-
lagi.
í ráði er að fá lendJið Finna
hingað næsta sumar. Var al-
mennur áhugi um þetta á þing-
inu og samþykkt að mæla með
því við ÍSÍ, að Ármanni yrði
leyft að sjá um móttökur liðs-
ins.
Rætt var um það að skipta
fjelögunum í deildir eftir getu,
þannig að sex yrðu í 1. deild.
Besta II. deildar liðið færist
svo upp í I_ deild og lakasta I.-
deildar-liðið niður í II. deild.
Einnig var rætt um nauð-
syn þess að endurskoða almenn
ar reglur ÍSÍ um handknatt-
leiksmót og starfreglur HKRR.
Hafsteinn Guðmundsson var
leiksmót og starfsreglur HKRR.
en aðrir í stjórn voru kosnir: i
Haukur Bjarnason, Ármanni,
Jón Björnsson, ÍR, Hilmar Ól-
afsson, Fram, Axel Einarsson,
Víking, Valur Benediktssön, •
Val og Frímann Gunnlaugsson,
K.R.
Slórhríðarmólið
1950, Akureyri
AKUREYRI 6. febrúar. — Frá
stórhríðarmótinu 1950. — Svig-
keppni karla fór fram í Vaðla-
heiði, ofan Fífilgerðis. Úrslit
í A-fl. urðu þessi: 1. Magnús
Brynjólfsson, KA, á 106,5 sek.,
2. Birgir Sigurðsson, Þór, á
109,2 sek. — í B-fl. urðu úrslit
þessi: 1. Hermann Hermanns-
son, Þór, á 109,6 sek., 2. Berg-
^ur Eiríksson, KA, á 118,7 sek.
3. Flosi Ólafsson, MA á 142,8
sek. Úrslit í C-flokki urðu:
1. Sigtryggur Sigtryggsson, KA,
á 64,2 sek., 2. Freyr Gestsson,
KA, á 76,7 sek., 3. Guðmund-
ur Guðmundsson, KA, á 79,8
sek. Færi var mjög hart, en veð
ur ákjósanlegt. Áhorfendur
voru allmargir.
SÍÐASTLIÐINN surinudag fór
fram keppni í ,,bowling“ hjer
í Reykjavík. Var þetta tví-
mennings-flokkakeppni og voru
sveitirnar átta.
Fyrstu verðlaun hlutu Jó-
hann Eyjólfsson og Vagn Jó-
hannsson. Höfðu þeir 1507 stig_
Aðrir í röðinni voru Guðni
Jónsson og Sverrir Guðmunds-
son með 1499 stig. Þriðji urðu
Robert Gibbons og Elwer Jesse.
Á hverjum föstudegi fer ann
ars fram keppni í „bowling“-
skálanum, sem nú hefir verið
endurbættur og lagfærður. Er.
öllum þá heímil þátttaka.
Loftárás þjóðernis-
sinna á Shanghai
LONDON,, 6. febrúar. — í dag
gerðu 14 sprengjuflugvjelar
kínverskra þjóðernissinna loft-
árásir á Shanghai. Að sögn þjóð
ernissinnanna ollu þær spjöll-
um í borginni. Sluppu þær all-
ar óskaddaðar til Formósu,
enda þótt að þeim væri veitst
með harðri loftvarnaskothríð.
—Reuter.
Arabar vilja ekki skiffa
Jerúsaiem
GENF, 6. febrúar. — Fulltrúi
íraqs í verndargæslunefnd SÞ
lýsti því yfir í dag, að Araba-
ríkin. geti ekki sætt sig við. að
Jerúsalem yrði skipt í 3 svæði.
— NTB