Morgunblaðið - 06.04.1950, Side 1

Morgunblaðið - 06.04.1950, Side 1
16 síður og Lesbók 37. árgangut 80. tbl. — Fimmtudagur 6. apríl 1950. Prentsmiðja Morgunblaðsins Bandaríkin fækka starfs- liði sínu í hjáríkjunum Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. WASHINGTON, 5. apríl. — Acheson, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, skýrði frá því í dag, að utanríkisráðuneytið hefði nú til athugunar að fækka vefulega starfsliði utanríkisþjónustunn- ar í hjáríkjum Rússa í A-Evrópu. Ástæðan er sú, að starfslið- inu er nú gert erfiðara um vik, svo að það fær vart unnið störf sín óáreitt. Sagði ráðherrann, að ráðu-1^ neytið athugaði nú viðhorfið í hverju þessara landa um sig, til að geta svo hagað gangi sínum eftir þeim niðurstöðum, er fengjust. Fækkun starfsliðsins. Var hann spurður að því, hvað væri hæft í þeim frjett- um, að starfsliði Bandaríkjanna ) í Búkarest og Búda-Pest yrði fækkað um helming fyrir 1. júní og lagt hefði verið fyrir sendiráðin í Prag og Varsjá, að fækka starfsfólkinu sem verða mætti. Ráðherrann vjekst und- an að svara þessum spurning- um. t j Rússar standa að baki. Þá var ráðherrann spurður, hvort hann teldi, að Rússar ætluðu að neyða Bandaríkja- menn til að verða á brott úr hjáríkjunum. Svaraði ráðherr- ann því til, að Rússar vildu að minnsta kosti orna Banda- ríkjamönnum undir uggum. Skömmfunarvörur LONDON, 5. apríl: — Webb, matvælaráðherra Breta, skýrði frá því í dag, að verð mundi hækka nokkuð á tveimur vörú- tegundum, sem skammtaðir eru- Það eru smjör ’ög flesk. Tito dansar við „hæstviria kjósendur“ „Kosningunum“, sem nýlokið er í Júgóslavíu, lauk á sama hátt og öðrum „kosningum“ ausí- pn Járntjalds. Flokkur einræðislierrans lilaut mer öll atkvæðin — enda sá eini, sem fjekk að þafa menn í framboði. Hjer er mynd af Tító, tekin skömmu fyrir kjördag. Hann er að dansa við „hæstvirta kjósendur“. Nauðungarvinna í Rúss- landi er alvarlegt mdl □--------------------Q kemur nú ekki út í fimm daga. Næsti útkomudagur þess er á miðvikudag. — Lesbók fylgir blaðinu í dag. af „Þrælarnir“ inna hendi margvísleg Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. WASHINGTON, 5. apríl. — Það er engum vafa undirorpið, að milljónir verkamanna í Sovjetríkjunum verða að leysa af hendi nauðungarvinnu. Þetta eru menn, sem af einhverjum ástæð- um finna ekki náð fyrir augum valdhafanna í Moskvu. Þessir menn eru fullkomlega þrælkaðir. Verða þeir að irvia af hendi. allskonar námugröft og aðra vinnu, sem erfiðust þykir og háskasamlegust. Einn úr hópi dæmdrn Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. PÁFAGARÐI, 5. apríl: — Blað ið í Páfagarði, Osservatore, skýr ir frá því í kvöld, að seinustu áreiðanlegu frjettir, sem feng- ist hafi af Mindszenty kardí- nála og líðan hans, sjeu frá móð ur hans, er heimsótti hann í fangelsið í september s. 1. Móður hans vísað, frá Rjett á eftir var kardínálinn fluttur úr fangelsinu í Guyito- foghaz, og móður hans, sem ætl aði að heimsækja hann þangað, var sagt, að hún mætti það ekki. / Leyna heilsufari kardinálans Seinna komast ýmsar fregn- ir um kardínálann á kreik. Ungversku kommúnistarnir hafa aldrei viljað segja bisk- upum landsins um heilsu hans, hafa aðeins gefið í skyn, að hún væri góð, III líðan Nú mun hinsvegar svo kom- ið, að sálarástand kardínálans er næsta bágborið, og allt bend ir til, að hann þjáist líka af illkynjuðum hjartasjúkdómi. ^Þeir þræla Taldir verða hjcr nokkrir hópar manna, sem einkum fylla flokk þessara ríkisþræla. 1. Menn, sem höfðu á hendi ábyrgðarstöður í Eystrasalts- löndunum. 2. Ýmsir fjelágar andkomm- únistaflokkanna, sósíaldemó- krata, frjálslyndra, smábænda, og menn.úr samtökum Gyðinga-, í þeim löndum, sem Rússar telja sig eiga með. 3. Iðnrekendur, kaupmenn, eigendur stórhýsa, skipaeigend- ur, menn, sem hafa verið í ut- anríkisþjónustunni og vensla- menn þeirra, sem flúið hafa úr‘ landi. Andstæðingar kommúnista Með öðrum orðum, þá lítur Framh. á bls. 12. Vinnudellan í Dan mörku er leyst Kommúnistar beita menn blekkingum og reyna að æsa tii mótmælaverkfalla Einkaskeyti til Mbl. 'KAUPMANNAHÖFN, 5. apríl. — Danskir verkamenn hafa ’nú greitt atkvæði um málamiðlunartillögu sáttasemjara ríkis- ins í vinnudeilunni. Með tillögunni voru 215,279, en 158,191 á móti. Einnig vinnuveitendurnir samþykktu tillöguna með yfir- gnæfandi meirihluta atkvæða. Þessi lausn málanna á að tryggja vinnufrið í landinu um tveggja ára skeið. <»--------‘--------------------- Moldvörpurót kommúnista. Kommúnistar gert allt, sem í| þeirra valdi stendur til að koma1 af stað mótmælaverkföllum til að ónýta sættirnar, en verður lítið ágengt. í dag.lögðu hafnar- verkamenn á nokkrum stöðum niður vinnu. Lugu kommúnistar því í verkamennina, að víðtæk verkföli hafnarverkamanna yæru hafin og töldu þá þannig ó að leggja niður vinnu.' Erindrekum Kominform skjátlast. Gerðardómur mun fá mál þeirra manna, sem lagt hafa út í mótmælaverkföllin, til með- íerðar, ef þeir hefja ekki vinnu undir eins aftur. Blaðið Sócíaldemókraten seg jr í dag, að erindrekum Komin- form í Danmörku skjöplist, ef þeir halda, að þeir geti notað sáttina til að koma af stað óróa í landinu. — Páll. Sakamál gegn Woffgang Hedler KIEL, 5. apríl: — Hinn opinberi ákærandi í Schleswig skýarði frá því í dag, að Wolfgang Hedler yrði dreginn fyrir saka- máladómstól í Schleswig hinn 26. þ. m. Hedler hefir verið vik ið af þingi, enda þótt hann hafi áður verið sýknaður af sak- aratriðum, Gyðingaofsóknum og nasisma. Hedler verður á riý ákærður fyrir að hafa haldið ræðu í sept. s. 1., sem fjand- samleg hafi verið Gyðingum. — Reuter. Bretar kaupa þurrkuð egg. LONDON — Um þessar mundir semja Bretar um kaup á 30 til 40 milljón pundum af þurrkuð- um eggjum í Bandaríkjunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.