Morgunblaðið - 13.04.1950, Qupperneq 4
4
MORGUIS'fíLAÐlfí
Fimmtudagur 13. apríl 1930
103. ilagnr ár.»lns.
Árdeí:isfl£eði 11. 3.05.
ÍMðdesisflæði k 1. 15.23.
ISætnrlækiiir er í lieknavaröítóf
unni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfs Apótek ,
simi 1 330.
\æ!;írakstur annast 'Hreyfill. slmi
6633.
C Helgafell 50504Í47: IV—V—2.
1:0.0.F. 5=132-4138’i
Afmæli
Sjötíu ára er í dag frú Guðrún
Andrjesdóttir frá Heinlu. Hún ei r*ú
búéett á Hagamel 6.
D
bók
Erúðkaup
S.l. laugarclag voru gefin saman í
Laugarneskirkju af sr. Garðari Sv.,v-
arssyní. ungfrú Guðrún Erna Sæ
n’undsdóttir og Lúðvik Jónsson. versl
unarmaður. Heimili þeirra er í Fagra
dag i Kriglumýri.
I.augardaginn fyrir páska voru gef-
in • saman i hjónaband af sr. Jótn
Thorarensen. ungfrú Þórhildur Sig-
urðardóttir. hárgreiðslumíer og Frið
rik Bjömsson. rafvirki. Heimili ungr.
hjónanna er á Hliðarvegi 4. Kópa
vogi.
Laugardaginn fyrir páska voru gef-
in, saman í hjónaband ungfrú Ölöt
Sigurðardóttir og Þórður G. Guðiaug,
son, járnsm.. Samtúni 20. og eni.-
fremur Kristín Jóna Sigurðardóttir
og Halldór Sigurðsson. Laugaveg 158.
Laugardaginn 8. þ.m. voru gefin
saman i hjónaband af sr. Jakobi Jóns-
syni ungfrú Kristín Maria Sigþórs-
dóttir og Sigurjón Jónasson. Hehnili
ungu hjónanna er á Vatnsstíg 9.
Hjónaefni
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Gerður Guðnadóttir.
Drápuhlíð 5 og Halldór Arinbjamar,
stud. med., Míklubraut 34.
Nýlega hafa opinberað trúlofur.
sína ungfrú Jónina Steingrímsdóttir
frá Blönduósi og Þormóður Pjeturs
son, nemi, Hvanneyri.
Á páskadag cpinberuðu trúlofun
sína ungfrú Sigriður Theodóra Sæ-
mundsdóttír (Sæmundssonar kaup
manns> Njálsgötu 48 og Guðni Krist-
insson frá Skaiði á Landi.
Á páskadag opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Gróa Alexandersdóttir,
verslunarmær, Bjarnavstíg 9 og Gisli
H. Hansen. vjelamaður, Barónsstíg
57. Reykjavík.
Nýlega opinberuðu trúloíun sína
ungfrú Málfríður Jensdóttir, Nönnu-
stíg 2, Hafnarfirði og Gisli Eiriksson
fíá Seyðisfirði.
Skemmtanir í dag:
Austurbæjarbíó sýnir „Meðfli
mannæta og villidýra“ á öllum þrem
ur sýningum. Gamla bíó sýnir „Páska
skrúðgönguna“ á þiemur sýninguni
(Fred Astaire og Judy Garland i
aðalhlutverkunum). 1 Hafnaflnó eru
tvær myndir á boðstólum: „Æskuástir
(kl. 7 og 9) og „Vinimir11 (kl. 5)
Ciifton Webb leikur aðalhlutverkió
í ..Allt í þessu fína“ í Nýja bió en |
Stjöinubió sýnir kvikmyndina „Seið
mærin á Atlantis“. 1 Tjamarbió er |
..Quartett“ —• byggð á fjórum smá-
sögum éftir W. Somersét Maugham
— og í Tripolibió eru sýndar tvær
myndirí’ ,.Leðurblakan“ og ..Juiabo
og jeg“.
1 sýningarsal Ásmundar Sveins
sonar við Freyjugötu er Kollvvitz-
sýningin enn opin.
í Skátaheimilinu er Skátaskenimt
unin 1950 endurtekin og hefst kl. 8
i kvöld.
! Eldri dansarnir heíjast í Ingólfs-
café kl. 9, en i Sjálfstæðishúsina er
aðalskemmtifundur K. B.
I
Gullfoss væntanlegnr
20. maí
1 Ákveðið hefur verið. að Gullfoss,
hið nýja skip Eimskipafjelagsins fari
í reynsluferð sina á Evrarsundi 27.
þ.m.
Samdægurs verður skipið afhent
eigendunum.
] Gullfoss mun að öllu óbreytt’i
leggja af stað i heimferðina l»nn 14.
mai. Hann mun hafa tveggja daga
viðdvöld í Lcith og koma hingað til
Reykjavikur þann 20.
Trúnaðarmaður
Slysavarnafjelagsins
hefir að undanförnu verið á ferða-
lagi á Austurlandi. Þar hefir hann
heimsótt slysavamardeildimar oj.
litið eftir björgunarstöðvunum. Kvik-
, myndin „Björgunin við Látrabjarg“
i var sýnd á öllum stöðunum við mjög
góða aðsókn.
Aðalfundur
| hlutafjelagsins Breiðfirðingaheimil
ið h.f, verður haldinn i kvökl, 13
april, í Bre.ðfirðingabúð og hefst k'.
9.
Veðrið um páskana
Páskaveðrið í ár var nokkuð breyti-
legt. Á Kirdag vrar yfirleitt gott veð
ur og i.æg sunnanátt um allt lnnd
Á fösl daginn langa gekk í austan
ótt. V„r þá meira skýjað og sumstað-
ar d; itil snjókoma. Á páskadag vat
komui norðanátt, er hefir haldist sið-
an. Var þá snjókoma á Norðurlandi
og yfirleitt skýjað um allt land,
nema á Suðvesturlandi. Telja má, að
páskaveðrið hafi verið hetra á Suður
landi en fynr norðan. Á Aúst- og
Vestfjörðum var svipað veðurlag og
á Norðurlandi.
Gengisskráning
Sölugengi íslensku krónunnar er
sem hjer segir:
kr.
Heiliaráð
= Fordson
Sendiferðabíil
í góðu lagi til sölu. Model ’45
Tilboð sendist afgr. blaðsins fyr
ir föstudagskvöld merkt: ,.729“ .
Konu. sem á ágæta bújörð í
einni af fegurstu sveitum lands-
ins
vsntar
ráðsmann
frá næstu fardögum. Þeir sem
vildu taka að sjer þetta starf
leggi nöfn og heimilisfang inn
á afgr. Mbl. fyrir n.k. laugar-
dag, merkt: „Landbúnaður
1950 — 731“. *
aiimiiiiniiiiiuMniiiiiiijiiijiiinimiMMiiijiiitJiimiiiiiifi
1 £________
1 USA-dollar
100 danskar kr. -...
100 norskar kr. __
100 sænskar kr.
■ 100 finnsk mörk__
j 1000 fr. frankar
100 tékkn. kr. ___
I 100 gyllini .—...
i 100 belg. frankar
100 svissn. kr. __
1 Kanada dollar___
45,70
16,32
236,30
228.50
315.50
7,09
46.63
32.64
429,90
32,67
373,70
1%84
Söfnin
Landsbókasafnið er opið kl. 10—
12, 1—7 og 8—10 alla virka daga
nema laugardaga, þá kl. 10—12 og
1—7. — Þjóðskjalasafnið kl. 2—7
alla virka daga. — bjóðnnnjasafnið
kl. 1—3 þriðjudaga, fimmtudaga og
sunnudaga. — Listasafn Einars
Jónssonar kl. 1,30—3,30 á sunnu
dögum. — Bæjarbókasafnið kl
10—10 alla virka daga nema laugar
daga kl. 1—4. Náttúrugripasafnið
opið sunnudaga kl. 1,30—3 og þriðju
daga og fimmtudaga kl. 2—3.
Akfæri á þjóðvegum
Samkvæmt upplýsingum frá Ferða
skrifstofunni í gær var fært hjeðar,
frá Reykjavík til Sauðárkróks, en ó
Holtavörðuheiði var færðin þó þung.
Brattabrekka i Dölum var fæt og
einnig Kerlingarskarð á Snæfellsnesi.
— Allar leiðir fró Reykjavík austur
sveitir voru færar i gær.
Þunn gluggatjöld þarf ekki að
gera við með nál og enda. heldur
á þann einfalda hátt, að væta
pjötlu af efninu í stívelsisupplausn
og straua liana á gluggatjaidið með
heitu straujárni. Ef pjatlan er
klippt vandlega eftir inunstrim: og
dregið úr henni í brúnunum, er
hún hjer um bil ósýnileg.
Veiða þorsk í herpinót
Samkvæmt fregnum í síðustu blöð
um frá Noregi. ent fiskimenn við Ló
fót að gera tilraunir með, að veiða
þorsk í heipinót. Hafa Norðmenn
fiskirannsóknaskipið „G. O. Sars“ við
fiskiveiðatilraunir þessar.
Maður að nafni Grönningsæter.
forstjóri, hefur verið á veiðisvæðinu
við Lófót, og skýrir svo frá í „Möre
Dagblad“:
Þorsktorfumar finna menn með
bergmálsdýptarmæli. Og siðan er
kastað á torfumar eins og ó síldar
torfur.
Með bergmálsdýptarmælirium er
líka hægt að fylgja því eftir hvort
þorskurinn fælist nótina. Menn hafa
komist að raun um, að nótin getur
klofið sneið af torfunni, án þess nokk
ur stygð koini að þorskinum, sem
lendir utan við nótina.
Fiskifræðingarnir á „G. O. Sars
hafa með dýptarmælinum fundið
þorsktorfur, sem eru margar sjómíl
ur á lengd og 2—3 sjómílur á hreidd
Þó kastað sje ó slíkar torfur Jiá er það
eins og dropi í liafinu, sem tekið er í
herpinót, á móts við þau gegndar-
lausu ósköp af fiski, sem eftir verð-
ur. Herpinótin, sem notuð er til þess
ara tilrauna, nær niður á 45 faðma
dýpi.
Fimm mínúfna krossqáta
BffiS
SKYRIINGAR.
Lárjett: — 1 api — 7 púka — 8
æpir — 9 samhljómar — 11 tírninn,
sem miðað er við — 12 reyk — 14
svertmginn —- 15 hangir.
Lóðrjett: — 1 þrautina — 2 snák
— 3 guð — 4 ullarhnoðri — 5 tón
verk — 6 líkamshlutana — 10 málm
ur — 12 æsa — 13 nóta.
Lausn á siðuslu krossgátu:
Lárjetl: — 1 bakarar — 7 ota —
8 óla —- 9 la —-11 au — 12 efa —
14 andanna — 15 talar.
LóSrjell: ■— 1 boltar — 2 ata — 3
KA — 4 ró — 5 ala — 6 rausar —-
10 afa — 12 Edda — 13 anna.
Alþingi í dag
Sameinað þinn:
1. Till. til þál. um liaup á lóðuni ■
Grjótaþorpinu í Reykjdvik. — Síðari
umr.
2. Till. til þál. um friðun rjúpu.
— Ein umr.
3. Till. til þál. um rekstur lieli-
copíerflugvjelar. — Frli. síðari umr.
Umferðaráminning
dagsins
Fyrst um sinn mun daglegn birtast
í Dagbókinni sjerstök umferðaráminii
ing frá Slysavarnafjelagiuu, bajði til
bilstjóra, hjólreioamanna og gang-
andi fólks. í dag birtist fvrsta uni-
ferðaráminningiii, sem er svohljóð
andi:
BifreiSastjórar!
Eins og biindur maður má ekki
aka hifreið. megið þjer ekki aka
nokkurn spöl eftir að hafa hlindast af
sterku ljósi. Slíkt hefur valdið dauða
slysum, og samkvæmt hæstarjettar-
dómi er það engin afsökun fyrir bif-
reiðastjóra, þótt hann blindist af ljósi
frá öðrum. ef hann veldur slysi með
því að aka áfram á meðan hann er
blindaður. — Slysavarnafjelagið.
Bifhjóli stolið
Aðfaranótt páskadags var litlu bif-
hjóli rauðu að lit, stolið við húsið
Hringbraut 115. — Hjólið er númer
R 3945. Hafi einhver orðið bifhjólsins
var eftir fyrrnefndan tíma, þá er
viðkomandi beðinn að gefa rannsókn
arlögreglunni upplýsingar um það
hið fyrsta.
Skipafrjottir
Eimskip;
Brúarfoss er í Reýkjavík. Dettifoss
fór væntanlega frá Rotterdam í gær
til Hamborgar, Hull og Reykjavíkur.
Fjallfoss er á Hvammstanga, fer það
an til Skagastrandar. Goðafoss koio
til Antwerpen í gær. Lagarfoss fór
frá Searsport 7. april til Reykjavikur.
Selfoss er í Heroya í Noregi. Trölla-
foss er í New York. Vatnajökull er
í Tel-Aviv.
E. & Z.:
Foldin er væntanleg til Palestinu
á föstudag. Lingestroom er í Amster
dam.
Ríkisskip:
Hekla fer frá Reykjavík um hádegi
á morgun austur um land til Siglu
fjarðar. Esja er í Reykjavík. Herðu
breið var á Akureyri í gær. Skjald-
breið fór frá Reykjavík í gærkvöld á
Húnaflóahafnir til Skagastrandar.
Þyrill er í Reykjavik. Ármann fet
vænta-nlega frá Reykjavik um hádegi
í dag til Vestmannaeyja.
S. I. S.:
Arnarfell lestar fisk á Eyjafjarðat
höfnum. Hvassafell er í Neapel.
Lindarpennar
í barnaskólum.
Skyldi ekki vera hægt íið spara
töluverðan gjaldeyri með því að
banna börnum innan 14 ára aldun
að nota lindarpenna i skólum?
Það er dýrt spaug að leggja mörg
um börnum til iindarpenna, og mi:i
reynsla er sú, að ef börn eiga að
skrifa vel með lindarpennum, })á
verði það að vera alldýrir pennar.
Það er svo um mín börn, að þau
skrifa mun betur ineð venjuleguru
stálpenna i pennaskafti. Eigi að síð
ur hef jeg ekki sloppið við lindar
penna-suð.
Minir krakkar segja, að mörg börn
í skólanum eigi einn og tvo dýra
lindarpenna. 10 ára drengur, sem jeg
á, fjekk í haust lindarpenna.
Hann sagði, að allir krakkamir i
bekknum notuðu lindarpenna.
Þessum penna týndi hann. Eftiv
mikið suð fjekk hann annan.
Þann penna missti hann á gólfið
eftir nokkurn tima, og hann varð
ónýtur.
Nú hafði jeg hvorki peninga nje
vilja til þess að kaupa fleiri lindar
penna, og stráksi verður að skrifa
með stálpenna, og er sáróánægður
,Ætli margir hafi ekki svipaða söga
að segja? Mjer finnst það vera skylda
forráðamanna skólanna að taka þetta
mál til íhugunar.
HúsmoSiú
Til bóndans i Goðdal
1 tilefni af bæjarstjórnarkosningun-
um A. G. 25. áheit frá sildveiðisjói
mönnum, Siglufirði 600, Martha áb4
20. H. J. 100. S. I. 50.
I
Til veika mannsins
j Guðrún 50.
iÚtvarpið
8,30—9.00 Morgunútvarp. — 10.10
j Veðurf regnir. 12,15—13.15 Hádegis-
útvarp. 15.30—16.25 Miðdegisútvarp,
|— 16,25 Veðuríregnii'. 18,30 Dcusku
kennsla; II. fl. — 19,00 Eriskukennsla
I. fl. 19,25 Veðurfregnir. 19,30 l>ing
frjettir, — Tónleikar. 19,40 Lesin dag
skrá næstu viku. 19,45 Auglýsir'gar,
20,00 Frjettir. 20,30 Otvarpshl jóm -
sveitin (Þórarimi Guðmun Isson
j stjórnar): Lög úr óperettunni „La
1 Jolie Persane“ eftir Lecocq. 20,45
Lestur fomrita: Egils saga Skalla
grimssonar (Einar Öl. Sveinsson
prófessor). 21.10 Tónleikar (pliiturj
21,15 Dagskrá Kverirjettindaf •'laga
íslands. — „Kcnan á krossgötum“;
hugleiðingar Elínar Wagrier (ðritta
Björnsson cand. mag.). 21,40 Tónleik-
ar (plötur). 21,45 Þýtt og endursagt
(Ölafur Friðriksson). 22,00 Frjetti.
og veðurfregnir. 22,10 Sinfónískir tón
leikar (plötur): a) Fiðlukonserí í d
moll eftir Turtini. b) Sinfónia eftir
IWilliam Walton. 23,10 Dagskrárlok
Erlendar útvarpsstöðvar
j Noregur. Bylgjulengdir: 19 —5
j—• 31,22 — 41 m. — Frjetiir kl
I Auk þess m. a.: Kl. 16,1-0 Síðdegis-
hljómleikar. Kl. 17,40 Síldarrann -
sóknir, fyrirlestur (Finn Devold) Ki,
19,00 ..Alle i faresonen“, leikrit nlti,-
Just Lippe. Kl. 20,25 Joh. Seb. Bach
Kl. 21,30 Danslög.
Svíþjóð. Bylgjulengdir: 1578 03
28,5 m. Frjettir kl. 19 og 22,15.
Auk þess m. a.: Kl. 15,40 Trici
leikur. Kl. v17,05 Grammófónlö,K!
18.30 Gömul danslög. Kl. 19,00
Skemmtiþáttur. Kl. 19,35 Æviulý'i
Hoffmanns, eftir Jacques Öffenbacb.
Kl. 21,30 Hljómleikar.
Danmörk. Bylgjulengdir: 1250 03
31,51 m. — Frjettir kl. 18,40 03
kl. 22,00.
Auk þess m.a.: Kl. 19,00 Ui 1 ni
vinnulif á Grænlaudi, fyrirlestur. KI
19.30 Danska útvarpshljómsveiti/ leil.
ur lög eftir Rossini, Guiseppi, Samt-
Saéns, Puccini og Tjaikovskij Ki
20.30 Divertimento nr. 11 í c! dúr
eftir Mozart, útvarpshljómsveiti:!, K ,
21,15 Jazzklúbburinn.
England. Byigjulengdir: 232, 224,
293, 49,67, 31,01, 25,68 m. — Frjettir:
kl. 3, 4, 6, 7, 11, 13, 17, 18, 20, 23.
Auk þess m. a.: Kl. 13,30 Dagskiu
kvenna. Kl. 15.15 Ray Martin og,
hljómsveit skemmta. Kl. 18,30 T.eik
rit. Kl. 20,15 Philip Green og hljóm
sveit. Kl. 21,00 Óskaþáttur hlustrnch
Kl. 21,30 1 hreinskilni sagt. Kl. 21,45
Saxafon-kvartett leikur. Kl. 22,00
„Bernska Krists", eftir Berlioz, Lund
úna symfóniuhljómsveitin, BBC kór-
inn og einsöngvarar.
BARMAVAG\
óskast til kaups. Uppl. í sími 5
7831. P
Peninga-
skápur
til sölu. Uppl. í sima 6439.
| SendibsSa- [
(stöðin h.f. [
= Ingólfsslræti 11. Sími 5113 S
! Opið frá kl. 7,30 f.h. til 7 e.h. |
111111111111 n 111111 itiiiiiiiiiiiiit <1 in 11 m 111110 <111111111