Morgunblaðið - 20.06.1950, Side 12
' rCÐURÚTLIT. FAXAFLÓIt
N-stinningskaldi, LjcttskýjaS.
FRÁSÖGN af þjódhátíðinni 17q
júní. Bls. 2.__________________]
4
'j JÖRUTÍU og sjö íslendingar vcrða æfðir til að taka við flug-
ttmferðarstjórn og öðrum stöðum á Keflavíkurflugvelli í stað
Bandaríkjamanna, sem nú hafa þau störf með höndum. Þar af
fara 27 á námskeið í Bandaríkjunum og hafa tveir íslendingar
þegar lokið námi í flugumferðarstjórn vestra, en fjórir eru við
liáiri í Ameriku.
Samkvæmt
Keflavíkursamningnurn
' Þessi áætlun er í samræmi
úið Keflavíkursamninginn, sem
gerður var við Bandaríkja-
rnenn 1946, þar sem svo er
rheðal annars ákveðið, að kenna
r kuli íslendingum störf við flug
. vallarstjórn með það fyrir aug-
úrn, að íslendingar taki sjálfir
við rekstri vallarins.
Gert er ráð fyrir að þessir 47
Islendingar hafi lokið námi á
liremur árum og nær náms-
cætlun þeirra yfir tímabílið frá
1949—1951.
fTveir liafa lokið námi
Tveir íslendingar hafa þegar
lokið námi í Bandaríkjunum og
eru þeir komnir í störf á Kefla-
vikurflugvelli. Eru það þeir
Bjarni Jensson og Guðj. Bjarna
son. Vornþeir á fjögra mánaða
námskeiði vestra og stóðust
próf með ágætum.
Hinir fjórir, sem þegar eru
byrjaðir nám vestra eru
Júlíus Jóhannesson frá Akur-
fcyri, Stefán Linnet, Jóhann
Guðmundsson og Guðmundur
Matthíasson, allir frá Reykja-
vík. Allt eru þetta ungir menn
'• aldrinum frá 23 til 27 ára. —
ÍNámskeiðin í Bandaríkjunum
í.tanda yfir frá 7 vikum upp í
15 mánuði, eftir því hvaða störf
piltunum eru ætluð er þeir
l:oma heim.
20 manns fá æfingu hjer á
Keflavíkurflugvelli og verða
teknir á námskeið eftir því, sem
við verður komið á næstunni.
Önd fjekk „lögreglu-
aðsfoð" á Lækjar-
forgi í gær
Sænsku söngvar-
arnir kveðja
.4ÆNSKI óperusöngflokkurinn
sýndi í gær kl. 4 í síðasta sinn
Brúðkaup Fígarós“. Að sýn-
ingu lokinni gekk fram Guð-
‘augur Rósenkrans, þjóðleikhús
ntjóri. Avarpaði hann sönggest-
•’ ia, þakkaði þeim fyrir kom-
xina. Afhenti hann Kurt Bendix
híjómsveitarstjóra blómkrans
'"■g söngvuru.m blómvendi. Að
•olium bað hann áhorfendur að
hrópa ferfalt núrra fyrir söng-
gestunum. Stðan ljek svmfóníu
hljómsveitin sænska þjóðsöng-
inn.
Þvínæst tók til máls Albin
Johansson, formaður sænsku
óperunnar. Hann þakkaði fyrir
bann mikla heiður. sem íslenska
Þjóðleikhúsið hefði sýnt
: ænsku óperunni, með því að
bjóða henni í þessa fyrstu gesta
söngför. Einnig bakkaði hann
raikille°,a þær góðu viðtökur,
sem Svíarnir hefðu hlotið hjer.
Athöfninni lauk með því, að
K-ikinn var íslenski þjóðsöngur-
i.m.
í gærkvöldi var sænsku söngv
urunum haldið skilnaðarhóf að
Kótel Borg. Var þar glatt á
l jalia, söngur og ræðuhöld.
Svíarnir fara snemma í dag til
Pvlbióðar, flueleiðis með Geysi,
Lugvjel Loftleiða.
MJÖG óvenjulegir vegfarendur
lögðu í gærdag leið sina um
Miðbæinn. Vöktu þeir mikla at-
hvgli og aðdáun þeirra sem þá
sáu. Þetta var stolt önd með
átta fallega unga sína. —
Lögreglúmenn og borgarar, að-
stoðuðu þessa fallegu f jölskyldu
við að komast suður á Tjörn.
Öndin mun hafa verpt í húsa
garði einhversstaðar við Lind-
argötúna. í gærd.ag vildu ung-
arnir óðir og uppvægir komast
í vatn. Vappaði öndin af stað
norður Lindargötuna, út á Arn
arhólstúnið, har byrjuðu erfið-
leikarnir. BíLiumferðin fram-
undan var svo æðisgengin, að
öndin sá ekkt á hvern hátt hún
myndi geta komist með ung-
ana klakklaust suður á Tjörn.
— Og þarna stóð hún með ung-
ana, sem hver í kapp við ann-
an heimtuðu að komast í vatnið,
þeir fengu ekki skilið, að hætt-
ur væru bví samfara að kom-
ast þangað. En öndin vissi hvað
að henni sneri, um þau tíðu
umferðaslys hjer í bænum. Og
ógjarnan vildi hún hafa á sam-
viskunni átta. andarungalíf, og
var því betra að fara sjer að
engu óðslega, hugsaði önd-
in, þegar hún horfði á alla bíl-
ana. En nú kom hjálpin. —
Ungir menn buðust til að
hjálpa henni. Hún átti fvrst í
stað erfitt með að skilja þessa
góðsemi mannanna og snerist
til varnar. — Þeir ráku hana
af stað út að Hverfisgöt-
unni. Hræðsla ungnnna varð nú
meiri og meii i Yfir gctuna kom
ust þau öll, og út í garðinn við
Stiórnarráðið. Þar barst meiri
hjálp. Komu tveir lögregluþjón
ar og nú komst verulegur skrið
ur á ferðalagið suður á Tjörn.
Grænt ljós kveiknaði Öndin
gekk öruggum skrefum vfir og
ungart^r í haiarófu á eftir. —
Var nú auðvslt að komast það
sem eftir var. vegna góðrar að-
stoðar lögreglu og góðra hjálp-
samra manna. Nokkrum mínút-
um síðar lagði öndin á sund
með hinn fríða barnahóp sinn,
eftir margháttuð og taugaæs-
andi ævintýri í Miðbænum.
MYNDIN er tekin er skemmtiatriðin fóru fram á Arnarhóli. Frásögn af hátíðahöldunum hjer í
Reykjavík og annars staðar er á bls. 2. (Ljósm; Mbl.: Ól. K. EL>
KR ÍSLANOS-
MEISTARI1950
Vann Fram með 1:0
ÚRSLITALEIKUR íslandsmóts
ins fór fram í gærkvöld. Att-
ust þar við KR og Fram. Leikar
fóru þannig, að K.R. bar sigur
úr býtum með 1:0 og vann ís-
landsmeistaratitilinn 1950. —
Þetta er í 13. sinn, sem KR verð
ur íslandsmeistari. Fram hefur
einnig unnið titilinn 13 sinnum,
Valur 11 og Víkingur 2.
Lokastaðan cr þessi:
L U J T Mrk St
KR...... 4 2 2 0 7:3 6
Fram .... 4 2 1 1 8:4 5
ÍA ....... 4 0 3 1 6:7 3
Víkingur .4112 8:11 3
Valur .... 4 1 1 2 5:9 3
* ^
Tyrkneskur prins á
skemmtiferðalagi
Vlaður drukknar
á Viðeyjarsundi
Heimdeliinqar fara í
gróðursefningarför inn í
Heiðmörk á morgun
HEIMDALLUR, F.U.S., efnir til
annarar skógræktarfarar inn í
Heiðmörk á morgun kl. 5 V2, ef
veður leyfir. Eins og áður hef- 1
ur verið getið um, var fjelaginu 1
úthlutað landi í Heiðmörk í
vor og hafa verið áettar niður
barrplöntur þar nú í síðustu
viku. Verður því haldið áfrarn
á morgun.
Prins Osman Fuad.
í GÆR kom hingað til lands
með Heklu frá Skotlandi prins
Osman í’uad, sem er af hinni
gömlu tyrknesku soldánaætt
Osmanna. Ef þessi ætt væri enn
við ríki í Tyrklandi væri prins
Fuad ríkiserfingi Tyrklands. —
Hann er nú franskur ríkisborg-
ari og er hann hjer á skemmti-
íerðalagi.
ÞAÐ slys vildi til á Viðeyjar-
sundi aðfaranótt 17. júní, að
Ingólfur Matthíasson, stöðvar-
stjóri, í Gufunesi, drukknaði.
Ingólfur hafði farið ásamt bróð-
ur sínum til fiskveiða á smá-
bát. Fóru þeir bræður upp 1
mannlaust skip, sem lá á sund-
inu. en bátur þeirra losnaði frá
skipinu og rak frá því. Ingólfur
kastaði sjer þá til sunds til að
ná í bátinn. en hafði áður sett
á sig björgunarbelti. Allt 1 einu
sá bróðir hans, sem beið í skip-
inu, að Ingólfi fataðist sundiðf
og að höfuð hans hnje niður í
sjóinn.
Bróðir Ingólfs setti þá einnig
á sig belti og kastaði sjer í sjó-
inn, þótt hann kynni ekki að
synda. Tókst honum að ná bátn
um og ná Ingólfi upp í bátinn,
en þá var Ingólfur látinn. Bana-
mein hans var hjartabilun.
IngóHur Mat.thíasson var son
ur Matthíasar Ólafssone \ fyrr-
um alþingismanns. Har 1 lætur
eftir sig konu og þrjú nörn.
' ‘
Sjúkraflug meS
hraða
Á LAUGARDAGINN var fár-
veikur sjúklingur fluttur flug-
leiðis frá Skálmarnesmúla á
Barðaströnd til Reykjavíkur. —
Maður þessi hafði fengið slærnt
botnlangakast og lá lífið við að
honum yrði komið sem fyrst á
sjúkrahús. Aðstandendur hans
hringdu til Flugfjelags íslands,
sem sendi þegar vestur Kata-
línaflugbát sinn. Flugstjóri var
Anton Axelsson. Gott var í sjó,
næri ládeyða við Skálmarnes-
múla. Liðu aðeins 2V2 klukku-
stund frá því að beðið var um
flugvjelina, þar til sjúklingur-.
inn var kominn inn á Landspít-
alann. Uppskurður var þegar
framkyæmdur á sjúklingnum
og líður honum nú vel eftir at-
vikum.
Drengjemét Ár-
manns í kvöld og I
annað kvðW á !
íþróffavellinum
í KVÖLD og annað kvöld gefsS
Reykvíkingum kostur á a i sjá
marga upprennaudi íþrótta-
menn keppa hjer á íþróttovell-
inum á drengjamóti Ármanns0
Keppendur eru alls 72 frá 12
iþróttafjelögum og hjeraí.rsam-
böndum.
í dag verður keppt í ÍO m,
hlaupi, 1500 m hlaupi, há-
stökki, langstök a, spjót’casti,
kúluvarpi og lr00 m. boð-
hlaupi.
Það er engin hætta á uð
keppnin verði ekki skemmti-
leg á drengjamótinu, því á slik-
um mótum koma alltaf ein-<
hverjir á óvart með getu sinnu
Þess má geta að í 80 n: laup*
inu eru 32 skráðir keppc.idur.
'j. ' ;•.
4
r
47 Islendingar æfðir undir að
laka við sföðum í Keflavík
\ Arnarhóli 17. júni