Morgunblaðið - 04.08.1950, Page 1
37. árgangur
176. tbl. — Föstudagur .4, ágúst 1930.
PrentsmiO)* Morgunblaðsiru
Óeirðir í Brussel
Svíum hefir ekki verið
boðið affur að ganga í
Aflanfshafsbandafagið
STOKKHÖLMI, 3. á£úst — Er-
lander, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, átti viðtal við frjetta-
menn í dag. Vjek hann þar að
þeirri fregn, sem runnin er frá
Lundúnum, að Svíum yrði enn
á ný boðið að gerast aðilar að
Atlantshafssáttmálanum. Fór-
ust ráðherranum svo orð um
þetta atriði: , Jeg býst ekki við,
að við fáum þetta boð, en þótt
svó væri, þá mundum við ekki
breyta afstöðu okkar“.
—Reuter.
Lýðveldismenn sækja
fram á austurströndinni
Vígstaðan tekur liflum breytingum að öðru leyli
Einkaskeyti til Mbl. frá NTR
TOKYO, 3. ágúst. — Hersveitir Bandaríkjamanna hafa undan-
farin dægur stöðvað sókn norðanmanna á suðurvígstöðvunum
í Kóreu. Hafa þær nú tekið sjer varnarstöðu í boga 20 km. fyrir
vestan Masan. Á miðvígstöðvunum, norðan Taegu, hafa Banda-
ríkjamenn enn hörfað til baka yfir ána Naktong, eftir að hafa
sprengt allar brýr að baki sjer. Seinustu fregnir herma, að
norðanmenn sjeu nú 65 km. frá Fusan, aðalhafnarborginni, og
30 km. frá Taegu, sem er bráðabirgðahöfuðborgin.
Þessi mynd sýnir riðandi lögregluþjón reyna að vernda lög-
regluliðið fyrir stólunum. sem hó.pgöngumennirnir varpa að því.
XBússar eru margbrot-
legir við samtök S. 1>.
WASIIINGTON, 3. ágúst. — Á fundi, sem Acheson, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna. átti með blaðamönnum í gær, sagði
hann, að Rússlandsstjórn hefði vanrækt skyldur síhar við S.Þ
íyrst gerðust Rússar brotlegir við samtökin með því að sækja
ekki fundi Öryggisráðsins og nú með því að tálma því, að friði
yrði komið á í Kóreu.
Nú eru fylgismenn
Leopolds óánægðir
BRUSSEL, 3- júlí — Belgíska
stjórnin hefur nú gengið frá
frumvarpinu, þar sem Leopold
afsalar sjer völdum í hendur
syni sínum, Baudouin. Æsinga-
menn, sem fylgja konungi, rjeð
ust inn í aðalskrifstofur ka-
þólska flokksins í dag og köst-
uðu eggjum og tómötum að leið
togum flokksins með hrópum
eins og: „Þið hafið selt okkur“.
_____________— NTB.
Kommúnisfar binda
fjandmennina fyrsf
og skjófa svo
TOKYO, 3. ágúst — Óstaðfest
fregn hermir, að N-Kóreumenn
hafi enn unnið hermdarverk á
bandarískum hermönnum í
gær Með því að skjóta 10 þeirra 1
með hendur bundnar fyrir aft-
an bak. 1*1
Bandarískir liðsforingjar segj
ast og hafa fundið 2 lík Banda-
ríkjamanna, sem farið var með
á sömu lund — Reuter.
Kommúnisfar brutu reglu-
gerð um úfgáfu blaða
FRANKFURT, 3 ágúst —
Bandaríkjayfirvöldin í ríkinu
Hessen í Þýskalandi hafa bann-
að útkomu kommúnistablaðs-
ins Sozialistische Volkezeitung
um þriggja mánaða skeið. Hef-
ir blaðið brotið reglugerð banda
manna fyrir þýsk blöð. Birti það
á forsíðu mynd af auglýsinga-
spjaldi, sem yfirvöld banda-
manna höfðu bannað fyrir
nokkrum dögum. — Reuter.
Hann vill hrossakaup
Þá upplýsti
ix-farandi:
ráðherrann eft
Formosa verður varin.
1) Stefna Bandaríkjanna
gagnvart Formósu er óbreytt
frá því, sem hún var 27. júlí
s. 1., þegar Truman lýsti yfir
því, að eyjan yrði varin fyrir
árásum kommúnista.
Tyrkland og Atlantshafs-
bandalagið.
2) Vegna þeirrar frjettar. að
Tyrkland hafi sótt um aðild að
Atlantshafssáttmálanum, sagði
Acheson, að engin umsókn hefði
borist, en hjer væri vitaskuld
um að ræða sameiginlegt mál
allra þeiri'a þjóða, sem að sátt-
máianum standa. Um Banda-
í’íkin er það að segja, að þau
hafa einlægan hug á, að Tyrk-
land haldi sjálfstæði sínu, og
hafa þau Hka gert mikið til að
efla varnir þess.
Engin Marsliallaðstoð tii
Spánar.
3) Acheson kvaðst ekkert
hafa að athuga við samþykkt
öldungadeildarinnar um 100
millj. dala lán til Spánar Hins-
vegar mundi lán til Spánar
aldrei eiga neitt skylt við
Marsltallaðstoð.
LAIVIDVARIMAIVIAL OFAR-
LEGA Á BAUGI í IMOREGI
OSLÓ, 3. ágúst. — Utanríkismálanefnd norska þingsins sat á 4
tíma fundi í dag, þar sem ræddar voru tillögur stjórnarinnar um
auknar landvarnir, en þessar tillögur hafa ekki verið birtar.
JAKOB A. MALIK er fulltrúi
Rússa í Öryggisráðinu og for-
seti þess í svip. Tók liann sæti
í ráðinu á ný s.l. þriðjudag eft-
ir sjö mánaða f jarveru.
Stórþingið fær tillögurnar
til meðferðar.
Einar Gerhardsen forsætis-
ráðherra sat fundinn ásamt
fleiri ráðherrum. í tilkynningu,
sem gefin var út að fundi lokn-
um, segir, að forsetar Stórþings
ins muni afráða einhvern næstu
daga, hvenær þing verði kall-
að saman til að ræða landvarna
tillögur stjórnarinnar.
Danskilandvarna-
ráðherrann í Osló.
Danski landvarnaráðherrann
Rasmus Hansen, kom til Oslóar
í dag og átti tal við norska ráð-
herra áður en fundurinn hófst.
Stórskip strandar
Quebec. — Þegar farþegaskipið
Franconina rakst á sker í St.
Lawrencefljóti í júlí s.l. voru 780
farþegar með því. Skip þetta er
20 þús. smál. að stærð.
Tiltaga Bandaríkjanna
samþykkt í öryggisráðinu
Einkaskéyti til Mbl. frá Reuter.
LAKE SUCCESS, 3. ágúst. — ÖryggiSráðið kom kaman til 3.
fundar síns í kvöld undir forsæti Maliks. Rætt var enn um
dagskrártilhögun. Vilja Rússar, að fyrst verði skorið úr Um setu
kínverska fulltrúans í ráðinu og síðan megi tala um „frið-
samlega lausn Kóreumálanna.“ ’
■fTefla fram 13 herfylkjum.
Kommúnistar tefla nú fram
13 herfylkjum, og sækir mestur
hluti þeirra á suður- og miðvig
stöðvunum. Varnarsveitirnar,
sem berjast vestan Masan, von
ast til að geta stöðvað komm-
únista þarna, en yfirmenn
bandarísku sveitanna telja ekki
ósennilegt, að innrásarhernum-
takist að þrengja hringinn um
Fusan enn meir, svo að varn-
arstöðvarnar verði jafnvel ekkí
nema 15 km. frá borginni, áður
en lokagagnsókn verður hafin.
Varnarlínan við Naktong.
Talið er, að Naktongfljótið
verði varanleg brjóstvörn lýð-
veldisherjanna á miðvigstöðvun
um, og þykir ekki ósennilegt,
að sókn innrásarhersins til suð
urs verði stöðvuð þar. Upptök
fljótsins eru norður við bæinn
Kumchon, sem norðanmenn
tóku í gær. Fellur það fyrir suð
vestan Taegu og rennur til sjáv
ar milli Masan og Fusan. Á ein-
um stað rennur það ekki nema
8 km. frá Fusan.
30 km. norðvestur af Taegu.
í tilkynningu Mac Arthura
segir, að Bandaríkjamenn hafi
hörfað yfir Naktongfljót við
bæinn Wegówan, um 30 km.
norðvestur af Taegu. Segir og
í tilkynningunni, að í svip geist
ekki orrustur annars staðar en
á suðurvígstöðvunum fyrir vest
an Masan og á austurvígstöðv-
unum.
Tóku Yongdok.
Þar hafa sunnanmenn enn á
ný tekið hafnarbæinn Yongdok
með hjálp bandarískra og
breskra herskipa. Hafa lýðveld
isherirnir sótt nokkra km. norð
ur fyi’ir bæinn. Formælandi 8.
Framh. á bls. 7.
Úlgerðarfjeiag býður
S. Þ. 5 skip !i! flutninga
NEW YORK. 3. ágúst —
Japanskt útgerðarfjelag hefir
boðið S. Þ. farmskip ókeypis til
að flytja birgðir til Kóreu. Er
líklegt, að boðinu verði tekið.
Tillaga Bandaríkjamanna
Hins vegar lögðu Bandaríkja
menn til, að rætt væri um „inn
rásina í Kóreu“. Malik stað-
hæfði enn í dag, að um væri
að ræða innrás sunnanmanna í
N.-Kóreu.
Öryggisráðið samþykkti loks,
að tillaga Bandaríkjamanna um
að víta innrásina í Kóreu, skyldi
verða fyrst á dagskrá ráðsins.
Slórfelídur víg-
búnaóur Breta
LUNDÚNUM, 3. ágúst. —
Skýrt var frá því í kvöld,
að Bretar mundu verja
3400 milljónum sterhngs-
punda til vígbúnaðar á
næstu 3 árum.
Vegna þessarar nýju á-
ætlunar verður 10% ríkis-
teknanna varið til land-
varna í stað 8% áður. —
Þessi fjárhæð er að ein-
hverju leyti undir þvi
komin, að dollaraaðstoðin
verði aukin. — Reuter.