Morgunblaðið - 02.09.1950, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.09.1950, Blaðsíða 1
47. á’gangui 200. tbl. — Laugardagur 2. september 1950. Prentsmiðja Morgunblaðsins Samvinna INiorðurlanda í ýmsum málum á alls- herjarþingi S. þ. Frá fundi ufanríkisráðherranna Eftirfarandi skýrsla var birt í gær að afloknum fundi utanríkisráðherranna: UTANRÍKISRÁÐHERRAR Danmerkur, íslands, Noregs og Sví- þjóðar komu saman á fund í Reykjavík dagana 31. ágúst og 1. september, en utanríkisráðherrar Norðurlandanna halda að jafnaði slíka fundi öðru hvoru. Á fundinum voru rædd ýmis þeirra máia, sem tekin hafa verið á dagskrá allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, sem bráðlega verð- ur haldið í New York. Náin samvinna Norðurianda. EINS OG Á FYRRI funaum. kom það í ljós, að í verulegum atriðum var samkomulag um afstöðu hinna fjögurra rík- isstjórna og varð að ráði að halda áfram á næsta alls- herjarþingi þeirri nánu samvinnu, sem sendinefndir Norðurlanda hafa haft með sjer-á fyrri þingum. Óbreytt stefna í Kóreumálinu. 1 KÓREUMÁLINU voru ráðherrarnir sammála um að halda áfram stuðningi við tiiraunir öryggisráðsins til þess að vinna á móti árásinni gegn Kóreu og koma aftur á friði og öryggi þar. Styðja kjör Hollands í öryggisráð. RÁÐHERRARNIR voru sammála um að stuðla að kjöri Hollands til öryggisráðsins, í stað Noregs, sem víkur sæti um næstu áramót, en venjan hefur verið sú, að sæti þetta skipi eitt hinna smærri ríkja í norðvesturhluta Evrópu. Ennfremur iýstu utanríkisráðherrar Danmerkur, íslands og Noregs yfir því, að þeir væru reiðubúnir til þess að stuðla að kjöri fulltrúa Svíþjóðar til fjárhags- og fjelagsmálaráðs Sameinuðu þjóðanna, í stað fulltrúa Dánmerkur, sem þar v hafa setið að undanfömu. Alþjóðastjórn fyrir Jerúsalem. RÆTT VAR UM alþjóðastjórn fyrir Jerúsalem og verndun helgra staða. Samkomulag var um að halda fast við þá afstöðu, sem Norðurlöndin tóku á síðasta allsherjarþingi og að stuðla að raunhæfum tillögum, er miði að því að tryggja óhindraðan aðgang að hinum helgu stöðum, og jafnframt sjeu svo vaxnar, að bæði Ísraelsríki og Jórdan geti fallist á þær. Betra skipulág í störfum S. Þ. UTANRÍKISRÁÐHERRARNIR ræddu einnig um, að Norður- löndin beiti sjer fyrir því á allsherjarþinginu, að hraðað verði tilraunum til þess að skipuleggja betur og samræma störf Sameinuðu þjóðanna og sjerstofnana þeirra, svo að komist verði hjá tvíverknaði og betur verði hagnýtt það fje, sem notað er til alþjóðasamstarfs á ýmsum sviðum. Menn voru sammáia um, að sendinefndir Norðurlanda skyldu vinna að þessu máli á allsherjarþinginu. Frakkar ælla að verja Indo-Kína SAIGON, 1. sept. — Leon Pig- noh, landstjóri Frakka í Indo- Kína, skýrði frá því í dag. að Frakkar hefðu ákveðið að verja Indo-Kína, jafnvel án erlendr- ar'hernaðaraðstoðar. Landstjórinn sagði frjetta- mönnum, að hægt væri að sigr- ast á skæruliðum kommúnista í Indo-Kína á einu ári eða 18 mánuðum, nema því aðeins að þeir hjeldu áfram að fá aðstoð erlendra 1 samherja. —\ Reuter Svarfmálaðar kommún- isfaflugvjelar yfir Kóreu í gær TOKYO, 1. sept. — Svartmál- aðar orustuflugvjelar frá Norð- ur-Koreu skutu í dag niður ó- vopnaða bandaríska njósnaflug vjel fyrir suðaustan Kunvvi. Flugvjelar þessar vörpuðu og niður dreifiniiðum og skutu á bandaríska herflokka. Bandarískir flugmenn segja, að þessar svartmáluðu vjelar sjeu rússneskrar tegundar. — Reuter. Öflagnsln árásirnar frá slyrjaldarbyrjun I gærkvöidi höfðu árásir kommúnista staðið yfir í 30 klukkustundir samfleytt á 50 mítna víglínu Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. TOKYO, 1. september — Enginn vafi leikur á þvá, að árás- irnar, sem herir kommúnista hafa nú haldið uppi í Kóreu í 30 klukkustundir samfleytt, eru þær öflugustu frá stríðsbyrjun. Eru árásirnar gerðar á 50 mílna víglínu, og á nokkrum stöðum hafa varnarsveitir Sameinuðu þjóðanna neyðst til að láta undan síga fyrir þunga þeirra. Það er og athyglisvert við þessar árásir, að samfara þeim sjást nú í fyrsta skipti kommúnistiskar orustu- flugvjelar, þótt þær hafi að vísu ekki haft sig mikið í frammi í dag'. Njósnarar frá Póllandi fil Grikklands AÞENA, 1. sept. — Gríska stjórnin hefur farið fram á það við Balkannéfnd S. Þ., að hún rannsaki starf- semi ,,útvarpsnjósnara“ í Grikklandi. Gríska lögreglan liefur liandtekið konunúnistisk- au skæruliða, sem skýrir svo frá, að hann sje einn af 20 Grikkjum, sem kom- ið bafi frá Póllandí fyrir tveimur dögum með fyr- irskipanir nm að endur- skipuleggja gríska komm- únistaflokkinn. Sendimennirnir, sagði hann, böfðu allir útvarps- tæki meðferðis, til þess að geta tekið á móti nýjum fyrirskipunum. — Reuter. 11 fðrasf í flugslysi SINGAPORE, 1. sept. — Talið er nú víst, að 11 menn hafi far- Flugvjelar, sem hafa flogið ist, er bresk Dakotaflugvjel fjell niður í frumskóg á Mal- akkaskaga í s.l. viku. yfir slysstaðinn, skýra svo frá, að enginn maður sje þar sjáan- legur á lífi. — Reuteri 12 mílna landhelgi MOSKVA, 1. sept. — Rússar af héntu í dag sendiráðum Svía og Dana í Moskvu orsendingar, þar sem þeir endurtaka ákvörð- un sína um að halda fast við 12 mílna landhelgi. —Reuter. ..............■ ............^ ! Járntjaldsþjóðunr ekki boðið LONDON, 1. sept.—Bresk ir flugvjelaframleiðend- ur tilkynntu í dag, að Rússum og öðrum „járn- tjaldsþjóðum“ yrði ekki boðið að senda fulltrúa á flugvjelasýninguna, sem þeir■ efna til í Farnborough í næstu viku. Fulltrúar þessara þjóða hafa annars jafnan verið meðal gesta, frá því sýn- ingarnar hói'ust að nýju 1946. Meðal þeirra flugvjela, sem- sýndar eru, eru iðu- lega nokkrar, sem talsverð leynd hvílir yfir.—Reuter. Hörfa um átta mílur. við Naktong höfðu í kvöld hörfað um átta mílur. — Á Masansvæðinu hefur banda- rískum hermönnunum hins- vegar tekist að rjetta við eftir stóráhlaupin og jafnvel gert nokkur smærri gagnáhlaup. En engu verður þó spáð um það að svo stöddu, hvernig hinum heiftúðlegu árásum kommún- ista lyktar. Sama lun mannslífin. Það eru fyrst og fremst fót- gönguliðasveitir. kommúnista, sem bera hita og þunga árás- anna. Kommúnistar virðast ekkert um það hirða, hvort manntjón þeirra er mikið eða lítið, að minnsta kosti senda þeir fótgönguliðana fram í þjettum fylkingum, jafnvel þar sem skothríð varnarsveitanna er öflugust. Sex austur - þýskir leið- togar handteknir í gær Sakaðir um samvinnu við Vesfurveldin og fleira Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. Njósnarar. Margt bendir og til þess, að foringjar kommúnista hafi mik ið af njósnurum að baki víg- linu varnarherjanna. Má meðal annars marka þetta af því, hve herforingjabækistöðvar Banda- ríkjamanna á vígvöllunum verða fyrir tíðum árásum. BERLlN, 1. sept. — Sex af leiðtogum sameiningarflokks sósíal- ista í Austur-Þýskalandi, en hann lýtur algerum yfirráðum kommúnista, sitja nú í fangelsi. Þeir hafa verið reknir úr flokkn- um og frá embættum sínum, en samkvæmt opinberri tilkynn- ingu frá kommúnistum í dag, eru þeir sakaðir um samvinnu við Vesturveldin ög andstöðu við Rúss’a. Sfrangar fyrirskipanir um að fljúga ekkl yfir Manchuriu TOKYO. 1. sept. — Einn af tals mönnum bandar’ska flughers- ins skýrði svo frá í dag, að bandarískir flugmenn, sem send ir eru í árásarferðir til N-Kóreu hefðu strangar fyrirskipanir um að fljúga ekki inn yfir Manc- huriu. Talsmaðurinn bætti því við, að bækistóðvum flughersins í Tokyo væri ókunnugt um, að nokkur bandarísk flugvjel hefði ráðist á mannvirki í Manchuriu. — Reuter. "^Aðvörnn Flokkstilkynningunni fylgir jafnframt aðvörun um það, að menn verði að búa sig undir umfangsmikla hreinsun innan ,,sameiningarflokksins“. Verð- ur þetta þá fyrsta meiriháttar hreinsunin frá því að flokkur- inn vai: stofnaður 1945 með sam ! einingu sósíaldemokrata og kommúnista. Fjórir reknir. Meðal hinna handteknu eru Paul Merker, fyrverandi með- limur stjórnmálaráðs flokksins, og Leo Bauer, yfirmaður frjetta deildar útvarpsstöðvarinnar í Austur-Berlín. Auk þeirra sex manna, sem nú hafa verið handteknir, hafa 'fjórir verið reknir frá embætt- jum sínum, þótt þeir sjeu enn ,í „sameiningarflokknum“ að nafni til. Skæruliðar. Skæruliðar kommúnista hafa sig og mjög í frammi, og í her- stjórnartilkynningum S. Þ. í dag er jafnvel talað um, að orð- ið hafi að senda heila herflokka gegn skæruliðahópum, sem komnir eru að baki lýðræðis- herjunum. Flugvjelar Sameinuðu þjóð- anna, bæði orustuflugvjelar og sprengjuflugvjelar, hafa verið á sífeldu ferli í dag og gert árásir á óvinaheri á allri víg- linunni. Fulllrúi S-Kóreu mun mæla í Öryggisráði LAKE SUCCESS, .1. sept. — Öryggisráðið kom saman til fundar í kvöld undir forsæti Sir Gladwyn Jebb, fulitrúa Breta. Fyrsta málið á dagskrá var Kóreustríðið. Forseti ráðsins úrskurðaði að heimila skyldi fulltrúa frá Suður Kóreu að taka þátt i um« ræðunum. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.