Morgunblaðið - 02.09.1950, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.09.1950, Blaðsíða 12
WOCTtÚTLIT. FAXAFLÓiI: VESTAN wg norðvestam goT-a, VIöT.AjL vi8 Halvard Langc. t>kú.ralei3ingar. en bjart köíltun. anriklsráShcrra, er á bls. 7- ÍSiEIMDlNGAK SIGUR- SÆLIR \ BISLET Pjetur Einarssou á nýju meti í miluhlaupi t:GÆRKVÖLDI fór fram alþjóðlegt íþróttamót á Bislett leik- vaiiginum í Oslo. Meðal þátttakendanna voru íslendingarnir, eem kepptu í Briissel. Árangrar voru góðir og meðal annars eetfi Pjetur Einarsson nýtt met í 1 mílu hlaupi á 4.21,4 mín. SlV vegna slæmra hlustunarskilyrða er ekki víst að allir tím- firnir sjeu rjettir. — íslendingarnir stóðu sig með prýði og tpmu 5 greinar af þeim 7. sem þeir kepptu í. -Keppni ísJendÍHganna. Mílu hlaupið vann Dreutzler U3A á 4.15,2 mín en Pjetur Ehiarsson varð fjórði á 4.21,4 rnín. Gamla metið átti Óskar Jónsson og var það 4:25,8 mín. 100 metra hlaupið var íslensk sýningargrein. Finnbjörn sigr- aðj. á 10,9, en Ásmundur og Ifaukur komu á eftir á 11,0 og 11.1 sek. Guðmundur Lárusson varð annar í 400 m. hlaupi á eftir íyrv heimsmethafa Mac Kenl- cy, á ágætum tíma 48,2 sek. — Örn -Clausen vann 110 metra grindahlaupið á 15,0 sek., en Ingí Þorsteinsson varð annar á 15.5 sek. Langstökkið yann Torfi Bryn geirsson. stökk 7,08 m. en Öm og Finnbjörn skipuðu annað og iðja sætið. Kúluvarpið vann Gunnar Huseby, kastaði „aðeins“ 15,96 meíra. Magnús Jónsson sigraði í B -flokki 400 metra hlaup á 50,4 sek. 4x100 metra boðhlaupið sigr- eðí íslenska sveitin á 41,9 sek. Önnur íslensk sveit hljóp á 43,7 eij hlaup henr.ar var dæmt ógilt. Aðrar greinar. Sleggjukast sigraði Evrópu- •meistarinn nýji, Strandlie, Noregi. en 3000 m. hlaupið •vann Slotten, Noregi, á 8.47,0 eek. Urslit í einstökum greinum: 100 m. hlaup: — 1. Finnbjörn Þorvaldsson 10,9 sek. 2. Ásmund- ui Bjarnason 11,0 sek. 3..Haukur CJausen 11,1 sek. 4. Tor Frösaker N 11,3 sek. 400 m. hlaup: — 1. MacKenlev USA 46,7 sek. 2. Guðmundur Lár usson 48.2 sek. 3. Browne USA 48.6 sek. S-jflokkur: 1. Magnús Jónsson 50,4 3ek. 2. Leif Ekeheien 50,6. 1 milu hlaup (1609 m.): — 1. Dreutzler USA 4:15,2 mín. 2. Vefi ■ing N 4:17,1 mín. 3. Lillebeth N 4:20,6 mín. 4. Pjetur Einarsson 4:21,4 mín. 110 m. gríndahlaup: — 1. Örn Clausen 15,0 sek. 2. Ingi Þor- etei.nsson 15,5 sek. 3. Tor Frösa- ker N 15,9 sek. Langstökk: — 1. Torfi Bryn- geirsson 7,08 m. 2. Örn Clausen 6.89 m. 3 Finnbjörn Þorvaldsson 6,76 m. 4. J. Smith N 6,72 m. Kátavarp: — 1. Gunnar Huse- by* 15,95 m. 2. Bjarne Engen N 14,32 m. >Sieggjukast: — 1. Strandlie N 53,70 m. 2. Poul Cöderquist Ð 50,05 m. 3000 m. hlaup: — 1. Sigurd Slotten N 8:47,0 mín. 2. Knud Tveten N 8:54,8 mín. 3. Odd Molde N 8:55,0 mín. 4x100 m. boðlaup: — 1. A-sveit íwiands 41,9 sek. 2. Tjavle, Oslo, 44.2 sek. Opinberir starfsmeim WASHINGTON: — Nærri helm- ingur starfsmanna Bandaríkja- stjórnar er nú konur. Verkfall ®-----------------------— Huodur, 3-.J0 minka baní, drepinn við Rauðavatn RANNSÓKNARLÖGREGLAN hefur verið beðin að athuga með hverjum hætti úrvals veiði hundur einn drapst á mánudag inn upp við Rauðavatn. Ei.gandi hundsins, Carl Carls son. sem á heima við Rauða- vatn. hafði þjálfað hann í því að ráðast á minka. Hafði hund- urinn bitið til bana um 330 minka, að því er blaðið hefur frjett. Þennan mikla veiðihund sinn, fann eigandinn dauðann er hann kom heim á mánudags- kvöldið, um kl. 9. — Hafði Carl Carlsson farið að heiman um nónbil þennan dag og skilið hundinn eftir fyrir utan húsið tjóðraðan, eins og hann var van ur að gera, er hann þurfti að bregða sjer frá. — Hundurinn hefur verið leystur, en hver það gerði og með hverjum hætti hundurinn drapst er óupplýst. Sennilegt er þó, að hann hafi orðið undir bíl. Er þess fastlega vænst, að allir þeir er upplýs- ingar geta gefið, í þessu máli, hafi samband við rannsóknar- lögregluna hið fyrsta. Þess skal að lokum getið, að hundur þessi va:r af dönsku kyni. brúnn að lit. á Krossgöfum—Smásög- ur eftir Vilhjálm S. Viihjálmsson KOMIÐ ER út hjá Helgafelli smásögusafn eftir Vilhjálm S. Vilhjálmsson rithöfund. Nefnir hann safnið „Á krossgötum“ og eru í því 10 smásögur: Rauðir seðlar, Mynd gamallar konu, Lítill drengur, Blessaður gamli maðurinn, Blá gluggatjöld, Síð asti blossinn, Nýtt hlutverk, Silfurbjöllur, Bróðurleit og Án ing. Vilhjálmur er löngu þjóð- kunnur maður sém blaðamað- ur og rithöfundur. Viðamestu ritverk hans eru skáldsögurnar Brimar við bölklett, sem kom út 1945, Krókalía, 1947 og Kvika, 1949. Er þetta sögu- flokkur og segir frá lífi þorps- búa í sjávarþorpi hjer á íandi skömmu eftir aldamótin síð- ustu. Er þar drepið á fjelags- mál, atvinnuháttu og lífsbar- áttuna yfirleitt. Er von fjórðu skáldsögunnar í þessum skáld- sagnaflokki og hlýtur hún nafn ið „Beggja skauta byr“ og mun koma út í haust. Smásögur Vilhjálms, sem nú eru komnar út, fjalla um marg- vísleg efni. mmmœ Sex menn ljetu nýlega lífið og 30 meiddust, er járnbrautarslys varð við Penmaennawr í Wales. Efri myndin sýnir eyðilagða jámbrautarvagna, sú neðri er lík þeirra látnu eru borin á brott. Gullfoss leigður til Frukklunds í vetur Verður í flutningum til (asabianca FRANSKT SKIPAFJELAG, eitt stærsta í heiminum, er á sínum tíma átti hafskipið Nor- mandie, hefur tekið Gullfoss á leigu yfir vetrarmánuðina, tií farþegaflutninga milli Frakk- lands og Afríku. Gun Gullfoss hefja siglingar sínar upp úr miðjum nóvember. — í gær sendi Eimskipafjelagið út frjettatilkynningu um þetta og segir þar á þessa leið: Eimskipafjelag íslands hefur nýverið gert samning við franska skipafjelágið Compag- nie Generals Transatlantique (French Line) um leigu á m.s. Gullfoss. Bordeaux — Casablanca. Tekur hið franska skipafje- lag m.s. Gullfoss á leigu yfir vetrarmánuðina frá nóvember til maí, og verður skipið í sigl- ingum milli Bordeaux í Frakk- landi og Casablánca í Norður- Afríku, aðallega með farþega. Skipið verður afhent í Kaup- mannahöfn um miðjan nóvem- ber 1950, og verður því skilað 1 Bordeaux eigi síðar en 10. maí 1951, og er þá gert ráð fyrir að m.s. Gullfoss hefji á ný sigling- ar frá Kaupmannahöfn og Leith til Reykjavíkur, á sama hátt og í sumar. Skipið er leigt með íslenskri skipshöfn. Stærsta skipaf jelag Frakklands Það skal tekið fram að Com- pagnie Generale Transatlánti- que er stærsta skipafjelag í Frakklandi og í röð stærstu skipafjelaga í heimi, m. a. átti það línuskipið Normandie og er í alla staði fyrsta flokks fyrir- tæki. Teljum vjer það mikils vert að leigja m.s. Gullfoss slíku fjelagi, og ætti það ásamt því að íslensk skipshöfn verður á skipinu, að vera tryggiqg fyrir góðri meðferð þess. Vegna gjaldeyrisörðugleika var fyrirsjáanlegt að Eimskipa- fjelagið mundi ekki sjálft geta haldið skipinu út hjeðan í vet- ur á erlendum farþegaleiðum, og var því horfið að því ráði að athuga um leigu á skipinu, með þeim árangri sem að fram- an greinir. Ísraelsríki fær aðsloð frá Bandaríkjunum PARÍS, 1. sept. — Þrjátíu og fimm Bandaríkjamenn af Gyð- ingaættum komu flugleiðis til Parísar í dag á leið til Jerú- salem. Hafa þeir í hyggju að aðstoða stjórnarvöldin í ísraels ríki við að semja efnahagsáætl- un til þriggja ára. — Reuter Sfræiisvagn rekst ■ a tios STRÆTISVAGN rakst á hús eitt við Langholtsveginn á mið- vikudagsmorgun, snemma. —• Nokkrar.skemmdlr urðu á hús- inu en ekkert slys varð á mönn- um. Strætisvagn þessi var að sækja vagnstjóra inn í Lang- holt og flytja þá á vinnustað. Á Langholtsvegmum, á móts við húsið Langholtsv. 55, brotn- aði drifskaft vágnsins skyndi- lega, en við það skemmdust hemlarnir og rann vagninn nú áfram, án þess að hægt værrað stöðva hann. En þegar komið var að mótum Hólsvegar og Langholtsvegar, ljet vagnstjór- inn bílinn renna upp í Hólsveg, en um leið stukku þeir, sem i vagninum voru, út og gengu þeir á hann, í þeirri von að geta haldið vagninum kyrrúm á méðari verið væri að setja nægilegt grjót við hjólin til að hægt væri að stöðva hann. — En sakir þunga vagnsins og ha.ll ans á veginum, tókst þetta eklsi. Vagninn rann niður Hólsveg- inn ,yfir þveran Langholtsveg- inn og í gegnum girðingu við verslunina í húsinu Langholts- vegur 42, síðan rakst vagninn á vegg verslunarinnar og braut hann nokkuð, svo og hurðina að henni. og dyraumbúnaðinn. Engan sakaði, en fólkið í hús- inu vaknaði við vondan draum Tvö umferðarslys urðu í gærkveldi í GÆRKVÖLDI um kl. 7, urðu tvö minniháttar umferðarslys hjer í bænum. Tveggja ára drengur varð fyrir bíl og drukk inn maður slangraði út á götu og varð fyrir bíl. Drengurinn mun hafa verið að leik við gatnamót Háteigs- vegar og Rauðarárstígs. En bíl bar þar að og hljóp drengurinn í veg fyrir hann. Hlaut drengurinn skurð á höfði. Litli drengurinn, sem heitir Hreiðar Jónsson, var fjpttur heim til sín að lokinni læknisaðgerð í Landsspítalan- um. — Drukkni maðurinn varð fyrir bíl á horni Snorrabrautar og Laugavegs. Hann slangraði út á götuna í veg fyrir bíl, en meidd- ist lítið. Var hann fluttur heinm til sín.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.