Morgunblaðið - 10.09.1950, Blaðsíða 6
6
MORGLNBLAÐIÐ
Sunnudagur 10. sept. 1950
JlffgpsssMaliÍfr
Útg.: H.f. Árvakur. Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðamn.)
Frjettaritstjóri: Ivar GuðmunOsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ristjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Lesbók: Árni Óla, sími 3045
Askriftargjald kr. 14.00 á mánuði, innanlands.
í lausasölu 60 aura eintakið. 85 aura með Lesbók.
Vesaldómur Alþýðu-
flokksins
TIL þess tekur enginn, þó að kommúnistar hjer á íslandi eins
og í öðrum löndum fjandskapist við hverja þá ráðstöfun, sem
miðar að því að leysa vandamál þjóðarinnar, treysta efna-
hagslegan og atvinnulegan grundvöll hennar. Það er hlut-
verk þessa rótlausa landráðalýðs.
Hitt er öllu furðulegra þegar lýðræðisflokkur, sem vill
telja sig ábyrgan stjórnmálaflokk, hleypur yfir á snæri höf-
uðóvinar síns; kommúnista, og þreytir kapphlaup við hann
í heimskulegum og fráleitum málflutningi.
En þetta er það, sem gerst hefur með Alþýðuflokkinn og
afstöðu hans til gengisbreytingar þeirrar, sem gerð var á
íslensku krónunni á síðasta Alþingi.
Á sama tíma, sem íslenskir jafnaðarmenn telja það höfuð-
synd og fjandskap við launþega og verkalýðssamtökin að
framkvæma slíka gengisbreytingu, hefur blað þeirra hins-
vegar ekki hikað við að telja þá gengisbreytingu, sem jafn-
aðarmenn í Bretlandi, Danmörku og Finnlandi framkvæmdu
eðlilega og sjálfsagða. Á sama tíma, sem íslenskir jafnaðar-
menn rekja alla erfiðleika íslendinga í dag til gengisbreyt-
ingarinnar, sem núverandi stjórn framkvæmdi, láist þeim að
geta þess að bæði Danir og Bretar, sem felldu gengi sitt að
ráði jafnaðarmanna eiga nú í mjög svipuðum erfiðleikum
og við íslendingar. Sitja þó jafnaðarmannastjórnir í báðum
þessum löndum.
Sannleikurinn er þó sá að Attlee í Bretlandi, Hedtoft í
Danmörku og það sem meira er, Stefán Jóhann á íslandi,
hafa staðið fyrir gengisbreytingum. Allir þessir frómu leið-
togar jafnaðarmanna hafa framkvæmt gengislækkanir á
gjaldmiðli þjóða sinna.
En hvers vegna var gengi íslensku krónunnar fellt á síðasta
Alþingi? Það ætti Alþýðuflokknum að vera flokka best kunn-
ugt um. Hann hafði þá haft forystu í ríkisstjórn í tæp þrjú
ár og meira að segja kallað hana „fyrstu stjórn Alþýðuflokks-
ins“. Hvernig var þá umhorfs í þjóðlífinu þegar þessi stjórn
skildi við? í stórum dráttum þannig að stórfellt atvinnu-
leysi blasti við. Útflutningsatvinnuvegirnir voru raunveru-
lega stöðvaðir. Hallareksturinn setti ekki aðeins svip sinn á
allan atvinnurekstur heldur einnig á hag ríkisbúsins. S.l.
3 ár hafði orðið 175 millj. kr. greiðsluhalli á rekstri ríkis-
búsins. Ríkissjóður var að sligast uhdir ofurþunga dýrtíðar-
útgjaldanna, uppbóta á útflutningsafurðir og niðurgreiðslna
á innlendum neysluvörum. Til þess að halda uppbótaleið-
inni áfram þurffi að leggja yfir 100 millj. kr. skatta og tolla
á þjóðina.
Engum heilvita manni duldist að þessu var ekki hægt að
halda áfram. Það var ekki hægt að leggja á gífurlega nýja
skatta af þeirri einföldu ástæðu að enginn var til þess að
greiða þá. Atvinnulífið var fyrirfram mergsogið af sligandi
sköttum og almenning brast bolmagn til þess að taka á sig
nýja tolla, sem mjög höfðu verið hækkaðir af „fyrstu stjórn
Alþýðuflokksins“. Þannig var þá umhorfs þegar stjórn for-
manns Alþýðuílokksins skildi við. Hjer var allt að komast á
heljarþröm. Þá lýsti Alþýðuflokkurinn sig „stikkfríann“ og
dró sig út úr pólitík eins og það hefur verið kallað. En ekki
nóg með það, flokkurinn, sem hafði haft forystu á þeim ár-
um, sem vandkvæðin skcpuðust á, rjeðist nú jafnframt
heiftarlega gegn þeim tilraunum, sem gerðar voru til þess
að rjetta hag þjóðarinnar.
Vill Alþýðuflokkurinn svara þeirri spurningu, hvernig
væri ástatt hjer nú ef gengisbreytingin hefði ekki verið fram-
kvapmd? Engum heilvita manni dylst að þó ástandið sje ekki
gott, þá væri það þó ennþá svartara ef gengisbreyting hefði
ekki orðið. Stórfellt verðfall á íslenskum afurðum, mark-
aðskreppa, aflabrestur og verðhækkun erlendra vara h'afa að
vísu dregið mjög úr árangri hennar.
Gengisbreytingin var óhjákvæmileg staðfesting þess, sem
gerst hafði undir forystu Alþýðuflokksins. Þess vegna sýnir
afstaða hans gagnvart þessari ráðstöfun meiri pólitískt’ístöðu
leysi og vesaldóm en hefði mátt búast við af flokki, sem ný-
lega hafði forystu ríkisstjórn.
ÚR DAGLEGA LÍFINU
„SNJÓRINN ‘ 1 FJALLA-EYVINDI
WILFREÖ TAYLOR, ristjóri, sem skrifar
„Daglega lífið“, eða „Dagbók Skota“, eins og
það heitir í Edinborgarblaðinu „The Scotsman“,
hefir gert að umtalsefni erfiðleikana, sem nokkr
ir breskir leikarar frá Gateway-leikhúsinu í
London lentu í, er þeir voru beðnir að útvega,
það, sem jeg held að hafi verið efnið í bylinn
í Fjalla-Eyvindi í Þjóðleikhúsinu í vor.
Hann segir frá viðtali við tvo Lundúnaleik-
ara, sem heimsóttu hann í Edinborg um daginn
og sögðu honum eftirfarandi sögu:
•
SKEYTI KEMLR FRÁ ÍSLANDI
SAGAN hefst á því, að einu sinni í vor kom
skeyti til þeirra frá íslandi sem var á þessa
leið; „Gjörið svo vel að útvega Þjóðleikhúsi ís-
lands „álfaskraut“, til að nota á leiksviði. Senni-
legt að hægt sje að fá það í Petticoat Lane, eða
hjá Woolworths. Sendið flugleiðis“ .... Und-
irskrifað af kunnri leikkonu á íslandi.
Bresku leikararnir Ijetu ekki á sjer standa og
útveguðu það, sem beðið var um og komu því
fyrir í pakka.
o
STRANDAR Á ÚTFLUTNINGS-
LEYFI
EN ÞEGAR farið var fram á útflutningsleyfi,
var það síður en svo auðsótt mál. Margskonar
ljón urðu á veginum. Það var engu líkara, en
að veslings leikararnir, sem voru að gera fje-
lögum sínum á íslandi greiða, ætluðu að
senda pakka fullan af gin- og klaufaveikis-
bakteríum, eða Colorado-bjöllum til íslands. —
Hver stjórnardeildin af annari neitaði um út-
flutning og það var ekki fyr, en að einhver,
sem hafði gott samband á „hærri stöðum“, not-
aði vináttu sína til að leyfið fjekkst.
•
NÝIR ERFIÐLEIKAR
Á MEÐAN á þessu stóð, munu einhverjir vark-
árir menn á íslandi hafa fengið áhyggjur af
sendingunni og sent var skeyti frá Reykjavík,
þar sem beðið var um að rannsaka til hlýtar,
„hvort snjórinn þyldi að fara upp í háloftin í
flugvjel. Sjerfræðingar voru spurðir, en-þótt
leitað væri um allt Bretland, virtist enginn hafa
rannsakað, hvort leikhússnjór þyldi flugferða-
lag. Var snjórinn síðan sendur upp á von og
óvon og það blessaðist allt.
Þetta er þá sagan um snjóinn í Fjalla-Eyvindi,
sem leikhúsgestir hjer dáðust mest að. Eða að
minnsta kosti get jeg ekki imyndað mjer, að
það hafi verið neitt annað en snjórinn, sem um
er að ræða.
•
STÆRRI PÖNTUN NÆST
EN SAGA Lundúnaleikaranna var ekki búin
með þessu. Næst sögðu þeir hinum skotska
starfsbróður mínum frá því, að nokkru síðar
hefðu þeir fengið brjef frá leikurum á íslandi,
sem að þessu sinni báðu um eftirfarandi:
„(1) Borðstofuborð frá Victoríutímabilinu
(helst kringlótt), (2) Sex stóla með borðinu.
(3) Sófa. (4) Hægindastól. (5) Það, sem við
köllum reykborð, þið vitið til að setja á pípur,
tóbak, öskubakka og svoleiðis. Þið vitið hvað
jeg á við. (6) borð til að hafa fyrir framan sóf-
ann, með einum fæti“.
Hvernig leikurunum gekk að fá útflutnings-
leyfi fyrir húsgögnunum greinir sagan í Scots-
man ekki.
•
ÚR POKAHORNINU
MARGAR hsmæður er virðast þeirrar skoðun-
ar, að nú þegar að skyrið hefir hækkað i verði
og þær hafa þegjandi og hljóðalaust tekið við
skyri umbúðalausu í 4—5 mánuði, þá ætti sam-
salan að hafa efni á að pakka því inn í þar til
gerðan pappir. — Ætli það ekki..Sama máli
gegnir með kökur í bakaríum. Kona nokkur
sagði mjer frá því, er sonur hennar kom ó-
hreinn úr erfiðisvinnu og keýpti sjer smjör-
köku í brauðbúð. Honum var rjett kakan, als-
ber, í hendurnar. Þrifnaður það. — Loks eru
það þeir, sem skilja ekki, að veitingasalarnir
á Borg þurfi að vera lokaðir tvisvar í viku fyr-
ir dansleiki, sem aðgangur er seldur að, á með-
an Borgin hefir einkaleyfi á vínveitingum.
•
ÞEGAR ÍIUND TYKKINN KOM
TIL ÍSLANDS
KUNNINGI minn vildi segja þetta, á dögunum
er jeg hitti hann á götunni og getur hver og
einn getið sjer.til við hvað hann átti við:
Ef að danski landsstjórinn á Bessastöðum
hefði þorað að skjóta úr fallstykkinu þegar
Tyrkja-skipið strandaði á skerinu fyrir framan
virkisgarðinn, hefði Tyrkinn gert minni bölvun
af sjer, en raun varð á. Og ef Vestmannaeying-
arnir hefðu haft eitthvað af vopnurn til að verj
ast Hund-Tyrkjanum er hann heimsótti þá“ þá
hefði orðið minna um grát og gnístran tanna og
íslensku fólki í útlegð og þrældómi suður í
Afríku“ — „Það er sagt að sagan geti endur-
tekið sig“, bætti hann við, íbygginn á svipinn.
.. - ■ m m w »i " "«■ » M'WSBM
ÍÞBÓTTIR
Gunnar átti 4. besta ! Keppni Vestmannaeyinga og isfirðinga.
afrekið
EF afrekunum á Evrópumeist-
aramótinu í Brússel er raðað
samkvæmt finnsku stigatöfl-
unni, kemur í Ijós, að Zatopek
á besta afrekið fyrir 10,000 m.
hlaupið. Hjer fer á eftir listinn
yfir afrek þeirra sigurvegara,
sem hlutu 1000 stig eða meir.
(Kvennagreinar ekki teknar
með, nje heldur maraþonhlaup,
hindrunarhlaup eða ganga):
1. Zatopek, 1000 m. hlaup,
1173 stig.
2. Consolini, kringlukast,
1172 stig.
3. Zatopek, 5000 m. hlaup,
1165 stig.
4. Gunnar Huseby, kúluvarp,
1122 stig.
5. Slijkhuis, 1500 m. hlaup,
1097 stig.
6. Filiput, 400 m. grindahl.,
1059 stig.
7. Pugh, 400 m. hlaup, 1049
stig.
8. Lundberg, stangarstökk,
1048 stig.
9. Strandli, sleggjukast, 1046
stig.
10. Parlett, 800 m. hlaup,
1044 stig.
11. Hyyttianien, spjótkast,
1029 stig.
12. Mario, 110 m. grindahl.,
1000 stig.
EINS OG áður er getið, keppti
Knattspyrnufjelagið „Týr“ frá
Vestmannaeyjum við ísfirð -
inga í frjálsum íþróttum á ísa-
firði s.l. laugardag og sunnudag,
Veður var fremur slæmt á laug-
ardaginn, en á sunnudaginn var
veður sæmilegt.
Úrslit í mótinu:
100 metra hlaup: — 1. Guð-
mundur Hermannsson í 11,5 sek.
2. Eggert Sigurlásson T 11,6 sek.
3. Gunnlaugur Jónasson í 11,7
sek.
Hástökk: — 1. Albert Karl
Sanders í 1,71 m. 2. Kristleifur
Magnússon T 1,65 m. 3. ísleifur
Jónsson T 1,60 m.
Spjótkast: — 1. Adólf Óskars-
son T 54,95 m. 2. Albert Ingi-
bjartsson í 43.19 m. 3. ísleifur
Magnússon T 41,70 m.
Kúluvarp: — 1. Guðmundur
Hermannsson í 13.46 m. 2. Albert
Karl Sanders í 11,43 m. 3. Albert
Ingibjartsson í 11,34 m.
400 m. hlaup: — 1. Eggert Sig-
urlásson T 52,0 sek. 2. Gunnlaug-
ur Jónasson í 53,8 sek. 3. Rafn
Sigurðsson T 54,2 sek.
Þrístökk: 1. Kristleifur Magn-
ússon T 13,62 m. 2. Jón Karl Sig-
urðsson í 12.36 m. 3. Eiríkur
Guðnason T 12,20 m.
Síangarstökk: — 1. Kristleifur
Magnússon T 3,40 m. 2. ísleifur
ónsson T 3,20 m. 3. Albert Ingi-
jartsson í 2,80 m.
Kringlukast: — 1. Guðmundur
Hermannsson í 39,35 m. 2. Albert
Karl Sanders í 30,91 m. 3. ís-
leifur Jónsson T 30,21 m.
Langstökk: — 1. Kristleifur
Magnússon T 6,42 m. 2. Gunn-
laugur Jónasson í 6,31 m. 3. Sig-
urður B. Jónsson I 6,25 m.
1500 m. hlaup: — l. Eggert
Sigurlásson T 4:26,8 sek. 2. Ragn
Sigurðsson T 4:33J sek. 3. Magn-
ús Helgason T 4:'36,7 sek.
4x100 m. boðhlaup: — 1. A-
sveit ísfirðinga 47,7 sek. — 2.
A-sveit Týs 47,8 sek. 3. B-sveit
Týs 54,6 seft.
I sveit Isfirðinganna voru
Guðm. Hermannsson, Sigurður B.
Jónsson, Jón Karl Sigurðsson og
Haukur Ó. Sigurðsson.
— Jón Páli. —
ÞjóSverja
SVÍAR hugsa til landskeppni
við Þjóðverja innan skamms
tíma. —'Hafa þeir reiknað út
hvernig keppnin muni fara og
stuðst þar við árangra Svía á
E^vrópumeistaramótinu og bestu
afrekum Þjóðverja. — Komast
þeir bá að þeirri niðurstöðu að
Svíar vinni með 109 stigum
gegn 99.
Stigin reikna þeir þannig út:
Hlaup 61:59.
Köst 24:20.
Stökk 24:20.