Morgunblaðið - 10.09.1950, Page 12
JHavgttnMaföft
210. tbi. *— Sunnadagur 10. septcmbcr 1950.
m
l¥ikmyndin „Sjómannalíf”
ífrumsýnd á þriðjudaginn
! Fjallar um líf og störf sjómanna.
NÆSTKOMANDI þriðjudagskvöld verður frumsýnd í Bæjar-
bxó í Hafnarfirði ný íslensk kvikmynd. Kvikmynd þessi nefnist
...Sjómannalíf". Er hún tekin af Ásgeiri Long, sem er annar
vjelstjóri á togaranum Júlí frá Hafnarfirði. Myndin er lýsing á
’lífL sjómanna í veiðiferðum, og veiðum togarans og er hin fróð-
legasta í alla staði.
iEffni myndarinnar
Myndin hefst, er verið er að
Jcoma vistum fyrir í togaranum
Júlí við bryggju í Hafnarfirði.
Síðan er lýst veiðiferð, sem tog
arinn fór til Bjarnareyjar, og
Lerentshafs í sumar. Sýnt er
allt, sem að veiðum togarans
'lýtur. aðgerð á fiskinum og sölt
un hans. svo og vinnsla á lifur.
Þar er og ágæt lýsing á lífi
• sjómannanna bæði í vjeiarrúmi
og stýrishúsi, sem og ofan þilja.
En sá hluti myndarinnar, sem
ofan þilja gerist er í eðlilegum
li cum.
Þessari fróðlegu og skemmti-
legu mynd lýkur síðan er tog-
arinn kemur til heimahafnar
sinnar, hlaðinn fiski.
Öllum þeim er ekki þekkja
af eigin reynslu til þessa at-
vinnuvegar gefst þarna gott
tækifæri til að kynnast lífi og
■ starfi sjómannastjettarinnar.
Minnismerki Bjarna
rðddara afhjúpað
s dag
•í DAG verður afhjúpað í Hell-
;isgerði í Hafnarfirði minnis-
merki. er Bjarna riddara Sivert
:sen hefur verið reist. Er það
'brjóstlíkan gert af Ríkarði Jóns
'syni og gefið af hlutafjelögun-
•urn Hrafna-Flóka og Vífil. At-
'hofnin hefst kl. 3 e. h. og flytja
•þar ræður, Adolf Björnsson,
fyrir hönd gefenda, Kristinn J.
Magnússon formaður Magna og
Helgi Hannesson bæjarstjóri.
Þess á milli skemmtir Lúðra-
;sveit Hafnarfjarðar. — Að-
gangur að Hellisgerði verður
’ókeypis.
Lsikför Sumargesta
itffl landið íékst vel
Spa í kvöld í Njarðvíkum
UM þessa helgi hefur leikflokk
urinn Sumargestir, síðustu sýn
'ingar á gamanleiknum: Á leið
tii Dover. Hefur leikflokkurinn
•sýnt leikrit þetta í sumar í leik-
for sinni um Vestur-, Norður-
og Austurland og haft 30 leik-
sýningar.
Flokkurinn lætur vel yfir
ferðinni. var aðsókn að sýning-
unum ágæt og fólkið ljet í ljós
ánaégju sína yfir að frá s^íka
leikheimsókn úr höfuðborginni.
I gærkvöldi sýndu Sumar-
gestir Á leið til Dover í sam-
komuhúsi Gaulverjabæjar og í
kvöld verður sýning í samkomu
húsinu í Njarðvík. Það verður
sennilega síðasta sýningin. því
lexkarar í flokknum er við Þjóð
leikhúsið starfa taka nú upp
störf sín við það að loknu
*umarleyfi.
Sælsgjaldið í kvik-
myndahúsunum
FYRIR alllöngu síðan skrifuðu
kvikmyndahúsaeigendur bæjar
yfirvöldunum brjef varðandi
sætagjald af kvikmyndahúsun-
um. Þessu erindi kvikmynda-
húsaeigendanna var vísað til
lögfræðinganna Páls Líndal og
Guttorms Erlendssonar. Á fundi
bæjarráðs er haldinn var á
föstudaginn, var lögð fram
greinargerð þeirra í málinu.
Bæjarráðið samþykkti, að
beimila borgarstjóra að gera
samning við eigendur kvik-
myndahúsanna, um að sæta-
gjaldið skuli frá 1. janúar 1949
verða reiknað sem 9% af and-
virði seldra aðgöngumiða, þeg-
ar frá því hefur verið dreginn
skemmtanaskattur, í stað ákveð
innar upphæðar á sæti, eins og
verið hefur. Yar fyrirkomulag-
ið þannig, á greiðslu sætagjald-
anna, að ákveðið gjald var innt
af hverju einasta sæti, á hverri
sýningu, hvort heldur það hafði
selst eða ekki.
Þjófnaðir fratndir á
þremur slöðum
í fyrrakvöld
í GÆRDAG voru kærð til rann
sóknarlögregfunnar þrír þjófn-
aðir, er allir voru framdir á
föstudagskvöldið hjer í bænum.
Fyrir miðnætti var brotist
inn í salarkynni Vetrarklúbbs-
ins í Tivoli og stal þjófurinn
þar nokkrum vínflöskum. — í
húsinu Háteigsvegur 42, sem
verið er að smíða, var stolið sam
festing og málarapenslum. —
Hafði lás fyrir útihurðinni ver-
ið sprengdur frá stafnum. —
Þá var brotist inn í skrifstofu
heildverslunarinnar Berg í
Lækjargötu, en þar mun engu
hafa verið stolið. Loks var
grammófónplötum og reiðhjóia
lugt stolið úr bíl frá breska
sendiráðinu. Var bíllinn skilinn
eftir opinn niður við höfn.
Amerískir fundurspiiliar
komu í gær
í GÆRMORGUN sigldu hjer
inn á Ytri-höfnina tveir amer-
ískir tundurspillar. Munu þeir
vera úr sömu flotadeild og er
til eftirlits í norðurhöfum, og
komu hingað fyrr í sumar skip
úr þessari sömu flotadeild. —
Skipin fóru eftir hádegi í gær
upp í Hvalfjörð til að taka olíu.
Skipin voru vaentanleg aftur í
' gærkvöldi á Ytri-höfnina.
I glflingarhug-
leiðingum
EINN af fylgdarmönnum Far-
ouks konungs, sem nú vinnur
sjer það helst til frægðar að
spila fjárhættuspil í Frakklandi
skýrði frá því fyrir skömmu,
að konungurinn mundi næsta
ár ganga að eiga unga egypska
stúlku, Sadek að nafni, sem
mælt er að hafi verið trulofuð,
er Farouk sá hana í fyrsta
skipti. Geta má þess, að liann
er fráskilinn.
Rannsökuð verði
lóðurbirgðamál
í óþurkasveitum
RÍKISSTJÓRNIN hefur falið
þeim Árna G. Eylands og Páli
Zophóniassyni, að framkvæma
athugun á fóðurbirgðum þeírra
bænda, sem orðið hafa fyrir
mestu tjóni vegna óþurrkanna
í sumar. Eiga þeir að gefa stjórn
inni skýrslu um það, hvaða leið
ir þeir telji til úrbóta, á þessu
sviði. Eiga þeir m.a. að athuga
hversu miklar fóðurbirgðir eru
í landinu, og hversu mikið þarf
að flytja inn af fóðurefnum. Og
á hvern hátt sje hægt að gera
bændum kleift, að afla sjer
nauðsynlegs fóðurbætis án þess
að til öfga leiði um notkun hans
eða ofviða verði fjárhag þeirra,
sem í hlut eiga.
Óþurkarnir hafa verið verst-
ir, sem kunnugt er, í Múlasýsl-
um, Þingeyjarsýslum, Skaga-
fjarðarsýslum, og á norðanverð
um Ströndum.
Sprengjur gerðar
óvirkar
Akureyri, fösudag.
í SÍÐUSTU viku kom hingað
til Akureyrar, Þorkell Steins-
son lögreglumaður frá Reykja-
vík. Hann kom hingað eftir ósk
lögreglustjóra til að gera óvirk-
ar sprengjur, sem fundist hafa
í Kræklingahlíð. — Sprengjur
þessar voru þ'rjár og hefur Þor-
kell gert þær allar óskaðlegar.
—H. Vald.
Málverkasýningunni
lýkur í dag
ÁGÆT aðsókn hefur verið að
málverkasýningu Kristjáns
Davíðssonar, listmálara. Sýn-
ingunni lýkur í dag. — í gær
höfðu 12 málverk selst á sýn-
ingunni.
Rússar hafa sagt krist*
inni trú stríð á hendur
rBaráffan gegn rifningunni verður miskunnarlaus7
LUNDÚNUM. — í fjelagi því í Rússlandi, sem kennir sig við
stjórnmála- og vísindarannsóknir, var fyrir skömmu afráðið að
hefja hatrama baráttu gegn „miðaldaskoðunum kritninnar‘\ Við
athugun kemur í ljós, að fjelagsskapur þessi hefur í raun og
veru sagt kristinni trú stríð á hendur.
Lyfjabúð
við Flókagötu
Á FUNDI bæjarráðs er haldinn
var á föstudag, var lagt fram
brjef Karls Lúðvíkssonar lyfja-
fræðings, varðandi lóð undir
lyfjabúð á.gatnamótum Flóka-
götu og Rauðarárstígs. Erindi
þessu var vísað til forstöðu-
manns skipulagsdeildar bæjar-
ins.
Lyfjabúð þessi á að vera fyr-
ir Hlíðarhverfi og Norðurmýr-
ina og var Karli Lúðvíkssyni
fyrir skömmu veitt leyfi fyrir
lyfjabúð þessari.
Vísindaieg barátta
j Rússneska útvarpið skýrði
frá þessari fyrirhuguðu herferð
fyrir skömmu. Vitnaði þáð í orð
formanns fjelagsins, sem hafði
sagt, að baráttan yrði háð á al-
gerlega vísindalegum grund-
velli.
Flugdagur
á Akureyri
SVIFFLUGUMENN á Akureyri
hafa ráðgert að hafa í dag flug-
dag á flugvellinum á Melgerðis
melum.
Ætla svifflugmennirnir að
sýna ýmsar listir á svifflugum
o. fl. o. fl. Til flugdagsins er
efnt til að auka áhuga manna,
einkum hinna yngri, fyrir svif-
fluginu.
Flugmenn hjer í Reykjavík
höfðu ætlað að fljúga norður og
vera viðstaddir, en ekki eru
góðar horfur á að svo geti orðíð
vegna slæmra flugskilyrða yfir
hálendinu.
Áróðurskvörnin
sett af stað.
í því skyni sagði formaður-
inn, að sægur áróðursmanna
yrði sendur til allra landa Rússa
veldis. Þeir munu m. a. hafa í
fórum sínum kvikmyndir fjand
samlegar trúnni svo og 29 millj.
bæklinga, sem dreift verður
meðal fólksins.
Miskunnarlaus barátta.
Formaðurinn sagði ennfrem-
ur: „Baráttan gegn ritning-
unni- og helgisögum kristn-
innar verður háð af misk-
unnarleysi og með öllum
þeim tækjum, sem kommún-
isminn hefur yfir að ráða.“
Fjelagsskapur sá, er hefur
fengið þetta þokkalega hlut-
Verk, er arftaki Bezbozhnik eða
guðleysisfjelagsins, sem var
lagt niður 1942.
Nefndin rannsakar
alvinnuhcrfur
í bænum
Á FUNDI bæjarráðs er haldinn
var á föstudag, var lögð fram
Alþjóðadagur
I DAG, sunnudaginn 10. sept.,
er alþjóðadagur samvinnu-
manna. 1 því tilefni efna sam-
vinnumenn um heim allan til
hátíðahalda og skiptast á kveðj
um og heillaóskum jafnframt
því, sem áhersla er lögð á að
kynna viðhorf alþjóðasamvinnu
hreyfingarinnar til heimsmál-
anna.
Hjer á íslandi efna kaupfje-
lögin, hvert á sínu fjelagssvæði,
til fundarhalda og skemmtisam
koma, eftir því sem aðstæður
leyfa, og í kvöld sjá samvinnu-
menn um dagskrá ríkisútvarps-
ins. Koma þár fram Ólafur Jó-
hannesson, prófessor, Gylfi Þ.
Gíslason, alþm. óg Ólafur
Björnsson, prófessor.
Þetta er í 28. skiptið, sem
haldið er upp á alþjóðasam-
vinnudaginn. Fyrst í stað var
ákveðið að dagurinn skyldi vera
fyrsti laugardagur í júlí, en fyr
ir nokkru var þessu breytt þann
ig, að nú er haldið upp á dag-
inn fyrsta sunnudag í septem-
ber.
Það er Alþjóðasamband sam-
vinnumanna (ICA, eða Inter-
national Cooperative Alliance),
sem gengst fyrir hátíðahöldun-
um. Hefur það í þessu tilefni
gefið út svohljóðandi yfirlýs-
ingu:
I úllaga Jóhanns Hafstein, varð-
andi skipun nefndar til að rann
saka atvinnuhorfur í bænum.
— Bæjarráð tilnefndi menn í
nefnd þessa, þá: Ragnar Lár-
usson framfærslufulltrúa, próf.
Ólaf Björnsson, Harald Pjeturs-
son safnahúsvöi’ð og Zophonías
Jónsson skrifstofum., ásamt
hagfræðingi bæjarins, Birni
Björnssyni.
_jyy3