Morgunblaðið - 11.10.1950, Síða 8

Morgunblaðið - 11.10.1950, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ 'Miðvikudagur li. okt. 1950; JHinQgiiiiHaMftj Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarai.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austin-stræti 8. — Sími 1600. Lesbók: Ámi Óla, sími 3045. Askriftargjald kr. 14.00 á mánuði, innanlands. í lausasölu 60 aura eintakið. 85 aura með Lesbök. Vandamál í uppsiglingu NÝTT vandamál virðist nú vera í uppsiglingu innan samtaka Sameinuðu þjóðanna. Kjörtímabil aðalritara þeirra, Trygve Lie, rennur út um næstu áramót. Var hann kjörinn til þess ‘starfa til fimm ára á fyrsta reglulegu þingi samtakanna, sem haldið var í London. Nú hefur Trygve Lie lýst því yfir að hann hyggi ekki á endurkiör til þessa mikilvæga starfs. Við það hafa skapast ýmislegar bollaleggingar um mann í hans stað. Hefur um skeið horft þannig að til hins mesta ósamkomulags gæti dregið um skipan í þessa stöðu. Fulltrúar Júgóslavíu í Lake Success hafa fyrir skömmu lagt fram tillögu til málamiðlunar í þessu máli. Leggja þeir til að Lie verði falið að gegna aðalritara starfinu til skamms tíma, t. d. 1—2 ára. Álitið er að sú uppástunga muni eiga miklu fylgi að fagna. Lie var á sínum tíma kjörinn með góðu samkomulagi svo að segja allra aðilja innan Sameinuðu þjóðanna. Rússar studdu kosningu hans þá eindregið og meðal hinna vestrænu lýðræðisþjóða naut utanríkisráðherra norsku stjórnarinnar trausts og álits. Kjör hans var því mjög vel ráðið. Trygve Lie hefur haft einlægan áhuga fyrir því að tryggja þann grundvöll, sem Sameinuðu þjóðirnar eru byggðar á og gera þær að virku baráttutæki fyrir heimsfriðnum og frelsi og öryggi allra þjóða. íslendingar þurfa ekki að fara í launkofa með það að það væri þeim mjög að skapi, ef Trygve Lie yrði endurkjörinn sðalritari hinna Sameinuðu þjóða. Það er hvorttveggja að þeir meta störf hans fyrir samtökin á liðnum árum og eins hitt að þeir unna norrænu landi þeirrar sæmdar að leggja til mann í svo þýðingarmikla og virðulega stöðu. Hrapalegt ábyrgðarleysi FRAMKOMA Alþýðuflokksins í togaradeilunni sýnir með hverjum deginum sem líður meira ábyrgðarleysi og ósjálf- stæði gagnvart kommúnistum. Eitt hrapalegasta dæmið um þetta gerðist vestur á ísafirði fyrir nokkru. Nýsköpunartogari Isfirðinga hafði verið á síld í sumar og mætt þar aflabresti og vandræðum eins og önnur síldveiði- skip. Var nú ætlun útgerðar skipsins að setja það tafarlaust é karfaveiðar að hinni misheppnuðu síldarvertíð lokinni. Skrifaði stjórn hennar því stjórn Sjómannafjelagsins á ísa- firði brjef þann 16. september og bað um að hún gengist fyrir atkvæðagreiðslu meðal togarasjómanna í fjelaginu um það, hvort þeir vildu hefja karfaveiðar með sömu kjörum og sjómenn hafa á Akureyrartogurunum. Ef þeir vildu það væri það ætlun útgerðarinnar að senda skipið þá þegar á karfaveiðar. Ætlunin var að leggja aflann á land á ísafirði og benti útgeiðarstjómin á nauðsyn þess að efla með því atvinnu í bænum, þar sem mjög treg atvinna er þar um þessar mundir. Það er fyrst 9 dögum síðar, sem stjórn Sjómannafjelagsins svarar þessari ósk útgerðarinnar og er kjarni þess orðrjettur á þessa leið: „Vjer tilkynnum yður hjer með að vjer getum engan veg- inn orðið við óskum yðar um að veita b.v. ísborg heimild til þess að hefja karfaveiðar.“ Þar með var sá draumur búinn og eini togari ísfirðinga, s«n beðið hafa mikið afhroð við síldarleysi sex vertíða, einnig bundinn í höfn. Hvers vegna leyfir ekki stjórn þessa sjómannafjelags sjo- mönnum að greiða atkvæði um þessa ósk? Ef þeir ekki vilja ganga að henni, þá kemur það að sjálfsögðu í ljós og því verður að taka. En hún gerir það ekki, heldur dregur neitun s ína í 9 daga. Alþýðuflokksmennirnir, sem valdið hafa í þessum sam- tökum eru ekki að hugsa um atvinnuástandið á ísafirði. Þeir ,3áta flokksbræður sína í Reykjavík ráða því, hvort togari Isfirðinga megi skapa atvinnu á þeim erfiðleikatímum, serh 'isfirskt fólk hefur lifað undánfarið og horfir frarrt á. Það er sagt nei fjTir sunnan og þá fær hið ísfirska skip ekki að fafa karfaveiðar!!! ; "l. !-|R DAGLEGA L[|.|Nll NÆTURLÆKNARNIR OG FjÓLKlÐ LÆKNAVÖRÐURINN að næturlagi hefir stundum verið gerður að umtalsefni hjer í dálkunum, en venjulega hafa þá verið skýrð sjónarmið sjúklinga, eða þeirra, sem þurft hafa að ná í nætui-lækna. Nú eru að sjálfsögðu tvær hliðar á þessu máli sem flestum öðrum og er ekki nema gott, að þær komi báðar fram til þess, að ekki sje hallað máli og til skilnings- auka, ef eitthvað mætti betur fara. — Stjórn Laeknafjelags Reykjavíkur hefir sent eftirfar- andi: — „Vegna frásagnar í „daglega lífinu“ 22. sept., þar sem næturlæknir á að hafa sagt við sjúkl- ing í síma: „haldið þjer að jeg sje einhver senditík", vill stjórn Læknafjelags Reykjavík- ur gera eftirfarandi athugasemdir: • ÞAÐ, SEM LÆKNIRINN SAGÐI „I.ÆKNIR SÁ, sem var á verði umrædda nótt, skýrir svo frá: Klukkan að ganga 3 var hringt til hans og var kona í símanum er sagði að þar heima lægi maður með sjúkdóm í þvagfærum, en hefði þó ekki þvagteppu. Sjúklingurinn væri undir eftirliti sjerfræðings, hefði verið veikur í 2—3 daga, en nú væri hann þreyttur og gæti ekki sofnað. „Viljið þjer ekki koma og gefa honum sprautu?" Læknirinn sagðist vera önnum kafinn og auk þess teldi hann eigi ástæðu til að hann kæmi til sjúklingsins, en bauðst til að hringja í lyfja- búð eftir svefntöflum, sem konan gæti sent eftir. Konan: „Þurfum við þess, getið þjer ekki komið til okkar?“ Læknirinn: „Á jeg þá að vera einskonar sendisveinn fyrir yður?“ • HLUTVERK NÆTURLÆKNA „I ÞESSU sambandi vill stjórn Læknafjelagsins benda á, að störf næturlækna ættu aðallega að vera sem hjer segir: Sjúkravitjanir, þegar menn veikjast skyndi- lega að næturlagi, og ætla má, að um alvarleg- an sjúkdöm sje að ræða, eða þegar sjúklingum þyngir skyndilega, og í þeim öðrum tilfellum er skyndihjálpar er sýnilega þörf. Æskilegt er þó, að öll meiri háttar slys farí beina leið á sjúkrahús". • ÓÞARFA LÆKNAVITJANIR „HINSVEGAR er ekki til þess ætlast að nætur læknir skifti á sárum, taki úr sauma, endurnýi Ivfseðla, eða vinni önnur læknisstörf, sem aS skaðlausu geta beðið næsta dags og heimilis- lækni ber að leysa af hendi. Þá er það ámæiisvert, þegar næturlæknir er sóttur vegna þess eins að sjúklingar eða að- standendur þeirra langar til að heyra álit ann- ars læknis en þess, er stundar sjúklinginn. • ÞEGAR SAMTAL GETUR NÆGT „ÞEGAR ungbörn veikjast, er eðlilegt að for- eldrar vilji hafa samband við næturlækni. Oft nægir í þeim tilfellum og öðrum að hafa tal af lækni í síma, og getur hann, að fengnum þeim upplýsingum, sem hann biður um, ákvéð- ið, hvort nauðsynlegt sje að vitja sjúklings. • ÓEÐLILEGA MARGAR NÆTURVTTJANIR „LOKS er ástæða til að vekja athygli á, að þvf meira, sem næturlæknir er ónáðaður að óþörfu, því lengur hljóta þeir sjúklingar að bíða, sem nauðsynlega þyrftu skjótrar læknishjálpar. Það er íhugunarvert, að næturvitjanir 1 Reykjavík eru meira en þrisvar sinnum tíðari en t. d. í Kaupmannahöfn, þegar miðað er við fólksfjölda“. • VANÞAKKLÁT ÞJÓNUSTA ÞAÐ ER alveg rjett hjá stjórn Læknafjelags- ins, að fjöldi manna sýnir næturlækninum hina mestu óbilgirni og tilætlunarsemi, sem ekki nær neinni átt að ansa. — Kunningi minn, sem er læknir, hefir sagt mjer hinar furðulegustu sögur um, hvernig fólk getur látið. En hann vill ekki að jeg segi þessar sögur í blaðinu, þvf hann telur, að læknirinn sje trúnaðarmaður sjúklinga sinna, jafnvel þótt þeir hagi sjer f hans garð af lítillri sanngirni. Eðlilega á fólk ekki að leita næturlæknis, nema, að því bráð liggi á. Brjef: Þjóðleikhúsið, ÞAÐ GLADDI mig að heyra í frjettum útvarpsins síðastl. laug- ardagskvöld að skólafólki er gef inn kostur á að sækja leiksýning ar Þjóðleikhússins fyrir hálft gjald. Eftir þessum góðu frjettum að dæma, ætlar leikhúsið að stuðla að því, að æskufólkinu verðigert kleift að sækja skemmt anir, sem eru því í senn til upp- lyftingar og menningarauka. Fer vel á því — enda sjálfsagt — að leikhús þjóðarinnar reyni að beina hugum unga fólksins á hollari brautir í skemmtanalíf- inu, en það hefur átt að venjast undanfarin ár. Með því uppfyllir leikhúsið ósk og von flestra full- orðinna, að því megi takast að vekja áhuga unga fólksins á leik- listinni og ekki síður á bókmennt unum og fögru máli. Vonandi að Þjóðleikhúsið hviki aldrei af þeirri braut. Það gladdi mig ekki síður, þeg ar jeg heyrði að leikhúsið ætlar einnig að sjá börnunum fyrir leiksýningum. Þetta er vel ráð- úð. Það er einmitt áríðandi að byrjg- á byrjuninni. Þjóðleikhús- ið getur haft ótrúlega mikil á- hrif hvað snertir háttvísi barna og menntunarauka. Þau koma í fallegt umhverfi og sjá falleg og góð leikrit. Umgengni þeirra markást áreiðanlega af áhrifun- um, sém þau vérða fyrir þar. í kvikmyndahúsunum eru venjulega sýndar „hasar“- og óróa-royndir fyrir börnin, og ber umgengni þeirra í kvikmynda- húsunum vott um, að þær hafa sín ábrif. Óp, hávaði, blístur, öskur og glymjandi i börnunum setja oft svip sinn á barnasýn- ihgarnar. Enda ekkert óeðlilegt, því myndirnar gefa oft tilefni til taugaæisings,' sem brýst svo út í ólátum, því börnin eru ör. Slíkt skólaæskan oi kæmi áreiðanlega ekki fyrir i Þjóðleikhúsinu. Þangað myndu þau koma í bestu fötunum sín- um, kurteis og prúð. Andrúms- loftið þar hefði áreiðanlega góð áhrif á barnshugann. En vel þarf að vanda val barna-leikritanna, ekki síður en til annarra leikrita. Það má ekki kasta til þeirra hönd um, af því börn eiga í hlut. Það verður að sýna þeim það besta við þeirra hæfi. Hugur barnanna er opin og næmur fyrir því, sem þau sjá og heyra. Og þau eru minnug. Það þekkir maður af eigin reynslu. Maður er gleym- in á margt, sem skeð hefur síð- ustu áratugina, en minnugur á fjölmargt, sem skeði á æskudög- um. — Og ekki síst á það sem vakti hjá manni gleði. En eitt er áríðandi að Þjóð- leikhúsið hafi hugfast: Verð að- göngumiða verður að stilla það í hóf, að allir foreldrar sjái sjer fært að lofa börnum sínum að sækja leiksýningarnar. Þau fá- tæku þurfa ekki síður að kom- ast í fallegt umhverfi og sjá skemmtilégt og fagurt æfintýri á leiksviðínu. Ef Þjóðleikhúsið getur sámeiriað þetta tvennt: að sýna góð leikrit fyrir hóflegt gjald, ér tilganginum náð með byggingu þéss og starfrækslu. Þjóðleikhúsið getur orðið nokk- urskonar uppeldisstofnun, ef það beitir áhrifum sínum í þá átt. Að endingu langar mig að koma með þessa uppástungu: Er ekki möguleiki á að sýna Nýjárs- nóttina nokkrum sinnum fyrir börnin. Þetta íslenska æfintýra- leikrit gleður börnin ekki siður en fullorðna fólkið. Það er full- æft, búningar og svið tilbúið. -i— Hefja mætti sýningarnar upp úr hádegi á sunhudögum, svo ekki ætti að koma að sök, þótt ein- j bomin hverjir leikaranna þyrftu a9 leika sama kvöldið. Þjóðleikhússtjóri gerði árei®- anlega vel, ef hann gæfi yngstt* borgurunum kost á að skyggnast um í heimi álfanna. Það er ein- mitt sá heimur, sem þau hafa yndi af að lesa um og heyra sög- ur af. Og fátt myndi jafnast é við það, að sjá þann ævintýra- heim með berum augum. Þó eru þau atriði í þessum leik, sem mjer finnst sjálfsagt að fella úr eða breyta, t. d. viðureign Gríma við Gvend snemmbæra. B. B. _________________ I Lapingu NorSur- ! landsvegar lokið í GÆR var hleypt umferð á síðast* kafla fjögurra kíló- metra vegar í Norðurárdal í Skagafirði, sem fullgerðir hafa verið í sumar. Má þá ' telja, að lokið sje> lagnihgú' Nörðurlandsvegar til Akureyrar, nema kafla í Hvai firði og nokkurra annarra smá kafla í byggðum, þar sem fyr- irhugað er að endurbæta eða breyta vegi og loks spotta á Öxnadalsheiði, sem ekki verð- ur fyllilega gengið frá, fyrr en á næsta ári. Aðalvegkaflarnir á þessari leið, sem lagðir hafa verið smátt og smátt á allmörgum undanförnum árum eru um Hoitavörðuheiði, Vatnsskarð og Norðurárdal í Skagafiröj, og hefur við þá alla verið verk stjóri Jóhann Hjörleifsson, enn Framhald á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.