Morgunblaðið - 18.11.1950, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 18. nóv. 1950
JH$» ÍíLÍ* Íft
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
^ramkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson.
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla'
A.usturstræti 8. — Sími 1600
Áskriftargjald kr. 14.00 á mánuði, mnanlands.
1 lausasölu 60 aura eintakið. 85 aura með Lesbók.
OR daglega LlFINU
A milli vita
ATHYGLISVERÐUR atburður gerðist fyrir skömmu meðal
háskólastúdenta. Samkomulag hafði tekist milli fulltrúa
hinna þriggja lýðræðisflokka í Stúdentaráði um val ræðu-
manna á vegum stúdenta við hátíðahöldin 1. desember. —
Samkvæmt þvi var ákveðið að einn maður úr hverjum lýð-
ræðisflokkanna flyttu þar ræðu. Kommúnistar snjerust af
mikilli heift gégn þessum ráðagerðum. Töldu þeir það firn
mikil, ef að stúdentar ljetu nokkurn þeirra manna, sem
stuðlað hafa að þátttöku íslands í samvinnu vestrænna lýð-
ræðisþjóða, koma fram á sínum vegum. Kröfðust kommún-
istar síðan almenns stúdentafundar um málið.
Á þessum fundi gerast þau undur, að þorri Framsóknar-
stúdenta snýst á sveif með höfuðfjendum lýðræðis og mann-
rjettinda og styður þá í hvívetna. Svo langt gekk þetta að
kommúnistar ljetu Framsóknarmenn flytja tillöguna um að
hrinda samþykkt stúdentaráðs, sem samkomulag hafði tek-
ist um. Mynduðu svo þessir tveir flokkar nokkurskonar sam-
iylkingu á fundinum. Svo fór að vísu að stúdentafundurinn,
sem er einhver sá fjölmennasti ,sem haldinn hefur verið,
vísaði hinni fáránlegu tillögu kommúnista og Framsóknar-
manna á bug með miklum meirihluta atkvæða. Ákvörðun
Stúdentaráðs um val ræðumanna stendur þessvegna óhögg-
uð. Framsóknarflokkurinn segist vera milliflokkur til þess
kjörinn að bera klæði á vopnin milli andstæðnanna til hægri
og vinstri. Á það hefur þrásinnis verið bent að þetta sje hið
mesta öfugmæli. Framsóknarflokkurinn hefur aldrei komið
fram sem sættir manna og flokka í íslenskum stjórnmálum.
Engum getur a. m. k. dulist, að Framsóknarstúdentarnir
i háskólanum, sem mynduðu samfylkinguna við kommún-
ista, sjeu á milli vita. Þeir hafa ekki áttað sig á því, sem
lýðræðisflokkar um allan heim hafa gert, að öll samvinna
við kommúnista um fullveldis- og sjálfstæðismál er fráleit
fjarstæða.
Það þarf mikla glámskygni til þess að sjá ekki þetta. En
hinir ungu „millifIokksmenn“ í háskólanum skilja það samt
ekki. Þessvegna mynduðu þeir samfylkingu með fimmtu-
herdeildinni um fyrirkomulag fullveldishátíðahalda. En þeir
eiga sjer þó eina afsökun: þeir eru á milli vita,
Skarð í haftamúrinn ?
ÞRÍR AF þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, þeir Jóhann Þ.
Jósefsson, Gunnar Thoroddsen og Pjetur Ottesen flytja
þingsályktunartillögu á Alþingi um afnám skömmtunar á
byggingarvörum. Er hún á þessa leið:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að afnema nú
þegar skömmtun á byggingarvörum og gefa frjálsa bygg-
ingu hæfilegra íbúðarhúsa, er menn byggja til eigin af-
nota, ennfremur byggingu hæfilegra íbúðarhúsa í sveitum
og verbúða“.
Vel má vera að einhverjir telji að nú ári síst til þess að
afnema skömmtun byggingarefnis eins og hjer er lagt til.
Gjaldeyrisástandið sje aldrei verra en nú og möguleikar til
þess að höggva skarð í haftamálin því litlir.
Víst hafa þessar raddir nokkuð til síns máls. Hins er þó
að gæta, að önnur atriði koma hjer jafnframt til álita. Láns-
fjárkreppa og minnkandi peningatekjur hljóta af sjálfu sjer
að vera nokkur hemill á byggingarframkvæmdir. Mjög er
hæpið að annara takmarkana og hafta á slíkar framkæmdir
s]e þörf. Með sanngjarnri skiptingu milli landshluta á gjald-
eyrisleyfum fyrir byggingarefni ætti einnig að vera hægt
að koma í veg fyrir að einstakir landshlutar yrðu út und-
an um úthlutun þess. Hinsvegar myndi afnám fjárfesting-
arumsókna fyrir almennum íbúðabyggingum spara fólKi
geysilegt umstang og oft og tíðum mikinn drátt á afgreiðslu
umsókna sinna. t ;
Að öllu þessu athuguðu virðist tillaga Sjálfstæðismanna
vera skynsamleg og eðlileg. Verður að vænta þess að Al-
þingi samþykki hana og sýni þannig vilja sinn til þéss að
skarð verði höggvið í þann haftamúr, sem nú lykur um
allar framkvæmdir í þessu landi.
JOLASVEINNINN FÆR
EINKARITARA
JÓLASVEINNINN hefur fengið einkaritara
og það er danska ríkisstjórnin, sem greiðir
kostnaðinn. í enskumælandi löndum trúa
börnin því, að jólasveinninn, eða „Santa
Claus“ eins og þau kalla hann, eigi heima
einhvernstaðar nálægt Norðurpólnum og að
á jólanótt komi hann með hreindýrasleða
fullan af jólagjöfum til að gefa börnunum
gjafir. En vissara sje að láta hann vita hvers
óskað sje. Þess vegna skrifa mörg ensk og
amerísk börn jólasveininum brjef og skrifa
utaná til hans: Grænland, Norðurpóllinn, ís-
land, Ævintýraland, Leikfangaland o. s. frv.
•
7000 JÓLASVEINSBRJEFUM
SVARAÐ
FLEST AF ÞEIM jólasveinsbrjefum, sem
skrifað var utaná til Grænlands, fóru til Dan-
merkur og þess vegna var það, að danska ut-
anríkisráðuneytið tók málið í sínar hendur og
ákvað í fyrra, að svara öllum brjefum, sem
til jólasveinsins bárust.
Alls bárust 7000 brjef frá börnum í Amer-
íku og Englandi og unnu 5 stúlkur við að
svara brjefunum. Hvert barn fjekk ævintýri
H. C. Andersens um stúlkuna með eldspýt-
urnar og Ijósmynd frá Grænlandi í jólagjöf,
ásamt einhverjum upplýsingum um Græn-
land og Danmörku. Varð þetta hin besta
landkynning fyrir Dani.
•
ÞEGAR PABBI FJEKK
„KRULLUPINNA“
BRJEFIN FRÁ börnunum eru mörg skrýtin.
Sex ára telpa skrifaði t.d.: „í fyrra sendir þú
pabba „krullupinna“ í jólgjöf, en hann hef-
ur bara ekkert hár“. John litli, sem á heima
í Sheffield langaði að sjá jólasveininn og
skrifaði því: „En þú ættir að koma í fyrra
lagi, því jeg fer alltaf snemma að hátta“.
Talsvert af jólasveinsbrjefum berast til ís-
lands ár hvert og þess vegna var það, að í
fyrra var stungið upp á því í þesusm dálk-
um, að Ferðaskrifstofa ríkisins svaraði þeim,
líkt og gert er í Danmörku. Ekki er mjer
kunnugt um hvort sú tillaga var tekin til
greina.
ORÐ í BELG FRÁ 88 ÁRA
FRÆÐIMANNI
DR. JÓN STEFÁNSSON, hinn aldraði fræði-
maður, varð 88 ára á dögunum. En hann fylg-
ist vel með dægurmálunum og í brjefi, sem
hann sendir, tekur hann þátt í umræðunum
um Jón biskup Arason og leikiriti um hann.
Dr. Jón segir:
„Umræður standa nú yfir um leikrit
Tryggva Sveinbjörnssonar, Jón Arason, með
og móti. Jeg er með hvorugum. Þegar jeg sá
það leikið, þótti áhorfendum mest varið í
skipti Jóns biskups og sona hans fyrir Helgu
biskupsfrú. — Sumir felldu tár.
Mjer fannst þessi þáttur of „sentimental“.
íslendingar á 16. öld voru ennþá svo líkir ís-
lendingum sögutímans, að þeim þótti ókarl-
mannlegt að láta sjer bregða“.
•
LÖGLEGT HJÓNABAND
SAMKVÆMT GRÁGÁS
„ÞÁTTURINN UM handtöku Jóns biskups í
kirkju var tilkomumikill. Leikendur ljeku
vel, en skáldið, glæsimennið, hugsjónamaður-
inn, Jón Arason, kemur ekki fram. Fáir eru
þeim vanda vaxnir að leika hann.
Helga var honum samboðin í höfðingsskap.
Hjónaband þeirra var löglegt samkvæmt Grá-
gás og þarf því ekki að kalla hana fylgikonu
hans“.
•
EN GERI EINHVER BETUR
„LEIKRITAHÖFUNDAR hafa ætíð breytt
efni leikrits til þess að það hefði sterkari
áhrif, væri meira „dramatiskt“, segir Jón
Stefánsson að lokum. ,',Höfundur þessa leiks
varð að gera líkt. Um hvað á að taka með og
hverju á að sleppa geta verið mismunandi
skoðanir.
Geri nú einhver íslenskur leikritahöfundur
betur og riti ennþá dramatiskara leikrit uffl
þjóðhetjuna“.
•
„BANNAÐ FYRIR BÖRN“
OPINBERT EFTIRLIT er með kvikmyndum
til að tryggja áð alls velsæmis sje gætt og þó
einkum, að börnum og unglingum sje ekki
hleypt inn á sýningar, sem þau hafa ekki gott
af að sjá, eða geta hreinlega verið þeim skað-
legar.
En öðru máli gegnir með útvarpið. Oft eru
flutt leikrit í útvarpi, sem ekki eru við hæfi
unglinga, þó kemur það ekki fyrir, að varn-
aðarorð fylgi þeim til hlustenda um að leyfa
ekki börnum að hlusta á þau.
Leikrit var t.d. leikið í útvarpi s.l. laugar-
dag, sem álitamál gæti verið, hvort börn
áttu að hlusta á. Vill nú ekki útvarpið láta
fylgja orð um það, þegar slíkum leikritum
er útvarpað, að börn ættu ekki að heyra þau?
Kostnaðurinn við það ætti ekki að skerða
5 milljónirnar að neinu ráði eða hafa áhrif á
hvernig þeim er skipt milli útvarpsmanna.
„Faðir minn" - 27 þjóðkunnir
menn skrifa um feður sína
KOMIN ER út hjá Bókfellsútgáfunni bókin „Faðir minn“, þar
sem 27 þjóðkunnir menn rita um feður sína látna. Er hún með
sama sniði og ,Móðir mín“, sem kom út í fyrra og náði mikl-
um vinsældum. Pjetur Ólafsson hefir sjeð um útgáfuna.
Þessir rita í bókina: 1
Björn Þórðarson, fyrrv. for-
sætisráðherra, um Þórð Run-
skipstjóra, sr. Jakob Jónsson,
um sr. Jón Finnsson, Helgi Val
ólfsson í Móum, Thora Frið-, týsson, um Valtý Valtýsson,
riksson um Halldór Kr. Frið-, bónda, Sigríður Björnsdóttir,
riksson, yfirkennara, prófessor húsfrú, um Björn Jónsson, pró-
Guðmundur Thoroddsen um fast, Þórarinn Egilsson, útgerð-
Skúla Thoroddsen ritstjóra, armaður, um Þorstein Egilsson,
Friðrik J. Rafnar, vígslubiskup kaupmann, Þorsteinn M. Jóns-
um Jónas Jónasson frá Hrafna- son, skólastjóri, um Jón Óla-
gili, Thor Thors, sendiherra,1 son, bónda, Guðný Jónsdóttir,
um Thor Jensen, Anna Bjarna-' um Jón Bjarnason, bónda, Þor-
dóttir um dr. Bjarna Sæmunds- björn Björnsson, Geitarskarði,
son, Steingrímur Steinþórsson,1 um Bjöm Jónsson frá Veðra-
forsætisráðeherra um Steinþór móti, Gísli Halldórsson, verk-
Björnsson, bónda, Agnar Kl. fræðingur, um Halldór Guð-
Jónsson, skrifstofustjóri, um mundsson raffræðing, prófessor
Klemens Jónsson, landritara,, Magnús Jónsson, um sr. Jón Ó.
Ríkarður Jónsson, myndhöggv- Magnússon, Jóhannes Gunnars-
ari, um Jón Þórarinsson frá son, biskup, um Gunnar Einars-
Núpi, prófessor Guðbrandur son, kaupmann, sr. Ásgeir Ás-
Jónsson, um Jón Þorkelsson,! geirsson, um Ásgeir Guðmunds
þjóðskjalavörð, Guðrún Björns son, hreppstjóra, Guðrún Geirs
dóttir um Björn Sigfússon ájdóttir, um Geir Zoegá, kaup-
Kornsá, Dagur Brynjólfsson, mann og Jóhann Þ. Jósefsson,
bóndi, um Brynjólf Jónsson frá fyrrv. ráðherra, um Jósef Valda
Minna-Núpi, prófessor Einar son.
Ól. Sveinsspn, um Svein Ólafs-| Pjetur Ólafsson segir m. a. í
son, Guðm. H. Þorláksson, húsa formála: „í erindi, sem sent
meistari, um Þorlák Teitsson. var höfundum greinanna í þes3
ari bók, með beiðni um að þeir
skrifuðu um föður sinn, segir
svo m. a.: „Greinarnar geta
tæplega orðið tæmandi per-
sónulýsingar. Hjer skiptir
mestu máli, að saga föðurins er
sögð að heiman, og af þeim,
sem næstur honum stóð og best
hafði skilyrði til að skilja
hann. — Kynslóð sú, sem sagt
verður frá, lifði stórbrotna tíma
í sögu íslensku þjóðarinnar. —
Þeir atburðir, stjórnmálalegir
og efnahagslegir, hafa markað
djúp spor og mótað kynslóðina,
á sama hátt og hún hefir sett
mót á þá“.“
Söfnunin fi! bænda
ENN berast gjafir í söfnunina
til bænda á óþurrkasvæðinu, —■
Nýlegá hafa eftirtaldar gjafir
borist:
Frá búnaðarf jelögunum í Eyr
arsveitarhreppi 1630 kr„ Eyrar
hreppi 3000, Fellsstrandar-
hreppi 2575, Hofshreppi (við-
| bót) 3780 (áður 2100), Norður-
árdalshreppi (viðbót) 2175 (áð
ur 5000), Svínavatnshreppi
3000, Áshreppi 3875, Rípur-
hreppi 2900, Reykjafjarðarhr.
j 3000, Eyrarbakkahreppi 2600,
Laugadalshreppi 4200, Mosfells
hreppi (viðbót) 160 (áður
| 2605), Búnaðarfjelagi Merkur-
I bæja í V.-Eyjafjallahreppi 4680
og einstaklingum í Reykjavík
og nágrenni 870. j