Morgunblaðið - 26.11.1950, Side 1
16 síður og Lesbók
jtstMaðtft
37. árgangar
276. tbl. — Sunnudagur 26. nóvember 1950.
Prentsmiðja Morgunblaðsina
Hollandsdrottning og Bretakonungur
Grískum börnum
skilað í gær
AÞENA, 25. nóv. —ijúgóslav-
ar skiluðu fyrstu grísku börn-
unum heim í dag. Er þar farið
að beiðni S. Þ., sem fyrst gerðu
ályktun um málið 1948. Að
vísu voru börnin ekki nema 21
af þeim 24 þúsundum, sem tal-
ið er að sjeu í kommúnista-
ríkjum A-Evrópu, en þó er
þetta spor í áttina. Börnin voru
á aldrinum 5—18 ára og kunna
jyngstu börnin ekki grísku. —
Elstu drengirnir 2 krupu á knje
og kysstu jörðina, er þeir komu
á gríska grund.
JULIANA Hollandsdroitning hefur verið í heimsókn í Bre*.-
landi hjá bresku konungshjónunum og sjest drottning hjer með
George Bretakonungi, er hann sótti hana á Victoriajárnbrautar-
stöðina og ók með henni til konungshallarinnar.
„NY NYLENOUSTEFNA -
RIJSSNESKA TEGUNDIN44
Ivær áiyklunarliiiöguf um Kína bíða afgreiöslu
LAKE SUCCESS, 25. nóv. — Nú bíða 2 ályktanir um Kína
lckaafgreiðslu allsherjarþingsins. Gerir önnur ráð fyrir áfram-
baldandi rannsókn vegna kæru kínversku þjóðernissinnastjórn-
arinnar um rússnesk afskipti í Kína. Hin fer fram á staðfesting
áiyktunarinnar frá í fyrra, þar sem allar þjóðir eru beðnar að
virða sjálfstæði Kína.
Fundi öryggisráðsins
frestað vegna veðurs
LAKE SUCCESS, 21. nóv. —
Öryggisráðið átti að koma sam-
an i dag til að ræða Formósu-
málið og styrjöldina í Kóreu.
Svo vont var veðrið í New
York, að fresta varð fundinum
þangað til á mánudagsmorgun-
inn. — Var fulltrúunum ekki
treyst til að komast klakklaust
á fundarstað.
KUSSUM ÞYKIR «
NÆRKI SJER HÖGGVIÐ
Stjórnmálanefndin hefur sent
báðar ályktunartillögurnar til
þingsins, þótt Rússar og hjá-
ríki þeirra mæltu því í gegn.
Fyrri tillagan gerir ráð fyrir,
að haldið verði áfram rann-
sóknum á kæru þjóðernissinna,
sem segir, að Rússar hafi gert
árás á landið. Seinni tillagan
fer fram á staðfestingu þess,1
að öll ríki virði sjálfstæði Kína
og samninga við landið og leiti
engra sjerstakra áhrifa þar eða
hlunninda. j
Fyrri tillagan var samþykkt
með 34 atkvæðum gegn 17, en
seinni með 28 gegn 6.
NÝ NÝLENDUSTEFNA
Fulltrúi Bandaríkjanna tók
til máls og fórust orð á þá
leið m. a., að síðan 1945 hefði
Kína verið ofurselt „nýrri ný-
lendustefnu — rússnesku teg-
undinni," eins og Truman orð-
aði það nýlega í ræðu í San
Fransiskó.
Fundur verndar-
gæsluráðsins
í New York
LAKE SUCCESS, 25. nóv. —
Verndargæsluráðið kemur sam-
an til næsta fundar síns í New
York, en hann verður að ári.
Ráðið felldi tillögu Rússa um
að reka fulltrúa kínversku
Þjóðernissinnanna úr ráðinu.
Greiddu 2 atkvæði með tillög-
unni, en 9 í gegn.
Eilurgufa banaði 28
manns í Mexíkó
MEXÍKÓ, 25. nóv. — I fyrri
nótt Ijetu 28 manns lífið í borg-
inni Poza Rika í Mexíkó. Eitr-
aðar lofttegundir höfðu mynd-
ast þar í verksmiðju, og dreifð-
ist eiturgufan um borgina, en
mjög kyrrt var í veöri. — Auk
þeirra, sem ljetust, veiktust yf-
ir 300 manns heiftarlega. —
Er slyssins varð vart, sló óhug'
miklum á borgarbúa. — Reuter.
Allsherjarsókn lýðveldis-
manna heldur áfra m
Halnarborgin Chongjin á austurströndinni allin
TÓKÍÖ, 25. nóv. —- Sóknin í Norður-Kóreu hefur gengið vel i
dag, og hefur ekki verið um verulega andspyrnu hommúnista
að ræða. Á einum stað voru þeir þó fastir fyrir, og gerðu jafn-
vel svo harða hríð að lýðveldismönnum, að þeir hrukku fyrir
fyrst í stað, en fengu þó staðigt gagnáhlaupið, er fiá leið. Var
talið. að kínverskir kommúnistar hefði verið þarn; að verkí.
Nýja Kóreunefndin
fer fil Seoul í dag
TÓKÍÓ, 25. nóv. — Tilnefndur
hefur verið fyrsti formaður
nýju Króeunefndarinnar, sem á
að sjá um eining landsins og
viðreisn. Hann heitir Mian Zia-
uddin, frá Pakistan. Annars
verða formannsskipti mánaðar-
lega í nefndinni. Þessar þjóðir
eiga fulltrúa í nefndinni auk
Pakistan: Filipseyjar, Ástralía,
Tyrkland, Chile, Holland og
Thailand. Á morgun (sunnud.)
fer nefndin til Seoul, höfuðborg
ar S.-Kóreu. Þar leysir hún
störf sín af hcndi.
Brelar flyija inn ko!
LONDON, 25. nóv. — Breska
stjórnin hefur tilkynnt, að kol
verði flutt til landsins til að
firra vandræðum. Munu 2 eða 3
millj. smál. kola verða fluttar
inn frá Bandaríkjunum fyrir
um 40 millj. dala.
HAFA TEKIÐ CHCNGJIN
í morgun tók 24. bandaríska
fótgönguliðsherfylkið borgina
Chongju og á austurströnd-
inni hafa Suður-Kóreumenn
tekið hafnarborgina Chongjin,
en hún er tæpa 130 km sunn-
an landamæra Mansjúríu og
ákaflega mikilvæg . Flugher
S. Þ. fer þar fyrir S.-Kóreu-
mönnum, og reynir að gera
þeim hægara um sóknina.
SKÆRULIÐAR í S.-KÓREU
Skæruliðar kornmúnista
valda enn óskunda í Kóreu. Er
jafnvel um stóra skipulagða
flokka að ræða. Megt kveður
að skæruhernaðinum sunnan
38. breiddarbaugsins, ekki alls-
fjarri höfuðborg Suöur-Kóreu,
Seoul.
MANNTJÓN
BANDARÍKJAMANNA
Frá þvi hefir venð skýrt, að
um seinustu helgi hafi mann-
tjón Bandaríkjamanna í styrj-
öldinni í Kóreu verið orðið
tæpar 30 þúsundir. Þar af eru
5000 fallnir, um 20000 særðir
og 4000 er saknað.
Tillögur um nýja skaffa
í Frakklandi
PARÍS, 22. nóv. —: Franska
stjórnin lagði fram frumvarp
um nýja skatta í dag. Nema
þeir 187 millj. franka samtals,
og er ætlunin að jafna þann
veg hallan á fjárlögum ársins
1951. — Reuter-NTB.
Yerkfall í London
LONDON, 25. nóv. — í dag
gerðu um 130 raffræðingar, sem
vinna á vegum „British Over-
seas Air Corporations“ í Lon-
don, verkfall. Krefjast þeir
kjarabóta.
Ráðstefna ræðlr um
mýraköldu
LONDON, 25. nóv. — í næsta
mánuði hefst ráðstefna um
mýraköldu í Nairöbi, höfuðborg
Kenia í Afríku. Um 3 milljónir
manna láta árlega lífið úr þess- J
um sjúkdómi. Ráðstefnan er
haldin á vegum heilbrigðisstofn
tmar S- Þ.
Ræff um úfvegun hrásfna
I.ONDON, 25. nóv. — í dag
hófst ráðstefna Frakka og
Breta um útvegun og verðlag
hráefna. Viðræðurnar fara fram
í London.
Flótti lögreglumanna
BERLÍN. — Seinustu 5 mánuði
hafa 430 lögreglumenn úr „al-
þýðulögreglun,pi“ á hernáms-
svæði Rússa flúið til Vestur-
Berlínar.
Alþjóðaverklýðs-
samband! frjélsra
þjéða vegnar vel
CHICAGO, 25. nóv. — í heim-
inum eru starfándi 2 alþjóðleg
verklýðssamþönd. Annars veg-
ar frjálsra þjóða og hins vegar
kommúnigta. Samband frjálsra
verklýðssambanda er enn ungt
að árum, en vegur þéss.fer sí-
hækkandi.
Vararitara sambandsins, Belg
íumanninum Gust de Muynck,
fórust m.a. svo orð í gær á lands
þinvi iðnaðarsambands Banda-
rikjanna: ,,í Asu er sjerstak-
lega rnikið starf fvrir höndum,
en við ætlum að róa að því öll-
um árum, að lýðræðið verði í
hávegum haft í verklýðsfjelög-
unum. Enginn vafi er á um ár-
angurinn, ef rjett er á málurn
haldið.
Finnar eru öllum frjáfsum
þjóðum til fyrirmyiióSar
Harriman fer lofsamlegum orðum um bará'tu þeirra
WASHINGTON, 25. nóv. — Averell Harriman, sjerstakur að-
stoðarfnaður Trumans, hefur haldið ræðu að viðstöddum finnsk-
um verkalýðsleiðtogum, sem nú eru á ferð í Bandaríkjunum.
Honum fórust svo orð, að allar frjálsar þjóðir ætP að fylg.ia
fordæmi Finna, er þær sæktust eftir frelsi og' virðingu fyrir
mannrjettindum.
BARATTAN GEGN ASÆLNI
KOMMÚNISTA
Harrimann fór lofsorðum um
Finna vegna „feikilegs hug-
rekkis þeirra og einbeitni í
baráttunni gegn árás og ásælni
kommúnista. Þeir njóta aðdá-
unar okkar og við viljum veita
þeirn þá aðstoð, sem við meg-
um. Við þekkjum vandamál
þeirra“.
FJNNÁR RÁÐA SJER
SJÁLFIR
Akúsamu, formaður finnska
verklýðssambandsins, tók til
máls á eftir Harriman. „Við
eigum við mikla erfiðleika að
stríða. Við eigum í höggi við
kömmúnista í verklýðsfjelög-
únum, líka alþjóða kommún-
Harriman fór lofsorðum um
járntjaldsins, og' því ráðum við
okkur sjálfir og vonumst til,
að svo verði enn“.
Fárviðri á auslur-
sirönd Bandaríkj-
anna
NEW YORK, 25. nóv. — í dag
geisaði ofsaveður urn austur-
strönd Bandaríkjanna. — Var
stormurinn gífurlegur og fann-
fergið eftir því. Víða tepptust
samgöngur. Skip, járnbrautir
og flugvjelar hafa orðið að
fresta áætlunarferðum sínum. í
New York varð varla komist
húsa á milli. Komst vindhrað-
inn þar upp í 130 km í bylj-
unum. Veðurstofan hefir var-
að menn við bví, að enn kunnx
ofviðrið að haldast um hríð. —-
Vafalaust hefur fjöldi manns
látið lífið og meiðst í ofviðri
þessu. . i