Morgunblaðið - 24.12.1950, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 24.12.1950, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 24. des. 1950. Versl. Bergþóru Nyborg, Strandgötu 49. Sig. Þ. Skjaldberg h.f, Oii ocj l^aícltA lar Framnesveg 19. ecj fo Fix, kjólaverslun og saumastofa % Garðastræti 2. — Sími 4578. í><t*í*®4>4><Sxs>4-<*>4 C-<®A4kÍx®*í><$>4><s>4*s>4*s><Sxí><íxíxíxSx®h®><s><®>^^ CjteÉife^ jót! ■f gott og farsælt nýár. Þökkum viðskiftin á liðna árinu. ÞY OTT AMIÐSTÖÐIN / eoi e<£ fo ,-// Matardeildin, Hafnarstræti 5. Matarbú&in, Laugaveg 42. Kjötbútf Sólvalla, Sólvallagötu 9. Kjötbúðin, Skólavör&ustíg 22. eoi ecý fo fí! Sœlgcetis- og efnager&in Freyja h.f. eoi ecj fo l' Sverrir Bernhöft h.f. CjíJiLy fói! tieoaecý fO\ og farsælt komandi ár! Sláturfjelag Su&urlands. f w XÍ> Í>4 'SkÍ-Í\» RUNA, PJETUR OG TOMMI urðu mjög spennt, þegar þeim var boðið að dveljast um tíma hjá Alice frænku sinni upp í sveit. Þau áttu heima í London og höfðu aðeins lítinn garð til að leika sjer í, svo þau hlakkaði mikið til að koma í sveitina. Alice frænka átti stóran garð og utan við hann var bersvæði, þar sem þau vissu, að þau gátu ráf- að um heilu dagana. ,,Ó, þetta er allt yndislegt“, sagði Rúna. „Viitu ekki gefa okkur nokkrgr brauðsneiðar, svo við getum verið úti allan daginn? „Jú, sjálfsagt1 var svarið. „Jeg get ekki farið með ykkur í dag, því aö jeg er önnum kafin að búa til sultu; en þið megið ekki fara of langt, og ekki megið þið villast.“ „Ó, nei, frænka — við skulum gæta þess“, sagði Pjetur. „Ef við ekki rötum, spyrjum við til vegar.“ „Og við erum alltof stór til þess að geta villst', bætti Tommi við, sem var aðeins 6 ára. Síðan hoppuðu þau hamingju- söm yfir garðinn og út á ber- svæðið, námu staðar til að njóta fegurðarinnar, þegar þau urðu svöng, en hjeldu síðan áfram til að kanna þetta óþekkta skemmtilega land. Þegar þau höfðu gengið yfir bersvæðið, komu þau að svölum, mjög töfr- andi skógi. „Eigum við ekki að fara svo- lítið lengra“, stakk Pjetur upp á, „ef við förum síðan strax heim á leið og stönsum aldrei, þá verðum við komin heim áður en teið verður drukkið." En þegar þau höfðu gengið dálitla stund, sáu þau að þetta var mjög undarlegur skógur, því trjein tóku að minnka og urðu minni og minni. „Þetta eru töfrar, jeg er viss um það“, muldraði Rúna. „Við getum ekki snúiö aftur núna — við verðum að vita hvert þessi stígur liggur." „Já — og ef þetta skyldi vera einhver töfraskógur, þá verðum við að vera mjög gætin og óska okkur einskis, sem er heimsku- legt, ef við skyldum fá að óska okkur“, sagði Pjetur og hló. „Ó! Jeg er að velta því fyrir mjer, hvort það skyldu vera hjerna nckkrlr álfar“, sagði Tommi. Og þetta var mjög undarlegur skógur, því sum trjen, sem þau nú komu að, voru svo lítil að Pjetur, sem var stærstur, gat stigið yfir þau. „Þetta cr rrglulegur dverga- J Ó L A G A.M A N <í><s><®K®x®H$xí>3xí><®-<sxíxsX5x.xí'<®<$><®H®H®>^xsxsxí><s>4><í><íxí4><®3xí*®><í>4><s>4>'®><®4'4K®K®K®" '4*2 skógur, og — Ó!“ Rúna þagnaði skyndilega og rak upp undrunar óp, því nú voru þau komin að rjóðri í skóginum og þar voru nokkrir skringilegir litlir dverg ar; hún taldi sjö. Þeir höfðu líka sjeð börnin og komu nú í áttina til þeirra. „Halló, risar!“ hrópaði einn hinna litlu dverga, „hvaðan kom ið þið ?“ „Fra—fr—, einhversstaðar þaðan yfir þennan lágvaxna skóg“, svaraði Rúna, hræðslu- lega. í raun og veru hafði hún ekki hugmynd um, úr hvaða átt þau höfðu komið. „En hvaðan komið þið?“ spurði Pjetur. „Eru þið dverg- arnir sjö hennar Mjallhvítar?“ „Mjallhvít? Nei, við höfum aldrei heyrt um þá konu“, sagði dvergurinn og glotti. „Við kom- um einhversstaðar þaðan —- held jeg. Við fórum út í æfin- týraleit, en við erum víst orðin villtir. Auðvitað villast aldrei risar eins og þið, þið getið sjeð svo langt“. „Ja-á, -— við erum líka úti í æfintýraleit“, sagði Pjetur. Hann vildi fyrir engan mun við urkenna, að þau væru orðin villt ef svo skyldi fara, að þessir skrítnu litlu náungar skyldu hlæja að þeim.“ „Gott! Þá er best fyrir ykkur að slást í förina", sagði dvergur- inn. Þetta var sannarlega spenn- andi. „Eru þeir ekki litlir?“ hvísl- aði Rúna. „Jeg vildi-------“ „Uss“, sagði Pjetur — aðeins nógu snemma; því Rúna ætl- aði að fara að óska þess, að þau væru eins lítil og dvergarnir, og í töfraskógi sem þessum, kynni hún að hafa fengið ósk sína upp fyllta. Og ef hún hefði ekki get- að óskað þess, að þau yrðu aftur stór, hefði það verið hræðilegt. „Kubbur varð mjór og lang- ur og liðaðist undir girðinguna Þau komust að því að dverg- amir hjetu, Snobbi, Köggull, Kubbur, Greipur, Bragðarefur, Gortari og loks Boginfótur, vegna þess, að fætur hans voru kengbognir. Börnin gengu áfram um stund ásamt dvergunum sjö, og von- uðust til að eitthvað mundi nú koma fyrir. Og allt í einu skeði það. Þau voru nú komin út úr dvergaskóginum, og framundan var há girðing. Börnin þrjú og dvergarnir sjö námu staðar og st örðu á hana og síðan hvort á annað. Hvað gat verið handan við hana? Þetta var ekki venju- leg girðing, því þegar Pjetur reyndi að klifra yfir hana til þess að sjá hvað hinu megin væri, komst hann að því, að hún var svo sleip, að hann gat með engu móti klifrað yfir hana. En hann mundi þó að hann varð að fara varlega með allar óskir, svo hann vildi ekki óska sjer að hann flygi yfir girð inguna. En dvergarnir voru hinsvegar ekki sparir á óskirnar. „Jeg vildi að jeg gæti flogið“, sagði Snobbi hlæjandi; og á sama augnabliki fjekk hann tvo litla vængi — og yfir girðinguna flaug hann. „Jæja, nú er Snobbi kominn í eitthvert undraland. En jeg held að mig langi ekki til að fljúga“, muldraði Köggull. „Jeg held jeg vildi helst hoppa. Já jeg óska að jeg gæti hoppað.“ Og nú hoppaði hann eins og lifandi bolti, og hann hvarf yfir girðinguna. Kubbur, sem lá flatur á jörð- inni, hafði fundið örlitla rifu undir girðinguna. „Jeg vildi að jeg væri nógu lítill til að skríða hjer í gegn“, möglaði hann. Börnin voru alveg undrandi að sjá hann lengjast og mjókka og verða eins og orm. Og síðan liðaðist hann undir girðinguna. „Ó, þið“, tautaði Rúna, „við verðum að vera varkár og óska okkur einskis, því annars getur eitthvað hræðilegt komið fyrir.“ „Jeg vildi að jeg hefði skóflu — þá þyrfti jeg ekki að verða minni en jeg er núna“, sagði Greipur. Og hann hafði ekki fyrr lokið setningunni, en hann var farinn að fa af miklu kappi. Greipur gróf og gróf, þangað til hann hafði grafið nógu stóra holu fyrir sig til að skríða gegn um. „Ó, skiljið okkur ekki eftir hjer", hrópaði Pjetur. En Greip- Ermah. á bls. 14

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.