Morgunblaðið - 21.03.1951, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.03.1951, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 21. mars 1951 Hábrs fóirt... tgarorð HANN andaðist á sjúkrahúsi hjer í bænum þann 13. þessa mánaðar efitr stutta legu. Fæddur var hann 12. deeember 1873 í Teigabúð á Akranesi. — Voru foreldrar hans Guðrún Há- konardóttir og Halldór Árnasqp. En hann andaðist þegar Hákon var á sjötta ári, frá fjórum ung- um börnum. Má þ.ví geta nærri, að Hákon hefir orðið snemma að fara að hjálpa móðir sinni, með það að draga björg í bú. En hann var elstur systkina sinna, en þau voru: Sigurður, sem lengi bjó á Akbraut á Akranesi; Sigurborg á Veiðilæk i Þverárhlíð, og eru þau bæði látin fyrir all-löngu síðan. Þriðja systkini Hákonar er Halldóra, ekkja Þorláks Guð- mundssonar frá Valdastöðum og er hún enn á lífi. Hákon ólst því upp við fremur kröpp kjöx eins og gefur að skilja. Enda var oft þröngt í búi hjá mörgum við sjóinn á þeim ár- um, þegar afli brást. Þá var óhægara um, að sækja á djúpmið, en nú, síðan vjelaafl- ið fór að knýja fleiturnar áfram. Þá reyndi meira á hreysti og þor þeirra, sem á sjóinn sóttu. Fjekk Hákon því snemma að reyna fangbrögð við Ægi. En alltaf heppnaðist honum að sigla skipi sínu heilu í höfn. Tiltölulega ungur varð Hákon formaður á opnu skipi, og farn- aðist honum æfinlega vel, og brátt var hann kominn í fremstu röð formanna á Akranesi, bæði hvað dugnað og aflasæld snerti. Voru þó fjölmargir dáða drengir í þeim hóp á þeim árum á Akra- nesi og svo mun enn þann dag í dag. Hákon lifði því öll sín bestu manndómsár á Akranesi, en fyrir allmörgum árum flutti hann til Reykjavikur. Og þó að hann skipti um verustað, hætti hann ekki að sækja sjóinn, því að hann „skeitti litt þó kiljan köld klapp- aði hart á vanga“. Nú stýrði hann vjelknúnu fögru flegi, sem að visu þætti ekki stórt á nútíma mælikvarða, en eigi að síður farnaðist honum vel á „Svaninum" sínum, sem hann stýrði um all-mörg ár. — Hann krafðist að vísu all-mikils af mönnum sínum, en um leið, vildi hann að þeir bæru sem mest úr bítum. En alltaf krafðist hann þó mest af sjálfum sjer, enda hlifði hann sjer hvergi. En síðast var hann orðinn einn á i.trillunni" sinni. Dvaldi hann þá svo vikum og mánuðum skipti fjærri heimiii sínu, til þess að draga björg í bú, að vísu með að- stoð góðs fólks, þegar í land var komið. Hákon var tvígiftur. Fyrri kona hans var Þóra N. H. Níels- dóttir frá Lambhúsum á Akra- nesi, ein hin ágætasta kona og af góðu fólki komin. Áttu þau eina dóttur barna, Níelssinu Helgu og er hún búsett hjer í bænum. En nokkru eftir lát konu sinnar flutti Hákon alfarinn til Reykja- vikur. Hákon fór því ekki var- hluta af andbyr þótt í landi væri, fyrst við missi konu sinnar og einnig ýmsu öðru mótdrægu, sem hjer verður þó ekki rakið, en allt bar hann þetta með mikilli ró og prýði. I sambandi við þessar hugleið- ingar kemur upp í huga minn vísa ein eftir eitt af okkar þjóð- frægu góðskáldum, sem hljóðar svo: „Ey var lífið ætíð bjart ýmsir harmar sviðu. Hverfult lán og margt og margt mæddi lífsins yðu“. Hákon giftist aftur eftirlifandi konu sinni, Petrínu Narfadóttir, og hefir hún reynst manni sínum skjól og skjöldur eftir því sem í hennar valdi hefir staðið. Þau eignuðust fjögúr börn, sem öll eru á lífi, en þau eru: Haraldur, Herdís, Þóra og Anna, öll í Reykjavík. Hákon sótti sjóinn fást allt til hins síöasta eins og áður er á minnst, þó að aldur færðist óð- um yfir og -heilsan einnig tekin að bila. Jeg er þess fullviss að hann hafi farið hjeðan sáttur við allt og alla, er hann lagði í hina sið- ustu för, og jeg vænti þess að hann hafi siglt blíðan byr á guðs sins fund, og kvatt sína kæru vini með einlægri þökk fyrir allt allt. En á móti honum munu taka á ströndinni handan við haf- ið þeir ástvinir hans, sem á und- an eru farnir, og bjóða hann vel- kominn til sín. Far heill dáða drengur í drott- ins friði. St. G. 47 símastaurar Hornafirði, þriðjudag. Á FIMMTUDAGINN var, gerði hjer feikna fannkomu og þegar á daginn leið fór veður vax- andi. Svo mikinn snjó hafði hlaðið á símavírana á línunni milli Hóla og Hafnar, að um kvöldið er veður var hvassast brotnuðu 47 sirnastaurar. Munu. bess engin dæmi fyrr að lína bessi hafi orðið fyrir jafn mikl- um skemmdum. Ovíst er hvort hægt verði að gera við simalín- una fyrr en snjóinn hefur tekið upp. Þennan dag voru bátar hjeð- ; an, sem stunda handfæraveiðar . á sjó, og gejtk þeim mjög iila j að ná til lands, sökum dimm- ' viðrisins. Komust þeir ekki inn fyrr en um miðnætti, en þá rof- aði til. Lítið gagn var að hafa af Hvanneyjarvita við innsigl- inguna, því að snjó fennti fyrir ljósker vitans. — Gunnar. ÁSfræð: — Búnaðarþing Framh. af fcls. 2 STÖRF BÚNAÐAR- ÞINGS Búnaðarhingið hafði að þessu sinni 57 mál til meðferðar, 51 af þeim kom til umræðu, en 50 voru afgreidd frá þinginu. Forseti Bjarni Ásgeirsson þakkaði fulltrúum og starfs- mönnum á Búnaðarþingi fyrir unnin störf og ágæta samvinnu og óskaði þeim góðrar. ferðar og góðrar heimkomu. Minntist hann þessa aldarfjórðungs, sem hann hefur átt sæti i stjórn Búnaðarfjelags íslands, og þakkaði Búnaðarþingi það jtraust er það hefði jafnan sýnt sjer, þakkaði meðstarfsmönn- um sínum ágæta samvinnu, og óskaði Búnaðarfjelagi íslands .heilla og framtíðargengis. Sigurður Jónsson á Stafafelli þakkaði forseta góða og lipra fundarstjórn — en þar næst var Búnaðarþinginu slitið. M.s. Herðubreið \ til Snæfellsness-, Breiðafjarðar- og Vestfjarðahafna hinn 28. þ.mm. Tek- ið á móti flutningi tit áætlunarbafna á laugardag og árdegis á þriðjudag. Farseðlar seldir á þriðjudag. „H£KLA“ auslur um land til Slglufjarðar hirm 29. þ.nun. Tekið á mmóti flutningi til áætlunarhafna milli Djúpavogs og Húsavikur á laugardag og þriðjudag. Farseðlar seldir á þiiðjudag. Ármann Tekið á nióti flutningi til Vest mannaeyja í dag. EFTIR miðbik átjándu aldar, bjuggu á Melum í Hraunhreppi, hjónin Guðný Bjarnadóttir og Þorsteinn Helgason og þar fædd- ist þeim 13 börn. Af þeim stóra systkinahópi eru enn á lífi Arn- dís, sem yerður áttræð í dag, Þor steinn skipstjóri í Þórshamri, Kol beinn skipstjóri og Halldór út- gerðarmaður að Háteigi, sem er yngstur þeirra systkina. Arndís fluttist til Reykjavíkur árið 1891, er hún gekk á Kvenna- skólann. Hún ljet^ fljótt til sín taka í fjelagsmálum og starfaði t.d. ötullega að málefnum góð- templara, þar sem hún hefur ver ið í embætti alt fram að þessu, og er nú þeirra heiðursfjelagi. Kristindómsmál hafa jafnan ver- ið henni mjög hjartfólgin. Hún var ein af stofnendum Fríkirkju safnaðarins og starfar nú í Kirkju i nefnd Dómkirkjunnar. Áhugi fyr ir garðrækt og trjárækt greip j fljótt huga hennar, og þar, eins ! og í öðrum málum, var hún heil- steypt og einlæg. Hún gekk á námskeið hjá Einari Helgasyni i Gróðrastöðinni og fór síðar víða um land á vegum Landssambands kvenna, til að leiðbeina í garð- rækt í sveitum og kaupstöðum. Hlaut hún vinsældir í starfi sínu og stofnaði tvö kvenfjelög á þess um ferðum sínum. Um tíma dvaldi Arndís í Flatey á Breiða- firði hjá dóttur sinni Guðnýju Jónsdóttur hjúkrunarkonu, sem gift var sr. Sigurði Einarssyni, en eftir það hefur hún verið bú- sett hjer í Reykjavík hjá Fann- eyju dóttur sinni, sem er gift Jóni Oddgeir Jónssyni fulltrúa. Ekki hefur Arndís verið aðgerð- arlaus þótt hún hætti leiðbein- ingastarfi sínu, því þá hóf hún trjárækt á erfðafestulandi dóttur sinnar í Fossvogi, og má þar nú líta fagran skógarreit, þar sem Arndís viiinur öllum stundum, er við má koma. Arndís er tvígift, en báða menn sína misti hún í sjóinn með stuttu millibili, og eina dóttur sina, Jenny, misti hún uppkomna. En óbilandi trúartraust hennar hef- ur verið huggun í raun, og með andlegu og líkamlegu atgerfi sínu hefur hún jafnan sjeð sjer og sínum farborða í lífinu. Allir vinir hennar færa henni nú bestu hamingjuóskir í tilefni afmælis- ins. Kunnugur. Slæm útkoma verð- ur á Hornafirði Hornafirði, þriðjudag. MENN hjer gera sjer vonir um að eitthvað muni nú fara að rætast úr um aflabrögð, því að qlfca sjá menn hjer fram á eina þá mestu hörmungarvertíð, sem komið hefur síðan útgerð hófst hjeðan. Mesti aflatími vertíðarinnar er nú liðinn og því ekki hægt að búast við góðri útkomu. Tilkynning frd Hitaveitu Reykjavikur Ef fyrir koma alvarlegar bilanir á hitaveitunni hátíða- dagana, verður þá daga tekið við kvörtunum í síma 5359 milli klukkan 9—14. Hítaveita Reykjavíkur. ■ Daglegar ferðir til Vestmannaeyja j m Loitieiðir h.i. Lækjargötu 2 sími 81440 Markút mh £á IW- QO/CK nue' TH£ M£H GOT THS/R CC/.'S AND HAV£ MAGK 1) — Komdu fljótt, Gunnar. ] 2) — Þetta er ljótt að sjá. Það sjest hjeðan framan af Markús kemst aldrei heill á brúninni að tveir af óbótamönn húfi yfir gilskorninginn, nema... unum sitja í launsátri fyri: Markúsi. 3) — Það er lítil von að mjer takist að gera þetta í tæka tíð, en jeg verð sarnt að reyna. 4) Gunnar þrífur þungar. stein af brúninni og kastar hon- um niðiur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.